Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Olía lak í Reykja- víkurhöfn HÁTT í 100 lítrar af olíu láku í sjóinn úr dælu olíuskilju varðskipsins Ægis um klukk- an 15 í fyrradag, þar sem það lá við Ingólfsgarð í Reykja- víkurhöfn. Starfsmenn frá mengunar- vörnum sjávar hjá Hollustu- vernd ríkisins og starfsmenn Reykjavíkurhafnar komu á vettvang. Tveir dælubílar hreinsuðu olíuflekkinn upp af sjávarborðinu. Hreinsunai'- starf tók um tvær klukku- stundir. FRÉTTIR Félagsmálaráðherra hyggst samþykkja tillögu flóttamannaráðs NÆSTI hópur flóttamanna kemur til landsins í júní og hefur honum verið valinn staður í Fjarðabyggð. Páll Pétursson félagsmálaráðherra segir að um 25 einstaklingar verði í þessum hóp en ekki sé ljóst hve margar fjölskyldurnar verða né heldur hvar fólkið verður til heimil- is. Flóttamannaráð gekk í fyrradag frá tillögu um málið sem félags- málaráðhen'a hyggst samþykkja. Flóttamennimir verða líklega frá Króatíu og líklega af blönduðum hjónaböndum. „Það væri að mörgu leyti hentugast fyrir okkur að taka á móti Serbó-Króötum vegna þess að við höfum reynslu af því að taka á móti þeim og höfum aflað okkur gagna sem að gagni geta komið við íslenskukennslu,“ sagði félags- málaráðheiTa. 25 flottamenn til Fj arðabyggðar Þrjú sveitarfélög komu til greina í þessu sambandi, þ.e. Siglufjörður, Fjarðabyggð og Vestmannaeyjar. Siglfirðingar áttu umsókn frá fyrri tíð en félagsmálaráðherra segir að vegna rækjubrests séu ekki góðar horfur í atvinnumálum þar nú um stundir og dró Siglufjörður um- sóknina til baka. Niðurstaða flótta- mannaráðs var sú að Fjarðabyggð tæki á móti flóttamönnunum. Fjarðabyggð þótti hafa góð skil- yrði til að taka á móti þeim. Þar er nægt húsnæði og atvinna og þar er fjórðungssjúkrahús, framhalds- skóli og góð félagsþjónusta. „Mér fínnst flóttamannaverkefn- ið hafa gefið góða raun. Islending- ar hafa skyldur sem rík þjóð í sam- félagi þjóðanna að hjálpa nauð- stöddum. Eg hef lagt áherslu á að það væri gert með myndarlegum hætti með því að taka vel á móti flóttamönnum og hjálpa þeim til að aðlagast íslensku samfélagi," sagði félagsmálaráðherra. I tíð Páls Péturssonar félags- málaráðherra hefur verið tekið á móti um 100 flóttamönnum á fsa- firði, Höfn í Hornafirði og á Blönduósi. Flestir eni frá Krajína- héraði í Króatíu. Félagsmálaráðherra segir að það hafi vakið athygli erlendis hvernig íslendingar hafa staðið að þessum málum og sendi breska sjónvarpsstöðin BBC t.a.m. sjón- varpslið til að gera þátt um málið. Hér á landi njóta flóttamennirnir framfærslu nTíisins fyrsta árið en eru eftir það á eigin vegum og njóta félagsþjónustu síns sveitarfé- lags. Annars staðar sé þannig stað- ið að málum að flóttamönnum er heimiluð vist en ekkert svipað gert í því að aðlaga þá vistinni og hér- lendis. Á hinum Norðurlöndunum séu komin upp mikil vandamál af þessum sökum sem erfitt sé að leysa úr. Gæsastofninn á Reykjavíkurtjörn Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Húmanistaflokkur- inn býður fram í al- þingiskosningum HÚMANISTAFLOKKURINN hefur ákveðið að bjóða fram í næstu alþingiskosningum, segir í fréttatilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér í gær. Flokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram í Reykjavík og á Reykjanesi og stefnan er að reyna að bjóða fram í öllum kjördæmum, sagði Kjartan Jónsson, sem skipar 1. sæti listans í Reykjavík. Meth- úsalem Þórisson skipar 2. sæti list- ans í Reykjavík. Kjartan sagði að takmark flokksins í kosningunum í vor væri að fá mann á þing en hann taldi það samt frekar óraunhæft eins og staðan væri í dag. „Rauði þráðurinn í okkar bar- áttu er mannréttindabarátta,“ sagði Kjartan. „Við viljum leggja mesta áherslu á afnám fátæktar á íslandi." í yfirlýsingu frá flokknum kem- ur fram að það sé algerlega óviðun- andi að á Islandi skuh finnast fá- tækt þar sem landið sé með 5. hæstu þjóðartekjur á mann af OECD-ríkjunum. Til þess að af- nema fátækt vill flokkurinn að lág- marksframfærsla fyrir hvern ein- stakling verði 90.000 krónm' og að sett verði lög um að lágmarkslaun verði 100.000 krónur sem og skatt- leysismörk. Tillaga flokksins er að fjár- magna þetta með því að bylta líf- eyi-issjóðakerfinu, koma á gegnum- streymissjóði að hætti Svía, þar sem ekki er persónuleg uppsöfnun heldur er borgað beint út til ör- orkubóta og ellilífeyris það fé sem greitt er í sjóðinn. Áuðlindagjald af fiskistofnum og veltuskattur af verðbréfaviðskiptum yrði einnig notaður til að fjármagna hækkun skattleysismarka og lágmarks- launa. Húmanistaflokkurinn bauð fyrst fram í sveitarstjórnarkosningunum árið 1986. Skýrsla endurskoðanda lögð fram á hreppsnefndarfundi í V-Landeyjum Yerulegar mis- færslur í bókhaldi hreppsins Morguíiblaðið/Stemunn Ósk Kolbeinsdóttir MINNIHLUTI hreppsnefndar V-Landeyjahrepps, skipaður Hirti Hjartarsyni og Berglindi Bergniann, lýsir allri ábyrgð á fjárniálamis- ferli hreppsins á hendur fyrrverandi oddvita og samstarfsmönnum hans. Fylgst verður með fóðrun í febrúar HEILBRIGÐIS- og umhverfis- nefnd Reykjavíkur hefur sam- þykkt tillögn um að í febrúar verði fylgst með hversu margir koma og gefa fuglunum sem halda til á Tjörninni og jafn- framt að meta hversu mikið þeim er gefið. í greinargerð með tillögu þeirra Ólafs K. Nielsen og Jó- hanns Pálssonar garðyrkju- stjóra um gæsastofninn á Tjörn- inni, segir að vegna umræðu um fuglana á Tjörninni leggi þeir til að fæðuframboð Tjarnarfugl- anna verði mælt. Það er hversu mikið brauð megi gera ráð fyrir að þeir fái að jafnaði yfir vetur- inn. Unnt að svara fullyrðingum Vitað er hversu margir fugl- arnir eru og hver fæðuþörf þeirra er og ef vitneskja fæst um hversu mikið þeim er gefið verði unnt að svara fullyrðing- um um að verið sé að svelta þá. Lagt er til að valdir verði af handahófi fimm virkir dagar og fimm helgidagar í febrúar og að maður verði þessa daga við Tjörnina meðan bjart er til að telja hversu margir koma til að gefa fuglunum og jafnframt hversu mikið þeim er gefíð. VERULEGAR misfærslur í fjár- hagsbókhaldi Vestur-Landeyja- hrepps komu fram við endurgerð ársreiknings sveitarfélagsins fyrir árið 1997. Einar Sveinbjömsson, löggiltur endurskoðandi, lagði fram greinargerð vegna vinnu við ársreikninginn á hreppsnefndar- fundi V-Landeyjahrepps í gær og var reikningurinn tekinn til fyrri umræðu. I greinargerð endurskoðandans kom fram að samþykktur ársreikn- ingur sveitarsjóðs fyrir árið 1997 er í veigamiklum atriðum ekki í samræmi við ákvæði reglugerðar um bókhald og ársreikninga sveit- arfélaga, fyrirtækja þeirra og stofnana og er hann ekki gerður eftir leiðbeinandi reglum Sam- bands íslenskra sveitarfélaga um gerð þessara gagna að því er segir í niðurstöðu greinargerðarinnar. Þar segir ennfremur að inn- og út- borganir hafi í sumum tilvikum ekki verið færðar undir rétt reikn- ingsár og færð hafa verið rekstrar- gjöld í ársreikningum sveitarsjóðs, sem ekki verður séð að tilheyri sveitarsjóði. Eggert Haukdal, oddviti V- Landeyjahrepps, sem sagði af sér 17. desember 1998, undimtaði ábyrgðaryfirlýsingar fyrir hönd hreppsins án þess að formleg heimild hreppsnefndar lægi fyrir. 4,1 milljónar skuld oddvita við sveitarsjóð Þá kom ennfremur fram í gi’ein- ai-gerð endurskoðandans, að færsl- ur hefðu verið gerðar í viðskipta- reikningi Eggerts, sem ýmist hefðu farið fram án heimildar eða samþykktar hreppsnefndar eða færslur hefðu verið gerðar án þess að séð yrði að þær hefðu átt rétt á sér. Þannig hefðu leiðréttinga- færslur í viðskiptareikningi Egg- erts leitt til þess að staða hans við sveitarsjóð í árslok 1997 breyttist úr inneign að fjárhæð rúmum 19 þúsund krónum í skuld upp á 4,1 milljóni króna með áætluðum van- skilavöxtum. Þar eru taldar 1.202 þúsund krónur vegna ábyrgðaskuldbind- ingar Eggerts sem hann ritaði í nafni hreppsins með vitund tveggja hreppsnefndarmanna en án heim- ildar hreppsnefndar, 1.327 þúsund króna greiðslur á árunum 1996 og 1997, sem umfram reiknuð og gjaldfærð laun og 500 þúsund króna bakfærð gjaldfærsla vegna vegaframkvæmda. Á árinu 1998 greiddi Eggert 2,8 milljónir króna í viðskiptareiking sinn hjá sveitar- sjóði. Hjörtur Hjartarson og Berglind Bergmann, sem skipa minnihluta hreppsnefndar, lögðu fram bókun á fundinum þar sem sagði að athug- un endurskoðandans á bókhalds- gögnum sveitarfélagsins hefði leitt í ljós að grunsemdir um alvarlegt misferli hefðu því miður átt við rök að styðjast. í bókuninni sagði enn- fremur að bókhald sveitarfélagsins væri ekki í samræmi við lög og reglur þar um og að greiðslur og ábyrgðir hefðu tíðkast án heimild- ar hreppsnefndar, að vísvitandi hefði verið farið með blekkingar og rangfærslur um fjármál hreppsins, að virðisaukaskattsskil væru ekki í samræmi við lög og að stjórnsýslu- brot hefðu verið framin. „Skýrsla endurskoðandans vegna endurgerðar á ársreikningi 1997 staðfestir ennfremur að þörf er á verulegri bragarbót á stjórn- sýslu Vestur-Landeyjahrepps. Það er skoðun okkar að fram- ganga fyrrverandi oddvita og með- reiðarmanna hans er verulega ámælisverð og lýsum því allri ábyrgð á hendur þeim,“ sagði enn- fremur í bókuninni. Nýr oddviti hreppsins, Brynjólf- ur Bjarnason, var kjörinn á fundin- um og situr í meirihluta ásamt Vil- borgu Jónsdóttur og Jóni Gunnari Karlssyni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.