Morgunblaðið - 18.02.1999, Side 14

Morgunblaðið - 18.02.1999, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR f PMh W fi /^>é 1 i ii Morgunblaðið/RA Gluggaþvottur ÞAÐ er töluvert verk að þrífa tjöru og óhrein- ferða enda betra að hafa rúðurnar hreinar og indi sem setjast, á rúðurnar í strætisvögnunum. gott útsýni til allra átta þegar sólin er lágt á Vagnstjórinn gaf sér tíma til verksins á milli lofti. Tekinn með 32 þúsund mjólkursýrutöflur í Leifsstöð Dæmdur fyrir innflutning á steratöflum og hraðakstur 26 ÁRA gamall maður, búsettur í Kópavogi, var á mánudag dæmdur í skilorðsbundið 45 daga fangelsi fyrir tilraun til ólögmæts innflutnings í janúar 1997 á 32 þúsund töflum er hann taldi innihalda karlkynshoiTnón með anabóliskri verkun, en svo reyndist ekki vera. Sýnishom af töfl- unum voru send í rannsókn og kom þá í Ijós að engin þekkt ávana- eða fíkniefni eða lyf, þar á meðal sterar, voru í töflunum. Hins vegar þótti sannað þegar litið var til framburðar ákærða við rannsókn málsins að hann hefði smyglað töflunum til landsins í þeirri trú að um væri að ræða töflur sem innihéldu karlkynshormón með anabólískri verkun. Með þeirri hátt- semi taldi dómui’inn að maðurinn hefði gerst sekur um tilraunaverkn- að, sem varðar við tollalög. Ætlaði að villa um fyrir eiginkonu sinni Akærði sagði frá því við handtöku að hann hefði farið til London þann 18. janúar 1997 með kunningjakonu sinni til að skoða tæki sem hann hugðist kaupa í líkamsræktarstöð sína. Sagðist hann hafa keypt stera- töflur af ókunnungum manni og setti þær í farangur kunningjakonu sinn- ar án hennar vitundar. Þessum framburði breytti ákærði síðan fyrir dómi og nefndi þá kunningjakonu sína til sögunnar sem ástkonu sína. Maðurinn, sem þá var kvæntur, sagði eiginkonu sinni að hann ætlaði að kaupa hormónalyf um leið og hann skoðaði líkamsræktartækin, í þeim tilgangi að fæla eiginkonuna frá því að koma með sér, því hann ætlaði með ástkonunni. Til að sýna eiginkonu sinni fram á trúverðuga ástæðu fyrh' því að hafa verið einn á ferð sagðist ákærði hafa fengið mjólkursýrutöflur hjá kunningja sín- um til að taka með sér heim. Sagði ákærði ennfremur að hann hefði sett töflurnar í farangur ást- konu sinnar, en þeim ætlaði hann síðan að fleygja þegar heim kæmi þegar hann væri búinn að sannfæra eiginkonu sína um að „ferðin hefði verið eins og hún átti að vera“. Sú frásögn ákærða fyrir dómi að hann hefði flutt töflumai' til landsins til þess eins að villa um fyrir eigin- konu sinni þótti bæði ótrúverðug og fjai’stæðukennd. Á ofsahraða undan lögreglu Akærði var ennfremur sakfelldur fyrir að hafa veitt viðtöku 3000 steratöflum af ónafngreindum manni, en þær töflur fann lögreglan í hanskahólfi bifreiðar ákærða að lok- inni efth-för á allt að 160 km hraða, sem endaði á móts við Laxalón við Vesturlandsveg 28. apríl 1998. Ákærði, sem var próflaus fyrir, var sviptur ökurétti í 3 mánuði og dæmdur í 80 þúsund króna sekt. Þá var ákærði sakfelldur fyrir að hafa veitt viðtöku 591 steratöflu af ónafngreindum manni, en töflurnar fann lögreglan á líkamsræktarstöð ákærða í Reykjavík. Barátta gegn peningaþvætti Astandið í heild ágætt hérlendis „ALLT formlegt fyrirkomulag mála hérlendis er varða baráttu gegn peningaþvætti er í góðu horfi og uppfyllir vel þær kröfur sem við höfum gengist undir í tengslum við evrópska samvinnu," segir Jón H. Snorrason saksóknari hjá embætti ríkislögreglustjóra. „Island er komið mikiu lengra en t.d. Austur- ríki, Kína og Singapúr, en þetta er hins vegar eilífðarmál og því er þessi niðurstaða eingöngu áfanga- sigur.“ Hann sat í seinustu viku fund í París þar sem farið var yfir stöðu þessara mála, en nýverið lauk at- hugun á vegum úttektarnefndar EFTA á stöðu mála varðandi pen- ingaþvætti hérlendis, þ.e. hvernig löggjöfin stendur hérlendis og hvernig yfirvöldum miðar að upp- fylla alþjóðlegar kröfur um baráttu gegn peningaþvætti og upplýsa mál á því sviði. í stöðugri vinnslu „Úttektin sýndi að ýmislegt má betur fara eða vinna áfram, en í heild er ástandið ágætt. Einkum stöndum við okkur vel hvað varðar þá vinnu að hægt sé að ná greiðlega í peninga sem tengjast peninga- þvætti, upptökuákvæði og annað þess háttar," segir Jón. „Einnig má nefna að ástandið hér þykir ágætt hvað varðar að tálma þær leiðir sem menn nota til að fela peninga, og má í því sambandi nefna að við höfum fyrir mörgum árum afnumið nafnlausar banka- bækur. Sum ríki hafa ekki ennþá losnað við þær, þó það að útiloka slíka möguleika sé talið eitt grund- vallaratriðið í þessari baráttu. Það á t.d. við um Austurríki og er landið gagnrýnt harðlega fyi-ir vikið. Stað- an hérléndis er þó eingöngu skref í baráttunni því þetta verkefni er í stöðugri vinnslu." Jón segir ljóst að í samvinnu milli landa um baráttu gegn peninga- þvætti, verði stöðugt brýnna að reyna að átta sig á hvað á sér stað þegar peningar hreyfast yfir höf og landamæri. „Fjármálaheimur nú- tímans hefur engin landamæri og þá er sömu sögu að segja um brot sem honum tengjast og flutninga á jjl illa fengnu fé. Ef brugðist er við um jj seinan, þegar þolandi fjársvika eða auðgunarglæps áttar sig loks á stöðunni, eru allir peningar á bak og burt. Þá hefur það markmið brotamannsins að ná sér í fé og koma því undan, tekist, þó svo mögulega sé hægt að koma yfir hann refsingu. Tilgangur þeiiTa sem fást við rannsóknir á efnahags- og auðgunarbrotum hlýtur ekki a eins að vera að koma lögutn yfir menn sem brjóta af sér, heldur g einnig að tryggja að glæpir borgi sig ekki, þ.e. koma í veg fyrir að brotamenn nái hagnaðinum. Besta leiðin til að ná því marki er að sjálf- sögðu að komast inn í málin þegar verið er að flytja peningana á milli,“ segir Jón. Bankaleynd aflétt Hann segir að þegar grunur leiki á að peningafærslur um fjármála- stofnanir tengist hegningarlaga- brotum eða brotum á ávana- og fíkniefnalöggjöf, eða þegar pening- ar virðist ekki hafa eðlilegar fjár- hagslegar skýringar, sé bankaleynd aflétt í samræmi við lög um varnir gegn peningaþvætti. Á fundinum í París hafi menn lagt áherslu á að um viðvarandi vandamál væri að ræða og löggjöf í hverju landi fyrir sig þyrfti að vera samræmd með þeim hætti að viðbrögð lögreglu við peningaþvætti væru alls staðar eins eða mjög áþekk. Að öðrum kosti væri hætta á að snurða hlypi á þráð- inn í rannsóknum á þessum glæp- um. „Ef land sem við þurfum að eiga samskipti við vegna rannsókna á peningaþvætti hefur aðra nálgun en við stöðvast allt kerfið. Löggjöfin, heimildir og önnur skilyrði verða því að vera mjög svipuð, og því mið- ur hafa menn ekki náð að uppfylla það alls staðar í heiminum," segii’ Jón. I Hólabraut — Hafnarfirði Vorum að fá í einkasölu nýtt, glæsilegt sjö íbúða hús með 2ja og 4ra herb. herb. íbúðum. Þrír bílskúrar fylgja. íbúðirnar skilast full- frág. að utan sem innan en án gólfefna. Teikningar á skrifstofu. Fjallalind — parhús Vorum að fá í einkasölu 180 fm parhús á tveimur hæðum. Suð- vesturgarður. Frábær staðsetning fyrir ofan götu. Húsið er ekki fullb. en vel íbúðarhæft. Verð 14,3 millj. Trönuhjalli Falleg 100 fm 4ra herb. endaíbúð. Áhv. byggsjóður 5 millj. Bergstaðastræti — glæsil. „penthouse“ m. bílskúr Vorum að fá í einkasölu glæsilega 108 fm 3ja—4ra herb. íbúð í nýlegu húsi. 25 fm innb. bílskúr. Áhv. byggsj. 5 millj. Vantar 4ra herb. — Seljahverfi — Bakkar Höfum traustan kaupanda að 4ra—5 herb. íb. á verðb. 6—9 m. Valhöll, fasteignasala, Sfðumúla 27, sími 588 4477. Raforkusala jókst í fyrra um 12,4% frá árinu áður RAFORKUVINNSLA á landinu nam samtals 6.276 GWh á árinu 1998 og hafði aukist um 12,4% frá árinu á undan. Aukningin skýrist fyrst og fremst af aukinni raforku- notkun hjá íslenska álfélaginu í Straumsvík og tilkomu verksmiðju Norðuráls á Grundartanga. Á síð- ustu tveimur árum hefur raforku- vinnsla aukist um samtals 1.163 GAVh sem er rúmum fjórðungi meira en öll vinnsla Blönduvirkjun- ar á síðasta ári. Raforkunotkun er yfirleitt skipt niður í tvo meginþætti, for- gangsorku og ótryggða orku. Meg- inhluti notkunarinnar er for- gangsorka en með ótryggðri orku er átt við notkun þar sem samið hefur verið um að skerða megi notkunina t.d. þegar erfiðleikar eru í vatnsbúskap virkjana. Notkun forgangsorku nam sam- tals 5.219 GWh og eru dreifitöp þá meðtalin. Notkunin jókst um 13,3% frá fyrra ári. Stórnotkun nam 2.942 GWh og jókst um 46,2% en almenn notkun nam 2.277 GWh og jókst um 2,5%. Þegar tekið hefur verið tillit til lofthita, en raforkunotkun ræðst talsvert af hitastigi, er aukn- ing almennrar notkunar 2,3%. Síð- ustu tvö árin hefur notkun al- mennrar forgangsorku aukist um 109 GWh og stómotkun um 1.311 GWh. Aukning almennrar notkunar hefur verið nálægt 2,5% síðustu fjögur ár, en næstu sex ár þar á undan var aukningin minni. Meg- inástæðan fyrir þessu er uppsveifl- an sem nú er í atvinnulífi lands- manna en áætlað er að landsfram- leiðsla hafi aukist yfir 5% á ári síð- ustu þrjú árin. Raforkunotkunin sveiflast að jafnaði með landsfram- leiðslunni, en sveiflurnar eru þó að jafnaði minni í raforkunotkuninni enda er vöxtur hennar einungis um helmingur á við vöxt landsfram- leiðslu síðustu árin. Aftur á móti er eftirspurn eftir raforku mun meiri en fólksfjölgun landsmanna, en landsmönnum hefur fjölgað um 0,8% að jafnaði á ári síðustu fjögur árin. Meiri notkun en orkuspárnefnd reiknaði með Notkun á ótryggðri orku nam samtals 793 GWh á síðasta ári og minnkaði um 32% á milli ára. Minni notkun skýrist fyrst og fremst af ákvörðun Landsvirkjun- ar í fýrra að skerða ótryggða orku vegna hættu á vatnsskorti. Raforkunotkunin á síðasta ári er nokkuð meiri en spáð var í skýrslu orkuspárnefndar, sem út kom í desember 1997. Þá var reiknað með að almenn raforku- notkun árið 1998 ásamt dreifitöp- um yrði 2.297 GWh, en notkunin varð hins vegar 2.542 GWh. 1 spánni var reiknað með að raf- orkunotkun stóriðju yrði 3.019 GWh, en notkunin varð 3.470 GWh. Samtals reiknaði orkuspár- nefnd með að raforkunotkun árið 1998 yrði 5.483 GWh, en hún varð hins vegar 6.276 GWh. A:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.