Morgunblaðið - 18.02.1999, Page 18

Morgunblaðið - 18.02.1999, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Sveinn Sigurbjarnarson FRA stofnfundi nýs ferðamálafélags á Austurlandi sem haldinn var í Golfskálanum á Ekkjufelli. I forgrunni má þekkja talið frá vinstri: Emil Björnsson, Guðmund Bjarnason, Smára Geirsson, Björn Hafþór Guðmunds- son, Jóhönnu Lárusdóttur, Sigfús Vilhjálmsson, Benedikt Hrafnkelsson og Helgu Jónsdóttur. Nýtt ferðamálafélag á Austurlandi Vaðbrekku, Jökuldal - Nýtt hags- munafélag í ferðaþjónustu var stofn- að nýlega í Golfskálanum á Ekkju- felli. A fimmta tug manna sat stofn- fundinn og nær starfssvæði félagsins frá Streitishvarfi í Breiðdal norður á Bakkafjörð. Markaðsskrifstofa Aust- urlands stofnaði og stendur að baki ferðamálafélaginu en hún mun hafa á sinni könnu að markaðssetja Austur- land. Með stofnun þessa félags gefast ný tækifæri til enn frekari markaðs- sóknar í ferðamálum á svæðinu og fram kom almenn ánægja hjá fundar- mönnum með að takast skyldi að sameina alla hagsmunaaðila á svæð- inu í eitt félag. Að félaginu standa fjölmargir hagsmunaaðilar í ferða- þjónustu og sveitarfélög á svæðinu koma með mjög myndarlegum hætti að málinu. Rétt til aðildar að félaginu eiga fyrirtæki, sveitarfélög stofnanir og einstaklingar er hafa hagsmuni af ferðaþjónustu og vilja vinna að fram- gangi hennar. Undirbúningsvinna vegna stofnun- ar Markaðsskrifstofu Austurlands hefur verið í fullum gangi frá því í nóvember og hafa Þróunarstofa Austurlands og Ferðamálasamtök Austurlands staðið fyrir þeirri vinnu. Starfsmaður þeirra við það verkefni hefur verið Asmundur Gíslason frá Árnanesi á Hornafirði. Stjórn hins nýja ferðamálafélags er skipuð Jónasi Hallgrímssyni, Seyðisfii’ði, en hann er formaður fé- lagsins, meðstjórnenur ena Sveinn Sigurbjarnarson, Eskifirði, Guð- mundur Ingvarsson, Neskaupstað, Jóhanna Agnarsóttir, Fáskrúðsfirði, Auður Ingólfsdóttir, Egilsstöðum, Svava Víglundsdóttir, Vopnafirði, og Sif Hauksdóttir, Breiðdalsvík. Vara- menn eru Aðalsteinn Jónsson Klausturseli, Gunnlaugur Jónasson, Egilsstöðum, og Jónas Bjarki Björnsson, Breiðdalsvík. Að sögn Jónasar Hallgrímssonar, formanns félagsins, er ekki búið að ákveða nafn á félagið en að öllum líkindum verður það gert með opinni sam- keppni. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Dorgað á Urriðavatni Vaðbrekku, Jökuldal - Elfríð Pálsdóttir frá Dalatanga er mik- ill veiðiáhugamaður og var á dögunum að dorga gegn um ís á Urriðavatni. Elfríð var búin að fá tvær bröndur þegar fréttarit- ara bar að garði. Sagði hún að betur hefði aflast daginn áður, en þá fékk hún 800 gramma fisk. í fyrra fékk hún mest 18 fiska yfir daginn. Elfríð sagðist hafa mikinn áhuga á að dorga gegn um ís eins og að veiða að sumrinu, maður hennar Erlendur Magn- ússon er oftast með henni en hann hafði brugðið sér frá til að sinna öðru áhugamáli og farið í smíðatíma með eldri borgurum. Elfríð notar ánamaðka sem hún ræktar sjálf ásamt rækju og maísbaunum í beitu en segir veiðast best á maðkinn og baun- irnar. Verðlaun fyrir til- lögur að útivistar- svæði í Garðinum Rithöfund- ar í heim- sókn í Höfðaskóla Skagaströnd - Kristín Helga Gunnarsdóttir og Þorgrímur Þráinsson rithöfundar voru á ferðinni í grunnskólunum í Austur-Húnavatnssýslu einn daginn fyrir skömmu. Komu þau í skólana og lásu upp úr verkum sinum fyrir nemend- urna við góðar undirtektir. Að lestri sinum loknum svöruðu þau spurningum krakkanna um það sem þeim Iá á hjarta. Þorgrímur lýsti yfir sérstakri ánægju sinni með krakkana í Höfðaskóla á Skagaströnd, en skólinn er algjörlega reyklaus Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson ÞORGRIMUR Þráinsson rithöfundur áritar bækur sínar fyrir krakk- ana í Höfðaskóla. annað árið í röð. Hvatti Þor- grímur, sem er framkvæmda- stjóri Tóbaksvarnanefndar, krakkana til að halda sínu striki og velja reyklausa leið gegnum lífið. I vetur eru um 110 nemendur við nám í Höfða- skóia. Garði - Landslagsarkitektamir Bjöm Jóhannsson og Bjöm Axelsson sigr- uðu í hugmyndasamkeppni, sem Gerðahreppur stóð að, vegna fyrir- hugaðs skrúðgarðs og útivistar- svæðis í miðbænum en úrslit keppn- innar voru tilkynnt sl. laugardag í samkomuhúsinu. Þeim til aðstoðar við vinnslu tillögunnar var Guð- björg Björnsdóttir, grafískur hönn- uður. Alls bámst 6 tillögur en veitt vom þrenn verðlaun, samtals 500 þúsund krónur. Fyrstu verðlaunin vora 250 þúsund. Önnur verðlaunin 150 þúsund krónur, en þau fékk Pétur Jónsson landslagsarkitekt og þriðju verðlaunin Ragnhildur Skarphéðinsdóttir landslagsarki- tekt. Dómnefndin var skipuð hrepps- nefndinni og þeim til aðstoðar var Brynjólfur Guðmundsson frá Verk- fræðistofu Suðurnesja. Kom fram að dómnefndin taldi að lítill munur hefði verið á niðurstöðum við matið á tillögunum sem lentu í fyrsta og öðru sæti. í álitsgerð dómnefndar kemur fram að aðaláherzla var lögð á þrennt við mat á tillögunum. I fyrsta lagi fagurfræðilega þáttinn þar sem horft var til hvernig svæðið lagaði sig að mannvirkjum á svæð- inu, gi-óður liti út í fullum skrúða og gangstíga. Þá var skoðað notagildi svæðisins fyrir hinn almenna íbúa, bæði til daglegrar notkunar og á há- tíðarstundum. Loks var lagt mat á kostnaðinn við að hrinda tillögunni í framkvæmd. Hreppsnefndarmenn era almennt ánægðir með lokaútkomuna en ljóst er að verkefnið mun taka nokkur ár og framkvæmdin er ekki komin á fjárhagsáætlun. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson SIGURVEGARARNIR í hugmyndasamkeppni Gerðahrepps um skníðgarð og útivistarsvæði. Talið frá vinstri: Sigurður Ingvarsson oddviti og landslagsarkitektarnir Ragnhildur Skarphéðinsdóttir, Pétur Jónsson og sig- urvegararnir Björn Axelsson og Björn Jóhannsson. «g!»! SVÆÐIÐ þar sem væntanlegt útivistarsvæði og skrúðgarður á að vera, er milli Garðbrautar og Eyjaholts annars vegar og Heiðarbrautar og Silfurtúns hins vegar. 2ja-3ja herbergja ★ Staðgreiðsla ★ Engin bið eftir húsbréfum Höfum veriö beðnir aö leita eftir 2ja-3ja herb. íbúðum í Reykjavík á sæmilega hagstæðu verði. Sterkar greiðslur í boði. Engin bið eftir húsbréf- um. Hafið samband við sölumenn okkar Við skoðum og verðmetum samdægurs Valhöll fasteignasala sími 588 4477, GSM símar sölumanna 699 3444, 899 1882, 896 5222 og 896 5221.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.