Morgunblaðið - 18.02.1999, Page 20

Morgunblaðið - 18.02.1999, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNUMAL A SUÐURFJORÐUM AUSTFJARÐA Yfirrað helstu fram- leiðslutækja og kvóta á Stöðv- arfirði og Djúpavogi er hjá sjávarútvegsfyrirtækjum í fjarlægum landshlutum. Fyr- irtækin virðast hafa hug á að reka áfram atvinnustarfsemi á þessum stöðum. Má líkja stöð- unni við ástandið á staðnum á milli þeirra, Breiðdalsvík, áður en aðstæður breyttust og nýr meirihlutaeigandi Búlandstinds hf. ákvað að hætta allri starfsemi þar. Eftir Breiðdalsævintýrið gætir ákveðins ótta við að eins gæti farið fyrir Stöðvarfirði og Djúpavogi. Hefm' það einnig áhrif að fólk veit af rekstrar- erfíðleikum Snæfells hf. sem er með starfsemi á Stöðvar- fírði og skipulagsbreytingum hjá Búlandstindi sem verið hefur burðarásinn í atvinnulíf- inu á Djúpavogi. Loka fyrst hér Einar Ásgeirsson, skipstjóri á Kambaröst SU frá Stöðvar- fírði, hefur áhyggjur af at- vinnumálum í sinni gömlu heimabyggð, Breiðdalsvík, en segir að það sem gerst hefur þar geti gerst hvenær sem er á Djúpavogi og Stöðvarfirði, forsendurnar séu þær sömu. „Þá er komið að þætti okkar heima- manna. Ef við berum ekki gæfu til þess að snúa bökum saman og vinna sameiginlega úr þeim vandamálum sem blasa við, leggst byggð af á þessum stöðum,“ segir Einar. „Það hvarflar ekki að mér eitt augnablik að ef veiðiheimildir drag- ast saman eða aðstæður breytast að öðru leyti, að Snæfell hf. loki frysti- húsinu á Dalvík á undan húsinu á Stöðvarfírði. Hið sama gildir um Djúpavog, þar verður lokað á undan Grindavík. Það er verkefni okkar heima- manna að gera þessi byggðarlög að- laðandi fyrir þá aðila sem þegar eigi fyrirtæki á stöðunum. Hugsanlega væri það leið fyrir okkur að samein- ast um kaup á veiðiheimildum sem eymamerktar yrðu viðkomandi byggðarlagi og unnar í því. Hag- kvæmt gæti verið að fá fyrirtækin til að sjá um veiðar og hugsanlega vinnslu aflans. Treysti ég á að stjómvöld, lánastofnanir og þau virtu fyrirtæki sem áður tengdust atvinnustarfsemi á þessum stöðum, til að mynda Olíufélagið og VÍS, komi okkur til hjálpar í því efni,“ segir Einar Ásgeirsson. Morgunblaðið/Sverrir ÞORSKURINN er keyrður í burtu en aukategundirnar unnar í frystihúsinu á Stöðvarfirði. Starfsfólkið er brosmilt þrátt fyrir óvissuástand. eitt bregðist eru nú fleiri kostir,“ segir Ólafur. Hann segir að Vísismenn séu fullir af áhuga, ætli meðal annars að byggja aðstöðu við frysti- húsið til að taka við síld og loðnu. Hann vekur athygli á því að búið er að koma upp fiskmarkaði og smábátarnir því ekki lengur háðir einum stórum kaupanda. Þá segir hann að tvær litlar saltfisk- verkanir séu nú reknar á Djúpavogi. Hann segist sannfærður um að breytingar hafi orðið til góðs. Fiskverkafólk hafi ekki haft vinnu yfir veturinn hjá Búlandstindi. Fólk hafi ekki sætt sig við það og flutt í burtu. Á síðasta ári fækkaði íbúum Djúpavogshrepps um 43 og_ eru þeir nú innan við 500. Ólafur segir að nú hafí fólkið vinnu við saltfiskverk- un allt árið og vonast hann til þess að það verði til að snúa við íbúaþróuninni. „Við sem stjórnum sveitarfélaginu þurfum að gera það ákjósan- legt að vera hér með starf- semi,“ segir sveitarstjórinn og getur þess á að búið er að breyta opnun leikskóla og grunnskóla með tilliti til vinnutíma fólks í saltfisk- vinnslunni. Brestir 1 fj öregginu Framleiðslutæki og kvóti Stöðfírðinga og Djúpavogsbúa er í höndum sjávarútvegsfyrirtækja í öðrum héruðum. Skapar þetta ákveðna óvissu á stöðunum og ótta við að einn góðan veður- dag kunni að fara fyrir þeim eins og Breiðdælingum. Fram kem- ur í grein Helga Bjarnasonar að ákveðnir einstaklingar vilja auka samstarf staðanna þriggja til að eignast kvóta og tryggja atvinnu. Þorskurinn keyrður norður Stöðvarhreppur eignaðist meiri- hlutann í Gunnarstindi hf. fyrir fjór- um árum eftir stutta en storma- sama sambúð í fyrirtækjarekstri með Breiðdælingum. Björgvin Val- ur Guðmundsson oddviti segir að hreppurinn hafi ekki haft efni á því að auka hlutafé eins og þurfti og hætta verið á að fyrirtækið færi í þrot. Því hafi verið ákveðið að selja Snæfelli hf. á Dalvík, sjávarútvegs- fyrirtæki Kaupfélags Eyfirðinga, meirihluta fyrirtækisins. Það keypti út aðra hluthafa og sameinaði félög- in undir nafni Snæfells á síðasta ári. Rekstur frystihússins á Stöðvarfirði og útgerð togarans Kambarastar er því í höndum Snæfells. Björgvin segir að kvótinn hafi í raun ekki verið undir stjóm heimamanna frá árinu 1991 því Sambandsfyrirtækin hafi ráðið meirihlutanum í Gunn- arstindi. „Eftir það höfum við þurft að haga seglum eftir vindi,“ segir hann. Eftir að Snæfell kom til skjalanna hefur Kambaröst haft úr meiri afla- heimildum að moða. Hins vegar er öllum þorskafla skipsins ekið til vinnslu í frystihúsi Snæfells á Dal- vík. Lögð er áhersla á vinnslu ann- arra tegunda bolfisks í frystihúsinu á Stöðvarfirði. Kemur hráefnið af Kambaröst, Björgólfi EA og af físk- mörkuðunum. Magnús Helgason, rekstrarstjóri Snæfells á Stöðvar- firði, segir að ætlunin hafi verið að vinna bolfisk sjö mánuði ársins en sinna frystingu á síld og loðnu í fimm mánuði og hafi fyrirtækið fjárfest með það að markmiði. Hins vegar hafi gengið illa að fá frysting- arhæfa síld og loðnu og til þess að reyna að brúa það bil hafi félagið fengið karfavél frá Snæfelli í Ólafs- vík og sé ætlunin auka vinnslu á karfa. Um 40 starfsmenn eru í frysti- húsinu. Hráefni er til dagvinnu en þó hefur fallið úr einn og einn dag- Ekki stendur til að selja Þegar greint var frá miklu tapi Snæfells hf. á síðasta rekstrarári kom fram hjá stjórnendum félags- ins að þeir vildu selja þær eignir fé- lagsins sem notaðar eru við veiðar og vinnslu uppsjávarfiska. Skapaði þetta ákveðna óvissu hjá starfsfólki Snæfells á Stöðvarfírði þar sem lögð hefur verið áhersla á síld og loðnu. Starfsemin á Stöðvarfirði var rekin með lítilsháttar tapi á síðasta rekstrarári, að sögn Magnúsar. Hann segir að hægt sé að reka fyr- irtækið án taps ef hráefni fáist á skynsamlegu verði. í því sambandi bendir hann á að fyrirtækið á Stöðvarfirði hefði skilað hagnaði ef togarinn og frystihúsið hefðu verið rekin samhliða á síðasta ári. Björgvin Valur oddviti segist hafa fengið þær upplýsingar hjá stjórnendum Snæfells að ekki stæði til að selja eignir á Stöðvarfirði og bendir á að vinnsla uppsjávarfiska hafi ekki verið mikilvægur þáttur í Breiðdalsvík . Djúpivogur 10 km Fjöldi íbúa 1.12.98 Stöðvarhreppur 269 - Stöðvarfjörður 269 Breiðdalshreppur 290 - Breiðdalsvík 207 Djúpavogshreppur 494 - Djúpivogur 376 á undanfórnum vertíðum. Reynt hafi verið að bregðast við því með því að beina auknum karfaafla til Stöðvarfjarðar. Dreifðari áhætta rekstrinum að undanförnu. Magnús Helgason segir að þótt Snæfell selji loðnu- og síldarkvóta sinn geti frystihúsið keypt loðnu og síld og haldið áfram frystingu. Hann segir jafnframt að með sölu eigna gefist Snæfelli tækifæri til að styrkja kvótastöðu sína í bolfiski og það gæti styrkt reksturinn á Stöðvar- firði. Magnús Gauti Gautason, fram- kvæmdastjóri Snæfells hf., segir að þrátt fyrir áform um sölu uppsjáv- ai'hluta fyrirtæksins sé ætlunin að vera með óbreyttan rekstur á Stöðvarfirði. Þar sé góður stjóm- andi og gott starfsfólk og rekstur- inn gangi vel þrátt fyrir erfiðar að- stæður vegna þess hvað lítið hafi verið hægt að frysta af síld og loðnu Miklar hræringar hafa verið í rekstri helsta vinnuveitandans á Djúpavogi, Búlandstinds hf. Fram- kvæmdastjóri félagsins, Jóhann Þór Halldórsson, var látinn fara og Olíufélagið hf. og Vátryggingarfé- lag íslands seldu útgerðarfélaginu Vísi í Grindavík meirihluta hluta- fjár. Nýir eigendur breyttu áhersl- um í rekstri. Hættu starfsemi á Breiðdalsvík og vilja selja frysti- húsið þar, bát og kvóta. Frystitog- arinn Sunnutindur var seldur og nýlega endurnýjuð fiskimjölsverk- smiðja á Djúpavogi. Nú er lögð áhersla á saltfiskverkun á Djúpa- vogi. Akveðins ótta gætir meðal íbú- anna við þessar breytingar enda koma þær við hagsmuni fólks og fyrirtækja í byggðarlaginu. Eins hafa sumir áhyggjur af því að sjáv- arútvegsfyrirtæki í öðrum lands- hluta ráði nú yfir meginhluta afla- heimilda staðarins. Ólafur Ragnarsson, sveitarstjóri og fyrrverandi stjórnarmaður í Búlandstindi, telur að breytingarn- ar séu til bóta fyrir atvinnulífið á Djúpavogi. „Það eru komnir fleiri aðilar að rekstrinum og meiri áhættudreifing í atvinnumálum en áður hefur verið,“ segir hann. Nefnir hann að öflugt útgerðarfyr- irtæki reki nú bræðsluna. „Þótt Breytingar til góðs og ills Nokkur óvissa virðist ríkjandi á Djúpavogi um áhrif skipulagsbreyt- inganna. ívar Björgvinsson, for- maður Verkalýðs- og sjómannafé- lags Djúpavogs, segir ekki nýtt að lítið sé um að vera í frystingu á Djúpavogi og svo virðist sem haldið verði uppi fullri vinnu á staðnum þótt í breyttri mynd sé. Honum líst hins vegar illa á sölu togarans Sunnutinds. Segist þó ekki vita annað en flestir skipverjar haldi plássum sínum og síðan fái sjómenn störf á bátum sem Vísir hyggst nota til að veiða kvóta Búlandstinds. Kristján Ingimarsson, skrifstofu- stjóri hjá Búlandstindi og hrepps- nefndarmaður í minnihluta, segir að bæði kostir og gallar fylgi breyt- ingunum. Stöðug vinna sé tryggð og rekstrargrundvöllur bræðslunn- ar. Hins vegar séu sennilega færri störf í boði en áður. Skrifstofuvinn- an fyrir Búlandstind verður unnin í Grindavík og missa því þeir tveir starfsmenn sem eftir eru á skrif- stofunni núverandi störf sín. Ki'ist- ján segir að boðið sé upp á önnur störf og hefur ekki áhyggjur af því. Reynir Arnórsson var bflstjóri hjá vöruflutningafyrirtæki á Djúpa- vogi en vegna þess að verkefni færðust til fyrirtækis annars staðar á Austfjörðum missti hann vinnuna við eigendaskiptin á Búlandstindi. Reynir segist vera til í að fara í hvaða vinnu sem er á Djúpavogi og þótt hann hafi enn ekki fengið fasta vinnu hafi hann nóg að gera þessa dagana. Hann er ekki svartsýnn á framtíðina, segist vonast til að allir fái störf þegar hjól atvinnulífsins verða farin að snúast af fullum krafti. Meiri áhyggjur hefur hann af unglingunum. Hann er faðir þrí- bura sem nýlega urðu sextán ára og reiknað er með að fari í framhalds- skóla í haust. Kveðst Reynir kvíð- inn vegna þess. Dýrt sé að senda unglinga í skóla og það geti sett al- varlegt strik í reikninginn ef ekki verði vinna fyrir þá í sumar. Dauðadómur ef kvótinn færi Það fólk sem blaðamaður ræddi við á Stöðvarfirði og Djúpavogi var almennt þeirrar skoðunar að ákveðið óöryggi fælist í því að sjávarútvegsfyrirtæki utan byggð- arlaganna réðu yfir kvótanum og var mikið vísað til reynslunnar frá Breiðdalsvík og fleiri stöðum í því efni. „Þegar eigandi er kominn með 51% hlutafjár ræður hann ferðinni. Staða okkar er því veik, ef hann vill frekari breytingar," segir Már Karlsson sem rekur ferðaþjónustufyrirtæki á Djúpa- vogi og var áður í stjórn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.