Morgunblaðið - 18.02.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Hart lagt að Hillary
að fara í framboð
Hillary Clinton
Rudolph Giuliani
græðgin.
Ef Hillary ákveður
að gefa ekki kost á
sér, mun hún eiga
vísan frama sem fyr-
irlesari eftii' að mað-
ur hennar hefur látið
af embætti og fyrir
hvert kvöld fær hún
um 213.000 ísl. kr.
Það er því ljóst, að
tekjumöguleikar
hennar yi'ðu miklu
meiri utan þingsins
en innan. Sumir and-
stæðinga hennar
segja raunar, að það
taki ekkert fram
valdagræðgi hennar
nema peninga-
Reuters
FRÁ atkvæðagreiðslunni í neðri deild pólska þingsins í gær. Til vinstri
á myndinni er Jerzy Busek, forsætisráðherra Póllands, og Leszek
Balcerowicz, aðstoðarforsætisráðherra við hlið honum.
Pólska þingið
samþykkir
NATO-aðild
Varsjá. Reuters.
Slagur milli henn-
ar og Rudolph
Giulianis, borgar-
stjóra í New York,
gæti orðið óvenju
grimmur
KOSNINGARNAR í Bandaríkjun-
um haustið 2000 eru enn langt undan
en í einu ríki, New York, er þegar
farið að gæta nokkurs kosninga-
skjálfta. Þar verður tekist á um laust
öldungadeildarþingsæti og spennan
snýst nú um það hvort forsetafrúin,
Hillai-y Clinton, muni takast á um
það við hinn vinsæla borgarstjóra,
Rudolph Giuliani. Komi til þess má
búast við grimmum og jafnvel
óþverralegum slag.
Hillary segist vera mjög þakklát
öllum þeim fjölda manna, sem hafi
hvatt hana til að sækjast eftir öld-
ungadeildarþingsæti Daniels Pat-
ricks Moynihans, sem hefur ákveðið
að hætta þingmennsku á næsta ári,
en hún ætlar ekki að ákveða sig fyrr
en „síðar á árinu“. Hefur það farið
töluvert fyrir brjóstið á demókrötum
því í millitíðinni verður kosningaund-
irbúningur annarra frambjóðenda
þeirra, til dæmis óhjákvæmileg fjár-
söfnun, eins og í lausu lofti. Þess
vegna er lagt hart að henni á ákveða
sig sem fyrst, vilji hún ekki færa
Giuliani þingsætið á siifurfati.
Harður í horn að taka
Bill Clinton hefur hvatt konu sína
til að láta slag standa og sömuleiðis
margir frammámenn demókrata í
New York. Þeir telja hana sterkasta
frambjóðandann, sem völ sé á, og
vinsældir forsetans og hennar end-
urspeglast í skoðanakönnunum, sem
gefa henni umtalsvert forskot á
Giuliani - að minnsta kosti í svipinn.
Repúblikanai' eru heldur ekki í
neinum vafa um, að Giuliani sé rétti
maðurinn fyrir þá. Hann nýtur mik-
iila vinsælda hjá öllum kosningahóp-
um nema kannski vinstrisinnuðum
menntamönnum enda hefur honum
tekist að stórfækka glæpum í borg-
inni. Hann er heldur ekkert lamb að
leika sér við og myndi velta Hillary
upp úr öllum þeim málum, sem hún
hefur lent í ásamt manni sínum. Það
er því eðlilegt, að hún vilji taka sér
nokkum umhugsunarfrest.
Skulda yfír
200 millj. kr.
Ráðgjafar Clintons segja, að mesta
áhyggjuefnið séu skuldir þeirra
hjóna vegna lögfræðikostnaðar en
áætlað er, að þær séu rúmlega 210
milljónir ísl. kr. Laun öldungadeild-
ai'þingmanna eru um 9,7 millj. kr. á
ári og til að girða fyrir hagsmuna-
árekstur eru þeim settar skorður
hvað varðar frekari tekjuöflun.
Margir vilja dramatísk átök
Staða Hillary er líka slæm að því
leyti, að hún verður enn forsetafrú í
kosningunum á næsta ári með öllum
þeim fríðindum, sem því fylgja, og á
kostnað skattborgai'anna. Giuliani
myndi ekki láta vera að núa henni
upp úr þvi.
Hillary hefur líka verið bent á, að
hún geti ekki stundað kosningabar-
áttuna frá Hvíta húsinu, heldur verði
hún aðallega að halda sig í New
York, og svo er líka alltaf hætta á, að
maðurinn hennar, forsetinn, taki ein-
hveijar ákvarðanii', sem stangist á
við stefnumál hennar.
Giuliani hefur ekki tekið ákvörðun
um framboð frekar en Hillary en eft-
ir allt, sem á undan er gengið með
Monicu Lewinsky og réttarhöldin yf-
ir Clinton, þá vilja menn ekki neina
lognmollu, heldur dramatísk átök.
Hiilary Clinton og Rudolph Giuliani
eiga að tryggja það.
(Heimildir: The Daily Telegraph,
The New York Times)
POLSKA þingið samþykkti í gær
aðild að Atlantshafsbandalaginu
(NATO) með miklum meirihluta
atkvæða en þessi ákvörðun er sögð
sú mikilvægasta sem Pólverjar
hafa tekið í utanríkismálum síðan
kalda stríðinu lauk.
Horfði Aleksander Kwasni-
ewski, forseti Póllands, á þegar
409 þingmenn neði'i deildar þings-
ins greiddu atkvæði með því að
Pólland gerðist meðlimur í NATO
en einungis sjö voru á móti. Fjórir
sátu hjá. Er þar með búið að gera
Kwasniewski kleift að skrifa undir
sáttmálann sem gerir Pólland að
nýju NATO-ríki, ásamt Ungverja-
landi og Tékklandi. Munu forsetar
Póllands og Tékklands skrifa und-
ir sáttmálann 26. febrúar í sam-
tengdri sjónvarpsútsendingu.
„Pólland lýkur nú upp nýjum
kafla í þjóðarsögu sinni,“ sagði
Knasniewski í gær. „Með þessari
ákvörðun er bundinn endi á þann
kafla sem hófst með fundi stór-
veldanna í Jalta og skiptingu
heimsins í áhrifasvæði í kjölfar
niðurstöðu seinni heimsstyrjaldar-
innar.“
Reuters
KING leiddur inn í réttarsalinn í fyrradag.
Kynþáttahatari sakaður um morð
Jasper. The Daily Telegraph.
RÉTTARHÖLD hófust í fyrradag í
borginni Jasper í Texas í Banda-
ríkjununi yfír John „Bill“ King, 24
ára gömlum manni, sem sakaður
er um að hafa myrt blökkumann.
Er hann sagður hafa gert það til
að öðlast „virðingu" í flokki kyn-
þáttahatara, sem hann ætlaði að
koma á fót.
Hlutar úr líki James Byrd, fatl-
aðs blökkumanns, fundust á
þriggja mflna löngum kaíla á fá-
förnum sveitavegi og var í fyrstu
talið, að hann hefði orðið fyrir bfl.
Lögreglan fann hins vegar
kveikjara með nafninu Possum,
sem King var kallaður er hann var
í fangelsi, og á hann var grafið
KKK eða Ku Klux Klan. Vöknuðu
þá strax grunsemdir um, að Byrd
hefði verið myrtur.
Tveir félagar Kings, Shawn
Berry og Russell Brewer, eru
einnig sakaðir um morðið en sagt
er, að þeir hafi bundið ökkla Byrds
við stuðarann á bfl Berrys og dreg-
ið hann eftir bflnum. Við húsrann-
sókn á heimili Kings fannst síðan
mikið af alls konar efni tengd kyn-
þáttahatri. King á yfir höfði sér
ævilangt fangelsi að minnsta kosti
en líklega dauðadóm.
Forsetakosningar í Nígeríu eftir 15 ára herstjórn
Frambjóðendur heita um-
bótum og bættum kjörum
Jos, Kaduna. Reuters.
ALLT útlit er fyrir harða
kosningabaráttu milli for-
setaframbjóðenda í Níger-
íu, en kosningar verða
haldnar í lok þessa mánað-
ar. Þær marka tímamót í
stjórnmálum landsins og
eru bundnar vonir við að
þær muni binda enda á
fimmtán ára stjórn hersins.
Núverandi leiðtogi Ní-
geríu, herforinginn
Abdulsalami Abubakar,
hefur heitið því að hann
muni fara frá völdum hinn
19. maí næstkomandi. Olu-
segun Obasanjo, fyrrver-
andi herforingi, þykir lík-
legastur til að verða kosinn
eftirmaður hans í forseta-
kosningunum hinn 27. febr-
úar næstkomandi, en hann
býður sig fram fyrir hönd
hins ráðandi stjórnmála-
flokks landsins, PDP.
Obasanjo sjálfviljugur
frá völdum
Á árunum 1976 til 1979
var Obasanjo herforingi í
herforingjastjórn Nígeríu,
en afsalaði sér völdum árið
1979 og varð þar með eini
herforinginn í sögu landsins
sem hefur vikið sjálfviljug-
ur úr embætti frá því að Ní-
gería hlaut sjálfstæði frá
Bretum árið 1960. Tuttugu
ár eru nú liðin frá því að
Obasanjo sagði af sér embætti og
hefur honum tekist að afla sér
trausts jafnt meðal Afríkubúa sem á
Sameiginlegt framboð
gegn PDP
Mótherji Obasanjos, Olu
Falae, fyrrverandi fjármála-
ráðherra Nígeríu, er fulltrúi
vinstriflokkanna APP og
AD, í sameiginlegu framboði
þeirra til forsetaembættis-
ins. Forystumenn APP og
AD, urðu ásáttir um að velja
sér einn sameiginlegan for-
setaframbjóðanda til að
styrkja stöðu þeirra gagn-
vart PDP sem hlaut mest
fylgi í nýlegum héraðs- og
sveitarstjómarkosningum.
Ogbonnaya Onu, sem
upphaflega hafði verið val-
inn sem forsetaefni APP,
lýsti því hins vegar yfir í
gær að hann hefði ekki í
hyggju að draga sig til baka
þrátt fyrir samkomulag
flokkanna um framboð Olus
Falaes. Kom til handalög-
mála á flokksþingi APP á
mánudagskvöld þar sem
gengið var frá framboðsmál-
um.
Olíutekjum sólundað
í kosningabaráttunni ber
hæst loforð um að leysa
deOur hinna mörgu þjóðar-
brota sem byggja Nígeríu,
fjölmennasta ríki álfunnar.
Áuk þess eru kjör almenn-
ings ofarlega á baugi, en sl.
áratugi hefur fátækt aukist í
stjórnartíð hersins sem sólundað
hefur stórum hluta af hinum miklu
olíutekjum landsins.
Reuters
OLUSEGUN Obasaujo fagnar með flokksmönn-
um sínum í PDP, eftir að hafa verið valinn til
forsetaframboðs fyrir hönd flokksins. Forseta-
kosningarnar fara fram 27. febrúar og marka
endalok 15 ára herstjórnar í Nígeríu.
Vesturlöndum. Var hann m.a. orð-
aður við stöðu framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna.