Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 45
Veður og færð á Netinu
<§> mbUs
^ALLTf\f= &/TTH\SA£T /VÝTT
Skeifunni 11, sími 588 9890
MeðalsUírt lamhalæri, spekkað með hvCllauk (4-5 stk), sall og
pipar, rósmartn, óreganó, blóðberg eða birki. 150 - 200g
villisveppir.
lið kryddinu úl f ólffuolfu, berið d lærið
ð standa kryddað f sólarhring._____________
sjið I ,Skg af ósoðnum kartöflum og sallið
örlítið.
sosa
Setjið (hotninn á steikingar]>otti. Setjið
lærið ofan á og bakið f ofni f 2 klst. við 180-200°C.
I safai
Hellið yíir lærið og kartöflumar.
Steikið viUisveppina. Búið til soð dr nautakrafti og bætið við
soði úr potti. Bakið upp og bragðbætið með ijóma og litið
með sósulit.
Meðlæti: Maískom
Rauðvín: TotTes Gran Coronas
SKAUTAR:
Stærðir 29-41
Verð aðeins
kr.Ar74trstgr.
nú kr. 3.990
nu
BARNASKAUTAR
(Smelluskautar)
Stærðir 29-36
Verð aðeins
kr.^JWstgr.
kr. 2.990
Opið laugardaga frá
kl. 10-14
ÚPNINN^
Guðrún, Hilmar, Bryndís, Randver,
Hörður, Kristfn og Ámi Þórður.
ÍSLENSKIR
SAUÐFJARBÆNDUR
HOKKÍSKAUTAR:
Stærðir 36-46
Verð aðeins
kr. stgr.
nú kr. 3.990
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. FEBRUAR 1999
UMRÆÐAN
Frá hugmynd
að veruleika
STÚDENTAR með sértæka
námsörðugleika (dyslexíu) rekast á
margar hindranir á skólaferli sín-
um. Nemendur með sértæka
námsörðugleika geta átt í erfiðleik-
um með lestur, stafsetningu og
skrifað mál og átt í talnaörðugleik-
um. Oft eiga þeir erfitt með að ná
tökum á skriflegu máli (t.d. staf-
rófi, talna- og nótnalestri) en örð-
ugleikarnir geta einnig haft áhrif á
tjáningu tungumáls að einhverju
leyti. Talið er að um 10% íslend-
inga séu með sértæka námsörðug-
leika á mismunandi stigum, þar af
eru 4% sem mælast á mjög háu
stigi.
Nemendur í háskólanámi sem
glíma við sértæka námsörðugleika
finna að þrátt fyrir meiri umræðu
og skilning á sértækum námserfið-
leikum er langt í land með að að-
stoð og úrræði séu við hæfi hverju
sinni. Hér virðist vanta sameigin-
lega stefnu um málefni nemenda
með sértæka námsörðugleika í há-
skólanámi sem ekki er einungis
mótuð af einstaka skólum eða ein-
staklingum heldur er liður í
menntastefnu í samfélaginu. Þó að
til að mynda í Háskóla íslands sé
gert ráð fyrir ákveðnu fjárframlagi
til að standa straum af kostnaði
vegna sérúrræða fyrir nemendur
með hömlun í háskólanámi fellur
ýmis kostnaður á nemandann sjálf-
an. Greiningu á sértækum
námsörðugleikum á fullorðinsárum
þarf nemandi að borga sjálfur en til
þess að geta fengið úrræði við HÍ
er þess krafist að nemandinn leggi
fram greiningu frá sérfræðingi.
Nemandinn þarf ekki að standa
sjálfur straum af sjálfum úrræðun-
um, hvort sem um er að ræða ráð-
gjöf eða tilhliðranir í námi, en hann
hefur oft sjálfur þurft að koma sér
upp tækjabúnaði sem þarf til að
námsefni nýtist honum. Mjög
margir nemendur með sértæka
námsörðugleika eiga í erfiðleikum
með lestm-. I þeim tilvikum er
venjulega mælt með að nemandinn
fá innlesið námsefni á hljóðsnæld-
ur. Blindrabókasafn Islands hefur
haft milligöngu um að leita eftir
hljóðbókum á erlendum bókasöfn-
um en iðulega fást viðkomandi
bækur ekki. Þá þarf að lesa bæk-
urnar inn. Hér er um að ræða mjög
dýra og tímafreka þjónustu. Inn-
lestur hljóðbóka í grunn- og fram-
haldsskóla er greiddur af hinu opin-
bera en slíku er ekki til að dreifa á
háskólastigi. Háskóli íslands hefur
í þeim tilvikum þar sem um nauð-
syn er að ræða greitt fyrir innlest-
ur á námsefni, en mikið vantar upp
á að hægt sé að mæta þörfmni fyrir
Dyslexía
Talið er að 10% íslend-
inga, segja Marta
Birgisdóttir og Auður
R. Gunnarsdóttir, séu
með sértæka náms-
örðugleika á mismun-
Marta
Birgisdóttir
andi stigum.
innlestur í háskólanámi. Fyrir nem-
anda með sértæka námsörðugleika
er námið oft tímafrekara en hjá
hinum almenna nemanda. Nauðsyn
á tilhliðrunum í háskólanámi verð-
ur oft til þess að nemandinn tefst í
námi. Hann getur ekki lokið til-
skildum einingafjölda, sem hefur þá
einnig áhrif á fjárhagsafkomu hans.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
hefur t.a.m. ekki fram til þessa haft
starfsreglur sem koma til móts við
þessa nemendur og hafa þeir því
lent í því að lán þeirra skerðist eða
þeir fái ekki námslán. Vegna þeirra
mikilvægu mála sem hér hafa verið
nefnd og snerta réttindi nemenda
með sértæka námsörðugleika var
ákveðið að stofna félag sem yrði
málgagn þessara nemenda innan
háskólasamfélagsins. Stofnfundur-
inn var haldinn 18. nóvember 1998.
Mæting á fundinn var mjög góð og
fengust góð viðbrögð frá stúdent-
um. Hjá Námsráðgjöf HI er 61
nemandi skráður með dyslexíu,
sem er einungis brot af þeim sem
eiga við sértæka námsörðugleika
að etja, því er nauðsynlegt að allir
stúdentar standi að baki þessum
hópi nemenda til að félagið eflist og
dafhi.
I kvöld verðm- haldið styrktar-
kvöld sem ber nafnið Frá hugmynd
að veruleika. Ætlunin er að stofna
sjóð fyrir nemendur með dyslexíu í
HI. Agóðanum, sem afhentur verð-
ur rektor HI og Námsráðgjöf HÍ,
verður varið til innlestrar á náms-
bókum fyrir nemendur með dys-
lexíu. Dyslexíufélag HI mun hafa
umsjón með þeirri starfsemi og
ráða nemendur í HÍ til að lesa inn
námsefnið. Þannig eru tvær flugur
slegnar í einu höggi; góðu málefni
lagt lið um leið og möguleiki er á
aukavinnu fyrir háskólanemendur.
Styrktarkvöldið verður haldið í
Þjóðleikhúskjallaranum og þeir
listamenn sem fram koma gefa
vinnu sína til þess að leggja málefn-
inu lið. Húsið verður opnað kl. 21.30
en dagskráin hefst kl.
22.30. Dagskráin sam-
anstendur af söng-,
leik- og skemmtiatrið-
um. Þeir sem fram
koma eru Felix
Bergsson, Geirfugl-
amir, Helgi Björns-
son, Brooklyn-bandið
og margh- fleíri.
Dyslexíufélagið vill
þakka Vöku, félagi
lýðræðissinnaðra
stúdenta við HÍ, fyrir
að hjálpa okkur að
gera þetta kvöld að
Auður R. veruleika. Einnig vilj-
Gunnarsdóttir um við þakka hinum
fjölmörgu styrktarað-
ilum sem hafa lagt okkur lið. Við
vonum að sem flestir sjái sér fært
að mæta í Þjóðleikhúskjallarann í
kvöld og styðja nemendur með
námsörðugleika í baráttu sinni fyr-
ir að öðlast jafnrétti til náms.
María nenwr landafræði og er ein
af stofnendum Dyslexíufélags HÍ.
Auður er sálfræðingur og námsráð-
gjafi við HÍ.
Barbour
Lauqavequr 54 • S: 552 253:
Póstsendum bækling
Randver býður
ímat
Lambalærí með villisveppasósu
r
5
Gestgjafar: Randver, Guðrún og Ámi Þórður sonur þeirra.
Hráefhi