Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 51

Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 51 araugum á og vonuðu að yrði opn- aður. Amma var drottning. Ekki að- eins í okkar augum, heldur allra sem umgengust hana. Virðuleg og hlýleg framkoma hennar, ættfræði- þekldng og miklir frásagnarhæfi- leikar vöktu athygli. Var hún ætíð miðdepill hvar sem hún kom. Endalaust gátum við hlustað á hana segja sögur frá gömlu dögun- um - sögurnar um frúna sem hún var í vist hjá á Akureyri, úr Hrísey af apanum þeirra Jochum og kostu- legum uppátækjum hans, prakkar- anum Bjössa Rrists, sögur af pabba og systkinum. Allir áttu sína sögu. Ahugi ömmu á mönnum og mál- efnum hélst fram á síðasta dag. Hún var stolt og dugleg og lét aldrei bugast þrátt fyrir þungbær áföll. Við minnumst orða hennar: „Stend meðan stætt er,“ og kveðj- um elsku ömmu með sálmi úr kveri sem hún geymdi undir kodda sín- um: Gef oss drottinn, góðan dag, ganga lát oss allt í hag, ef að vilji það er þinn, þú ert ætíð velkominn. Hvar sem liggur leiðin vor, lát oss feta í sólarspor. Gef þú oss i gleði og þraut ganga þína ljósu braut. Gef oss, drottinn, góðan dag, gott og fagurt sólarlag. Eftir lífsins endað skeið oss í þíná vegsemd leið. (V. Briem.) Helga, Björg og Dúna. Þegar fréttir af andláti vina og vandamanna berast hvarflai- hug- urinn gjarnan á vit minninganna. Þannig fór fyrir mér þegar ég frétti að Björg Valdimarsdóttir væri öll. Ekki er ætlunin í þessari stuttu kveðju að rekja æviferil Bjargar, enda er ég aðeins kunnugur litlum hluta hans. Veit þó að á langri ævi mátti hún þola sorg og ástvinamissi sem ung kona en stóð keik af sér storma lífsins. Gleðin var líka rík enda auðurinn mikill í mörgum og mannvænlegum afkomendum. Ég hitti Björgu fyrst árið 1974. Hún bjó þá ásamt seinni eigin- manni sínum Garðari Ólasyni í Sæviðarsundi 9 í Reykjavík. Gæfan hafði þá leitt mig á fund Pálínu dóttur Björns á Selaklöpp í Hrísey en hann var bróðir Garðars. Þannig voru tengdir komnar á sem áttu eftir að treystast með nánari kynn- um. Ekki var í kot vísað að fara með tengdafjölskyldu minni í mat og kaffi í Sæviðarsundið. Þar bar bók- staflega allt glöggt vitni um mynd- arskap og snyrtimennsku Bjargar og Garðars. Margvísleg málefni voru rædd og fróðlegt var að heyra um lífið og tilveruna á árum áður, sérstaklega í Hrísey en einnig á mörgum öðrum stöðum þar sem þeir bræðurnir höfðu starfað til sjós og lands. Þetta voru ljúfar stundir. Eftir að við hjónin fluttum norð- ur árið 1983 fækkaði fundum okkar Bjargar. Samt hélst alltaf gott sam- band og í reynd var alveg ótrúlegt hvað hún fylgdist vel með. Þrátt fyrir mikinn fjölda barnabama, langömmubarna og langa- langömmubarna var rúm fyrir fleiri og litlir fætur í minni fjölskyldu fengu leista eða eitthvað annað sem bar gefandanum gott vitni. Björg var sannur vinur vina sinna. Að leiðarlokum er gott að geta rifjað upp góðar minningar. Við hjónin og synirnir fimm þökkum innilega fyrir samfylgdina og ánægjulegar stundir. Þú ljós sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voóasker. Nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fógru dyr og engla þá, sem barn ég þekkti fyr. (M. Joch.) Aðstandendum öllum vottum við dýpstu samúð og óskum þeim Guðs blessunar. Valtýr Sigurbjarnarson. EDDA ÞÓRZ + Edda Þórz var fædd í Brekku í Reykjavík 4. júní 1920. Hún lést á Landspítalanum 11. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Iðunn Sigurðardóttir, f. 5.10. 1897, d. 2.5. 1981 og Þórður Þórðarson, f. 25.3. 1894, d. 9.8. 1982. Edda átti eina syst- ur, Sif Þórz, dans- kennara, f. 16.6. 1924. Maki hennar er Valgarð J. Ólafsson, f. 24.9. 1919. Börn þeirra eru: Jón Þórður, f. 28.4. 1947, d. 24.9. 1983; Iðunn Anna, f. 4.2. 1950; Eiður, f. 23.2. 1954; Gunnhildur Sif, f. 10.6. 1955 og Sigrún, f. 16.9. 1959. Edda giftist 4. desember 1948 eftirlifandi eiginmanni sínum, Magnúsi Ó. Valdimars- syni, f. 6.1. 1925. Börn þeirra: 1) Sigurður Gunnar, f. 29.6. 1948, d. 27.4. 1969. 2) Katrín Edda, f. 1.6. 1956. Maki Katrínar er Björn Pétursson, f. 19.2. 1953. Börn þeirra eru: Ágústa Edda, f. 19.3. 1977, Eva, f. 7.4. 1978, Hugrún, f. 19.3. 1988. Magnús átti áður son, Má Magnússon, f. 27.12. 1943. Kona hans er Sigríður Gunnarsdóttir, f. 3.3. 1954. Synir þeirra eru: Gunnar Karel, f. 17.5. 1984, Mímir, f. 7.4. 1988. Magnús og Edda fluttu til Seltjarnarness 1960 og hafa búið þar alla tíð síðan. Magnús hefur unnið við eigið fyrir- tæki, Rafgeymaverksmiðjuna Pólar hf. í rúm 50 ár. Edda var kosin fyrsti formaður Kvenfé- lags Seltjarnarness 1964. títför Eddu fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Mig langar í fáeinum orðum að minnast Eddu, tengdamóður minn- ar. Fyrst og fremst vil þakka henni fyrir að hafa átt hana Kötu, og þann stuðning sem hún veitti okkur við uppeldi dætra okkar. Það var lán okkar hjóna og ekki svo lítils virði að vita af þeim í ör- uggu skjóli að afloknum degi í leik- skólanum og síðar í grunnskólan- um. Það var gott fyrir litlar stúlkur að fá hollan og góðan mat hjá ömmu og nægan tíma hafði hún til að ræða við þær um allt milli him- ins og jarðar. Hún gaf þeim ástúð og hlýju sem þær munu ætíð búa að. Þáttur hennar í uppeldi Ágústu Eddu og Evu var ríkur og ekki veit ég hvernig við Kata hefðum farið að án hennar. Þó ekki væri Hug- rún, yngsta dóttir okkar, í jafn miklum samvistum við ömmu sína og þær eldri naut hún ætíð sömu hlýju og ástúðar og eldri systurnar. Edda reyndist mér einstaklega góð tengdamóðir. Gæska hennar og hrósyrði í minn garð yljuðu mér um hjartarætur, og það var ljúft að finna það að hún kunni vel að meta tengdasoninn. Mér finnst að ég hafi aldrei fullþakkað henni fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur Kötu en ljúfar minningai- um hana munu fylgja mér alla ævi. Guð geymi þig, elsku tengda- mamma. Björn. Okkur systurnar langaði að kveðja hana ömmu Eddu með nokkrum orðum. Amma og afi hafa alla okkar tíð búið í sama húsi og við, og þar sem amma var heimavinnandi var hún mjög stór hluti af okkar lífi. Okkur elstu systurnar passaði hún eftir skóla, gaf okkur að borða og lagði um leið lífsreglurnar. Þótti okkur vænt um að geta alltaf farið til ömmu, en það gerðum við á hinum ýmsu tímum, því hún hugsaði vel um okkur. Amma var mjög gjafmild kona og þegar við fórum niður í kjallara í heimsókn til hennar og afa, komum við oftar en ekki með einhverja smáhluti með okkur upp aftur. Þeg- ar hún hafði verið í útlöndum kom hún líka alltaf færandi hendi heim, henni þótti svo gaman að gleðja okkur með gjöfum. Hún amma kunni heilan hafsjó af sögum af „gömlu dögunum" og oft var hægt að sitja tímunum saman og hlusta dolfallin á sögurnar af þessum nærri framandi heimi og sjá hvernig frásagnargleðin skein út úr andlitinu á gömlu konunni. Það var líka alltaf stutt í húmorinn hjá henni ömmu. Þessum skemmti- lega húmor gleymum við seint. Minningarnar um hana ömmu Eddu eru svo ótal margar. Við er- um þakklátar fyrir allar þessar góðu minningar. Þegar amma veiktist var skrýtið að hitta hana ekki lengur á hverjum degi. Við vorum svo vanar að geta kíkt til hennar þegar okkur datt í hug. En nú er hún loksins búin að fá hvíld eftir erfið veikindi og við vitum að það er hugsað vel um hana. Elsku amma, við elskum þig og eigum eftir að sakna þín mikið. Mundu: „If you can’t be good, be careful." (Ef þú getur ekki verið góður, vertu þá varkár.) Megi Guð geyma þig. Ágústa Edda, Eva og Hugrún. Við fráfall Eddu móðursystur minnar leitar hugurinn til baka og ekki síst til bernskuáranna. Til þess tíma þegar hluti af hinu dag- lega lífi var að fá fréttir af Nesinu og ferðirnar á milli Kópavogs- og Nesfjölskyldnanna voru tíðari en í dag. Fyrir barn úr stórum systkina- hópi var gott að koma til Eddu og njóta meiri athygli en heima fyrir og var ég fljót að komast upp á lag- ið með komast í helgardvöl í „Eddusveit" öði-u hverju. Ég man ekki hvor okkar átti hugmyndina að nafngiftinni á helgardvalar- staðnum en við minntumst þessa tíma auðvitað oft síðar. I „Éddu- sveit“ voru mörkin á milli þess leyfilega og óleyfilega óljósari en heima sem urðu eflaust heimasæt- unni hvatning til ótrúlegustu uppá- tækja. Það var auðvitað gaman að fá að vera með og taka þátt í ævin- týrum með stóru frænku og á hverju sem á dundi í leikjunum hélt Edda (yfírleitt) ró sinni. Að ekki sé nú minnst á öll dýrin sem Kata dró heim. Ég man ekki til þess að Eddu hafi nokkurn tíma verið ofboðið með öllu dýrastóðinu - eða jú, kannski litlu hvítu músunum. Kímnin var heldur aldrei langt undan og hafði Edda einstakt lag á að vekja athygli á ýmsum brosleg- um hliðum. Meira að segja þegar ég heimsótti hana helsjúka nokkrum dögum fyrir andlátið glitti aðeins í skopið þrátt fyrir mikla þreytu og stöðuga verki. Við fráfall nákomins ættingja horfum við sem eftir stöndum yfii- farinn veg. Yfir gleði og sorgir og það sem hefur haft áhrif á mótun lífsleiðar okkar. Við styrkjum hvert annað og vonumst til að gömul vináttu- bönd treystist. Elsku Mói, Kata og fjölskylda og mamma mín. Megi góður guð gefa ykkur styrk til að vinna með sorg- ina og horfa fram á veginn. Sigrún (Sissí). Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFURJÓNSSON, Ártúni við Sleitustaði í Skagafirði, lést af slysförum laugardaginn 13. febrúar. Jarðsett verður á Hólum í Hjaltadal laugar- daginn 20. febrúar kl. 14.00. Þórveig Sigurðardóttir, Ragnar Ólafsson, Bryndís Símonardóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Jóhann Þórhallsson, Hrafnhildur Ólafsdóttir, Magnús Traustason, Sólveig Ólafsdóttir, Þorvarður Ingimarsson og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN AÐALHEIÐUR JÚLÍUSDÓTTIR, lést á heimili sínu Dalbæ, Dalvík, þriðjudaginn 16. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Júlíus Snorrason, Aðalbjörg Árnadóttir, Snorri Snorrason, Anna Björnsdóttir, María Snorradóttir, Símon Ellertsson, Ingigerður Snorradóttir, Sturla Kristjánsson, Valdimar Snorrason, Ágústína Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir og afi, JÓHANN G. BJÖRNSSON, Lindarflöt 32, Garðabæ, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudaginn 16. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. íslaug Aðalsteinsdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir, Björn Jóhannsson. + Ástkær sonur okkar, HELGI LEÓ KRISTJÁNSSON, Bakkahlfð 19, Akureyri, iést á heimili sínu sunnudaginn 14. febrúar. Fyrir hönd ástvina, Anna Lísa Óskarsdóttir, Kristján Snorrason. + Bróðir minn, GUÐMUNDUR KRISTINN GUNNARSSON, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 16. febrúar. Guðrún Gunnarsdóttir. + Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, ömmu og lang- ömmu, KRISTÍNAR JÓNU ÞORSTEINSDÓTTUR, Faxastíg 2B, Vestmannaeyjum. Þorsteinn Kristinn Óskarsson, Margrét Brynjólfsdóttir, Gísli Jóhannes Óskarsson, Gíslína Magnúsdóttir, Anna Sólveig Óskarsdóttir, Halldór Axelsson, Snorri Óskarsson, Hrefna Brynja Gísladóttir, Kristinn Magnús Óskarsson, Laura Withers, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.