Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINGRÍMUR SIGURÐSSON járnsmiður, áður til heimilis, í Löngumýri 18, Akureyri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Seli að kvöldi föstudagsins 12. febrúar, verður jarðsettur frá Akureyrarkirkju á morgun, föstudaginn 19. febrúar, kl. 13.30. Erla Steingrímsdóttir, Sigrún Steingrímsdóttir, Magnea Steingrímsdóttir, Ingibjörn Steingrímsson, Sveinn V. Steingrímsson, Mónika B. Steingrímsdóttir, Magnús H. Steingrímsson, Edvin Steingrímsson og fjölskyldur þeirra. t Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN SVEINBJÖRN ÓSKARSSON, Víðilundi 24, Akureyri, sem andaðist á heimili sínu laugardaginn 13. febrúar, verður jarðsunginn frá Dalvíkur- kirkju laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00. Sigrún Guðbrandsdóttir, Haukur Haraldsson, Snjólaug Aðalsteinsdóttir, Þorsteinn Pétursson, Karlotta Aðalsteinsdóttir, Lárus Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, HÖRÐUR GUÐMUNDSSON bakarameistari, Kambsvegi 15, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju á morg- un, föstudaginn 19. febrúar, kl. 13.30. Steinunn Kristjánsdóttir, Oddfríður Liija Harðardóttir, Þórður Guðmannsson, Guðmundur Þorbjörn Harðarson, Ragna Ragnarsdóttir, Kristján Harðarson, Ruth Guðbjartsdóttir og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURBJÖRG LILJA ÁGÚSTSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 52, Reykjavík, verður jarðsungin laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00 frá Staðarkirkju, Hrútafirði. Þorsteinn H. Sigurjónsson, Aðalheiður Böðvarsdóttir, Guðrún Sigurjónsdóttir, Sigurgeir Arnarson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, SIGURJÓNS VÍDALÍNS GUÐMUNDSSONAR, frá Laugalandi, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir góða umönnun svo og allra annarra sem aðstoðuðu í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll. Guðlaug Sigurgeirsdóttir og fjölskyldur. SKÚLI ÍSLEIFSSON + Skúli ísleifsson var fæddur í Tröð á Álftanesi 10. ágúst 1942. Hann lést á heimili sínu 9. febrúar siðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Isleifur Magnússon frá Heinabergi á Skarðsströnd í Dalasýslu, f. 19. júlí 1914, d. 2. október 1983, og Guðríður Gestsdóttir frá Dal á Snæfellsnesi, f. 18. febrúar 1918, d. 1. ágúst 1979. Systkini Skúla eru: Jónína, f. 21. maí 1941, Gestur, f. 12. apríl 1944, d. 7. nóvember 1995, og Sólrún Laufey, f. 22. maí 1962. Börn Skúla af fyrra hjónabandi eru: Sigurlaug Jens- ey, f. 24. janúar 1965, Skúli Krist- inn, f. 22. júní 1968, Sigurbjörg Helga, f. 29. september 1969. Eftirlifandi eigin- kona Skúla er Sig- rún Torfadóttir, f. í Haga í Hornafirði 29. nóvember 1952. Börn þeirra eru: Siguijón Magnús, f. 25. mars 1974, Matthías Elmar, f. 8. apríl 1975, d. 23. mars 1976, Sigurð- ur Jón, f. 10. apríl 1977, Sigrún Þóra, f. 28. júlí 1978, og Sigur- rós Hrefna, f. 1. mars 1980. títför Skúla fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Það er oft erfitt að sætta sig við það þegar kallið kemur og sjá á eftir ættingja í blóma lífsins yfirgefa þennan heim. Hann nafni frændi er farinn. Sjúkdómurinn fer ekki í manngreinarálit, því hefur maðm' komist að. Það var á síðastliðnu ári að nafni tjáði mér að hann væri með hinn illræmda sjúkdóm sem oft er erfitt að koma í veg fyrir að fari sínu fram. Líf hans hélt áfram sinn vana gang en síðan gengu erfiðir tímar í garð og tekist var á af mikilli baráttu við sjúkdóminn, en alltaf var haldið í vonina. Nafni átti góða að sem gerðu honum kleift að vera heima til hinstu stundar, og þar er þáttur konu hans Sigrúnar aðdáunar- og þakkarverð- ur. Skúla verður ávallt saknað, en ekki þýðir annað en að vera sáttur við þær stundir sem fjölskyldan hans og aðrir áttu saman og gleðjast yfir þeim. Það var ekki farið til Reykja- víkur án þess að koma við hjá honum og fjölskyldunni. Það kom ósjaldan fyrir að nafni spurði hvort við vildum ekki bara gista og að sjálfsögðu var það oft þegið, því manni leið eins og heima hjá sér. Maður kom ekki að tómum kofun- um hjá nafna, hann var fróður og víðlesinn. Frá miklu var að segja og oft var skipst á skoðunum. Hann var mikill áhugamaður um íþróttir, ekki að furða því hann ólst upp í Vestur- bænum og að mér skilst spilaði með KR á yngri árum. Þegar farið var til Reykjavíkur að spila körfubolta, kom fyrir að nafni mætti til að hvetja og koma með tillögur fyrir nýliðann. Ekki má gleyma að nefna golfið, því að oft var farið á golfvöllinn þeg- ar tækifæri gafst og tekinn hringur. Eitt er það áhugamál sem hann fékk með móðurmjólkinni, ef svo má segja og var hluti af honum allt hans líf. Hestar voru hans líf og yndi, fjöl- skyldunnar allrar. Rétt fyrii' verslunarmannahelg- ina var tekin ákvörðun um að fara akandi suður Kjöl og norður Sprengisand. Nafni sýndi því mik- inn áhuga að hann og Sigrún kæmu með og yrðu samferða okkur tveim fjölskyldum að vestan. Við töldum innst inni að ekki yrði af því þar sem nafni var þá orðinn mjög veik- ur. En það fór ekki eins og við héld- um - heldur eins og við vonuðum. í Þjórsárdalnum biðu okkar hjóna- kornin alsæl. Þarna sátu þau í sól- inni sem þann daginn baðaði ís- lenska náttúru svo áhrif hennar létu engan ósnortinn. En af stað var haldið norður Sprengisand. Af og til var stansað, landakortið skoðað og það sem fyrir augun bar. Auk landa- kortsins vorum við svo heppin að hafa fróðan leiðsögumann, sem gerði ferðalagið enn minnisstæðara. Viljastyrkurinn var aðdáunarverð- ur, að leggja slíkt ferðalag á sig, en enginn barlómur heyrðist af hans vörum frekar en fyrri daginn. Þetta var ferð sem seint gleymist. Nafni var stoltur af börnum sínum og átti myndarlega fjölskyldu. Að leiðarlokum langar okkur að þakka honum samfylgdina, en minn- ing um góðan frænda mun lifa á meðal okkar. Ætti ég hörpu hljómaþýða, hreina, mjúka gígjustrengi, til þín mundu lög mín Kða, leita þín er einn ég strengi. Viltu þegar vorið blíða, vefur rósir kvölddögginni, koma til mín, kvæói hlýða, kveðja mig í hinsta sinni. Lífið allt má léttar faha, ljósið vaka hugsun minni, ef ég má þig aðeins kalla yndið mitt í fjarlægðinni. Innsta þrá í óskahöllum, á svo margt í skauti sínu. Eg vildi geta vafið öllum vorylnum í hjarta þínu. (Friðrik Hansen.) Við biðjum Guð að styrkja Sig- rúnu, börnin og aðra aðstandendur á erfiðum stundum. Skúli, Anna og börn. Elsku pabbi. Þá hafa englarnir tekið á móti þér eftir langa baráttu. Það var ótrúlegt hvað þú áttir alltaf mikið af áhugamálum og varst duglegur að stunda þau. Það leið ekki sá dagur að þú værir ekki að grúska í einhverju, annaðhvort var það golfið, spilamennskan, eða hestamennskan og alltaf stundaðir þú þessi áhugamál með okkur börnunum þínum sem er eitt af því besta sem feður geta gert. Þú barðist mikið fyrn- lífi þínu og reyndir eins og þú gast að halda í það, því þér þótti lífið mjög dýrmætt. En þetta var bara of erfið bai'átta og því kom að því að þú myndir tapa. Við eigum öll mjög erfitt með að kyngja því að þú sért farinn því þú áttir fullt af árum framundan með okkur. Við munum þegar þú lást inni á spítala eftir að þú veiktist aftur og hafðir misst af ferðinni sem þú og mamma ætluðuð að fara. Þú varst svo spenntur að fara en svo á lokastundu gerðist eitthvað slæmt og þú komst ekki. En þú varst samt svo ánægður því að læknarnir höfðu gefið þér von um bata og þú varst strax farinn að ráðgera aðra ferð, en þá urðu vonbrigði. Ekki fór eins og læknarnir sögðu og þér hrakaði og ekkert var hægt að gera. Það er svo skrýtið og erfitt að hugsa til baka þegar þú varst svo ánægður með vonirnar um batann og núna þegar þú ert allt í einu farinn. Þótt við vissum að þinn tími væri að enda þá áttuðum við okkur ekki á því fyrr en þú varst farinn. Það er alltaf erfitt að kveðja, en núna ertu örugglega á mjög góðum stað og horfir á okkur úr himnunum. Þín verður alltaf minnst þar sem þú hefur komið því allir muna eftir Skúla, þessum stóra manni sem lét alltaf í sér heyra, því þú varst ekki sú manngerð að skríða með veggjum. Og þú vissir allt, ef einhver umræða var þá gast þú alltaf blandað þér í hana og ef við þurftum að vita eitthvað þá gátum við alltaf spurt þig því þú varst eins og alfræðiorðabók og þú varst harður á því að hafa alltaf rétt fyrir þér enda var það oftast þannig. Núna lifir minning þín í hjarta okkar þangað til við hittumst á ný í næsta lífi. Magnús, Sigurður, Þóra og Hrefna. Elsku frændi. Þriðjudaginn 9. febrúar fékk ég þá sorgarfrétt að þú hefðii' fengið hvíldina eftir þjáningai' liðinna mánaða. Minningar streyma fram í hugann, þar sem þú og þín fjölskylda hafið alltaf verið stór part- ur af okkar lífi. Fyrh' utan gamla góða daga hér á árum áður er eftirminnileg sumarbú- staðai'heimsókn sumarið 1988 og ferð- in í sumar yfir Sprengisand. Bömin nutu þess svo sannarlega að hafa „afa“ með í ferðinni. Góðu stundii-nar eru ógleymanlegar. Alltaf var gott að koma til ykkar þegar við áttum leið í bæinn. Sigrún galdraði fram veislu á svipstundu og oft var glatt á hjalla. Það er erfitt að segja margt í fáum orðum, því fjársjóður minninganna er gildur. Góði Guð, við biðjum þig að styrkja Sigrúnu, börnin, barnabörn og aðra ástvini í þeirra miklu sorg. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd, síðastþegarégsofnafer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Elsku Skúli. Við þökkum þér sam- fylgdina sem var svo ánægjuleg en alltof stutt. Guð geymi þig. Þín frænka María Berg og fjölskylda. Elsku afi minn, takk fyi-ir allar okkar stundir og hestinn minn hann Sörla sem þú gafst mér á hestamannamótinu á Kaldármelum fyrir tveimur árum. Afi, ég mun alltaf hugsa vel um hann Sörla. Afi, það verður ski'ýtið að koma til ömmu Sigrúnar og engin afi þar, en ég veit að þú ert hjá guði. Þú varst alltaf í góðu skapi og þannig mun ég alltaf minnast þín, elsku afi minn. Nú kveð ég þig með kvöldbæn minni. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engill, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Þín afastelpa, Guðrún Sigríður. Það er svo ótiúlegt þegar litið er til baka, hvað árin líða hratt og það, sem manni finnst hafa gerst fyrir ekki svo löngu og er ferskt í minningunni, er allt löngu liðið. Samferðafólkið fellur frá hvað af öðru og allt í einu er far- inn hópur fólks sem manni þótti vænt um. Fólkið manns, sem hittist aUtaf á mannamótum í fjölskyldunni og deildi saman gleði og sorgum. Nú hefur enn verið höggvið í þennan i-unn, þegar Skúli fi-ændi minn kveður langt um aldur fram. Minningar streyma fram. Eg man þegar við vorum böm og Skúli og fjölskylda hans bjó í sama húsi og afi okkai' og amma á Bræðra- borgarstíg 14. Þá var gaman að fara þangað í heimsókn, húsið bókstaflega iðaði af íjöri, þegar við vorum öll þar saman komin. Ég man Skúla að baka fyrir mömmu sína fyrir jólin, eldhús- borðið þakið tertubotnum, við að spila á spil og spjalla saman, við í eltinga- leik og feluleik, úti um aUt á sólbjört- um sumarkvöldum í Vesturbænum. Svo liðu árin og sambandið minnkaði inn tíma. Skúli flutti út á land og við hittumst sjaldan á því tímabiU. En alltaf var gott að hitta Skúla, hann var svo hlýr og góður frændi, svo stór og fallegur. Eftir að Skúli flutti aftui' í bæinn til Reykjavíkur fyrir átta ár- um, höfum við alltaf haft gott sam- band og góður samgangur verið á milli heimUa okkar. Eg sakna Skúla frænda míns, en er þakklát fyrir að sjúkdómsstríði hans skuli vera lokið. Guð geymi hann. Elsku Sigrún mín, þú stóðst eins og hetja við hlið hans þar tU yfir lauk. Eg votta þér og börnunum innilega samúð mína og einnig Nínu frænku minni. Guð blessi ykkur öll. Bergljót Þórðardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.