Morgunblaðið - 18.02.1999, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 18.02.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 53 + Gunnlaugur Eyjólfsson fæddist í Reykjavík 15.1. 1924. Hann lést á heimili sínu Lindargötu 22 4. febrúar 1999. For- eldrar hans voi-u Eyjólfur Guðmunds- sori verkamaður í Reykjavík, f. 9.1. 1896, d. 5.9. 1977 og kona hans Sigríður Magnúsdóttir, f. 5.4. 1894, d. 20.1. 1988. Systkini Gunnlaugs voim: Guðrún Marta, Guðmund- ur, Sigrún, Magnús, Ásgeir, Kristinn, Ásthildur, öll á lífi. Gunnlaugur átti einn son Ingi- berg Finnboga, f. 17.10. 1953. Utför Gunnlaugs fór fram frá Fossvogskapellu föstudag- inn 12. febrúar. Sumir menn kjósa að vinna verk sín í hljóði. Og sKkir menn kenna manni oft, að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Einn þessara manna var Gunnlaug- ur Eyjólfsson. Lung- ann úr sinni starfsævi, á fjórða áratug, vann hann hjá P. Ámason sf. allt þar til hann fór á eftirlaun. í fyrirtæki sem pakkar verðmæt- um eigum fólks áður en þær eru fluttar milli landa ríður á að vera samviskusamur, vandvirkur og úrræðagóður. Verk- efnin, sem aldrei eru eins, þarf að leysa hvert með sínu lagi. Og það kunni Gulli, eins og hann var kallaður, og taldi ekki eftir sér. Hann var þúsundþjala- smiður í þess orðs fyllstu merk- ingu. Undanfarna daga hef ég mikið hugsað til Gulla og mér datt í hug sagan af gamla manninum undir Eyjafjöllum, sem kunningi minn hitti eitt sinn. Sá er langskóla- genginn, eins og sagt er, og gamla manninum fannst skólagangan vera orðin æði löng og sagði: Hvemig er þetta með þig' eigin- lega, þú ert alltaf í skóla að læra, svo það er ekki von, að þú hafir tíma til að tileinka þér eitthvað nytsamt? Gulli hafði svo sannar- lega lært eitthvað nytsamt. Hann vann hörðum höndum alla ævi og kunni hvergi betur við sig en einmitt í vinnunni. Laghentari manni hef ég ekki verið samtíða. Þau eru ófá meistarastykkin, sem eftir hann liggja og eiga eflaust margir eftir að njóta þeirra um ókomna tíð. Gulli var hrókur alls fagnaðar í sínum hópi, en síðustu árin vom honum erfið og hann hélt sig meira til hlés eftir að hann hætti að vinna fyrir örfáum áram. Við starfsfélagarnir kveðjum í dag sérstakan mann, sem á sér- stakan sess í hjörtum okkar. Við sendum Ingibergi Finnboga og öðram ættingjum og vinum samúðarkveðjur og tökum undir með Jónasi Hallgi-ímssyni í Huldu- ljóðum: Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggamótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! Jakob Pétursson. GUNNLAUGUR EYJÓLFSSON ÞORGEIR IBSEN + Þorgeir Guðmundur Ibsen fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 26. apríl 1917. Hann lést á Landspítalanum 8. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Hafnarfjarðar- kirkju 15. febrúar. Þegar nefnt er nafn Þorgeirs Ib- sen koma í hugann mörg orð sem tengjast honum. Höfðingi, heiðurs- maður, stjórnandi, sögumaður, fræðimaður, og síðast ekki síst eig- inmaður, faðir og afi. Það varð einmitt þannig sem við þekktum hann best. Ekkert stóð hjarta hans nær en Ebba, börnin og barnabörn- in. Hann umvafði þau með kærleik og elsku og studdi þau og hvatti til dáða. Það er margra samverustunda að minnast. Það var glatt um jólin í gamla daga þegar systurnar, Ebba, Helga, Lella og Hrefna komu sam- an með allan hópinn sinn á jóladag. Mætt um hádegi og haldið áfram fram á kvöld. Þorgeir stjórnaði söng og Ebba sá um að enginn sveikst undan að dansa í kringum jólatréð. Stykkishólmur var Þorgeiri mjög kær. Hann naut samverustundanna með vinum og ætttingjum í litla húsinu á Staðarhólnum. Eftir að systurnar eignuðust æskuheimilið á hóinum, var oft kátt í kotinu þegar unnið var saman að endurbótum á húsinu og jafnan slegið upp veislu að kvöldi, eins og þeim einum er lagið. Þá var skeggrætt um lífið og tilveruna og svilarnir þráttuðu um pólitíkina, og voru sko ekki alltaf sammála. I gestabók hússins má sjá glöggt dæmi um hæfileika Þorgeirs til frásagna og ljóðagerðar. Þar standa heilu ljóaðbálkarnir um Stykkishólm, Breiðafjörð, fjölskyld- una sem bjó í húsinu, lífið og tilver- una. Við nutum góðs af ótæmandi fróðleik Þorgeirs um menn og málefni, og hann átti sögu að segja um hvern hól og hverja þúfu. Það er ógleymanlegt þegar við stóðum við hlið Þorgeirs úti í Súgandisey á ætt- armóti niðja Ástu ömmu og Lárasar afa fyrir nokkram árum. Við hlust- uðum á hann lýsa öllum fjalla- hringnum, eyjunum á Breiðafirði og segja okkur sögur af fólkinu sem þar bjó og lífi þess. Þorgeir Ibsen var mikill maður. Hans er sárt saknað, því það munar um menn eins og hann. Foreldrar okkar, Agnar og Lea, sakna góðs vinar, svila og mágs, skemmtilegs félaga í ferðalögum innanlands. Við systkinin, foreldrar okkar og fjölskyldur minnumst Þorgeirs Ib- sen með virðingu og þökk og biðjum Guð að blessa minningu hans og styrkja og leiða Ebbu, Asgerði, Þor- geir og alla þá sem þótti vænt um hann. Alma og Margrét Möller. GUNNLAUGUR PÉTURSSON + Gunnlaugur Pétursson var fæddur á Háafelli í Hvítár- síðu 7. maí 1915. Hann lést 31. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 10. febrúar. Kveðja frá Þjóðhagsstofnun í dag kveðjum við fyrrverandi samstarfsmann, Gunnlaug Péturs- son, sem lést aðfararnótt sunnu- dagsins 31. janúar á 84. aldursári. Gunnlaugur var meðal fyrstu starfsmanna Þjóðhagsstofnunar er hún hóf starfsemi árið 1974 og vann hér þar til hann fór á eftirlaun árið 1985. Gunnlaugur hóf störf hjá Inn- flutningsskrifstofu er svo hét árið 1939, starfaði síðar hjá Fjárhags- ráði, Framkvæmdabankanum og Efnahagsstofnun. Þjóðhagsstofnun er í raun í beinum karlleggi frá þessum ágætu stofnunum. Starfs- ferill Gunnlaugs var þannig samof- in sögu hagskýrslugerðar og hag- stjórnar á 20. öld. Gunnlaugur hafði með höndum gerð húsbyggingar- skýrslna sem hann safnaði frá byggingarfulltrúum víða um landið. Þá var Gunnlaugur einkar drjúgur í prófarkalestri, enda mikill smekk- maður á íslenskt mál. Gunnlaugur var góður starfsmaður og góður félagi. Hann hafði til að bera góða kímnigáfu og var prýðilega skáld- mæltur. Að leiðarlokum þakkar Þjóðhagsstofnun Gunnlaugi veg- ferðina og vottar aðstandendum samúð sína. Starfsfólk Þjóðhagsstofnunar. EINAR HANNESSON + Einar Hannesson fæddist í Vestmannaeyjum 17. júní 1913. Hann lést í Landspítal- anum 23. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Landakirkju í Vestmannaeyj- um 6. febrúar. Hann Einar Hannesson, vinur okkar, er farinn úr þessum heimi og kemur aldrei aftur til þess að sækja okkur í sunnudagaskólann. Einar kom á hverjum sunnudegi á rauða bílnum sínum, flautaði fyrir utan húsið okkar og þá vorum við tilbúnir að fara með honum og Gísla Val sem alltaf var með langafa sínum. Áður en farið var í sunnudaga- skólann var oftast farið niður á bryggju að kíkja á bátana. Eftir það var haldið til kirkju og þar sátum við hjá Einari innan um barnaskarann sem hændist að honum. Þarna í sunnudagaskól- anum heyrðum við talað um Jesú og sungum um Jesú. Einar var okkur sem besti afi. Þætti hann við vera of háværir sussaði hann á okkur og aldrei var langt í brjóstsykurspokann. Þeir vora ófáir molarnir sem Einar gaukaði að okkur bræðrunum. Einar var sú gerð afa sem öll börn þrá að eiga. Hann hafði alltaf upp á eitthvað að bjóða og var svo góður. Nú er Einar farinn frá okkur, en við munum ekki gleyma honum. Við vitum að Einar er nú kominn heim til Jesú, því hann elskaði Jesú. Guðjón og Daði Gíslasynir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Bróðir minn, EGGERT VÍDALlN KRISTJÁNSSON, elliheimilinu Grund, áður til heimilis á Njálsgötu 33, lést þriðjudaginn 16. febrúar. Dýrðfinna Vídalín Kristjánsdóttir. Elskuleg systir mín og frænka okkar, JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR, áður til heimilis f Hátúni 10, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 17. febrúar. Margrét Sigurðardóttir og systkinabörn. + Útför frænda okkar, GUÐNA RAGNARS GUÐMUNDSSONAR, Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, Reykjavík, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 7. febrúar sl., fer fram frá Digraneskirkju föstu- daginn 19. febrúar kl. 13.30. Fyrir hönd systrabama, Dorothy M. Breiðfjörð. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar frænda okkar, GESTS JÓNSSONAR, Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu. Fyrir hönd aðstandenda, Addý Guðjónsdóttir, Valgerður Eygló Kristófersdóttir. + Okkar innilegstu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför GUNNARS Þ. JÓNATHANSSONAR, Vegamótum, Seltjarnarnesi. Hjalti Jónathansson, systkinabörn og fjölskyldur þeirra. + Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, ÞÓRHÖLLU KRISTBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, Iðavöllum 10, Húsavík. Fyrir hönd aðstandenda, Höskuldur Jónsson, Aðalgeir Jónsson. + Hjartans þakkir sendum við þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför KJARTANS ÞÓRÐARSONAR, Boðahlein 13, Garðabæ. María Sigurðardóttir og fjölskylda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.