Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 55

Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 55
MORGUNB LAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 55 Matur og matgerð / „Eg er ekki enn búin að fá brauðuppskriftirnar sem þú lofaðir mér fyrir ári,u sagði kona nokkur við Kristínu Gestsdóttur um daginn. En þetta bjargaðist allt, maðurinn hennar tók við og bakar nú heimsins bestu brauð. KONU þessa vantaði uppskriftir í brauðvélina sína. Eg á enga brauðvél, en get ekki ímyndað mér annað en að allar almennar brauðuppskriftir henti í slíka vél og ætla því að reikna með því. í fyrra las ég í blaði viðtal við par sem ætlaði að fara að búa. Það var spurt hvaða heimilistæki væru nauðsynleg og svaraði að það þyrfti ísskáp, þvottavél, ryksugu, kaffívéj og brauðvél. Þá höfum við það. Eg á hvorki kaffí- vél né brauðvél og kemst samt vel af, en á aftur á móti góða hrærivél sem hnoðar brauðin mín. Mín brauð lyfta sér í hálfan til heilan sólarhring í ísskáp og eru mjúk og létt. Kostur við að láta brauðið lyfta sér í ísskáp er að maður þarf ekki að vera í kapphlaupi við tímann en getur bakað brauðið þegar hentar. Auk þess þarf minna magn gers í brauð sem lyfta sér svo hægt og lengi og brauðin fara mun betur í maga, eins er með brauð í brauð- vél, minna ger er notað en ella. Notið alltaf fínt þurrger sem setja má beint út í. Glúten er í hveiti - þó mismikið, en það myndar eins konar grind með holrúmi í brauðinu. I öðru mjöli er minna glúten, t.d. er mjög lítið af því í rúgmjöli. Nú er til sér- stakt hveiti ætlað í brauðvélar. Eg kynnti mér bakstur hjá tveimur brauðvélaeigendum. I þeirri gi’unnuppskrift sem fylgdi annarri vélinni voru notaðir 6 'Ædl af mjöli og 2 Vádl af vökva, þetta er heldur lítill vökvi í brauð án brauðvélar. Vökvamagn bæði í og án vélar er háð mjöltegundum, en þær drekka í sig mismikinn vökva. En hvernig sem við bök- um brauð þaif deigið að vera frekar lint og vökvinn má alls ekki vera heitari en 37-40°C. Þumalputtaregla er að dýfa fingri í vökvann, ef hvorki fínnst hiti né kuldi er hann mátulegur. Hin brauðvélin sem ég kynnti mér var heldur stærri, tók 8 dl af mjöli og eigandi hennar fræddi mig mikið um bakstur í brauðvél og virtist kunna vel til verka. Hvað sem brauðvélum líður læt ég hræri- vélina duga. Hafrabrauð m/sesamfræi _____4 Vi dl hveifi_ 2 dl haframjöl 1 msk. sesamfræ 1 tsk. fínt þurrger _______I tsk. salt__ 2 tsk. púðursykur 1 msk. matarolía 2 3Á dl fingurvolgt vatn úr krananum eggjarauða, mjólk og sesamfræ til að stró yfir 1. Ristið sesamfræið smástund á þuiri pönnu. 2. Takið 1 dl af hveiti frá. Setjið allt annað þurrefni í hrærivélar- skálina eða aðra skál og blandið saman. 3. Setjið matarolíu og fingur- volgt vatn út í og hrærið saman, deigið á að vera lint, bætið hveiti sem þið tókuð frá út í ef með þarf. Setjið disk yfir skálina og geymið í ísskáp í marga klukkutíma, sjá texta hér að ofan. Deigið getur líka lyft sér á borðinu í skemmri tíma 4. Takið brauðið úr skálinni, setjið á hveitistráð borð, fletjið örlítið út með kökukefli og vefjið saman. Setjið á bökunarpappír, samskeyti snúi niður. Smyrjið með eggjarauðu eða mjólk og stráið sesamfæri yfír. Leggið stykki yfii' brauðið og látið lyfta sér í 20-30 mínútur. Hitið ofninn í 75°C, skerið rifur í brauðið með beittum hnífí, setjið brauðið í ofn- inn og látið lyfta sér í 15 mínútur, aukið þá hitann í 200°C og bakið áfram í um 20 mínútur. Braud með sólblómafræi og maltöli 3 dl hveiti 1 '/2 dl heilhveiti 1 dl hveitiklíð 1 dl rúgmjöl 1 tsk. salt 1 msk. sólblómafræ 1 tsk. fínt þurrger 1 msk. matarolía _____2 V2 dl maltöl___ eggjarauða, mjólk og sólblómafræ til að stró yfir 1. Takið 1 dl af hveiti frá. Setjið önnur þurrefni í hrærivélarskál- ina eða aðra skál og blandið sam- an. 2. Hitið maltölið þar til það er fingurvolgt (alls ekki heitara) Setjið út í ásamt matarolíu og hrærið saman. Deigið á að vera lint, bætið hveiti sem þið tókuð frá út í ef með þarf. Setjið disk yfir skálina og látið lyfta sér í marga klukkutíma í ísskáp en skemur á borðinu. 3. Mótið brauðið eins og segir í uppskriftinni hér að ofan, skerið rifur í það, penslið á sama hátt og stráið sólblómafræi yfir. Bakið síðan eins og það brauð. FRETTIR Ritgerðasamkeppni á 50 ára afmæli Atlants- hafsbandalagsins VARÐBERG, félag ungra áhuga- manna um vestræna samvinnu, hef- ur ákveðið að efna til ritgerðarsam- keppni fyrir ungt fólk í tilefni af því að í vor eru 50 ár liðin frá stofnun Atlantshafsbandalagsins. Bandalagið stendur nú á margan hátt á tímamótum vegna breytinga í stjórnmálum og öryggismálum í heiminum. Telur Varðberg því við hæfí að gefa ungu fólki tækifæri til að tjá sig um þessi efni nú á 50 ára afmælinu og kynna sér jafnframt bandalagið, störf þess og stefnu. Keppnin er ætluð fólki á aldrinum 18 til 25 ára og er yfirskrift hennar „NATO - BREYTTIR TÍMAR - Hlutverk Atlantshafsbandalagsins í breyttu umhverfi á alþjóðavett- vangi“. I dómnefnd ritgerðarsamkeppn- innai- sitja Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, Eiður Guðna- son, sendiherra, og Birgir Armanns- son, foi-maður Varðbergs. Með Mikil þátttaka í stærðfræði- keppni Flens- borgarskólans STÆRÐFRÆÐIKEPPNI Flens- borgarskólans fyrir grunnskólanema í 8., 9. og 10. bekk verður haldin í fjórða sinn laugardaginn 20. febrúar nk. og hefst kl. 10 í Flensborgarskólanum. I upphafí var keppnin fyrst og fremst ætluð grunnskólanemendum í Hafnarfirði en á hverju ári bætast sífellt fleiri í hóp þeirra sem taka þátt í keppninni. Að þessu sinni taka fjórir fram- haldsskólar þátt í keppninni auk Flensborgarskóla. Þetta eru: Fjölbrautaskóli Suður- nesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands, nefndinni starfai- Dagný E. Lárus- dóttir, framkvæmdastjóri Upplýs- ingaskrifstofu Atlantshafsbanda- lagsins á Islandi. Verðlaun fyi-ir 3 bestu ritgerðirn- ar er þátttaka í kynnisferð til höfuð- stöðva Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Gert er ráð fyrir að ritgerðirnar í samkeppninni verði á bilinu 8 til 12 blaðsíður að lengd. Þeim skal skila til skrifstofu Vestrænnar samvinnu, Garðastræti 2, 101 Reykjavík fyrir kl. 16 miðvikudaginn 15. mars næst- komandi. Mikilvægt er að ritgerðum sé skilað bæði útprentuðum og á tölvutæku formi. Niðurstöður munu liggja fyrir í byrjun apríl. Nánari upplýsingar veita Dagný E. Lárusdóttir og Birgir Armanns- son í síma 510 7100. Upplýsingar um Atlantshafsbandalagið, stefnu þess og störf, er hægt að nálgast á skrif- stofu Vestrænnar samvinnu, Garða- stræti 2. Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn við Sund. Auk þessa hafa nokkrir nemendur af öðrum svæðum skráð sig til keppni í Flens- borgarskólanum. Samtals eru á annað þúsund grunn- skólanemendur skráðii' til keppni í þessum fímm skólum nú i vor. Málstofa efna- fræðiskorar SNORRI Halldórsson, efnafræðing- ur hjá Institut for kemiteknik, DTU, Kaupmannahöfn, flytur erindi í mál- stofu efnafræðiskorar föstudaginn 19. febrúar kl. 12.20 í stofu 158, VR- II, Hjarðarhaga 4-6. Erindið nefn- ist: Þróun reiknilíkana sem meta jafnvægi milli vökva og gass. Allir eru velkomnir. I fréttatilkynningu segur: „Gífur- legar framfarir hafa orðið á sviði efnaverkfræði á þessari öld. Meðal annars hafa verið þróuð reiknilíkön til þess að meta eðliseiginleika efna sem nota má til þess að reikna jafn- vægisástand, t.d. milli vökva og gass. Lokaverkefni Snorra til meistara- prófs í efnaverkfræði hét Calculation of simultaneous chemical and phase equilibrium. Rannsóknarverkefni Snon-a til doktorsprófs fjallar um aðferðir til að meta áhrif þyngdar- hröðunar og hitastigsstiguls á sam- setningu olíu/gas blandna, auk þess sem fyrirhugað er að kanna frekar mikilvægi hárpípuþrýstings og ásogs í olíulindum." Tena Palmer í Kaffileikhúsinu GESTUR í „Kvöldstundinni" í Kaffí- leikhúsinu í kvöld, fimmtudag kl. 21, verður djasssöngkonan Tena Pal- mer. Henni til fulltingis verður píanótríó, með þeim Kjartani Valdemarssyni, sem leikur á pí- anó, Þórði Högnasyni bassa- leikai'a og Matthí- asi Hemstock Tena Palmcr, trommuleikara. Újasssöngkona. Tríóið og Tena flytja m.a. lög eft- ir Cole Porter, Duke Ellington, Jer- ome Kern, Rogers & Hammerstein, Jimmy Van Heusen og Lesser & Lowe. Fundur um forvarnastarf í Hagaskóla FUNDUR verður fyrir foreldra og kennara bama í 9. og 10. bekk Haga- skóla fimmtudaginn 18. febrúar kl. 20 í kjölfar kynningar fyrir nemend- ur í þessum bekkjum skólans þar sem sýnd var myndin „Marit 2“, við- vörun frá fólki sem lifði af og rætt um fíkniefnavandann. Foreldrafélagið hvetur alla for- eldra og forráðamenn til að mæta. Morgunblaðið/Árni Sæberg UNDIRRITUN samninga frá vinstri: Vigfús Guðmundsson, Kristján P. Guðmundsson, Werner Rasmusson, Sigríður Sigurðardóttir, Helgi Kristbjarnarson, Magnús Jóhannsson, Bessi Gíslason og Jón Þórðarson. Apótekarafélagið kaupir útgáfu rétt Islensku lyfjabókarinnar APÓTEKARAFÉLAG íslands var stofnað 12. september 1929 og verður því 70 ára á þessu ári. í tilefni þessara tímamóta þótti stjórn AI við hæfi að stuðla að end- urútgáfu íslensku lyfjabókarinnar og þar sem fyrri útgefendur höfðu horfið til annarra starfa og sáu sér ekki fært að gefa bókina út að sinni var ákveðið að Apótekarafélag ís- lands keypti útgáfuréttinn. Fyrri útgefendur munu þó eiga stóran þátt að undirbúningi 4. útgáfu sem ekki er langt undan. Vel verður vandað til bókarinnar nú sem fyrr og hefur verið leitað til færustu sérfræðinga í því skyni. Félagið hét Lyfsalafélag íslands til 1942 og var hagsmunafélag allra apótekara til 1994 er ný lyfjalög tóku gildi. Var þá ákveðið að stofna nýtt félag sem sinnt gæti hagsmun- um allra lyfsöluleyfishafa og var það nefnt Félag íslenskra lyfsölu- leyfishafa (FÍL). Félagið reyndist ekki höfða til margra lyfsöluleyfis- hafa og var því ákveðið að breyta samþykktum Apótekarafélags Is- lands og opna það öllum lyfsölu- leyfishöfum. Kom þetta til fram- kvæmda eftir framhaldsaðalfund félagsins í júlí 1998. Fyrsti formaður Apótekarafélags Islands (þá Lyfsalafélag Islands) var Peter Lassen Mogensen, fædd- ur í Danmörku. Hann starfaði sem lyfsali við Seyðisfjarðar Apótek 1909-1928. Einnig var hann eftir- litsmaður lyfjabúða og Iyfsölustjóri ríkisins. Hann stofnaði Ingólfs Apó- tek og var fyrsti lyfsali þess (1928-1947). Hann var formaður Lyfsalafélags íslands 1929 til 1935 og sat í stjórn félagsins til 1944. Jóhanna Dagmar Magnúsdóttir, fyrsti íslenski kvenlyljafræðingur- inn, var jafnframt fyrsti ritari fé- lagsins eða frá stofnun og fram til 1949. Hún var formaður árin 1939-1940. Hún stofnaði og var fyrsti lyfsali Lyfjabúðarinnar Ið- unnar 1928-1961. Einnig var i stjórn Þorsteinn Scheving Thor- steinsson, lyfsali í Reykjavíkur Apóteki 1919-1962. Félagar í Apótekarafélagi fs- lands eru nú 32 og er tilgangur fé- lagsins m.a. sá að gæta sameigin- legra hagsmuna félagsmanna, að efla gagnkvæm kynni félagsmanna og auka skilning og samstöðu þeirra og að hafa áhrif á löggjöf þjóðarinnar um þau málefni er snerta félagsmenn og starfsemi þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.