Morgunblaðið - 18.02.1999, Qupperneq 57
r
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 57
FRETTIR
Styrktarkvöld
fyrir háskólanema
með dyslexíu
Ágóði rennur til fjármögnunar
hljóðbóka
„FRA HUGMYND til veruleika"
er yfirskrift styrktaruppákomu
sem haldin verður í kvöld á vegum
Dyslexíufélagsins, félags stúdenta
með dyslexíu, og Vöku fls. í Pjóð-
leikhúskjallaranum.
Dyslexíufélagið var stofnað á
síðasta ári innan Háskóla Islands
en dyslexía er skilgreind sem örð-
ugleikar við lestur, málnotkun og
meðferð talna. Rúmlega 60 nem-
endur njóta aðstoðar hjá námsráð-
gjöfum Háskóla íslands vegna
dyslexíu og eykst fjöldi þeirra ár
frá ári sem rekja má tU aukinnar
umfjöllunar um vandann í samfé-
laginu.
Það fé sem safnast í kvöld verð-
ur afhent rektor HÍ, Páli Skúla-
syni, og notað tU þess að fjár-
magna lestur háskólastúdenta á
námsbókum inn á hljóðsnældur en
slíkar hljóðbækur auðvelda nem-
endum með dyslexíu verulega nám
sitt. Námsráðgjöf HI í samráði við
fulltrúa Félags nemenda með dys-
lexíu, sem stofnað var 18. nóv. sl.,
ráðstafar fénu. Er ætlunin að slá
tvær flugur í einu höggi þar sem
verið er að skapa stúdentum at-
vinnu ásamt því að leggja góðu
málefni lið. Með þessu er verið að
stíga enn eitt ski-efið í þá átt að því
áð jafna aðgang fólks að háskóla-
námi sem og öðru námi, að sögn
Mörtu Birgisdóttur, formanns fé-
lags stúdenta með dyslexíu.
Dagskrá styrktarkvöldsins
samanstendur af margs konar
skemmtiatriðum og allir listamenn
sem fram koma gefa vinnu sína.
Þeir sem fram koma eru Felix
Bergsson, Helgi Björnsson, Geir-
fuglarnir, Brooklyn Five, Smala-
drengirnir, Rúnar Freyr Gíslason,
Ólafur Teitur Guðnason, Bryndís
Ásmundsdóttir, Dóra Guðrún
Guðmundsdóttir og Bjarni töfra-
maður. Styrktaraðilar kvöldsins
eru Fjárfestingabanki atvinnulífs-
ins, Vífilfell, Fjárvangur og ís-
lensk erfðagreining.
Húsið verður opnað kl. 21:30 og
aðgangseyrir er 600 kr.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
EYGLÓ Eyjólfsdóttir, skólameistari Borgarholtsskóla og Hákon Hákonarson, formaður Fræðsluráðs málm-
iðnaðarmanna, skrifa undir samning um að endurmenntun málmiðnaðarmanna fari fram í skólanum.
Endurmenntun málmiðnaðar-
manna í Borgarholtsskóla
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli Borgarholtsskóla
og Fræðsluráðs málmiðnaðarins
þess efnis að endurmenntun málm-
iðnaðarmanna fari fram í skólan-
1
Ein áfrýjunarnefnd
kærumálum háskólanema
Eygló Eyjólfsdóttir, skólameist-
ari Borgarholtsskóla, og Hákon Há-
konarson, formaður Fræðsluráðs
málmiðnaðarins, undirrituðu samn-
inginn, sem gildir í fimm ár. Samn-
ingurinn, sem að sögn Eyglóar hef-
ur verið í bígerð frá því skólinn var
stofnaður árið 1996, veitir Fræðslu-
ráði aðstöðu til kennslu í rafsuðu,
logsuðu og vökvakerfum, þrjá daga
í viku, þegar námskeið eru haldin.
Fræðsluráð hefur hingað til verið
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur staðfest reglur um áfrýjunar-
nefnd í kærumálum háskólanema.
Eru reglurnar settar samkvæmt
ákvæðum 5 gr. laga nr. 136/1997 um
háskóla. Með reglum þessum er
kveðið á um að ein áfrýjunarnefnd
starfi fyrir allt háskólastigið vegna
kærumála háskólanema, samkvæmt
5. gr. laga nr. 136/1997 um háskóla,
en ekki sérstakar nefndir fyrir hvern
háskóla.
Markmiðið með þeirri skipan er að
stuðla að samræmingu í úrskurðum í
kærumálum háskólanema og réttlát-
ari eða óhlutdrægari niðurstöðu með
því að nefndin verði ekki of nátengd
viðkomandi háskóla, segir í frétt frá
menntamálaráðuneytinu. Með því að
hafa aðeins eina nefnd er ennfremur
stuðlað að því að þeir sem um áfrýj-
unarmál fjalla hafi eða öðlist
ákveðna reynslu og þekkingu og
slíkt ætti að tryggja betri og faglegri
málsmeðferð.
Samkvæmt nýsettum reglum
menntamálaráðherra er hlutverk
áfrýjunarnefndar í kærumálum há-
skólanema að úrskurða í málum, þar
sem námsmenn í ríkisháskólum eða
háskólum, sem hlotið hafa staðfest-
ingu menntamálaráðherra, telja
brotið á rétti sínum varðandi: a.
námsmat, þ.m.t. fyrirlögn prófa, til-
högun einkunnagjafar, skipun próf-
dómara, birtingu einkunna, b. mat á
námsframvindu, þ.m.t. rétt til endur-
tökuprófs c. afgreiðslu umsókna um
skólavist þ.m.t. tilhögun mats á námi
á milli skóla. Nefndin mun ekki end-
urmeta prófúrlausnir eða faglega
niðurstöðu kennara, dómnefnda eða
prófdómara.
I fréttatilkynningunni segir: „Mál-
um verður ekki skotið til áfrýjunar-
nefndarinnar nema kæruleið, skil-
greind og samþykkt af háskólaráði
viðkomandi háskóla, hafí verið tæmd
eða þrír mánuðir liðnir frá því að
kæra var fyrst skriflega lögð fyrir
háskólaráðið.
Áfrýjunarnefnd í kærumálum há-
skólanema getur með úrskurðum
sínum staðfest, breytt eða fellt úr
gildi ákvarðanir háskóladeilda eða
háskólaráðs í þeim málum, þar sem
nemendur telja á rétt sinn hallað
sbr. 1. gr. Úrskurðir nefndarinnar
eru endanlegir á stjórnsýslustigi og
verður þeim ekki skotið til ráð-
herra.
Samkvæmt reglunum verður
áfrýjunarnefndin skipuð þremur
fulltrúum sem menntamálaráð-
herra skipar til tveggja ára í senn.
Skal einn tilnefndur af samstarfs-
nefnd háskólastigsins, einn til-
nefndur sameiginlega af samtökum
háskólanema og einn skipaður án
tilnefningar, sem er formaður
nefndarinnar. Skulu þeir allir full-
nægja skilyrðum lögum samkvæmt
til þess að vera héraðsdómarar.
Varamenn eru skipaðir með sama
hætti. Þegar hefur verið óskað eftir
tilnefningum Samstarfsnefndar há-
skólastigsins og samtaka háskóla-
LEIÐRETT
Stofnendur
Morgunblaðsins
VEGNA misskilnings var
sagt í Morgunblaðinu í gær að
Björn Jónsson hefði verið
einn af stofnendum Morgun-
blaðsins. Hið rétta er að Olaf-
ur, sonur Björns, stofnaði
Morgunblaðið ái'ið 1913 ásamt
Vilhjálmi Finsen. Bjöm stofn-
aði hins vegar blaðið Isafold
árið 1874 og var ritstjóri þess
nær óslitið til 1909. Hann lést
árið 1912. Velvirðingar er
beðist á þessum mistökum.
Gufunesbær
er í Grafarvogi
FÉLAGS- og tómstundamið-
stöðin Gufunesbær er í Graf-
arvogi en ekki Garðabæ eins
og sagði í frétt Morgunblaðs-
ins í gær um upphaf útsend-
inga hjá útvarpsstöðinni
Radio, þar sem unglingar
munu sjá um útsendingar.
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Framboðslisti Fram-
sóknarflokksins í
Reykj aneskj ör dæmi
Kvennadeild Reykjavfkurdeildar RKÍ
Gaf kvennadeild
Landspítalans
4 milljónir króna
í TILEFNI 50 ára afmælis
kvennadeildar Landspítalans
færði kvennadeild Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands
deildinni 4 millj. kr. að gjöf til
kaupa á lækningatækjum.
Kvennadeild R.RKÍ hélt
fræðslu- og kynningarfund 28.
janúar sl. í Fákafeni 11. Tilgangur
fundarins var að kynna starfsemi
kvennadeildar fyinr nýjum
sjúkravinum. Hvenær og hvers
vegna Rauði krossinn var stofnað-
ur, hvernig hann er uppbyggður
og um starf hans hérlendis.
Starf Reykjavíkurdeildar var
kynnt. Fulltrúar nefnda kvenna-
deildar sögðu frá störfum í sölu-
búðum, bókasöfnum, heimsóknar-
þjónustu og frá fóndurstarfí
deildarinnar. Framkoma í starfí,
starfsreglur og skyldur sjúkra-
vina voru meðal þess efnis sem
tekið var fyrir.
Vetrarfundur kvennadeildar
verður haldinn 25. febrúar nk. í
veitingahúsinu Skólabní og mun
Sigurlína Davíðsdóttir sálfræð-
ingur tala um streitu.
Á FUNDI fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins í Reykjaneskjördæmi, sem
haldinn var sl. þriðjudag í Kópavogi,
var einróma samþykktur framboðs-
listi Framsóknarflokksins í Reykja-
neskjördæmi fyrir alþingiskosning-
arnar 8. maí 1999. Hann er skipaður
eftirfarandi:
1. Siv Friðleifsdóttir, alþingis-
maður, Seltjarnai’nesi, 2. Hjálmar
Árnason, alþingismaður, Reykja-
nesbæ, 3. Páll Magnússon, fram-
kvæmdastjóri, Kópavogi, 4. Drífa
Sigfúsdóttir, húsmóðir, Reykjanes-
bæ, 5. Björgvin Njáll Ingólfsson,
verkfræðingur, Mosfellsbæ, 6. Hild-
ur Helga Gísladóttir, húsmóðir, bú-
fræðingur, Hafnarfirði, 7. Hallgrím-
ur Bogason, framkvæmdastjóri, Gr-
indavík, 8. Sigurbjörg Björgvins-
dóttir, forstöðumaður, Kópavogi, 9.
Steinunn Brynjólfsdóttir, meina-
tæknir, Garðabæ, 10. Sigurgeir Sig-
mundsson, lögreglufulltrúi, Hafnar-
fírði, 11. Bryndís Bjarnason, versl-
unarmaður, Mosfellsbæ, 12. Gunn-
laugur Þór Hauksson, ketil- og
plötusmiður, Sandgerði, 13. Lára
Baldursdóttii', húsmóðir, Vogum,
14. Sveinn Magni Jónsson, verka-
maður, Garði, 15. Silja Dögg Gunn-
arsdóttir, háskólanemi, Reykjanes-
bæ, 16. Eyþór Þórhallsson, verk-
fræðingur, Garðabæ, 17. Elín Gróa
Karlsdóttir, bankastarfsmaður,
Mosfellsbæ, 18. Margi'ét Rúna Guð-
mundsdóttir, háskólanemi, Seltjarn-
arnesi, 19. Guðbrandur Hannesson,
bóndi, Mosfellsbæ, 20. Gunnar Vil-
bergsson, umboðsmaður, Grindavík,
21. Elín Jóhannsdóttir, kennari,
Bessastaðahreppi, 22. Sigurður
Geirdal, bæjarstjóri, Kópavogi, 23.
Jóhanna Engilbertsdóttir, fjármála-
stjóri, formaður LFK, Hafnarfirði,
24. Steingrímur Hermannsson,
fyi’rverandi forsætisráðherra,
Garðabæ.
UTSÖLULOK
Verðhrun á útsölulokum
Dömuskór, herraskór,
barnaskór á ótrulegu verði
Síðustu dagar útsölunnar - Allt á að seljast
1
með námskeið hér og þai' þannig að
það var mikil þörf fyrir það að kom-
ast inn í húsnæði eins og Borgar-
holtsskóla, sagði Eygló.
Hákon sagðist vera mjög ánægð-
ur með samninginn og sagðist sann-
færður um það að hann yrði skólan-
um ekki síður en samtökum at-
vinnulífsins til framdráttar. Þegar
hefur verið haldið eitt þriggja daga
námskeið í skólanum, en því lauk á
fóstudaginn.
I