Morgunblaðið - 18.02.1999, Side 59

Morgunblaðið - 18.02.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 59 Fallinn foringi Frá Þorgeiri R. Valssyni: BREF þetta er ritað vegna atviks sem henti mig sem Netnotanda. Forsaga málsins er sú að í októ- ber-nóvember 1998 breytti Lands- síminn hf. hjá sér notendakerfinu, en ég er Netnotandi og sæki mína þjónustu þangað. Fór að bera á vandræðum með að ná sambandi við Netið og hringdi ég til að athuga hvenær þetta myndi lagast. Svörin voru alltaf þau sömu, „eftir tvær til þrjár vikur“. Hringdi ég að minnsta kosti á tveggja vikna fresti til að at- huga hvað væri verið að gera vegna þess að mér fannst þjónustan fyrir neðan allar hellur. Síðan datt mér í hug að láta sundurliða símareikninginn og þá sá ég nokkuð sem náði minni at- hygli strax. Yfirleitt þurfti ég að gera nokkrar tilraunir áður en það tókst að ná sambandi og stóðu þessar tilraunir nokkrar sekúndur og síðan slitnaði sambandið. Petta voru allt að 25 tilraunir á kvöldi. Eg sá að fyrir hverja tilraun var ég rukkaður um 3,32 kr. Ég hringdi til að reyna að fá svör hvernig stæði á þessu, en enginn vissi hvað ætti að gera við þessu vandamáli. Þá fór ég fram á að fá þetta bætt, þar sem mér fannst ósanngjarnt að þurfa að borga fyr- ir þessar árangurslitlu tilraunir. Fyrir nóvember, desember og jan- úar voru þetta nokkuð margar ár- angurslausar tilraunir og því tölu- verð upphæð sem ég þurfti að Frá Laufeyju Vilhjálmsdóttur: ÉG SKORA á alla íslendinga sem á penna géta haldið, þar á meðal skóla- fólk, að skrifa nafn sitt á þau eyðu- blöð sem fást hjá landlækni, í mót- mælaskyni gegn þeirri löggjöf um gagnagrunn á heilbrigðissviði, sem þrýst var í gegn á Alþingi 17. desem- ber 1998. Þessi nýju lög svipta Islendinga almennum mannréttindum og ná yfir merg þjóðarinnar. Hefðu háttvirtir alþingismenn leyft sér að selja Þing- velli út úr landinu á svipaðan hátt og þeir hafa selt mannréttindi okkar, þá efast ég ekki um, að Islendingar hefðu risið upp og mótmælt hástöf- um. Nú er svo komið að þjóðarréttur okkar íslendinga er í veði og Alþingi hefur séð svo um með hinum nýju lögum, að við stöndum uppi varnar- laus gegn metorðagjörnum vísinda- mönnum og ónafngi-eindum auð- hringum. Umræða um erfðafræðileg mál- efni er rétt að byrja úti í heimi. Eng- in alþjóðalög eru fyrir hendi, og því mun enginn koma okkur til aðstoðar ef illa tekst, með þær tilraunir sem framundan eru. Eins er ógerningur í dag að halda persónulegum upplýs- Frá Einari Sveini Erlingssyni: VORMENN íslands hafa alltaf þuift að kemba sig í gegnum framsóknar- flókann til að sjá til sólar. Vistbönd bænda í SÍS-veldinu voru gerð upp með brostnum vonum og bakverk. Bændur áttu aldrei neitt í SÍS þegar vel gekk, en aftur á móti alltaf skuld- irnar þegar illa gekk. Ekki gátu þeir legið úr sér ótuktina í Bændahöllinni. Hún var aldrei hugsuð þannig. Framsókn sá fram á tilvistarkreppu og málefnalegt þrot. Því skyldi nú láta þjóðina alla verða ábyrga við að bjarga pólitíska klúðrinu og hruninu. Sjóðir voru stofnaðir, þingmenn gengu um héruð og sýndu mann- gæsku sína: spurðu menn, hvað ég get gert fyrir þig, vinur minn? Þú segist vera kominn á hausinn. Við lögum það, hvað má bjóða þér, og þá á ég við styrk frá okkur! Jæja, viltu koma í ylrækt? Jú, nóg er af gufunni hérna. Én sjáðu til, hún hefur alltaf verið hérna og aldrei verið virkjuð. Ég er að tala um nýsköpun, t.d. minka, refi, fiskeldi - kannski togara eða súrheysturn og fjái’hús. Nei, nei, ekki ylrækt, sjáðu til, rafmagnið er Leik- húsmiði í sára- bætur borga. Hringdi ég alloft og talaði við marga til að reyna að fá svör við því hvort mér yrði bætt þetta sambandsleysi, en alltaf var málið í athugun. Eg hefði sætt mig við að fá afnotagjald fyrir 2-3 mánuði frítt, en það er svipuð upphæð og ég hef borgað fyrir þessi óþægindi sem þjónusta þeirra hefur valdið. 10. febniar hringdi ég í starfs- mann sem hafði ætlað að athuga þetta og fá svör í eitt skipti fyrir öll. Hann var ekki við svo ég sagðist hringja aftur á morgun og samtalið endaði. Fékk ég síðan hringingu frá Net- þjónustuni stuttu seinna og var mér tilkynnt að búið væri að leysa þetta mál og þeir ætluðu að bæta mér þetta. Varð ég spenntur og hugsaði að nú væri árangur erfiðis kominn. Tikynnti sá sem hi-ingdi að þeim hefðu áskotnast leikhúsmiðar hjá Is- lensku óperunni föstudaginn 12. febrúar og þeir vildu bjóða mér tvo ingum leyndum, því að ekkert tölvu- kerfi er til sem er óbrigðult. íslend- ingar þurfa þvi að gera sér grein fyr- ir, að allar þær upplýsingar um heilsu og lífemi hvers og eins, sem í gagnabankann fara, verða opinbert mál á skammri stundu og verða not- aðar til verzlunar og annars út um allan heim. Þau verðmæti, sem liggja í þeim upplýsingum sem yfir þrjátíu ís- lenzkar kynslóðir hafa safnað saman og hlúð að á tíu öldum, eru óútreikn- anleg í dag. Samt hika ekki alþingis- menn okkar við að moka þeim út úr landinu án þess að þjóðin fái nokkurn arð fyrir vit og strit. Ekkert er eins íslenzkt og blóðið sem rennur í æðum okkar og geymir leyndardóm þjóðarinnar. Leyndar- dómurinn er sameign okkar 275.000 einstaklinga og hann er ekki falur neinum, án samþykkis hvers og eins. Okkur ber skylda til að hugsa um ekki aðeins réttindi allra núlifandi íslendinga, heldur og forfeðra okkar og niðja. Fáeinir alþingismenn hafa ekki slíkt guðs vald, að þeir geti selt blóð okkar í heildsölu til gráðugra vís- indamanna. Við þurfun að hugsa svo dýrt. Ég hef ekki umboð til að ráðstafa því. Jæja, þú ætlar þá að fá súrheystuminn og nýtt fjárhús - mér líst vel á það. Allt kostaði þetta ótal gengisfell- ingar. En allt er það hégómi móti stóru gengisfellingunni og land- ráðunum sem nú hafa verið í smíðum síðustu fimmtán ár hjá litla og stóra Framsóknarflokknum. Eignaupp- taka auðlindar hafsins frá þjóðinni til fárra gæðinga sem þó nokkrir sitja á Alþingi og munu verja þennan gjörn- ing með atkvæðum sínum á ögur- stundu, fái þeir að sitja næsta kjör- tímabil. Það er einn flokkur sem hefur lýst afdráttarlaust yfm andófi gegn þess- um gjörningi og mun standa við það með hinn styrka foringja í stafni, þar sem Sverrir Hermannsson er. Fund- ur Frjálslynda flokksins í Borgartúni 6 gaf sannarlega því fólki byr í seglin sem óttast framtíð barna sinna í léns- veldinu sem er í smíðum hjá stjóm- aifiokkunum. EINAR SVEINN ERLINGSSON, Heiðarbrún 74, Hveragerði. miða. Eiginlega gapti ég á símtólið í smástund svo hissa varð ég og þar að auki kom boðið aðeins með tveggja daga fyrirvara. Sagði ég honum að ég hefði ekki mikinn áhuga á leikhúsferðum og það væri ekki það sem ég hefði hugsað mér. Tilkynnti hann þá að þetta væri það eina sem þeir gætu gert til að bæta mér upp óþægindin og kostnaðinn sem ég hafði þurft að bera fyrir ekki neitt. Landsíminn hf. er fyrirtæki sem á allt sitt veldi íslensku þjóðinni að þakka og gæti auðveldlega komið til móts við viðskiptavini sína hafi þeir orðið fyrir óþægindum af þess völd- um. Get ég ekki annað en skellihlegið að þessu öllu saman og sama gera þeir sem ég segi frá svo fáránlegt þykir mér ástandið hjá þeim. Vona ég að einhverjum finnist þetta mál þess virði að athuga vegna þess að einhverntímann verður að stöðva þessa vitleysu. Hef ég sundurliðaða símareikn- inga ef einhver vill sjá og sannfær- ast um að ég borga fyrir það sem mér er ekki veitt, sem er þjónusta hjá Netþjónustu Landsímans hf. Ég er mikill Netnotandi og gæti alveg hugsað sér að vera notandi hjá Landssímanum hf., en ástandið verður þá að batna og þeir verða líka að koma hreint fram við við- skiptavini sína. málið til hlítar og ekki láta stjórnast af nokkrum dollaraseðlum sem veif- að er. Þessi nýju lög sem Alþingi hefur sent frá sér, eiga ekki heima í sið- menntuðu þjóðfélagi eins og íslandi og verður að endurskoða hið fyrsta. Þjóðarheill okkar er í veði. Við þurf- um að hafa hraðan á og sýna sterka samstöðu mótmælenda gegn einræði og skammsýni ginnkeyptra alþingis- manna. LAUFEY VILHJÁLMSDÓTTIR næringarfræðingur, 15 Foote’s Lane Morristown, NJ USA Frækilegnr árangur ungra fram- sóknar- manna Frá Einarí Skúlasyni: FRAMSÓKNARFLOKKURINN hefur sýnt það enn og aftur að hann er flokkur unga fólksins. í nýafstöðnu prófkjöri á Norðuriandi vestra náðu tveir ungir menn glæsilegum árangri. Annars vegar er það Ámi Gunn- arsson, sem lenti í öðru sæti og hins vegar Birkir Jón Jónsson, sem náði fjórða sæt- inu. Báðir hlutu þeir afgerandi kosningu og eru vel að úrslitunum komnir. Með þessum úrslitum hafa framsóknarmenn í Norðurlandskjördæmi vestra gefið tóninn fyrir samleið ungs fólks og Framsóknarfiokksins í kosningunum í vor. í flestum öðrum kjördæmum eru ungir framsóknarmenn í eldlín- unni, annaðhvort í baráttusætum fyrir þingsæti eða varaþingmanns- sæti. Nægir þar að nefna Pál Magn- ússon á Reykjanesi, Vigdísi Hauks- dóttur í Reykjavík, Sigi’únu Ólafs- dóttur á Vesturlandi og Sigi’únu Júl- íu Geirsdóttur á Austurlandi. Ég vil með þessum orðum óska flokksmönnum til hamingju með stöðuna og hvet allt ungt fólk til að stíga með okkur upp í grænu lestina og bruna af stað til móts við kosn- ingasigur í vor. EINAR SKÚLASON, stjórnmálafræðingur og varaformaður Sambands ungi’a framsóknannanna. Frá Karli Ormssyni: MARGT hefur verið talað um próf- kjör vinstrimanna og sérstaklega í Reykjavík. Vinstrimenn hafa tekið þá ákvörðun einu sinni enn að sam- einast mót Sjálfstæðisflokknum að þein-a sögn. En það eru fáir sem sjá annað en að þetta veki enn meiri sundrungu hjá vinstraliðinu en áður hefur þekkst. f allri þessari umræðu hefur hvergi komið fram að einn fremsti foringi vinstrimanna hefur saxað svo flokk sinn í tætlur að aug- ljóst er að honum verður aldrei tjasl- að saman aftur. Margir spekingai- hafa sagt að Jóhanna Sigurðardóttir hafi unnið sögulegan sigur í próf- kjörinu á laugardaginn var. En þetta er náttúrlega argasta vitleysa. Fyrst vil ég tala um þann flokks- foringja sem gengið hefur endanlega af flokki sínum steindauðum, en það er að sjálfsögðu Margrét Frímanns- dóttir. Hvergi í veröldinni nema í einræðisríki mundi flokksforingja vera stætt á því að segja ekki af sér og fela öðrum forystuna. Margrét Frá Kristjáni Baldurssyni: NOKKUÐ undarleg virðast við- brögð formanns Framsóknarflokks- ins í nýhafinni kosningabaráttu: Hann hefur marg tönnlast á því að Framsóknarflokkurinn gangi óbund- inn til kosninga. Á sama tíma er hann að senda Samfylkingunni tón- inn um ónýta vinstri stefnu. Hvers vegna geta Framsóknar- menn ekki gefið þjóðinni valkost og lagt undir verk sín í ríkisstjórn Da- víðs Oddsonar? Komið fram fyrir hefur, svo enginn hefur hrakið, kom- ið svo fram í öllu þessu sameiningar- brölti að dæmalaust er. Nú fer fólk kannski að skilja hvað hún var að gera til Kastrós, en hann bauð henni til Kúbu þó að hún fengi ekki einu sinni að berja hann augum. En hún er örugg með sig á þing skulum við halda þó að ekkert verði sagt um það ennþá. Alþýðubandalaginu hefur hún endanlega lógað. Það fækkar alltaf þingmönnum Margi-étar og henni finnst það alltaf betra og betra. Margur mundi nú kannski segja að farið hefði fé betra. Sigur Jóhönnu er fljótafgreiddur. Þar var klárlega eins og Guðný Guð- björnsdótth- hefur sagt óbeint að smalað var ótæpilega í svokallað hólf Alþýðuflokksins. Ekki til að gera hlut Jóhönnu sem bestan heldur til að klekkja á Alþýðubandalaginu og segja má að með þessu sé Jóhanna komin heim aftur í heiðardalinn eftii' langa og stranga eyðimerkurgöngu. þjóðina og sagt: Fái núverandi stjórn meirihluta þingmanna viljum við að þessu stjórnarsamstarfi verði haldið áfram. Ér það ekki heiðarlegri mál- flutningur heldur en þvæla um eitt- hvað óljóst eftir kosningar. Það getur enginn mælt á móti því að núverandi ríkisstjóm hefur náð miklum árangri í efnahagsmálum þjóðarinnar. Við hvað eru Framsóknarmenn hræddir? KRISTJÁN BALDURSSON, Bakkahlíð 18, Akureyri. Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, félag laganema ESTEE LAUDER kynnir 100% Time Release Moisture Creme Háþróað rakakrem sem hefur einstakt dreifikerfi til að tryggja húðinni samfelldan raka af lífrænni vatnslausn. Rakadælan heldur áfram án þess að stoppa í allt að 12 stundir. Húðin verður mjúk, fersk og slétt. Eiginleikar hennar til að drekka í sig raka og geyma hann eflast. 100% Time Release Moisture Creme, 30 ml verð kr. 3.320, 50 ml verð kr. 4.725. Ráðgjafi frá Estée Lauder verður í versluninni í dag og á morgun, föstudag, frá kl. 13-18. Gullbrá, Nóatúni 17 562 4217 ÞORGEIR R. VALSSON, Vatnsholti 18, Keflavík. * Askorun til íslendinga Kvótinn og lénsveldið Einar Skúlason KARL ORMSSON, fym'erandi deildarfulltrúi. Við hvað eru framsóknar- menn hræddir?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.