Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 60

Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 60
80 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF í DAG Safnaðarstarf Guðfræði guðs- þjónustunnar ANNAR fyrirlestranna í röð fyrir- lestra á fóstuinngangi og á föstu, sem Reykjavíkurprófastsdæmi eystra býður upp á, verður í dag, fimmtudaginn 18. febrúar. Fyrir- lesturinn er í Seljakirkju og hefst kl. 20.30. Par mun sr. Kristján Val- ur Ingólfsson fjalla um guðfræði guðsþjónustunnar, innihald hennar og merkingu. Að fyrirlestrinum loknum gefst tóm til umræðna yfír kaffíbolla. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa kl. 14-17. Biblíulestur kl. 20.30 í safnaðarheimili Askirkju. Jóhann- esarbréf lesin og skýrð. Arni Berg- ur Sigurbjörnsson. Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10-12. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðar- heimilinu á milli kl. 14-16. Haligrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun, altaris- ganga. Léttur málsverður í safnað- arheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12 ára böm kl. 17.1 auga stormsins, kyrrð, íhugun, bæn, lofsöngur og fræðsla. Kl. 19.30 innri íhugun. Kirkjan opn- uð kl. 19.15 til kynningar fyrir þá sem eru að koma í fyrsta skipti. Kl. 20.15 trúarreynsla - fræðsla, kl. 21 Taizé-messa. Langholtskirkja. Opið hús fyrir for- eldra yngri barna kl. 10-12. Söng- stund. Passíusálmalestur og bæna- stund kl. 18. Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.10. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel frá kl. 12. Léttur málsverður að stundinni lokinni. Samvera eldri borgara kl. 14. Jónas Magnússon sýnir skuggamyndir frá Kínaferð sinni. Þjónustuhópur Laugarnes- kirkju heldur uppi gleðinni ásamt sóknarpresti. Seltjarnarneskirkja. Starf fyrir 9-10 ára börn kl. 17-18.15. Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Fræðsluerindi í prófastsdæminu fyrir almenning sem verða í Selja- kirkju í febrúar og marsmánuði á fímmtudögum kl. 20.30 og munu fjalla um: Táknmál kirkjunnar. Sr. Kristján Valur Ingólfsson, rektor Skálholtsskóla, flytur erindi í kvöld sem nefnist: „Guðfræði guðsþjón- ustunnar". Umræður um efnið og kaffí á eftir. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn á fóstudögum kl. 10-12. Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10-12. Leikfimi aldraðra kl. 11.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Bænarefnum má koma til sókn- arprests eða kirkjuvarðar, einnig má setja bænarefni í bænakassa í anddyri kirkjunnar. Aðalfundur kirkjufélagsins kl. 20.30. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 11-12 ára kl. 17. Grafarvogskirkja. Mömmumorgn- ar kl. 10-12. Áhugaverðir fyrirlestr- ar, létt spjall og kaffí og djús fyrir börnin. Kyrrðarstundir í hádegi kl. 12.10. Fyrirbænir og altarisganga, léttur hádegisverður. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára börn kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf eldri borg- ara í dag kl. 14-16 í safnaðarheimil- inu Borgum. Kyrrðar- og bæna- stund í dag kl. 18. Fyrirbænaefnum má koma til prests eða kirkjuvarð- ar. Seljakirkja. Fundur KFUM fyrir 9-12 ára stráka er í dag kl. 17.30. Fræðslukvöld kl. 20.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára böm frá kl. 17-18.30 í safnaðarheimilinu, Linnetsstíg 6. Æskulýðsfundur kl. 20-22. Hafnarfjarðarkirkja. Mömmumorgnar kl. 10-12 í Vonar- höfn. ÁTN-starf fyrir 8-9 ára kl. 17-18.30 í Vonarhöfn. Vídalínskirkja. Bæna og kyrrðar- stund kl. 22. Kaffí eftir athöfn. Bibl- íulestur kl. 21. Víðistaðakirkja. Foreldramorgun milli kl. 10-12. Opið hús fyrir 10-12 ára börn kl. 17—18.30. Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl. 18.30. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl. 16-18. Starfsfólk verður á sama tíma í Kirkjulundi. Kyrrðar- og fyr- irbænastund í kirkjunni kl. 17.30-18. Umsjón Lilja G. Hall- grímsdóttir djákni. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 14.30 helgistund á Sjúkrahúsinu í dagstofunni á 2. hæð. Kl. 17 TTT- starfið. Á fundinum undirbúum við leikþátt. Kl. 20.30 opið hús unglinga í KFUM&K húsinu. UTSALAN í fullum gangi HERRAKULDASKOR Litir: Svartir, brunir Stærðir: 40-46 Tegund: 86668 Nytt kortatimabil Litir: Svartir, brúnir Stærðir: 40-46 und: 86368 ii Mikið úrval af kuldaskóm T Póstsendum samdægurs oppskórinn VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212 Brúðhjón Allur boróbiínaöur -:Glæsileg gjafavára - Briiðtijónalistar /j.‘r)/,wV\\\o\ VFBSUJMN Lítngdvegi 52, s. 562 4244. VELVAKAJVPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Otrúlega margir ein- mana!!! EG undimtaður skrifaði niður hugleiðingar mínar um feimni, einmanaleika og makaleit, og fékk þær birtar í Velvakanda þriðjudaginn 9. febrúar sl. Viðbrögðin voru með slík- um eindæmum; síminn nánast þagnaði ekki og það var greinilegt að nú hafði ég stungið á ein- staklega viðkvæmu kýli, þ.e. hvernig fólk ber sig að við makaleit hér á landi. Allt þakkaði fólkið mér fyrir góða og tíma- bæra grein, hvatti mig til að halda skrifunum áfram og vekja þannig máls á al- varlegri stöðu feimna fólksins í landinu. Körlum ýmsum þótti sniðugt að stofna einhverja sauma- klúbba, þar sem antisportistar og aðrir fengju inni til að ræða vandamál sín. I samtölun- um þótti mér einkennandi hve körlunum var stirð- ara um mál og varð ég því að leiða þá áfram í mörg- um tilvikum. Konumar afturámóti vantaði bara einhvern góðan hlustanda margar hverjar. Hvernig stendur á því að karlar eiga svona miklu erfíðara með að tjá tilfinningar sínar í heildina tekið en konurnar? Er það vegna mistaka í uppeldinu á sonum okkar, eða er það vegna litningagalla og verður því væntanlega framtíðarverkefni Kára Stefánssonar og Islenskr- ar erfðagreiningar? Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig á því standi að á sama tíma og sumir virðast laða að sér við- ræðufélaga, eins og belju- saur flugumar, neyðast aðrir til að híma einir úti í horni. Sumir karlar eiga afar hægt með að töfra konur upp úr skónum, en öðmm gengur eins og rjúpunni við staurinn, og þetta virðjst vera gagn- kvæmt. Ástæðan er í mörgum tilvikum feimni fólks hvers við annað og þessi nagandi ótti margra við hugsanlegar afleiðing- ar höfnunarinnar. Ein- manaleikinn á meðal systkina okkar í landinu er skelfilega mikiil, eins og ég varð svo sannarlega vitni að í þeim fjölda sím- tala sem ég hef átt við fólk sem grein mín snerti með þeim hætti að það fann sig knúið til að hafa uppi á símanúmeri mínu. „Móðir“ hringdi í Velvak- anda eftir lestur greinar- innar og vildi koma því á framfæri, að hún ætti uppkomin og fráskilin böm sem hefðu fundið sér dásamlega maka í göngu- félögum, en ekki á öldur- húsum. Ég þakka „móð- urinni“ fyrir snör við- brögð. Ég hef athugað þennan möguleika sem hentar eflaust mörgum, en ekki mér þar sem í göngu fæ ég ekki svalað þeirri þörf minni að svífa um dansgólfin við dynj- andi rokktónlist með yng- ismey í fanginu. Allt frá því ég var unglingur og undi mér einn í herbergi mínu; glymjandi gítarsóló a la Led Zeppelin í eyrum á meðan ég þandi ímynd- aða strengi luftgítarsins, hef ég fundið fyrir þessari knýjandi hreyfiþörf um leið og ég heyri hávært graðhestarokkið. Og ekki fer hún minnkandi þörf mín, þótt ég sé kominn á fimmtugsaldurinn, nema síður sé. Mesti gallinn við dansstaði nútímans er sá hversu hræðilega mikið dansgólfin hafa verið smækkuð; orðin að eins- konar frímerkjum, þar sem fólkið sem þráir að dansa verður að einbeita sér að því að forðast oln- bogaskotin dansinn útí- gegn. Það gefast bara alls engin tækifæri til að sýna nein tilþrif. Draumurinn er sá að skemmtistaðir taki að. leggja meiri áherslu á dansiðkun gesta sinna, en einblíni ekki á að geta selt þeim sem mest áfengi. Kvisast hef- ur sú gleðifregn, að í Kaupmannahöfn tengist nýjasta æðið svokölluðum salsastöðum. Þangað mætir fólkið á staðinn kl. 21.30 og þeir sem vilja fá klukkutíma tilsögn í suðrænni dans- sveiflu. Síðan er dansað fram á rauða nótt. Fólk greiðir sanngjarnt inn- göngugjald, neytir áfeng- is í hófi og kemur til að dansa. Dansinn er kjörin leið til að losa um hömlur sem feimnin skapar og þegar fólkið snertist get- ur ýmislegt gerst á milli karls og konu. Danshöllin í Reykjavík er rekin með svipuðu formi, en þar er því miður aðaláhersla lögð á gömlu dansana sem eru góðir fyrir suma, en því miður ekki fyrir mig og mína líka. Að síðustu vil ég beina þeirri áskorun til mennta- málaráðuneytisins, að það geri danskennslu að skyldu í grunnskólum landsins. Með því móti má auðveldlega minnka feimni meðal landsmanna og fækka þeim vandamál- um sem henni fylgja. Til að auðvelda þér les- andi góður að hafa sam- band við mig þá læt ég símanúmer mitt fylgja þessari grein. Hugmyndir að þriðja þætti eru vel þegnar, því að baráttan heldur áfram enn um sinn. Ólafur Þór Eiríksson. Sími 421 2714. Tapað/fundið Gullúr týndist við Sjúkrahús Reykjavíkur 75 ára gömul kona sem týndi afmælisgjöf sinni, þ.e. gullúrinu sínu, á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir 2 mánuðum síðan, biður þá, sem vita um úr- ið, vinsamlega að hafa samband við hana í síma 562 5504. Svört sólgler- augu týndust SVÖRT sólgleraugu týndust líklega við Sund- iaugina í Laugardalnum sl. laugardag. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 555 0908. Fundarlaun. Armband í óskilum ÞANN 15. janúar fannst ai-mband á Amtmanns- stígnum. Armbandið er merkt: „Guðni“ og aftan á því stendur „Þín Unnur“. Upplýsingar í síma 482 2381. Víkverji skrifar... MIKIÐ fannst Víkverja ánægjulegt að fylgjast með fýrsta þættinum um „Kalda stríð- ið“, sem ríkissjónvarpið hefur hafið sýningar á. Þættirnir, sem gerðir eru af Tumer-samsteypunni í sam- vinnu við fleiri aðila, eru afskap- lega vel gerðir og koma þar fram ýmsar myndir, sem ekki hafa sést áður. I þættinum síðastliðið mánu- dagskvöld kom berlega í ljós í við- tölum, m.a. við fólk sem vann við ráðstefnurnar svo sem eins og í Jalta, að Jósef Stalín var slíkur ref- ur í þessum samningaumleitunum að forystumenn Vesturlanda voru svo grænir og litlir mannþekkjarar á einræðisherrann, að hann plataði þá hreinlega eins og böm. Sárt var að heyra ræðu sir Win- stons Churchills í lok Jalta-ráð- stefnunnar er hann lýsti árangrin- um af ráðstefnunni og hélt að lýð- ræði yrði tryggt um alla framtíð í Austur-Evrópu. Lýðræði var nefni- lega ekki sami hluturinn í skil- greiningu leiðtoga Sovétríkjanna og hinna, sem þekktu og höfðu reynslu af því frá blautu barns- beini. I þættinum kom einnig fram að Stalín var svo góður leikari að á stundum héldu menn að hann væri ekki einu sinni að hlusta og menn óttuðust að eitthvað færi framhjá honum. Sú var þó ekki raunin, hann var slægur sem refur. XXX HELDUR dauflegt virtist vera á fundinum í sjónvarpssal, er fram fór þátturinn „Gettu betur“, keppni framhaldsskólanna í al- mennri kunnáttu. Víkverji horfði á þáttinn, þar sem nemendur Menntaskólans í Reykjavík kepptu við nemendur Verzlunar- skóla Islands, og var nemendum, sem fylltu salinn, greinilega bragðið vegna fáranlega þungra spurninga, sem fram voru settar. Muni Víkverji t.d. rétt var spurt um einhvern þjóðflokk, sem hefði gefið út vinsælt lag á geislaplötu og væri heldur frumstæður. Þetta var vísbendingaspurning, sem MR-ingar gátu í þriðju tilraun, en var svo fáránlega fram sett, að með eindæmum var. Svarið var „strumparnir". Hvernig er hægt að tala um þjóðflokk, þar sem strumparnir eru? Þeir eru hvorki þjóðflokkur né þjóð. Þeir era bara dúkkur. Þar með voru menn af- vegaleiddir og mesta furða að MR-ingarnir skuli hafa kveikt á því í þriðju atrennu. Þyngd spurninganna og lúmsk uppbygging þeirra margra virðist hafa slegið gjörsamlega á stemmn- inguna, enda gátu nemendurnir fæstar spurninganna. Eftir hraða- spumingarnar fékk Verzlunarskól- inn 10 stig, en MR 20. Síðan bættu MR-ingarnir við sig fjóram stigum og Verzlunarskólinn tveimur. Höf- undur spurninganna þarf virkilega að taka sig á, eigi þessi þáttur að halda þeim vinsældum, sem hann hefur notið. xxx Alþjóðaólympíunefndin er nán- ast orðin óstarfhæf og leikarn- ir, sem fram eiga að fara í Salt Lake City 2002, eru í stórhættu vegna þess að styrktaraðilar era að draga að sér hendur í sambandi við kostun leikanna. Til þess að bjarga leikunum og endurreisa ólympíu- hugsjónina úr rústum spillingar- innar verður að hafa snör handtök og þá þarf að hugsa uppbyggingu nefndarinnar upp á nýtt. Það er t.d. ótækt eins og verður um miðj- an marzmánuð að það sé nefndin sjálf og allir spillingaraðilarnir, sem hafi einir um það að segja, hvemig málum verði háttað. Menn hafa líka bent á að erfitt verði að laga það skipulag, sem t.d. hefur verið haft við Sameinuðu þjóðirnar, þ.e.a.s. að hver þjóð hafi eitt eða tvö atkvæði. Þá verður þetta óviði-áðanlegt apparat, þar sem þjóðir með einræðisþjóðskipu- lag og alræðisforystu verða í meirihluta. Hvernig er unnt að byggja upp nefnd byggða á lýð- ræðislegri hefð og kjósa til meiri- hluta þjóðir, sem vita ekki hvað lýðræði er? Verði niðurstaðan sú fer fyrir ólympíunefndinni eins og Jalta-ráðstefnunni að menn tala í allar áttir um hitt og þetta og eng- inn skilur umræðurnar eins. Það era sjónvarpsstöðvar bæði í Evr- ópu og þó sérstaklega í Ameríku sem standa straum af kostnaðinum við venjulega Ólympíuleika. Það verður því að finna einhverja þá reglu að þeir sem mest taka þátt, bæði í leikunum sjálfum og kostn- aði við þá, ráði mestu um skipan ólympíunefndarinnar, sem aftur ræður öllu um framkvæmd leik- anna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.