Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 65
FÓLK í FRÉTTUM
VEGLEG verkefni sem unnu til sérstakra viðurkenninga: (Frá vinstri)
Hildigunnur með körfuboltaverkefni, Kristín með tóbaksverkefni, Sig-
urlaug með verkefui um hafið, Anna með stærðfræðitengt verkefni og í
fremri röð eru Sveinbjöm sem gerði verkefni um flugið og Steinþdr
með eldíjallaverkefnið sitt.
Líkan af eldfjalli,
heilinn og Liverpool
í TJARNARSKÓLA eru heima-
verkefni unnin á skemmtilegan og
frumlegan hátt. í vetur hefur heima-
vinna nemenda falist í viðamiklum
rannsóknarverkefnum þar sem sér-
hver nemandi velur sér viðfangsefni
og kannai- það ofan í kjölinn. Verk-
efnunum er síðan skilað á u.þ.b.
fimm vikna fresti. Þau ei'u ýmist í
formi ritgerða, veggmynda, líkana, á
geisladiskum, myndböndum, ljós-
myndum eða snældum.
Ótrúlega mikill fjöldi einstakra
verkefna hefur litið dagsins Ijós.
Einn nemandi gerði grein fyrir sögu
flugsins á rúmlega 100 blaðsíðum,
annar gerði líkan af eldfjalli og inni í
fjallinu var geisladiskur með fi-óðleik
um eldfjöll. Einn bakaði draumahús-
ið sitt og skilaði teikningum og út-
reikningum af öllu saman og notkun
stjömufræði í siglingum var útskýrð
af öðrum nemanda. Auk þess hafa
verkefnin fjallað um mataróreglu,
körfubolta, Stein Steinarr, Clinton,
Liverpool, heimsstyrjaldirnar, Sviss,
Afríku, Mozart, meðgöngu, fíkniefni,
heilann og svo mætti lengi telja.
Nemendur verða að skrifa eitt
rannsóknarverk-
efnanna á
dönsku, annað á
ensku og eitt á ís-
lensku og eitt
þeirra verður
að vera
stærð-
íræðit-
engt.
BERGUR
með bak-
aða
hiísið
sitt.
1
-i .