Morgunblaðið - 19.02.1999, Side 1

Morgunblaðið - 19.02.1999, Side 1
41. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS • • Kúrdar halda áfram mótmælum vegna handtöku Abdullah Ocalans Tyrkir segjast ekki ætla að líða erlend afskipti Þrír grískir ráð- herrar neyddust til að segja af sér vegna málsins London, Ankara, Aþenu. Reuters. UM 90 Kúrdar, sem haft höfðu gríska sendiráðið í London á valdi sínu í þrjá daga, gáfust upp í gær en mótmæli Kúrda vegna handtöku uppreisnarforingjans Abdullah Ocal- ans héldu áfram í mörgum borgum Evrópu. Tyrkir létu heift Kúrda sem vind um eyru þjóta og réðust gegn skæruliðasveitum þein-a í Irak en í Grikklandi hafa þrír ráðherrar neyðst til að segja af sér vegna þessa máls. Samtök Kúrda og ýmis vest- ræn ríki hafa skorað á Tyrki að efna til heiðarlegra réttarhalda yfir Öcal- an og ábyi’gjast mannréttindi hans en Tyrkir kváðust í gær ekki mundu þola nein erlend afskipti af málinu. Kúrdar lögðu undir sig meira en 20 grísk og kenýsk sendiráð víða um heim er fréttir bárust af því, að tyrkneskir sérsveitarmenn hefðu handtekið Öcalan í Kenýa. Þá hafði hann dvalist í gríska sendiráðinu í Nairobi í 12 daga. Töku sendiráðs- ins í London lauk án átaka en í fyrrinótt réðust Kúrdar með eldsprengjum gegn ýmsum fyrir- tækjum i eigu Tyrkja í Þýskalandi. Um 200 Kúrdar gengu þegjandi um götur Berlínar til að syrgja þá þrjá félaga sína, sem skotnir voru við ísraelska sendiráðið í borginni, og í Vín réðust þeir inn í byggingu Sam- einuðu þjóðanna í borginni. Tyrkneskur her réðst í gær gegn skæruliðum Kúrda 15 km inni í Norður-írak og haft er eftir mann- réttindasamtökum í Tyi’klandi, að lögreglan hafi handtekið meira en 350 stuðningsmenn Lýðræðislega alþýðuflokksins, löglegs flokks Kúrda, sem berst fyrir friðsamlegri lausn á deilunum. Afsagnir í Grikklandi Þiir grískir ráðheirar, Theodoros Pangalos utanríkisráðheiTa, Philipos Petsalnikos, sem fer með almanna- öryggi, og Alekos Papadopoulos inn- anríkisráðherra, voru neyddir til að segja af sér í gær en þeir eru sagðir bera ábyrgð á því, að Öcalan komst til Grikklands og var síðan fluttur í gríska sendiráðið í Kenýa. Grikkir hafa ávallt neitað ásökun- um Tyi'kja um að þeir skytu skjóls- húsi yfir kúi’díska hryðjuverkamenn og því er þetta mál álitshnekkir fyr- ir gi’ísku stjórnina. Tyrkir voru ekki Einhugur meðal Kúrda í London Reuters ÓEIRÐIR brutust út í Aþenu í gær eftir útifund, sem Kúrdar og stuðningsmenn þeirra efndu til. Kenna þeir margir Grikkjum um, að Tyrkir skuli hafa haft hendur í hári Öcalans. seinir á sér að fagna afsögn Panga- losar en í gær tók George Pap- andreou við af honum sem utanrík- isráðherra Grikklands. Mörg Evrópuríki hafa krafíst þess, að réttarhöldin yfir Öcalan verði heiðarleg, en í yfirlýsingu tyrkneska utanríkisráðuneytisins í gær sagði, að Tyrkir myndu ekki þola nein erlend afskipti af réttar- höldunum. Tyrknesk dagblöð sögðu í gær, að verið væri að yfirheyra Öcalan í fangelsi á Imrali-ey í Marmarahafi en búist væri við, að hann kæmi fyrir dómara innan 12 daga. Öcalan á dauðadóm yfir höfði sér. Lögfræðingar Öcalans, sem hefur verið meinað að koma til Tyrklands, hafa skotið máli hans til Mannrétt- indadómstóls Evrópu en þeir segja, að Tyrkir hafi hvorki viljað ábyrgj- ast heiðarleg réttarhöld né að Öcal- an verði ekki pyntaður. Tyrkneska utanríkisráðuneytið fordæmdi máls- skotið í gær og vísaði um leið á bug aðfinnslum Mannréttindadómstóls- ihs, sem hefur gagnrýnt, að herrétt- ur skuli fjalla um borgaralegt mál. ► Handtaka/26 Vill loka Barentshafí Ósló. Morgunblaðið. YFIRVÓLD sjávarútvegsmála í Noregi og Rússlandi verða að loka Barentshafi að hluta. Einar Johan- sen, varafoi’maður í Norges Fiskar- lag, einum helstu hagsmunasamtök- um norskra sjómanna, lýsti yfir þessu í gær. Johansen sagði, að lokun Barents- hafs að hluta væri eina leiðin til að koma í veg fyrir stórfellt dráp á smá- þorski en norskir fjölmiðlar skýi’a frá æ fleiri dæmum um landanir Rússa á þorski, sem er langt undir viðmiðunarmörkum. Segir Johansen, að verið sé að útrýma uppvaxandi ár- göngum og vill hann einnig skoða hvort rétt sé að hafa eftirlitsmann í hverju einasta skipi í Barentshafí. London. Morgunblaðið. UMSÁTRINU um gríska sendi- ráðið í London iauk í gær er 90 Kúrdar, sem höfðu tekið það her- skildi, gáfu sig fram við lögregl- una. Hundruð stuðningsmanna þeirra voru allan daginn fyrir ut- an bygginguna og ítrekuðu kröf- ur sínar um, að Ieiðtogi þeirra, Abdullah Öcalan, yrði látinn laus. Mótmælin fóru friðsamlega fram en lögreglan var með mik- inn viðbúnað og gætti þess, að enginn kæmist nærri sendiráðs- byggingunni. Var leitað í far- angri allra, sem komu inn á mót- mælasvæðið, sem var girt af með lögreglubflum. Voru sjúkrabflar til taks af ótta við, að einhverjir mótmælendanna bæru eld að klæðum sínum. Söng fólkið baráttusöngva og hrópaði slagorð og jókst það eft- ir því sem fjölgaði í hópnum. Var aðalkrafan sú, að vestræn ríki þrýstu á Tyrki um að sleppa Ócalan, enda væri haitn pólitísk- ur fangi en ekki hryðjuverka- maður. „Við ei-um ekki ofbeldis- menn,“ sagði Bektas Kava, verk- smiðjueigandi, sem tók þátt í mótmælunum ásamt ungri dóttur sinni. „Við viljum aðeins, að menning og mannréttindi Kúrda pjóti virðingar og erum tilbúin til að leggja mikið á okkur fyrir málstaðinn." Reuters KÚRDARNIR, sem lögðu undir sig gríska sendiráðið, voru um- svifalaust handteknir er þeir yf- irgáfu bygginguna. Kosovo- viðræðurnar Samningur að taka á sig mynd Rainbouillet, Moskvu, Washington. Reuters. CHRIS Hill, helsti sáttasemjarinn í Kosovo-viðræðunum, sagði í gær, að samningur um frið í héraðinu væri að taka á sig mynd. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, sagðist í gær hafa sagt Bill Clinton, forseta Bandaríkj- anna, jafnt í síma sem bréflega, að Rússar myndu ekki líða loftárásh’ NATO-ríkjanna á stöðvar Serba en Jeltsín gaf þessa yfirlýsingu eftir að Bandaríkjamenn höfðu sent 51 orr- ustuþotu að auki til Evrópu vegna hugsanlegra aðgerða. Hill, sem er sendihen-a Banda- ríkjanna í Makedóníu, ræddi við Slobodan Milosevic, forseta Júg- óslavíu, á þriðjudag og í gær sagðist hann hugsanlega fara aftur til fund- ar við hann í Belgrad. „Það er eins og það liggi í loftinu, að við séum að komast að niðurstöðu, og því eru all- ir mjög spenntir,“ sagði Hill. Ræddi ekki við Jeltsín „Ég kom skoðunum mínum á framfæri við Clinton, jafnt í síma sem bréfleiðis og sagði við hann: „Við munum ekki leyfa ykkur að snerta við Kosovo,““ sagði Jeltsín í gær en P.J. Crowley, talsmaður Bandaríkjastjórnar, sagði, að þeir Clinton og Jeltsín hefðu alls ekkert ræðst við nýlega. Javier Solana, framkvæmdastjóri NATO, sagði í Makedóníu í gær, að NATO myndi bregðast fljótt við næðist ekkert samkomulag en í gær var beðið eftir því, að Milan Milutinovic, forseti Serbíu, kæmi aftur til viðræðnanna í Rambouillet fyrir utan París og þá með svar Milosevic við því lykilatriði hvort hann féllist á, að NATO-herlið héldi uppi eftirliti í Kosovo. Fresturinn til að semja um lausn rennur út klukkan 11 fyrir hádegi á morgun. Nærbrækur fyrir listina Dyflinni. Reuters. ÍRSKUR listamaður hefur lát- ið þau boð út ganga til írskra kvenna að þær sendi honum einar nærbuxur hver, en bræk- urnar hyggst hann nota í lista- verk, svokallaða innsetningu. Maurice Galway, sem býr í Cork-sýslu, segist þegar hafa safnað um hundrað nærbuxum frá vinkonum sínum, ættingj- um og kunningjum. Nærhöldin verða hluti af innsetningu sem Galway hefur nefnt: Aldrei mundi ég kasta nærbuxunum mínum í þig. Yfirski’ift verksins er vísun í dægurlagið „The ballad of Tom Jones“ sem naut nokkurra vinsælda í fyrra. Seg- ist listamaðurinn hafa orðið hugfanginn af hugmyndinni um að safna milljónum nærbuxna eftir að hafa heyrt lagið flutt. Galway gerir sér vonir um að sýna verkið í Dyflinni en hugmyndin er að reisa ein- hvers konar nærbuxnaboga yf- ir Ha’Penny-brúna, sem liggur jrfir ána Liffey.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.