Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fasteignasalar skora á ráðherra að grípa tafarlaust til aðgerða vegna tafa hjá fbúðalánasjóði
Ofremdarástand sem sett
hefur markaðinn úr skorðum
FASTEIGNASALAR gagnrýna harðlega miklar
tafir á afgreiðslu umsókna hjá Ibúðalánasjóði og
sendi stjóm Félags fasteignasala félagsmálaráð-
herra skeyti sl. miðvikudag þar sem lýst er mikl-
um áhyggjum vegna þess ástands sem komið sé
upp og hafi valdið verulegum vandræðum. Jón
Guðmundsson, formaður félagsins, segir að ef
þessu verði ekki kippt í liðinn sem fyrst muni ekki
líða á löngu þar til fólk í fasteignaviðskiptum geti
orðið fyrir fjárhagslegu tjóni.
Er málum svo komið samkvæmt upplýsingum
Jóns að dæmi eru um að komið sé að afhendingu
fasteigna þar sem ekki er mögulegt að halda kaup-
samning vegna langvarandi tafa. „Þetta er því far-
ið að hafa áhrif á eðlileg lögskil eigna,“ segir hann.
Yfirlýsingar talsmanna sjóðsins
átaldar harðlega
„Við höfum verulegar áhyggjur af því ófremdar-
ástandi sem ríkir á markaðnum í dag. Það gengur
mjög illa að afgreiða umsóknir viðskiptavina okkar
sem standa í fasteignaviðskiptum og við erum
mjög uggandi vegna hagsmuna þessa fólks, óþæg-
inda sem það hefur orðið fyrir og yfirvofandi fjár-
hagslegu tjóni sem getur hlotist af þessu,“ segir
Jón.
Fjallað var um þetta mál á stjórnarfundi í Fé-
lagi fasteignasala sl. miðvikudag og skoraði fund-
urinn á félagsmálaráðherra að grípa nú þegar til
aðgerða. „í tilefni af fjölda ábendinga og kvartana
til Félags fasteignasala vegna langvarandi tafa á
afgreiðslu umsókna hjá íbúðalánasjóði hefur
stjórn Félags fasteignasala verulegar áhyggjur af
því ófremdarástandi sem nú ríkir á fasteigna-
markaði. Stjórn Félags fasteignasala krefst þess
að nú þegar verði gripið til viðeigandi aðgerða til
að forða þeim aðilum sem hagsmuna hafa að gæta,
frá óþægindum og yfirvofandi fjárhagslegu tjóni.
Stjórn Félags fasteignasala átelur harðlega að yf-
irlýsingar talsmanna íbúaðalánasjóðs um hnökra-
lausa afgreiðslu umsókna, eigi ekki við rök að
styðjast. Væntum skjótra viðbragða við tilmælum
okkar,“ segir í símskeytinu til ráðherra.
Orfáar unisóknir
verið afgreiddar
„Við fáum kvartanh- frá félagsmönnum okkai' og
frá viðsemjendum sem hafa beðið allan þennan
tíma frá því að íbúðalánasjóður tók til starfa um
áramótin," segh- Jón Guðmundsson. Hann segir að
í reynd hafi aðeins örfá mál fengist afgreidd hjá
sjóðnum og nefnir sem dæmi af eigin fasteigna-
sölu að aðeins hafi verið afgi-eidd þrjú mál hjá
Ibúðalánasjóði frá áramótum af alls 30-40 málum
sem bíði afgreiðslu einhvers staðar í kerfinu. Ann-
ar fasteignasali sem rætt var við hafði sömu sögu
að segja. Hann sagðist hafa fengið tvær umsóknir
af nálægt 40 afgreiddar hjá sjóðnum frá áramót-
um. „Fyrir okkur er Ibúðalánasjóður aðeins eitt
vandamál. Okkur þótti mjög miður sem haft var
eftir ráðherra í fjölmiðlum að búið væri að af-
greiða 628 umsóknir frá áramótum. Það var bara
það sem var verið að afgreiða úr gamla kerfinu,“
sagði þessi viðmælandi blaðsins.
Fasteignasalar hafa m.a. gagnrýnt að í þessu
nýja kerfi hafi þeir ekki lengur yfirsýn yfir hvar
afgreiðsla mála sé á vegi stödd. „Málin eru á eilífu
flakki fram og til baka á milli útibúa og Ibúðalána-
sjóðs áður en við lítum þau augum. Þetta er með
endemum," segir Jón.
Vilja jafnvel
gamla kerfið aftur
Hann bendir á að nú þurfi kaupandi fasteignai-
sjálfur að farameð gögnin í bankaútibú og þaðan
fara þau upp í Ibúðaiánasjóð því starfsmenn sjóðs-
ins hafi sjálfir unnið greiðslumötin fram í síðustu
viku. „Síðan er þetta sent þaðan aftur í útibúið. Þá
er kaupandinn kallaður í ráðgjöf en hann er þá bú-
inn, jafnvel fyrir mörgum vikum, að eiga sín fast-
eignaviðskipti. Það hafa líka verið brögð að því að
starfsmenn bankanna hafa verið að ráðleggja
kaupandanum að hagræða greiðslum örðuvísi en
kauptilboð kveður á um, sem er náttúrlega fárán-
legt fyrir fólk sem er búið að eiga þessi viðskipti.
Því næst þarf að senda gögnin aftur upp í Ibúða-
lánasjóð þar sem gengið er frá fasteignaveðbréf-
unum. Þetta er með endemum og við liggur að
maður biðji um að fá gamla kerfið hið bráðasta í
notkun aftur,“ segir Jón.
Að hans sögn hefur þetta ástand valdið því að
fasteignamarkaðurinn hefur farið úr skorðum.
„Fólk sem er í söluhugleiðingum hlýtur að halda
að sér höndum vegna fréttaflutnings af því hvern-
ig þetta gengur fyrir sig. Það vill ekki fara út á
markaðinn fyrr en þetta er komið í samt lag. Yfir-
lýsingar talsmanna íbúðalánasjóðs um að af-
greiðslan sé orðin hnöki-alaus á því miður ekki við
rök að styðjast," sagði Jón að lokum.
Auglýsingu
deiliskipulags
ekki frestað
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
varð ekki við tilmælum samtakanna
Betri borgar að fresta auglýsingu á
deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar.
Erindi þess efnis barst borgarfull-
trúum rétt fyrir borgarstjórnarfund
og bar Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, tilmælin upp.
Borgarfulltrúar Reykjavíkurlist-
ans töldu ekki ástæðu til að fresta
auglýsingu um deiliskipulagið, enda
hefði verið samþykkt í skipulags- og
umferðarnefnd að það skyldi auglýst
og sú ákvörðun staðfest í borgarráði
síðastliðinn þriðjudag.
í bókun Reykjavíkurlistans um
málið segir að með auglýsingunni sé
verið að gefa borgarbúum og öðrum
tækifæri til að kynna sér deiliskipu-
lagið og koma á framfæri athuga-
semdum. I aðalskipulagi Reykjavík-
ur 1996-2016 sé gert ráð fyrir flug-
vellinum og ekki hafi legið fyrir til-
lögur um annað flugvallarstæði í ná-
grenni borgarinnar. Brýnt þyki að
hefja endurbætur á vellinum.
Þá segir í bókuninni að hugmyndir
um flugvöll í Skerjafirði og verulega
íbúðarbyggð í Vatnsmýri séu athygli
verðar en um leið svo stórar í sniðum
að ekki sé hægt að fallast á þær án
umfangsmikillar skoðunar og um-
ræðu. Endurbætur á flugbrautum
þoli ekki þá bið sem því fylgi.
-----------------
Gæslu-
varðhald til
25. mars
ANNAR mannanna tveggja, sem
handteknir voru skömmu eftir mið-
nætti aðfaranótt fimmtudags vegna
gruns um ránið í söluturninum
Bússu, Garðastræti í fyrrakvöld,
var í gær úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 25. mars en hinn er enn í
haldi lögreglu.
Mennirnir höfðu um 10-15 þús-
und krónur upp úr krafsinu og ógn-
aði annar þeirra ungri starfstúlku
með hnífi á meðan hinn beið úti.
Mennirnir tveir eru þeir sömu og
rændu sjoppu á Grundarstíg fyrir
skömmu. Þetta er fimmta ránið sem
framið er í Reykjavík á þessu ári.
Morgunblaðið/Ingvar
ÞRIR voru fluttir á sjúkrahús með minniháttar meiðsl eftir að bíll ók á Ijósastaur við
Hafnarfjarðarveg í gærkvöldi.
Vilja sveigjanlegri
reglur um um-
búðamerkingar
VEGNA tillögu framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins um að fresta
um 10 ár, eða til ársins 2010, gildis-
töku ákvæðis sem áttj að skylda fyr-
irtæki til að nota aðeins metrakerfið
sem mælieiningu í vörumerkingum,
hafa Samtök verslunarinnar sent
fyrirspurn til umhverfisráðuneytis-'
ins.
í grein um þetta mál, sem birtist í
breska blaðinu Financial Times, er
því haldið fram að tillaga fram-
kvæmdastjórnar ESB sé gerð undir
þeim formerkjum að halda vöru-
merkingakostnaði fyrirtækja í Evr-
ópusambandinu og Bandaríkjunum í
lágmarki, en talið er að frestunin
spari þeim milljarða dollara.
Stefán S. Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar-
innar, sagði að álit íslenskra stjórn-
valda væri að hér ættu einvörðungu
að gilda reglur ESB varðandi um-
búðamerkingar matvæla. í fyrir-
spurn Samtakanna til umhverfis-
ráðuneytisins er spurt hvort búast
megi við því að þessi frestun, ef sam-
þykkt verði, muni hafa einhver áhrif
á þær reglur sem séu nú í gildi hér á
landi.
Sérmerkingar kostnaðarsamar
Stefán sagði að sérmerkingar fyr-
irtækja fyrir íslenskan markað væru
mjög kostnaðarsamar og ef veita
ætti erlendum fyrirtækjum aukið
svigrúm í Evrópu finnst honum
verðugt að athuga hvort ekki sé rétt
að veita íslenskum fyrirtækjum
einnig aukið svigrúm í umbúðamerk-
ingum. Meginkjarni fyrirspurnar-
innar er hvort hér á landi geti fengið
að gilda umbúðareglur sem taki mið
af reglum sem gilda innan Evrópu
og Bandaríkjanna.
Samtökin spyrja því hvort ekki sé
rétt að íslensk stjórnvöld beiti sér
fyrir því innan EES-samstarfsins að
breyta reglum um umbúðamerking-
ar og gera þær sveigjanlegri en nú.
Talsvert um
árekstra á
landinu
TALSVERT var um árekstra á land-
inu í gær í slæmri færð og hálku,
meðal annars urðu 30-40 árekstrar í
Reykjavík.
Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir
að bifreið lenti á Ijósastaur við Hafn-
arfjarðarveg, skammt sunnan við
Kópavogslækinn, um klukkan hálf-
níu í gærkvöldi. Meiðsli þeirra
reyndust ekki vera alvarleg. Starfs-
maður frá Rafmagnsveitunni var
kallaður út til að aftengja staurinn.
Flutningabíll fór út af veginum og
valt á hliðina í Hvalfn'ði skammt frá
Botnsskála á tíunda tímanum í gær-
kvöldi. Farþegi varð fyrir lítilsháttar
meiðslum en bíllinn er talinn mikið
skemmdur.
Kona vai- flutt á sjúkrahús með
minniháttar meiðsl eftir árekstur á
Nýbýlavegi við Ástún um miðjan dag
í gær og töluvert var einnig um
minni árekstra í Kópavogi í gær. Þá
urðu á annan tug árekstra í Hafnar-
firði í gærdag.
Á Akureyri urðu a.m.k. fimm
árekstrar í gær og tveir í Borgar-
nesi.
> ^INNLENT
Lóðamál rædd á
fundi borgarstjórn-
ar Reykjavíkur
Sjálfstæðis-
menn segja
óánægju
vegna lóða-
skorts
MARGRA klukkutíma um-
ræða um lóðamál í Reykjavík
varð á fundi borgarstjómar
Reykjavíkur í gær. Borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
sögðu lóðaskort valda hækkun
fasteignaverðs með fasteigna-
braski en borgarfulltrúar
Reykjavíkurlista sögðu hvorki
land- né lóðaskort í borginni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfullti’úi Sjálfstæðis-
flokksins, sagði ókyrrð og óá-
nægju ríkja í borginni vegna
lóðaskorts. Sagði hann þetta
alvarlegt ástand og áhyggju-
efni fyi-ir alla borgarbúa en
ekki aðeins fyrir borgarfull-
trúa Reykjavíkurlistans.
Hann sagði þegar tekið að
bera á lóðabraski í kjölfar
lóðaskorts og að fasteignaverð
færi hækkandi. Kvaðst hann
vita til þess að handhafi ein-
býlishúsalóðar gæti selt hana
fyrir 1,5 milljónum króna
hærra verð en næmi gatna-
gerðargjöldum. Borgarfulltrú-
inn gagnrýndi einnig Reykja-
víkurlistann fyrir hægagang
við uppbyggingu nýrra hverfa.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði hvorki
land- né lóðaskort í borginni
en tók fram að borgin hefði
ekki yfir að ráða byggingar-
hæfum lóðum í bili. Þá kom
fram í máli Helga Hjörvars,
oddvita Reykjavíkurlistans, að
ábyrgðai'laust væri að stjóma
ekki hraða á uppbyggingu
nýrra hverfa í borginni.
Stækkun borgarinnai' mætti
ekki verða til þess að auka
skuldir hennar umfram þær
tekjur sem hún gæti vænst af
nýrri byggð. Stækkun borgar-
innar mætti ekki sliga borgar-
sjóð.
Á fundi borgarstjórnar í
gær tók Sigrún Elsa Smára-
dóttir, varaborgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans, í fyrsta
sinn sæti í borgarstjóm.
Harður
árekstur við
Norðurá
TVÆR fólksbifreiðir lentu í
hörðum árekstri við Norðurá í
Akrahreppi um klukkan 14.30
í gær og era báðir bílarnir
taldir ónýtir. Hjón sem vora í
annarri bifreiðinni vora flutt á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri með sjúkrabifreið og var
eiginkonan lögð inn á hand-
lækningadeild með alvarlega
höfuðáverka, en að sögn lækn-
is var líðan hennar stöðug í
gærkvöld.
Sjúkrabifreið sem kölluð
var á vettvang slyssins frá
Sauðárkróki lenti á leiðinni í
árekstri við aðra bifreið á
Kotárbrú og varð óökufær á
eftir, sem og hin bifreiðin. Það
hafði þó ekki alvarlegar afleið-
ingar því sjúkrabíll frá Akur-
eyri var einnig kallaður á vett-
vang og kom hjónunum á
sjúkrahús á Akureyri.