Morgunblaðið - 19.02.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 23
VIÐSKIPTI
Prentsmiðjan Oddi hf. tekur nýja prentvél í notkun
Fullkomnasta vél sinn-
ar tegundar á Islandi
Morgunblaðið/Ásdís
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra ræsir
nýju vélina f prentsmiðju Odda.
ÞORGEIR Baldursson sýnir Davíð Oddssyni og Ástríði Thorarensen
fyrstu afurð nýju vélarinnar, kynningarblað samtaka langveikra
barna, Umhyggju, en Oddi gefur samtökunum prentun blaðsins í til-
efni af þessum tímamótum.
PRE NTSMIÐJAN Oddi hf. tók í
gær í notkun fullkomnustu prentvél
sinnar tegundar á Islandi. Um er að
ræða nýja vél af gerðinni Heidel-
berg Harris, sem að sögn forstjóra
Odda, Þorgeirs Baldurssonar, er
mjög viðurkennt gæðamerki innan
prentgeirans.
Sérfræðingar frá Heidelberg
Harris hafa unnið að uppsetningu
vélarinnar í húsakynnum Odda frá
því í nóvember síðastliðnum, enda
er vélin engin smásmíði, 92 tonn að
þyngd og 32 metrar á lengd. Prent-
að er á samtímis báðum megin á
rúllupappír sem eftir prentun fer í
gegnum sérstakan gashitara sem
þurrkar prentlitina. Að lokum fer
pappírinn í brotvél sem skilar sam-
anbrotinni örk á endastöð.
Þorgeir segir að vélin hafi eink-
um verið keypt til að bæta stöðu
Odda í samkeppni á markaðnum.
„Samkeppni á íslenskum markaði
er orðin alþjóðleg. Erlendar prent-
smiðjur sækja á markaðinn og nái
innlend fyrii’tæki ekki að tæknivæð-
ast og ná hámarks hagkvæmni
verða þau undir í þeirri baráttu,"
sagði Þorgeir í samtali við Morgun-
blaðið.
Að sögn Þorgeirs er það brýnt að
hérlendar prentsmiðjur geti boðið
upp á nýjustu tækni en láti sér ekki
nægja búnað, sem aðrar þjóðir eru
búnar að skipta út.
Þurrkar með lifandi eldi
„Hér er um nýjustu tækni í
prentun að ræða og öll vélin er t.d.
mjög sjálfvirk, m.a. hvað varðar
samstillingu lita, plötuísetningu ofl.
í raun þarf vélin bara einn starfs-
mann við stjórnborðið, þó mælt sé
með því að tveir umsjónai-menn
vinni við vélina," sagði Þorgeir.
Þorgeir sagði að hér á landi væri
til önnur rúlluprentvél en mun
minni. Hún væri hinsvegar eldri,
hefði verið keypt notuð til landsins
og væri tæknilega ekki eins vel út-
búin.
Vélin er afkastamikil, prentar,
þurrkar og brýtur 40.000 arkir á
klukkutíma með gasþurrkun, sem
að sögn Þorgeirs hentar prentun-
inni best. „Inni í vélinni er Iifandi
eldur og um leið og hann þurrkar
blöðin þá brennir hann öllum
óhreinum gufum frá vélinni þannig
að útblásturinn frá henni er hreinn,
sem er mikilvægt út frá umhverfis-
sjónarmiðum."
Hingað til hefur ekki þótt borga
sig að kaupa jafn stóra og flókna vél
fyrir jafn lítinn markað og Oddi
starfar á, en vegna þess hve vélin er
fullkomin nýtist hún líka við prent-
un smærri upplaga íyrir íslenskan
markað.
Vélin er fýrst og fremst ætluð
fyrir vinnslu á innanlandsmarkað
en jafnframt eru bundnar vonir við
að hún auðveldi sölustarfið í Banda-
ríkjunum. Þar er Oddi með sölu-
skrifstofu og hefur verið að prenta
fyrir ýmsa aðila, t.d. Smithsonian
og Guggenheim söfnin. „Það er
mjög dýrmætt fyrir okkur að geta
vísað á jafn viðurkennda aðila og
þessir eru,“ sagði Þorgeir.
Fjölpósturinn á eftir að aukast
Þorgeir er bjartsýnn á að þörfin
fyrir vélina muni aukast jafnt og
þétt enda hefur hann mikla trú á
aukningu í markpósti og svokölluð-
um fjölpósti og prentun hans. „Það
er mikill vöxtur fyrir hendi í þeim
pósti og við eigum langt í land,
miðað við þá þróun sem orðið hefur
í slíkum pósti erlendis. Það hafa
einnig orðið til nýjar dreifileiðir
fyrir svona póst hér á landi á síð-
ustu misserum, bæði dreifing með
Morgunblaðinu og þar að auki
starfa þrjú sérhæfð fyrirtæki á
þeim markaði."
í nýju vélinni ætlar Oddi að
skapa nýja stöðu í framleiðslu ýmiss
konar dreifiefnis og nú verður að
sögn Þorgeirs hægt að uppfylla
kröfur tímaritaútgefenda um meiri
hraða en sú krafa hefur farið vax-
andi ár frá ári.
Meðal verkefna í vélina á næst-
unni eru ýmiss konar auglýsingar,
blöð, tímarit og símaskrár fyrir
bæði Færeyjar og Grænland.
Um verð vélarinnar sagði Þorgeir
að hún hefði kostað ríflega 300
milljónir króna. Hann vonast til að
hún komi til með að standa undir
fjárfestingunni og hægt verði að af-
skrifa hana á 8 árum.
Vélin er fjármögnuð af eigin fé
fyrirtækisins að hluta og viðskipta-
banka þess, Búnaðarbankanum, að
hluta.
Oddi er stærsta prentfyrirtækið á
markaðnum og í gegnum prent-
smiðjuna fara á milli 5 og 6000 tonn
af pappír á ári. Hjá Odda vinna nú
270 manns. Félagið er hlutafélag og
velta þess á síðasta ári nam 1.830
milljónum króna.
Meó einu
handtaki býróu
til boró a baki
bílstjórasa'tis.
4 loltpúóar:
bílstjóri, larþegi
i‘ framsæti og
hlióarpúðar.
Þú getur gert
Scénic bílinn aó
sendibíl í einu
vetfangi.
Það er líkt og Renault Mégane Scénic stækki
þegar þú sest inn í hann, enda er hann fyrsti
fjölnotabíllinn í flokki bíla I millistærá. Segja
má aá Scénic sé I raun þrír bílar, fjölskytdubíll,
feráabíll og sendibíll.
Hann er aáeins 4.23 m á lengd en hugmyndarík
hönnun og mikið innanrými gerir hann ótrúlega
notadrjúgan og hagkvæman fyrir einstaklinga
og fjölskyldur.
Það er engin furða þó hann hafi umsvifalaust
verið valinn bíll ársins af öllum helstu
bílatímaritum í Evrópu þegar hann var kynntur.
Hér á landi hefur hann þegar fengið frábærar
viótökur.
Ármúla 13, Sími 575 1200, Söludeild 575 1220