Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 35
wmmmm
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 35
UMRÆÐAN
Aukin nálgun við ESB er nauðsynleg
- en á okkar eigin forsendum
MIKLAR breytingar
eru að gerast í Evrópu
um þessar mundir. Sú
stærsta þeirra er eflaust
sú að 11 Evrópuríki hafa
nú ákveðið að taka upp
sameiginlega mynt og
augljóslega verður ekki
aftur snúið með þá
ákvörðun. Þá er frekar
líklegt að Bretar, Danir
og Svíar komi inn í þetta
samstarf fyrr en reiknað
var með. Önnur stór
breyting í álfunni er
stækkun ESB í aust-
m'átt sem mun hafa gíf-
urleg áhrif á alla Evr-
ópu.
Mikil umræða víða í Evrópu
Það er greinilegt að í kjölfar síðasta
skrefs við upptöku evrunnar hefur
umræða um Evrópumál verið mikið á
döfinni í þeim ESB-ríkjum sem eru
enn utan EMU og einnig í Noregi.
Stuðningur við EMU hefur greinilega
Myntbandalagið
Eg spái því að Bret-
land, Danmörk og Sví-
þjóð hefji þátttöku í
EMU-samstarfínu fyrr
en flesta órar fyrir,
segir Ari Skúlason, og
hvetur til umræðu með-
Ari
Skúlason
al íslendinga um hvað
gera skuli.
farið vaxandi í þeim þremur ríkjum
sem eru fyrir utan og hefur málflutn-
ingur ráðamanna þar orðið mun já-
kvæðari í garð EMU og evrunnar.
Umræður um aðild að ESB hafa auk-
ist mikið í Noregi og virðist stuðning-
ur við aðild hafa farið mildð vaxandi.
Það vakti mikla athygli í Noregi í des-
ember að ýmsir forystumanna Sósíal-
íska vinstriflokksins komu opinber-
lega fram með jákvæðar yfirlýsingar
um afstöðu til ESB. Fyrrverandi for-
maður flokksins, Paul Chaffey, sagð-
ist algerlega hafa skipt um skoðun á
aðild Noregs að ESB og sagðist nú
styðja aðild. Formaður
flokksins, Kristin Hal-
vorsen, sagði m.a. að
stuðningsmenn aðildar
væru famir að fá of
mörg góð rök máli sínu
til framdráttar og að
margir söknuðu þess að
fá ekki málefnalega um-
ræðu um ESB.
EES-samningnrinn á
í vök að verjast
EES-samningurinn er
auðvitað mjög mikilvæg-
ur fyrir íslenskt atvinnu-
líf og skiptir á sumum
sviðum sköpum íyrir
okkur. Það hefur hins
vegar lengi verið ljóst að það er sífellt
eifiðara að reka EES-samninginn.
Þekking og vitneskja um samninginn
fer sífellt minnkandi innan ESB og í
tengslum við stækkun ESB eru allar
helstu áherslur ESB að færast í aust-
urátt. Aðild nýrra n'kja að ESB mun
einnig valda okkur vandræðum, t.d. í
sambandi við fríverslun með fisk sem
er í gildi gagnvart flestum þeirra ríkja
sem nú sækja um inngöngu í ESB.
Staða okkar innan EES er einnig
ófullnægjandi að því leyti að við höf-
um of lítil áhrif á þróunina þar.
Evran skiptir miklu
Tilkoma nýn'ar sameiginlegrar
myntar, evrunnar, mun skipta miklu
fyrir íslenskt viðskiptalíf. Hér er ekki
átt við áhrif á stóru þjóðhagslegu
stærðimar heldur áhrif á fyrirtæki í
milliríkjaviðskiptum. Ég tel algerlega
Ijóst að flest ef ekki öll þessara íyrir-
tækja muni mjög fljótlega laga sig að
evrunni og í rauninni taka hana upp í
sínum viðskiptum. Þessi íyrirtæki,
sem eru flest í samkeppni við aðila á
evrusvæðinu, munu ekki taka á sig
gengisáhættu og skiptikostnað að
ástæðulausu. Ég veit nú þegar um út-
flutningsfyrirtæki sem kaupir vöru
beint af innlendum framleiðendum í
evrum og er með næstum því alla
veltu sína í evrum. Kröfur munu fljót-
lega koma upp hér á landi um heimild-
ir til þess að færa bókhald í evrum og
fyrirtækin munu vafalaust fara fi-am á
ýmsar aðrar breytingar tíl þess að
tryggja samkeppnisstöðu sína gagn-
vart evrusvæðinu. Spurningin snýst
kannski um það hve lengi þessi fyrir-
tæki munu sætta sig við að starfa í
„krónuumhverfi“ og hver áhrif þess
stöður umfangsmikill-
ar rannsóknar á þessu
sviði. Gefið verður yf-
irlit yfir valkosti varð-
andi klæðningarefni
og sýndar réttar og
rangar útfærslur. Ný-
útgefin bók um þetta
efni verður kynnt.
28. apríl: Lagnir í
húsum: Fjallað verður
um frágang lagna-
kerfa, lagnaefni og
vottun þess, lausnir
með notkun plastlagna
og tæringarhættu.
Mikið vatnstjón verð-
ur árlega vegna leka í
lögnum og nema
tryggingabætur yfir milljarði ár-
lega.
12. maí: Steinsteypa - steypt
hús: Fjallað verður um hönnun
steyptra húsa og kynntar niður-
stöður rannsókna á fjaðurstuðli í
steypu með mismunandi fylliefn-
um, en fjaðurstuðull er ráðandi
um sig og niðurbeygjur bita og
platna. Lögð verða fram ný rit Rb
um þessi mál.
26. maí: Sprunguviðgerðir í
steypu: Farið verður yfir aðferðir,
sem byggjast á innþrýstitækni og
gera sögun óþarfa. Einnig verður
kynnt ný aðferð við prófun á
hreyfiþoli viðgerðarefna. Viðkom-
andi búnaður verður sýndur og
veittar upplýsingar um hvar hann
er að fá.
Hákon
Ólafsson
verða á íslensku krónuna. Margar
sterkar myntir í Evrópu verða lagðar
niður á næstu misserum og mér finnst
harla ólíklegt að íslenska krónan
standi þær breytingar af sér. Til þess
eru hagsmunir atvinnulífsins allt of
miklfr. Heyrst hefur um ýmis evrópsk
fyrirtæki sem hafa flutt höfuðstöðvar
sínar inn á evrusvæðið. Einhver ís-
lensk fyiirtæki gætu fundið sig knúin
til slíkra aðgerða.
Verðum að ráða þróuninni sjálf
Ég tel að þróunin á næstu misser-
um verði mun hraðari en nokkurn
órar fyrir. Þær kröfur um breytt
rekstarumhverfi sem ég gat um hér
að framan koma fyrr en varir og
gegn þeim verður ekki hamlað. Því
er mjög mikilvægt að íslenskt þjóðlíf
sé vel búið undfr þessar breytingai-.
Þarna er ábyrgð stjórnvalda og
stjórnmálamanna auðvitað mikil, en
auðvitað skipta samtök á vinnumark-
aði einnig miklu. I rauninni má segja
að aldrei hafi verið meiri þörf fyrir
opna, raunsæja umræðu um stöðu
okkar í Evrópu en einmitt nú. Ég
spái því að Bretland, Danmörk og
Svíþjóð hefji þátttöku í EMU-sam-
starfinu fyrr en flesta órar fyrir.
Norðmenn gætu líka gengið í ÉSB
tiltölulega fljótlega. Stækkun ESB í
austur á sama tíma setur okkur í erf-
iða stöðu, sérstaklega viðskiptalega
séð. Það versta sem við getum lent í
er að láta þessa þróun alla fara fram-
hjá okkur án þess að gera neitt til
þess að vera viðbúin afleiðingunum.
Fyrir mér er augljóst að aukin nálg-
un íslensks atvinnu- og efnahagslífs
við ESB er nauðsynleg. Mér sýnist
Evrópustefna stjórnvalda á síðustu
árum hins vegar hafa falist í því að
hafa Evrópumálin ekki á dagskrá.
Við það verður ekki unað öllu lengur.
Við verðum að ræða þessi mál opið
og heiðarlega út frá eigin þörfum og
forsendum. Við verðum að ákveða
sjálf hvert við ætlum að fara.
Höfundur er framkvæmdastjóri Al-
þýðusamhands íslands.
Niðurlag
Oft þarf að minna á
mikilvægi og umfang
byggingariðnaðarins í
samanburði við aðrar
atvinnugreinar því
menn taka hann oft
sem fasta stærð og
gleyma honum jafnvel
í umræðu um nýsköp-
un og gjaldeyrisöflun
/ -spamað. Því skulu
lagðar fram nokkrar
upplýsingar, sem sýna
hversu mikilvægt það
er fyrir þjóðarbúið og
landsmenn alla að nið-
urstöður rannsókna
og þróunarstarfsemi á sviðinu skih
sér vel til atvinnugreinarinnar: Um
80% þjóðarauðs liggja í mannvirkj-
um, árleg fjármunamyndun í bygg-
ingariðnaði er u.þ.b. 50 milljarðar
og þar af 20 milljarðar í húsum,
60% af árlegri fjárfestingu í land-
inu eru í mannvirkjagerð og hús-
næðiskostnaður hefur megináhrif á
lífskjör í landinu. Þessar tölur sýna
að árangur í rannsóknum á þessu
sviði skila fljótt miklum arði til al-
mennings og hefur veruleg áhrif á
stöðu þjóðarbúsins. Fundaröðin
sem hér hefur verið kynnt er við-
leitni til þess að koma rannsóknar-
niðurstöðum til virkrar notkunar í
greininni.
Höfundur er forstjóri Rb.
PJXAR
a
miða úr afsláttarhefti
fá bíómiða í kaupbæti!
BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020