Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.02.1999, Blaðsíða 40
+ 40 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÉTAR ÓLAFUR SIGURÐSSON, Túngötu 16, Sandgerði, verður jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00. Sigurveig Sigurjónsdóttir, Berta Steinþórsdóttir, Berta Grétarsdóttir, Matthías Guðmundsson, Gissur Þór Grétarsson, Salóme Guðmundsdóttir, Ester Grétarsdóttir, Hjörtur Jóhannsson, Sigurbjörn Grétarsson, Jóhann Ingi Grétarsson, Margrét Ingiþórsdóttir, Elvar Grétarsson, Sigrún Guðjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AÐALSTEINN SVEINBJÖRN ÓSKARSSON, Víðilundi 24, Akureyri, er andaðist á heimili sínu laugardaginn 13. febrúar, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju á morgun, laugardaginn 20. febrúar, kl. 14.00. Sigrún Guðbrandsdóttir, Haukur Haraldsson, Snjólaug Aðalsteinsdóttir, Þorsteinn Pétursson, Karlotta Aðalsteinsdóttir, Lárus Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Frændi minn og vinur okkar, JÓN INGVARJÓHANNSSON frá Norðurgarði, lést á Ljósheimum, Selfossi, þriðjudaginn 9. febrúar sl. Útför hans fer fram frá Ólafsvallakirkju, Skeið- um, laugardaginn 20. febrúar kl. 14.00. Jóhann Hjaltason, Eiríkur Valdimarsson, Rósa Pétursdóttir og fjölskylda. + Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfail og útför VALGERÐAR ÁRNADÓTTUR, Lönguhlíð 3, áður Ásgarði 29. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks í Lönguhlíð 3 og deild A-7 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir einstaka alúð og umhyggju. Árni Ólason, Margrét Valgerðardóttir, Leifur Á. Aðalsteinsson, Ragnheiður H. Óladóttir, Elías R. Sveinsson, Hermann Ólason, Brjánn Árni Ólason, Jóhanna M. Finnbogadóttir, Guðrún Kr. Óladóttir, Björn V. Gunnarsson, Hrólfur Ólason, barnabörn og barnabarnabörn. + Öllum þeim sem sýndu okkur samúð og elsku- semi við fráfall og jarðarför GUÐLAUGAR JÓNSDÓTTUR, færum við hjartans þakkir. Sérstakar þakkir flytjum við samstarfsfólki hennar við Seljaskóla svo og Árnesingakórn- um í Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, < Ásgeir Pálsson. HÖRÐUR GUÐMUNDSSON + Hörður Guð- mundsson fædd- ist í Reykjavík 7. maí 1918. Hann lést á heimili sínu 9. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur R. Oddsson, forstjóri og bæjarfulltníi í Reykjavík, og Odd- fríður S. Jóhanns- dóttir. Systur Harð- ar voru Helga, f. 1924, d. 1970, og Lilja, f. 1927, d. 1936. Uppeldissonur Guðmundar og Oddfríðar er Helgi Agústsson sendiherra, f. 1941. Einnig ólu þau upp Hlíf Hjálmarsdóttur, f. 1916, sem nú er látin. Hinn 8. júní 1940 kvæntist Hörð- ur Steinunni Kristjánsdóttur, f. 5. apríl 1916. Böm þeirra eni: 1) Oddfríður Lilja hjúkrunarkona, f. 1941. Synir hennar eru: a) Hörður, í sambúð með Guðrúnu B. Birgisdóttur og synir þenra eru Birgir Þór og Emil Om. b) Arnar. Sambýiismaður Oddfríð- ar Lilju er Þórður Guðmannsson. 2) Guðmundur Þorbjöm, íþrótta- kennari, f. 1946, kvæntur Rögnu Maríu Ragnai’sdóttur, f. 1948. Böm þeirra em: a) Ragnar, í sambúð með Nicole Cordes og dóttir þeirra er Laura Björk. b) Þórann Kristín, í sambúð með Guð- bimi H. Gunnars- syni. c) Hörður. d) María Björk. 3) Kri- stján, vélsljóri, f. 1948, kvæntur Ruth Guðbjartsdóttur, f. 1948. Börn þeirra era: a) Steinunn, í sambúð með Bjarna Inga Kristjánssyni. b) Guðbjartur Oli, í sambúð með Bryn- dísi Kristinsdóttur. Böm þeirra era Brynjar Smári, Svava og Kristján Oli. c) María, í sambúð með Jóhanni Engilberts- syni. Hörður lauk sveinsprófi í bak- araiðn árið 1937 og meistara- prófi árið 1942. Hann starfaði sem bakari í Alþýðubrauðgerð- inni til margra ára og rak síðan Harðarbakarí við Laufásveg um nokkurn tíma. Hörður hóf síðan akstur leigubifreiðar hjá Bæjar- leiðum og starfaði við það fram til 75 ára aldurs. Hann starfaði að ýmsum félagsmálum leigu- bílstjóra og sat hann m.a. í stjórn Lánasjóðs Bæjarleiða. Hörður starfaði einnig sem öku- kennari. Útför Harðar fer fram frá Há- teigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hörður Guðmundsson var elstur þriggja barna uppeldisforeldra minna, Guðmundar R. Oddssonar bakarameistara og forstjóra Al- þýðubrauðgerðarinnar hf. og konu hans, Oddfríðar S. Jóhannsdóttur. Hann var farinn úr foreldrahúsum er þau hjónin tóku mig nýfæddan í fóstur en bernskuminningar mínar eru ríkar af nánum samskiptum við Hörð og fjölskyldu hans bæði í leik og starfi. Hann fetaði í fótspor föður síns og nam bakaraiðn hjá honum í Al- þýðubrauðgerðinni þar sem hann vann um árabil sem bakari og síðar yfirbakari og bakarameistari. Hann stoftisetti síðan sína eigin brauð- og kökugerð, Harðarbakarí, en hvarf síðan alfarið frá slíkum störfum af heilsufarsástæðum og hóf störf við bifreiðakennslu og leiguakstur á Bæjarleiðum. Þar sem ég vann sem drengur og unglingur við léttastörf í Alþýðu- brauðgerðinni get ég fullyrt að vinna og rekstur á bakaríi á þeim tíma var ekki heiglum hent. Hörður gerði ríkar kröfur til annarra um að þeir Sinntu vel sinni vinnu, en þær sömu kröfur gerði hann til sjálfs sín eins og honum var í blóð borið og gekk vasklega til sinna starfa. Það kom mér því ekki á óvart þegar hann kenndi mér sem unglingi á bfl að hann sætti sig ekki við neitt kák í þeim efnum frekar en öðru. Það stendur mér enn lifandi fyrir hug- skotssjónum þegar hann kenndi mér að bakka fyrir horn á Ford 1946 í bröttustu götunum í Þing- holtunum. Þetta var ekki létt og kennarinn lagði sig fram um að þetta skyldi gert óaðfinnanlega. Eg hef engu við mig bætt í þessum efn- um síðar. Þannig var Hörður ein- arður í framgöngu og stefnufastur, en í senn góður leiðbeinandi og drenglundaður. Réttlætis- og heið- urskennd hans ásamt hófsemi duld- ist engum. Hörður var alinn upp á pólitísku heimili og var á yngri árum sínum virkur í starfi FUJ í Reykjavík og gegndi einnig trúnaðarstörfum fyrir Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. Hann fylgdi því hugsjónum jafnað- arstefnunnar, en var lítt kappsfullur eða framgjarn á því sviði. Hann lét einnig til sín taka í samtökum bak- ara og síðar leigubifreiðastjóra þar sem hann átti um lengri tíma sæti í stjórn lánasjóðs Bæjarleiða. Hörður kvæntist eftirlifandi konu sinni, Steinunni Kristjánsdóttur, hinn 8. júní 1940 og varð þeim þriggja bama auðið, þeirra Oddfríð- ar Lilju, Guðmundar Þorbjarnar og Kristjáns. Traust og heiðarleiki voru honum í blóð borin og þau gildi innrætti hann börnum sínum og var þeim góður vinur og félagi. Ekki síst naut Hörður að sjá barnabörn sín vaxa úr grasi. Hann gladdist yfir hverj- um áfanga á lífsleið þeirra og gam- an var að heyra hann stoltan segja frá þessum myndarlega hópi níu barnabarna og fjögurra langafa- barna. Þau syrgja hann nú og sakna hans hlýja og trausta handtaks. Þau Steinunn og Hörður bjuggu sér fallegt heimili þar sem gestrisni var í öndvegi. Einnig byggðu þau sér sumarbústað, fyrst í Þrasta- skógi, en endurbyggðu síðan af miklum myndarskap sumarbústað foreldra hans að Iðu í Biskupstung- um. Hörður átti þar rætur frá æskuárum sínum og þar hlúði hann að fjölskyldu sinni. Laxveiði og úti- vera áttu þar hug hans til síðasta dags. Tal okkar á hinsta fundi okkar nokkrum dögum fyrir andlát hans snerist um þann unaðsstað sem þessi staður var honum. Hann var þá léttur í bragði sem að vanda er við ræddum um þessa kæru sveit. Þrátt fyrir veikindi sín kvartaði hann ekki og bar þau æðrulaus án skapbrigða. Mér þykir vænt um þessa síðustu minningu um Hörð. Hann lifði ekki að sjá það grænkandi lauf og hækk- andi sól og að laxinn gengi í ána eins og við töluðum um. Hann var tengdur þessari náttúru sterkum böndum og þau verða nú ekki rofin. Við Heba og börnin okkar vottum Steinunni og allri fjölskyldunni djúpa samúð okkar og biðjum Guð að styrka þau í sorg þeirra. Helgi Ágústsson. Við áttum góðan afa. Þó hann ætti oft annríkt, var hann ávallt til staðar og gaf sér tíma til að sinna okkur, útskýra fyrir okkur og segja okkur til. Það var gott að leita til hans og fá ráðleggingar. Við fund- um að honum þótti vænt um okkur og hann gerði allt sitt til að okkur gengi vel í lífinu. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Við söknum afa okkar og finnst tómlegt án hans. Hann hefur lagt sitt af mörkum fyrir okkur og við kveðjum hann með þakklæti í huga og söknuði. Við áttum góðan afa. Hörður og Arnar Oddfríðar- synir; Ragnar, Þórunn Kristín, Hörður og María Björk Guðmundarbörn; Steinunn, Guðbjartur Óli og María Kristjánsbörn. Mér finnst gott að eiga góðar minningar. Minningar sem hjálpa mér í gegnum erfitt tímabil eins og núna þegar afi minn er dáinn. Eg bý að því að hafa eignast margar góðar minningar um afa minn í gegnum tíðina. T.d. minn- ingar um þegar hann kenndi mér að moka snjó af stéttinni í Skip- holtinu. Þegar ég fór með með afa og ömmu í bústaðinn í Þrastaskógi ýmist til að gróðursetja, slétta flöt- ina, leggja stétt eða bara til að vera. Minningar um veiðiferðir austur að Iðu og hin síðari ár að dytta að bústaðnum þar. Minning- ar um þegar ég fékk að vera með afa í ökukennslunni og síðar þegar hann kenndi mér á bíl. Minningar um bílaviðhald og viðgerðir í skúrnum og síðar þegar ég fékk þar aðstöðu til að búa mér til minn fyrsta bíl, þá var afi minn betri en enginn og leiðbeindi mér og að- stoðaði á marga lund. I minningunni var hann alltaf að. Osérhlífinn, hávær, duglegur, sér- vitur, bamgóður, hjálpsamur eru orð sem öll geta lýst honum, en eft- ir stendur minning um mann sem gott var að eiga að, gott var að leita til og á stóran þátt í því hvernig ég er í dag. Megi hann hvíla í friði. Hörður J. Oddfríðarson. Afi minn er dáinn. Það er sem reiðarslag. Eg er svo lánsöm að hafa átt afa minn í svo langan tíma, þar til nú að hann svo skyndilega er numinn á brott. Þegar ég hugsa um afa minn á ég mér aðeins góðar og farsælar minningar. Hann lét sig aldrei vanta þegar eitthvað var um að vera, t.d. við afmæli og útski'iftir. Nærvera hans var mér mikils virði, þó að hann hafi látið fara lítið fyrir sér. Kærleiksrík faðmlög hans og bros eiga eftir að fylgja mér um aldur og ævi. Ferðirnar hans afa míns út á flugvöll voru ófáar og hann var alltaf tilbúinn að taka á móti mér eða kveðja mig, t.d. þegar ég var að koma í heimsókn til Islands frá Danmörku eða var að fara út til náms i Skotlandi. Oendanlegur stuðningur hans var mér gulls ígildi og veitti mér öryggi og styrk. Afa leist nú ekki strax á blikuna þegar ég sem iítil stelpa vildi fara út í á og gerast veiðimaður á Iðu eins og hann, pabbi og hinir strák- ai’nir, því ekki hafði það tíðkast að kvenfólk i ættinni stundaði slíkt. I byrjun gaf hann mér þó litla veiði- stöng til að dorga með og loks fékk ég að fara með pabba út í á, í allt of stórum vöðlum til að horfa á, en síðar meir til að veiða sjálf. Og núna í lok síðasta sumars á Iðu kallaði hann á mig í land þegar veiði var lokið klukkan tíu að kvöldlagi. Afi minn bauðst til að geyma bú- slóðina okkar Bubba í skúrnum hjá sér þar til við gátum flutt inn í okk- ar fyrstu íbúð í Kópavoginum og dótið okkar var hvergi betur geymt en hjá afa mínum, því að hann passaði sérstaklega vel upp á hluti sem honum voru kærir. Þegar við svo fluttum í desember sl. var afi minn jafn spenntur og við og sá til þess að við kæmumst á leiðarenda með búslóðina í heilu lagi. Það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.