Morgunblaðið - 19.02.1999, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 43
FRÉTTIR
Ný prent-
smiðja á
gömlum
grunni
EIGENDASKIPTI urðu á
prentsmiðjunni Skemmuprenti í
Kópavogi um síðustu áramót.
Við rekstrinum tóku Ólafur
Guðlaugsson og Bjarni Þ.
Bjarnason af Hilmari Gunn-
laugssyni, sem Iét af störfum
eftir tveggja áratuga starf í fyr-
irtækinu.
Áfram verður boðið upp á
alla almenna prentþjónustu auk
stönsunar, auglýsingagerðar og
litljósritunar.
Prentsmiðjan er til húsa í
Laufbrekku 28 (Dalbrekkumeg-
in) og er opin alla virka daga
frá kl. 8-18 og frá 10-16 alla
laugardaga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÓLAFUR Guðlaugsson og Bjarni Þ. Bjarnason eigendur Skemmuprents í Kópavogi.
Greiðslur úr sjóð-
um launafólks
dragist ekki frá
skaðabótum
EFTIRFARANDI ályktun hefur
borist frá Alþýðuflokki-Jafnaðar-
mannaflokki Islands:
„Flokksstjórnarfundur Alþýðu-
flokksins-Jafnaðarmannaflokks Is-
lands, haldinn 16.2. 1999 skorar á
ríkisstjóm Islands að hverfa nú
þegar frá þeirri fyrirætlan að
hegna launafólki fyrir sparnað sinn
í lífeyris- og sjúkrasjóðum verka-
lýðshreyfingarinnar. Með frum-
varpi til breytinga á skaðabótalög-
um er stefnt að því að lögfesta þá
reglu að greiðslur úr þessum sjóð-
um skuli koma til frádráttar skaða-
bótum launafólks sem verður fyrir
alvarlegum slysum. Sjóðir launa-
fólks eru og hafa ætíð verið eign
launafólks og þeim er ekki ætlað að
spara tryggingafélögunum út-
gjöld.“
30 ára af-
mæli Breið-
holtsskóla
NÚ stendur yfir 30. starfsár
Breiðholtsskóla. Fyrsti skólinn í
Breiðholtinu hóf starfsemi sína
24. september 1969. Breiðholts-
skóli er einsetinn, heildstæður
grannskóli í Breiðholti 1. I skól-
anum era 570 nemendur í 28
bekkjardeildum. Kennarar skól-
ans eru 47 og aðrir sem starfa á
dagvinnutíma eru 21.
I tilefni afmælisins standa
skólinn og foreldrafélagið fyrir
afmælisfagnaði laugardaginn 20.
febrúar. Skólinn verður opinn
frá kl. 12-16 þann dag. Margt
verður til skemmtunar og má í
því sambandi nefna að sýning
verður á verkum nemenda 1.-7.
bekkjar. Nemendur 9. bekkjar
opna kaffihús þar sem foreldrar
og aðrir gestir geta keypt sér
kaffi og meðlæti. Foreldrafélag-
ið verður með skemmtun og leiki
í íþróttasalnum, Lúðrasveit Ar-
bæjar- og Breiðholts leikur,
nemendaskemmtun verður í
samkomusal, fjöltefli, hand-
verkssýning o.fl. Einnig verður
sýning á gömlum bekkjarmynd-
um og er það hvatning til eldri
nemenda að koma og rifja upp
gamla daga. Veglegt afmælisrit
hefur verið gefið út af þessu til-
efni og þar greinir frá þróun
skólans á þessu 30 ára tímabili
allt frá upphafi og til dagsins í
dag.
„Það er ósk skólans að sem
flestir sjái sér fært að koma í
skólann þennan dag, ekki síst
fyi-rverandi nemendur og starfs-
fólk ásamt öðrum velunnuram
skólans,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Uppboð á
herrabindum
UPPBOÐ á herrabindum þjóð-
þekktra karlmanna verður haldið
til styrktar krabbameinssjúkum
börnum í Kringlunni á morgun,
laugardaginn 20. febrúar. Að
uppboðinu stendur JC-hreyfingin
(Junior Chamber) í samvinnu við
Styrktarfélag krabbmeinssjúkra
barna.
í fréttatilkynningu segir að
hátt í 40 karlmenn hafi gefið
bindi til styrktar þessu málefni
og þar á meðal séu Örn Árnason,
Þórhallur Gunnarsson, Kári Stef-
ánsson, Halldór Ásgrímsson,
Arnór Guðjohnsen, Gaui litli,
Einar Stefánsson Everestfari og
Herbert Guðmundsson.
í tilkynningunni segir að öll
bindin hafi einhverja sögu á bak
við sig:
Gaui litli: „Ég keypti þetta
ávaxtabindi til að minna mig á
mikilvægi holls mataræðis. Bindi
þetta hef ég svo borið í veislum
hérlendis sem erlendis".
Herbert Guðmundsson: „Þetta
bindi eignaðist ég fyrir
söngvakeppni framhaldsskólanna
í Laugar-dalshöll árið 1997. Og
það þrælvirkaði, enda frábær sal-
ur að hlusta og mikil stemmn-
ing.“
Arnór Guðjohnsen: „Þetta
bindi fékk ég fyrir að vera kosinn
maður leiksins í leik með Bor-
deaux á móti Toulon 1991 í
Frakklandi."
Fyrirlestur um
hrygningu,
klak og haf-
rannsoknir
TVEIR fyrirlestrar á vegum
Hollvinasamtaka Háskóla Is-
lands verða laugardaginn 20.
febrúar í sal 3 í Háskólabíói og
hefjast þeir kl. 14. Fyrirlesarar
verða Jóhann Sigurjónsson for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar og
dr. Guðrún Marteinsdóttir fisk-
vistfræðingur.
Hrygning, klak og nýliðun
þorsks er yfirskrift fyrirlestrar
Guðrúnar. I erindinu verður fjall-
að um sveiflur í árgangastyrk
þorsksins síðastliðna áratugi.
Jóhann nefnir sinn fyrirlestur
Hafrannsóknir á nýrri öld. I er-
indinu verða rædd líkleg verkefni
á næstu áram, m.a. í ljósi
tækninýjunga sem talið er að
styrki rannsóknir er lúta að
grundvelli fiskveiðiráðgjafar.
Að loknum fyrirlestram verða
umræður. Fyrirlestrarnir era
ætlaðir almenningi og aðgangur
er ókeypis.
Með fullri
reisn í Loft-
kastalanum
NEMENDAFÉLAG Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti sýnir um
þessar mundir leikritið Með fullri
reisn í Loftkastalanum. Sýningin
byggist á kvikmyndinni „Full
Monty“ sem sýnd var í kvik-
myndahúsum borgarinnai' á sl.
ári. Leikstjóri er Guðmundur R.
Kristjánsson og sá hann einnig
um handritsskrif og þýðingar á
söngtextum. Ástrós Gunnars-
dóttir sá um dansa og um tónlist-
arstjóm sá Matthías Matthíasson
með dyggri aðstoð hljómsveitar-
innar. Hana skipa, auk Matthías-
ar, Pétur Öm Gunnarsson, Krist-
inn Gallagher og Ingólfur Sig-
urðssyon.
Leikarar era 17 talsins, frá
7-22 ára en alls koma 40 manns
að sýningunni.
Næstu sýningar verða í dag,
föstudag, og á morgun, laugar-
dag. Síðasta sýning verður laug-
ardaginn 27. febrúar. Sýningar
hefjast kl. 20. Miðasala er í Loft-
kastalanum.
Ný sljórn
Félags ís-
lenskra fræða
AÐALFUNDUR Félags ís-
lenskra fræða var haldinn hinn
11. febrúar sl. Á aðalfundi var
kosin ný stjóm og hana skipa:
Ái-mann Jakobsson formaður,
Steinunn Inga Óttarsdóttir ritari,
Örn Hrafnkelsson gjaldkeri, Sig-
ríður Baldursdóttir varaformað-
ur, Eiríkur Guðmundsson vara-
ritari og Guðrán Theódórsdóttir
varagjaldkeri.
Undanfarin fjögur ár hefur
stjórn félagsins verið skipuð
þeim Guðránu Nordal formanni,
Sveini Yngva Egilssyni ritara og
Guðbirni Sigunnundssyni gjald-
kera. Á aðalfundi kom fram að
fjárhagsstaða félagsins er sterk
og voru samþykktir inn í félagið
allmargir nýir félagar.
Stofnfundur
Búmanna á
Suðurlandi
STOFNFUNDUR Búmanna á
Suðuriandi verður haldinn í fé-
lagsheimilinu Aratungu, Reyk-
holti, Biskupstungnahreppi, laug-
ardaginn 20. febrúar kl. 14.
I fréttatilkynningu segir:
„Búmenn er félag um nýjar leið-
ir í húsnæðismálum fólks 50 ára
og eldra. Félagið mun með nýj-
um lögum um búseturéttarfyrir-
komulag geta boðið félagsmönn-
um öðruvísi og léttari fjármögn-
un frá Ibúðalánasjóði. Markmið
félagsins er að auka jöfnuð í
húsnæðismálum með því að afla
félagsmönnum góðs og hag-
kvæms húsnæðis með því að
byggja eða kaupa húsnæði sem
nýtist félagsmönnum. Félagið
mun hafa umsjón með rekstri
íbúðarhúsnæðis sem félagsmenn
nýta og þeim verður tryggð
ótímabundin afnot að íbúðum
gegn kaupum á eignarhluta í
þeim. Félagið mun útvega lán til
byggingarframkvæmda og
rekstrar á þeim íbúðum sem fé-
lagjð annast.“
Á fundinn koma m.a. formaður
félagsins, Guðrán Jónsdóttir,
arkitekt og Reynir Ingibjartsson,
starfsmaður þess. Einnig munu
forvígismenn sveitarfélaga og fé-
lagasamtaka eldri borgara á Suð-
urlandi koma á fundinn. Einnig
verða kynntar mögulegar stað-
setningai' byggða Búmanna á
Suðurlandi.
Fundir um ábyrgð
og nýja námskrá
SKÓLA- og fræðslunefnd Sjálf-
stæðisflokksins efnir til tveggja op-
inna funda um skólamál í næstu
viku.
Mánudaginn 22. febrúar verður
umræðufundur sem ber yfirskrift-
ina Okkar skylda - þeirra skylda.
Ingvar Sigurgeirsson, deildarforseti
framhaldsdeildar KHÍ, Hildur Frið-
riksdóttir blaðamaður og Þorsteinn
Sæberg, formaður Skólastjórafé-
lags Islands, flytja erindi sem
tengjast umræðunni um aga, upp-
eldi og ábyrgð í íslenskum skólum.
Fundarstjóri verður Guðrán Zoéga,
verkfræðingur.
Fimmtudaginn 25. febráar ræða
Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra, Sigríður Anna Þórðardóttir,
formaður þingflokks sjálfstæðis-
manna og Helgi Árnason skólastjóri
um endurskoðun námskráa á öllum
skólastigum og um önnur forgangs-
verkefni í menntamálum. Yfirskrift
þess fundar verður Nýjar námskrár
- betri skóli. Fundarstjóri verður
Þorvarður Elíasson, rektor Verzl-
unarskóla íslands.
Báðir fundirnir verða haldnir í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, og hefst
kl. 17.15. Stefnt er að því að þeim
Ijúki kl. 18.30. Umræður og fyrir-
spurnir verða leyfðar eftir fram-
söguerindi á báðum fundunum.
ín er komin út
17. febrúar-2. mars
Bráðavaktin
tekur breytingum.
Mikki Mús
í nýrri
teiknimynd.
Kíkt inn hjá
Fóstbræðrum.
í Dagskrárblaðinu þínu.
Dagskráin