Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 48

Morgunblaðið - 19.02.1999, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ < 1000 ára vand- inn árið 2000! Nú líður senn að aldamótum og raddir hafa heyrst sem spá hamförum og jafn- vel heimsenda árið 2000. Flestir taka slíkum hrakspám létt og af spaugsemi. Ymislegt bendir þó til að hugmyndina megi rekja langt aftur í aldir allt til ársins 1000 þegar miklar náttúruham- farir urðu í allri Evrópu og e.t.v. víðar. Ottinn sem fylgdi í kjölfarið hafði, segir Margrét Þorvaldsdóttir, víðtæk áhrif næstu aldir og má jafnvel greina anga hans enn í dag. í UPPHAFI ársins 1000 varð hræðleg hugursneyð í allri Evr- ópu og í kjölfarið gengu smitfar- aldrar. Það var sem hefndareng- ill og herfylki hans hefðu brugðið brennandi brandi yfir þriðjung mannkyns, segir franski sagn- fræðingurinn og rithöfundurinn Paul Christian í bók sinni „The Magic“ og vitnar þar í samtíma- heimildir. I annálum frá seinni hluta 10. aldar og fyrri hluta 11. aldar er mjög mikið af furðusögnum og lýsingum á al- gjöru niðurbroti á veraldlegu og andlegu siðferði, og gátu hinir vitrastu menn ekki fundið á því neina skýringu. Samkvæmt forni trú var hægt lesa örlög heimsins úr litrófi himinhvolfsins. Af þeim ástæðum var halastjarna og næt- urgeislar hennar talin boða hætt- ur til allra landa; fall prinsa, blóðugar orrustur, smitfaraldra, hungursneyð, flóð og hættulega eldsvoða. Árið 1000 birtist risavaxin halastjama á himni. Paul Christi- an vitnar í munkinn Glaber sem greindi frá því að halastjarnan hefði verið á himni í þrjá mánuði, frá sólarlagi til sólarupprásar. Birtan frá henni var svo sterk að hún skyggði á birtu allra annarra stjama. A nokkrum stöðum rigndi svo miklu magni af stóram steinum að haugar mynduðust á opnum svæðum. A öðram stöðum virtust landamerkjasteinar hafa dregist úr jörðunni af óþekktu aíli og fundust síðan langt frá sín- um uppranalega stað. Evrópa upplifði alls kyns óút- skýranleg fyrirbrigði. Hér og þar urðu jarðskjálftar og eldgos og á öðrum stöðum stórbrunar af óþekktum orsökum. Róm brann nánast til ösku og Napólí eyddist næstum af gosi frá Vesúvíusi. Eftir að dregið hafði úr hryllingi náttúrahamfaranna, sat eftir í huga fólks ótti við Satan sjálfan, en samkvæmt fomri trú var hann talinn stjórna voðaverkum. Kristnin fann sig knúna til að fylgja eftir þessari nýju vakn- ingu ráðvilltra sálna þótt ekki væri til annars en að koma í veg fyrir að Satan kæmi algjörlega í stað Guðs. Paul Christian segir að hörm- ungar ársins 1000 hafi hróflað svo rækilega við trúarlífi fólks að það hafi verið tilbúið að deila trúnni jafnt við altar guðs hins illa og guðs réttlætisins. Hin kristna kirkja leitaði eftir mála- miðlun við þessa nýju trúar- hreyfingu með því að helga guði kirkjur innan dyra, en skreyta þær utan dyra með veggmynd- um og styttum af ógnandi óvætt- um hins illa, eins og enn má sjá á veggjum kirkna frá miðöldum. Miðaldaklerkar skynjuðu vel hvernig hægt væri að færa sér í nyt hinar vinsælu höggmyndir. Þeir tóku sem köllun að leiða hinar fáfróðu sálir í allan sann- leik um hinn mikla her málaðra og úthögginna óvætta sem þeir sögðu sitja um helga staði. Christian segir að þessi villi- mannlega goðafræði sé upphafið að „witchcraft" eða fjölkynn- gifári miðalda. Ahrifamáttur þessarar nýju trúar var svo mik- ill, að langt fram eftir öldum voru margir miðaldaklerkar upptekn- ari af Satan en Guði. í ljósi atburða sem urðu í Evr- ópu um árið 1000, og ekki er ólík- legt að náð hafi hingað með ferðaglöðum fornmönnum, fá ummæli Snoma goða og hinna heiðnu manna er tekist var á um kristnitökuna á Þingvöllum, al- veg nýja og skýrari merkingu. I Kristni sögu segir: Þá kom mað- ur hlaupandi og sagði að jarðeld- ur var upp kominn í Ölfusi og mundi hlaupa á bæ Þorodds goða, en hann bjó á Hjalla í Ölf- usi. Heiðnir menn sögðu það ekki undur að goðin reiddust. Mælti þá Snorri goði, sem tekið hafði kristna trú: Um hvað reiddust goðin þá er hér brann hraun það sem vér nú stöndum á? Sögnin um halastjörnuna er ekki úr lausu lofti gripin, hennar er víðar getið í rituðum heimild- um og sögnum. A Bayeux-tepp- inu fræga frá 11. öld era myndir af cómetu eða halastjörnu sem litið er á sem slæman fyrirboða tengdan dauða Haraldar kon- ungs. Halastjarna þessi er nú talin vera Halley sem hér sást síðast árið 1986. í bókinni Halley’s Comet segir að árið 1066 hafi halastjaman sést á himni frá apríl til júní er Vil- hjálmur hertogi af Normandí var að undirbúa árás á England. En þar sem Halley er sögð sjást aðeins á 70 ára fresti, gæti hin óvenjulega skæra stjarna sem birtist á himni árið 1000 verið ein af þessum óþekktu halastjörnum sem koma öllum að óvörum á nokkur hundrað eða jafnvel nokkur þúsund ára fresti. Þó að ekki sé ljóst hvers konar halastjarna lýsti upp næturhim- inninn árið 1000, kom hún slíku umróti á hugi manna að við bú- um að því enn í dag. Þó að fáir trúi á heimsenda er grunnt á þeirri hugsun að okkur hljóti að hefnast fyrir margt hið góða sem við njótum. Stjómmálamenn minna ötulir á að góðærinu fylgja verri tímar. Hversu margir ótt- ast ekki að góðu sumri hljóti að íylgja slæmt sumar að ári. Getur verið að vandinn, trú- girni og vanþekking fólks, sem valdastéttimar nýttu sér í kjölfar náttúrahamfara ársins 1000, eigi sér bergmál nú við upphaf ársins 2000? Mannlegt eðli hefur ekki breyst, aðeins áherslurnar, trú og tækni. Höfundur er blaðaniuður VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Athugasemd í SÍÐASTA þætti Jónasar Jónassonar ræddi útvarps- maðurinn við tónlistar- konu á Hornafirði á þann hátt að gagnrýnisvert er. Þar voru rifjuð upp erfið fjölskyldumál á fyrstu tveim árum ævi hennar. I þættinum bar konan sakir á fyrri fósturmóður, t.d. spyrjandi: „Var konan vond við þig?“ Svar: „Já, hún var það“ (tekið dæmi um innilokun í kjallara). Spyrjandi: „Er þessi kona á lífi?“ „Hvernig heldurðu að henni líði?“ Það er kjarni málsins, að umfjöll- un um viðkvæm einkamál, sem ýfa upp sár hjá aðil- um, sem hafa verið viðriðnir þau, eiga ekkert erindi í fjölmiðla. Þó Jónas sé ágætur þáttagerðar- maður á hann ekki að tjá sig í ímynd sjálfræðings eða sálgreinanda. Honum bar að fella út ósannaðar sakir viðmælanda síns, sem annar viðkomandi ættingi kann að hafa inn- rætt henni í æsku. Aðgát skyldi höfð í nærveru sál- ar, lasburða, gamallar konu, sem hlustaði á þátt- inn. Hörður Þ. Ásbjörnsson. Nafnlaus bréf! HJÁ Velvakanda liggur þó nokkuð af bréfum sem send hafa verið án undir- skriftar. Vill Velvakandi ítreka það að ekki eru birt bréf sem eru án upplýsinga um bréfritara. Til að fá birtingu í Velvakanda þarf skilyrðislaust að fylgja með nafn, heimilisfang og símanúmer. Fuglarnir á Tjörninni FUGLARNIR á Tjörninni eru alveg glorhungraðir, mér skilst að Reykjavíkur- borg sé alveg hætt að gefa þeim. Einnig rennur minna af heitu vatni í Tjömina en áður og fuglarnir hafa aðeins smápoll til umráða. Tvær gæsir og tvær endur eru þai’ fótbrotnai’ og ein önd var föst í ísnum i nokki’a daga þar til starfsfólk Iðnó tók sig til og losaði hana. Mér finnst Tjörnin vera hjarta bæjarins og þar ganga túristamir framhjá og hafa mikla gleði af dýralífinu þai'. Finnst mér átakanleg sjón að horfa upp á þetta og hélt ég að Is- lendingar væru meiri dýra- vinir en þetta. Vil ég hvetja fólk til að láta í sér heyra svo eitthvað verði gert í þessu máli. Kristín. Eftirlaunafólk en ekki ellilífeyrisþegar ÉG VIL taka undir tilskrif í Velvakanda fyrir nokkru varðandi orðið „ellilífeyris- þegi“. Það er löngu tíma- bært að kalla okkur sem komin erum á eftirlauna- aldur „eftirlaunafólk" en ekki „ellilífeyrisþega", sér- staklega með tilliti til þess að fjöldi eftirlaunafólks fær engin „ellilaun" frá Trygg- ingastofnun, eins og allir vita. Heitið „ellilífeyrisþegi" á sér því ekki stoð þar sem ellilaun eru miskunnarlaust skorin niður við trog stjórnvalda. Ég var eiginlega rasandi hissa á menntamálaráð- herra, þessum mæta manni, að ætla sér að „láta byggja menningarmiðstöðvar" út um allt land. Húsnæði er áreiðanlega til í flestum byggðarlögum, og sannaðist það raunar í menningarlegum og skemmtilegum þáttum Jónasar Jónassonar, sem hafa verið í útvarpinu und- anfarið og yfirleitt farið fram í kirkjum staðanna. Það er mjög vel við hæfi að menningin sé stunduð í kirkjum, eins og tíðkast lika með mjög miklum ágætum í höfuðborginni, enda engin „menningarmiðstöð" í höfuðborginni. Það væri því meira vit í því að styðja menningarstarfið í hinum ýmsu byggðarlögum í stað þess að byggja hús. Hins vegar var ég mjög ánægð að heyra að Björn ætlar ekki að selja Ríkisút- varpið. Ég tel að sala á Ríkisútvarpinu krefjist þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá er annað mál sem ég hef miklar áhyggjur af. Að skipta Reykjavík í tvö kjör- dæmi. Það er eindregin ósk mín að það glapræði verði ekki framið nema með samþykki Reykvíkinga. Til jöfnunar atkvæða bak við hvern þingmann verður að fmnast betri aðferð en sú sem kom fram í fjölmiðl- um sl. vor og sýndi sig að flestir, eða allir, voru mjög ósáttir við. Hvað ætli New York eða London sé mörg kjördæmi? Kona. Tapað/fundið Úr týndist UR týndist vestan frá Hringbraut að Ásvallagötu eða þá á Grandavegi að Grandavegi 47 föstudaginn 12. febrúar. Skilvís finnandi hafi samband í síma 552 0545. Lyklakippa týndist á Laugavegi Lyklakippa (sem er fisklíkneski úr stáli) týndist hjá Laugavegi 66 eða að Snorrabraut sl. mánudag milli kl. 14-15. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 551 5581. Góð fundarlaun. Lykiakippa fannst við Armúla LYKLAKIPPA fannst við Armúla 27 í síðustu viku. Á kippunni er Toyotu-lykill og húslyklar. Upplýsingar hjá húsverði eða í síma 550 6432. Hringur týndist á Kentucky HVÍTAGULLSHRING- UR með demanti í týndist í janúar, líklega á Kentucy í Faxafeni, annað hvort inni eða úti, eða við Hvammabraut í Hafnarf- irði. Skilvis finnandi skili hringnum á Kentucy eða hringi í sima 862 9597. Skíði og stafir týnd- ust í Bláfjöllum SKÍÐI og stafir týndust fóstudaginn 5. febrúar í Bláfjöllum. Skíðin eru í brúnröndóttum heima- saumuðum poka. Skilvís finnandi hafi samband í síma 564 5337 eða 861 1295. 20. Rh7+ - Kfö HVÍTUR leikur og vinnur. 21. Dh5+ og vinnur) 19. f4 - Da5 20. Hxd8 og svartur gafst upp. Ibragimov sigraði á mótinu ásamt landa sínum Alexander Goldin. Þeir hlutu 7 v. af 9 mögulegum. Lettinn Meijers varð þriðji með 6Vz v. SKAK llm.vjón llaiifeir l’CtUI'SSOII STAÐAN kom upp á opnu móti í Genf í Sviss í janúar. Ildar Ibragim- ov (2.600), Rússlandi, hafði hvítt og átti leik gegn Ennio Arlandi (2.445), Ítalíu. 17. Rxni! - Kxf7 18. Hxd7! - Kf8 (18. - Hxd7 er svarað með 19. Rg5+! og síðan 19. - Dxg5 20. Dxe6+ - Kf8 21. DI7 mát, eða 19. - Kf6 HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... IVIKUNNI héldu KR-ingar upp á 100 ára afmæli hins fornfræga félags í Vesturbænum. Hafa hátíða- höld farið fram af minna tilefni, að mati Víkveija. Þrátt fyrir landlægan félagaríg á Islandi geta áreiðanlega allir verið sammála um að KR sé merkilegasta íþróttafélag landsins. Engir styðja félag sitt betur í blíðu og stríðu en KR-ingar. Mönnum hefur orðið tíðrætt um það langa hlé sem orðið hefur á því að KR hafi unnið Islandsmeistaratitilinn í knattspyrnu. Nú er einmitt liðið 31 ár síðan liðið hampaði titlinum síðast. Ellert B. Schram nefndi það í viðtali í tilefni afmælisins, að líklega hefði mótlætið þjappað KR-ingum betur saman en hefði þessi tími verið ein samfelld sigurganga. Þetta era at> hyglisverð ummæli og sennilega rétt. Víkverji er ekki mikill spámaður en eitthvað segir honum að árið í ár verði ár KR-inga. í haust kemur svo í ljós hvort hann hefur rétt fyrir sér. xxx * IFYRRA var Kristinn Björnsson þjóðhetja. Það var maklegt eftir tvenn silfurverðlaun í Heimsbikai'- keppninni í svigi. Miklai’ vonh' voru bundnar við Kristin íýrir yfirstand- andi keppnistímabil en þær hafa því miður brugðist. Víkverji kann því illa hvernig viðhorf Islendinga til Kristins hefur breyst við þetta mótlæti. Ólíklegasta fólk telur sig þess umkomið að hafa um hann niðrandi ummæli. Víkverji er þess fullviss að fyrr en seinna nær Kristinn sér upp úr öldudalnum. Á meðan á fólk að láta hann í friði. xxx RATT íyrir að enn séu þrír mán- uðir þar til knattspymuvertíðin hefst fyrir alvöra er Víkverji þegai' farinn að hlakka til. Engin íþrótta- grein býður upp á aðra eins skemmtun og knattspyman. Nú um helgina verð- ur ársþing KSI haldið í Reykjavík og þá verða línurnar lagðar fyrir sumaiið. Þetta verður án efa spennandi sumar og framundan era nokkrir athyglis- verðir landsleikir. Frammistaða lands- liðs okkar í íyrrahaust gefur góð íyrir- heit. í það minnsta höfum við eignast landslið sem hefur ánægju af því að leika knattspymu. Það er fyrsta skref- ið að stærri sigram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.