Morgunblaðið - 19.02.1999, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Islenski tónlistinn
Útvarpsspilun lykilatriði
í sölu hljómplatna
FREMUR litlai' breytingar eru á
Tónlistanum 5. og 6. viku ársins frá
fyrri vikum. Tvær nýjar plötur koma
nýjar inn á listann, „My Own Pri-
son“ með Creed, sem fer beint í ann-
að sætið og „Americana" með Off-
spring.
Creed hástökkvari vikunnar
Aðalsteinn Magnússon markaðs-
stjóri tónlistardeildar Skífunnar seg-
ir að athyglisvert sé að sjá Era í
fyrsta sætinu aðra vikuna í röð.
„Þetta er frönsk tónlist, og í rauninni
einn maður sem stendur bak við
sveitina, Eric Levy. Hérlendis hefur
lagið Ameno verið mikið spilað í út-
varpi og má fullyrða að það sé aðal-
skýi'ingin á miklum vinsældum plöt-
unnar.“
Creed er amerísk rokkhljómsveit
og að sögn Aðalsteins er hún í ætt
við rokksveitirnar Pearl Jam, Korn
og Alice in Chains. Lagið „Pretty
Fly (For a White Guy)“ með Off-
spring er á toppi vinsældalista FM
95,7 og fór einnig á topp breska vin-
sældalistans í síðustu viku.
U2 að nálgast 12.000 eintök
„Safnplatan með U2 er að nálgast
12 þúsund eintaka sölu á íslandi og
er að verða mest selda innflutta
plata síðustu ára. Einnig er plata
Lands og sona ein af fáum plötum
frá jólaútgáfunni sem heldur sér í
góðri sölu núna eftir áramótin.
Annars má segja að útvarpsspilun
sé lykilatriði í sölu hljómplatna í
dag og hafa efstu plötur listans allar
verið mikið spilaðar á öldum ljós-
vakans."
Nr.; var vikur Diskur Flytjandi Ötgefandi
1. í (1) 3 Era Era Polygram
2. 1 (•) 1 My Own Prison Creed Sony Music
3. i (4) 11 You've Come A Long Way Baby Falboy Slim Sony
4. : (?) 13 Bestof 1980-1990 U2 Polygram
5. : (5) 11 Alveg eins og þú Land og synir Spor
6. ; (16) 10 Pottþétt 14 Ýmsir Spor/Skífan
7. ; (41) 1 Americnna Offspring Sony
8. j (19) 13 Miseducntion of Lauryn Hill Lauryn Hill Sony
9. i (28) 8 Pottþéttt 98 Ýmsir Skífnn
10.! (20) 8 Garage Inc. Mefallica Polygram
11. i (15) 6 My Love is Your Love Whitney Houston BMG
12.: (12) 12 Gullna hliðið Sélin hans Jóns míns Spor
13. j (31) 5 Berrössuð ó túnum Annu Pólíno og Aðolsteinn Dim
14. j (14) 12 Söknuður: Minning um Vilhjólm V. Ýmsir Skífon
15.; (18) 10 Sehnsucht Rammstein Polygram
16.j (30) 2 Pétur Pnn Ýmsir Erkitónlist
17.! (27) 7 Five Five BMG
18. i (29) 2 Evorn, Ces-Best of Evora, Cesaria BMG
19. i (65) 1 Ávoxtakarfan Ýmsir Spor
20. i (9) 7 One's Mariah Carey Sony
21.j (11) 12 Ladies nnd Gentlemen George Michael Sony
22.: (50) 1 Songs From Ally mcBenl Featu Vonda Shepard Sony
23. j (13) 18 Never Say Never Brondy Worner
24.; (•) 4 Pottþétt Ást 2 Ýmsir Spor
25. j (36 3 Moon Snfori Air EMI
26. i (108) 2 Grnn Turismo Cardigans Polygram
27. i (17) 5 Ull Súkkat Súkkatt
28. í (25) 4 This is My Truth Teli Me Yours Manic Street Preachers Sony
29.: (26) 2 Ray of Light Madonna Warner
30.: f) 5 Pottþétt 13 Ýmsir Skífan/Spor
Unnið of PiicewoterhouseCoopers í samstorfi við Sombond hljómplötuframleiðendo og Morgunblaðið.
Höfðabakka 1, sími 587 2022
Hljómsveitin Blátt áfram leikur og heldur uppi fjörinu
bæði föstudags- og laugardagskvöld.
Opið til 3.00.
Tilvalinn staður fyrir uppákomur af öllu tagi.
„Happy-hour“ milli kl. 11-12 á föstudags- og laugardagskvöldum.
íþróttaviðburðir í beinni útsendingu á breiðtjaldi.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
Amcrískar
heilsudýnur
í hæsta gæðaflokki
Vandaðar sjúkra- og heilsudýnur írá Beautyrest.
Sjálfstætt gormakerfi úr tvíhertu stáli.
Grensásvegi 3 Sími 568 1144
Moðhaus á Kakóbarnum Geysi í dag
Rugludallar og gamlir hippar
Hljómsveitin Moðhaus
er skipuð ungum
mönnum sem hlusta
á gamla tónlist.
TRAUSTI Laufdal Aðalsteinsson er
söngvari Moðhauss og gítai'leikari,
Magnús Kjartan Eyjólfsson er líka
gítarleikari og styður Trausta með
baki-öddum, bassaleikarinn heitir
Þorsteinn Kristján Haraldsson og
trommari sveitai'innar er Arnar Ingi
Viðarsson. Þeir leika á Síðdegistón-
leikum Hins hússins og Rásar 2 ki.
17 í dag, þar sem frumsamin lög eftir
Trausta verða í aðalhlutverki.
- Er búið að ferma ykkur strák-
ana?
„Já, já, við erum á 15. og 16. ald-
ursári," segir Trausti. „Við höfum
spilað saman í tvö ár, alveg heillengi.
Við byi-juðum fyrst að æfa fyrir
hæfileikakeppni grunnskólanna,
Skrekk, í hitteðfyrra. Núna æfum
við alltaf einu sinni til tvisvar í viku,
og meira fyi-h' tónleika."
- Og hvernig tónlist leikið þið?
„Rokk. Ekki þungarokk, frekar
eins og Oasis. Úppáhalds íslensku
hljómsveitirnar okkar eru Maus og
Sigur Rós, og svo Cure og Korn. Við
hlustum líka mikið á Bítlana."
- Er unga fólkið að hlusta á svo
gamla tónlist?
„Já, ég á örugglega fimmtíu diska
með Bítlunum, og hlusta mun meira
á gamla tónlist en nýja. Eg er mest
undir áhrifum frá John Lennon, Jim
Morrison og fleiri gömlum hippum.“
- Er stefnan að verða atvinnutón-
listarmenn?
„Já, ekki spurning. Við ætlum að
taka upp plötu sem fyrst, og reyna
að koma okkur á framfæri þannig.
Síðan stefnir allt á erlendan markað,
þegar maður er kominn með gott
efni.“
- Veistu hvað nafnið Moðhaus
þýðir?
„Við höfum heyrt gamalt hey og
líka rugludallur, en fyrir okkur er
það tónlistin sem skapar nafnið. Ann-
ars erum við dálitlh' rugludallai'."
Útlagarnir
da^0
leika fyrir dansi föstudags- og
laugardagskvöld
Alabama
Dalshrauni 13, Hafnarfirði
E'nn
ákr
stór
3()()