Morgunblaðið - 19.02.1999, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin, Nýjabíó í Keflavík og
Nýjabíó á Akureyri frumsýna Fear and Loathing
in Las Vegas. Leikstjóri er Terry Gilliam.
RAOUL Duke og dr. Gonzo.
Tveir skakkir
vinir á ferð
Frumsýning
ARIÐ 1971 fara tveír ungir
menn frá Los Angeles til Las
Vegas á rauðum sportbíl,
sem er hlaðinn af öllum hugsanleg-
um og óhugsanlegum vímuefnum.
Yfirskin fararinnar er það að Raoul
Duke (Johnny Depp), sem er
íþróttablaðamaður, ætlar að skrifa
fyrir tímarit um mótorhjóla-
kappakstur í eyðimörkinni. Með í
för er vinur hans, lögfræðingurinn
dr. Gonzo. Ferðin er svo framlengd
undir því yfirskini að Raoul ætli að
skrifa um ráðstefnu saksóknara. En
báðar þessar samkomur verða auka-
atriði í bakgrunni myndarinnar. I
forgrunni eru vinirnir tveir, sem
verða skakkari og skakkari með
hverjum klukkutímanum sem líður.
Þeir segjast vera að leita að amer-
íska draumnum. A vegi þeirra verða
lögregla, blaðamenn, fjárhættuspil-
arar, kappaksturskappar
og puttaferðalangar.
Blaðamennska Raouls
nær hámarki þegar
hann er búinn að
leggja hótelherbergið
sitt í rúst og ætlar svo
að taka viðtal við
hreingerningarkon-
una.
Myndin er byggð
á samnefndri bók
eftir Hunter S.
Thompson; bók
sem lýsti ferð
sem höfundurinn
fór sjálfur til
Las Vegas með
vini sínum.
Thompson
varð frægur á
sinni tíð um
hinn vest-
ræna heim sem
upphafsmaður „stefnu"
blaðamennsku, sem hann
sjálfur „Gonzo-journalism“. Sú
stefna virtist felast í því að gera það
sem Raoul Duke gerir í myndinni:
flækjast dópaður og drukkinn á
milli og skrifa svo um það sem
mann minnti að hefði gerst í full-
vissu þess að almennilegur skáld-
skapur væri hvort sem er miklu
raunsannari en blaðamennska gæti
nokkurn tíma orðið.
Ljós Hunters S. Thompsons skein
skært í bandarískri blaðamennsku
og dægurheimi um skeið en þá skrif-
aði hann einnig t.d. fræga bók um
Hell’s Angels og bókina Better Than
Sex. Thompson brann svo út vegna
lifnaðarhátta sinna. Hann hefur ver-
ið afkastalítill seinni árin en býr á
afskekktum og nánast víggirtum bú-
garði í Colorado. Hann var titlaður
tæknilegur ráðgjafi við gerð þessar-
ar myndar. Einn framleiðenda, vin-
kona Hunters að nafni Laila Nabu-
lisi, á heiðurinn af gerð kvikmyndar-
innar og fékk í upphafí Alex Cox,
leikstjóra Sid and Nancy, til að leik-
stýra myndinni. Cox hvarf frá verk-
inu þegar það var komið nokkuð á
veg og þá hljóp leikstjórinn Terry
Gilliam í skarðið, en hann er vel
þekktur fyrir myndir á borð við Fis-
her King, 12 Monkeys, Brazil og
Time Bandits.
„Það að ég tók þetta að mér var
annars vegar vegna umfjöllunarefn-
isins og hins vegar vegna þess að
Johnny Depp ætlaði að leika í
myndinni,“ segir Gilliam. „Mér
finnst Johnny besti leikari sinnar
kynslóðar. Eg held að það sé ekkert
sem hann ræður ekki við. Hann er
uppátektarsamur, fljótur að hugsa,
fyndinn og leggur ótrúlega hart að
sér.“
„Það er ótrúiegt að það skuli ekki
vera búið að gera mynd eftir þessari
bók fyi-r,“ segir Johnny Depp, sem
snemma varð áhugasamur um þessa
mynd.
„Fear and Loathing fjallar um von
og geðveiki og um leit að
WltilT
í m arið i97lað amerísk;i
kallaði
einhverju til að trúa á. Mér finnst
þetta frábær saga, sem ég held að
muni koma fólki til að hlæja og
hugsa, en þetta er líka saga sem
skýtur fólki skelk í bringu og vekur
viðbjóð.“
„Ef maður les ekki milli línanna í
myndinni og bókinni eru þeir bara
tveir brjálæðingar en ég held að
þetta risti dýpra en það. Þeir eru
týndir, fullir af ótta og viðbjóði og
það er slæm blanda," segir Bencio
Del Toro, sem bætti á sig 20 kílóum
til að geta leikið dr. Gonzo.
Meðal aukaleikara sem bregður
fyrir í myndinni eru Cameron Diaz,
Harry Dean Stanton, Tobey
Maguire, Mark Harmon, Debbie
Reynolds, Lyle Lovett, Gary Busey,
Christina Ricci, Michael Jeter og
Ellen Barkin. Svo er hún full af tón-
list tímabilsins.