Morgunblaðið - 19.02.1999, Page 60
hJÉF
KOSTABÓK
með vaxta þrepum
@ BliNAIMRBANKlNN
fRtvgtmftlflifeife
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1, 103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 569 1181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Viðbúnaður á Yestfjörðum vegna hættu á snjóflóðum
Hús rýmd í Bolungarvík,
Súðavík og á Ísafírði
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
SVANA Þórðardóttir og Magni Guðmundsson fyrir utan hús sitt í Seljalandi, sem þau þurftu að rýma seint í
gærkvöld. Magni rekur Netagerð Vestfjarða, sem einnig þurfti að rýma vegna snjóflóðahættu.
NOKKUR hús voru rýmd seint í
gærkvöld á Ísafírði, í Súðavík og
Bolungarvík vegna hættu á snjó-
flóðum. Tilmælin um rýmingu voru
gefín út eftir samráð Veðurstofu ís-
lands við sýslumanninn á ísafírði og
sýslumanninn í Bolungarvík. Magni
Guðmundsson, sem þurfti að yfir-
gefa hús sitt í Seljalandi á ísafirði
ásamt eiginkonu sinni, Svönu Þórð-
ardóttur, kvaðst ókvíðinn og taldi
fullmikla taugaveiklun ráða ferð-
inni.
Veðurstofan spáði klukkan hálf-
ellefu í gærkvöldi ofsaveðri á Norð-
urlandi eystra, Austurlandi að
Glettingi og Austfjörðum. Gert var
ráð fyrir að víða myndi bresta á
stormur og jafnvel rok í nótt og
vænta mætti ofanhríðar og
skafrennings á norðanverðum Vest-
fjörðum, Norðurlandi og Norðaust-
urlandi. Samkvæmt upplýsingum
Veðurstofu var lægð, sem spáð var
*■ að myndi ná 945 millibörum, við
landið. Lægðin er mjög kröpp
vegna mikils kulda vestan við hana,
djúpt norður af landinu, og þrýsti-
línur þéttar. Búist er við að þegar
hún nær fullrí dýpt fyrir hádegi í
dag verði hún mjög hægfara norður
af Melrakkasléttu.
Um lágmarksrýmingu að ræða
Vegna óveðursspárinnar var
haldinn samráðsfundur á Veður-
stofu Islands á hádegi í gær. I fram-
haldi af því var ákveðið að hafa vakt
allan sólarhringinn. Klukkan átta í
gærkvöld tilkynntu síðan Veður-
stofan og sýslumaður á Isafírði
rýmingu húsa undir Seljalandshlíð á
-4»- Isafirði og Súðavíkurhlíð í gömlu
Súðavík. Að sögn lögreglunnar á
Isafírði var haft samband við við-
komandi íbúa um kvöldmatarleytið
og þeir beðnir að rýma hús sín sem
fyrst og í síðasta lagi kl. 23:00.
Um er að ræða „lágmarksrým-
ingu“ en aðeins er búið í tveimur
húsanna sem rýma átti; í Seljalandi
og Engi. Auk þess skyldi rýma tvö
fyrirtæki: Netagerð Vestfjarða og
Steiniðjuna. Um ellefu-leytið var
bætt við rýmingu á reit, sem nær
yfir Hesthúsahverfið á Búðatúni í
Hnífsdal.
Hafði ekki miklar áhyggjur
af snjóflóði
Hús þeirra Magna Guðmunds-
sonar og Svönu Þórðardóttur er
undii' Seljalandsmúlanum og því
þótti ráðlegast að þau flyttu sig um
set á meðan hættan liði hjá.
Magni sagði í samtali við Morg-
unblaðið rétt fyrir miðnætti í gær
að nóttin legðist bara vel í sig enda
væri veður gott, engin snjókoma,
lítill vindur og skyggni þannig að
sæist um allan fjörð. Hann sagðist
ekki hafa miklar áhyggjur af því að
flóð félli, að minnsta kosti ekki mið-
að við snjóinn í hlíðinni í gær.
Magni og Svana hafa búið í Selja-
landi frá 1991 og hafa nokkrum
sinnum þurft að yfirgefa heimili sitt
áður vegna snjóflóðahættu en til
allrar hamingju hefur aldrei fallið
flóð að húsinu í þeirra tlð.
Rýming húsa í Bolungarvík var
tilkynnt rétt fyrir klukkan ellefu í
gærkvöld. Um er að ræða rýmingu
á húsum á tveimur svæðum, sam-
tals átta íbúðarhúsum. Einnig er öll
umferð um hesthúsin í Bolungarvík
bönnuð án samráðs við lögreglu. Að
sögn lögi’eglunnar í Bolungarvík
voru íbúar heldur tregir til að yfii'-
gefa híbýli sín í gærkvöld.
Þingflokkur
Samfylking-
arinnar
stofnaður
NYR sautján manna þingflokkur
Samfylkingarinnar var formlega
stofnaður í gær. Rannveig Guð-
mundsdóttir var kjörin formaður
hans, Ragnar Arnalds varaformaðm'
og Guðný Guðbjörnsdóttir ritari.
Þingflokkar Alþýðubandalags,
jafnaðarmanna og Samtaka um
kvennalista héldu síðustu fundi sína í
þingflokksherbergjum í Alþingishús-
inu í gær. Að þeim loknum fóru þing-
mennirnh' allir til fundarherbergis
Alþingis í Þórshamri og kusu sér
stjórn.
Allir þingmenn Þingflokks jafnað-
armanna og Alþýðubandalags gengu
til liðs við hinn nýja þingflokk. I
þingflokki Kvennalista voru aðeins
eftir tvær konur, þær Guðný Guð-
björnsdóttir og Kristín Halldórsdótt-
ir, en samkvæmt reglum Alþingis
þarf að minnsta kosti tvo þingmenn
til að mynda þingflokk og því var
hann sjálfkrafa lagðm- niður. Kristín
segist ekki hafa ákveðið hvort hún
finni sér nýjan samastað á Alþingi og
segist ekkert vera að flýta sér að því.
■ Einhver/4
----------------
Noregur og vetni
ísland fái
ekki forystu
FRUMKVÆÐI íslands í vetnismál-
um ætti að ýta alvarlega við Noregi,
og verkefni Norsk Hydro með
DaimlerChrysler og Shell um að
vetni komi í stað mengandi orku-
gjafa í bílum og bátum vekur eftir-
tekt í Noregi, segja talsmenn um-
hverfissamtakanna Bellona, og
bæta við að Island megi ekki ná for-
ystu í þessu efni.
Enginn vafi er á að vetni verður
mikilvægasti orkugjafi næstu aldai’
en í olíulandinu Noregi er lítill
áhugi á því, jafnvel þótt möguleik-
arnir séu margvíslegir, segir
Frederic Hauge, talsmaður Bellona.
„Ef við gætum okkar ekki verður
það ísland en ekki Noregur sem
verður stærsti orkusalinn í Evr-
ópu,“ segir Hauge í samtali við
norska blaðið Aftenposten.
Ferja milli
Þorláks-
hafnar og
Aberdeen?
VERIÐ er að kanna hvort
raunhæft er að efna til ferju-
siglinga milli Þorlákshafnai' og
Aberdeen í Skotlandi. Þetta
kom fram þegar Alfreð Þor-
steinsson, borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans, kynnti
viljayíirlýsingu borgarinnar og
Ölfushrepps um samstarf á
borgai'stjórnarfundi í gær.
Alfreð Þorsteinsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að
könnunin væri á frumstigi. Fyr-
h' hendi væru nauðsynleg hafn-
armannvirki í Þorlákshöfn og
hefur skoskt fyrirtæki sem rek-
ur bíl- og farþegaferjur tekið að
sér að kanna málið. Alfreð segir
aðeins taka tvo daga að sigla
milli staðanna. Hefja mætti sigl-
ingai' árið 2000.
Fasteignasalar skora á ráðherra að grípa til aðgerða vegna tafa hjá íbúðalánasjóði
Tap blasir við
viðskiptavinum
STJÓRN Félags fasteignasala hef-
ur sent Páli Péturssyni félagsmála-
ráðherra skeyti þar sem segir að
ófremdarástand ríki á fasteigna-
markaðnum og krefst stjórnin þess
að ráðherra grípi tafarlaust til að-
gerða vegna langvarandi tafa á af-
greiðslu umsókna hjá íbúðalána-
sjóði.
Dæmi um að ekki sé mögulegt
að halda kaupsamning
„Stjórn Félags fasteignasala
krefst þess að nú þegar verði grip-
ið til viðeigandi aðgerða til að
forða þeim aðilum sem hagsmuna
hafa að gæta frá óþægindum og
yfirvofandi fjárhagslegu tjóni.
Stjórn Félags fasteignasala átelur
harðlega að yfirlýsingar tals-
manna íbúðalánasjóðs um hnökra-
lausa afgreiðslu umsókna eigi ekki
við rök að styðjast," segir m.a. í
skeytinu sem sent var ráðherra á
miðvikudag. Páll sagði í gærkvöldi
að hann vonaðist til að biðlistinn,
sem myndast hefði hjá sjóðnum,
tæmdist um helgina.
Jón Guðmundsson, formaður Fé-
lags fasteignasala, segir að ef þessu
verði ekki kippt í liðinn sem fyrst
muni ekki líða á löngu þar til fólk í
fasteignaviðskiptum geti orðið fyrir
fjárhagslegu tjóni. Er málum svo
komið samkvæmt upplýsingum
Jóns að dæmi eru um að komið sé
að afhendingu fasteigna þar sem
ekki er mögulegt að halda kaup-
samning vegna langvarandi tafa.
„Þetta er því farið að hafa áhrif á
eðlileg lögskil eigna,“ segir hann.
„Við höfum verulegar áhyggjur
af því ófremdarástandi sem ríkir á
markaðnum í dag. Það gengur
mjög illa að afgreiða umsóknir við-
skiptavina okkar sem standa í fast-
eignaviðskiptum og við erum mjög
uggandi vegna hagsmuna þessa
fólks, óþæginda sem það hefur orð-
ið fyrir og yfirvofandi fjárhagslegs
tjóns sem getur hlotist af þessu,"
segir Jón.
Biðlistinn kláraður
um helgina
Páll Pétursson segist vonast til
að biðlisti sá sem myndast hefur
eftir þjónustu Ibúðalánasjóðs
klárist um helgina. „Hann er orð-
inn til vegna þess að tæknibúnaður
hefur bilað alltof oft. Það er unnið
að því að kippa því í lag.“
Páll segist ekki telja að yfiiTnenn
Ibúðalánasjóðs hafi gefið rangai'
upplýsingar um afgreiðslu mála frá
sjóðnum. „Eg held að menn hafi
sagt frá ástandinu eins og það var
hveiju sinni og greint rétt frá því.“
Páll segir að ef erfiðleikarnir
haldi áfram komi til greina að
skipta um móðurtölvu Ibúðalána-
sjóðs, sem er orðin tíu ára gömul
og var á sínum tíma fengin frá
Húsnæðisstofnun, en það sé mikil
fjárfesting.
Páll segir að starfsmenn Ibúða-
lánasjóðs hafi staðið sig mjög vel í
erfiðleikunum og lagt fram mikla
vinnu. Hann segist ekki sjá að
hægt sé að draga neinn til ábyrgð-
ar vegna málsins. „Eg sé ekki
hvernig hægt er að fara að lumbra
á tölvunni, þannig að ég held að
það komi ekki til.“
■ Ofremdarástand/6