Morgunblaðið - 19.06.1999, Page 12

Morgunblaðið - 19.06.1999, Page 12
r 12 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Styrkjum úthlutað í fyrsta sinn úr markáætlun Rannsóknarráðs Islands 44 verkefni styrkt um samtals 117 milljónir króna FYRSTA úthlutun styrkja úr markáætlun Rannsóknarráðs íslands fór fram í gær og hlutu 44 verkefni á sviði upplýsingatækni og umhverfismála styrki sem námu samtals 117 milljónum króna. Úthlutunarathöfnin hófst með ávarpi Bjöms Bjamasonar menntamálaráðherra. Greindi hann frá því að upphaf markáætlunar Rannsóknarráðsins mætti rekja til þess er menntamálaráðuneytið fór þess á leit við ráð- ið í febrúar á síðasta ári að það ynni áætlun um stuðning við rannsóknarverkefni á sviði upplýsingatækni og umhverfismála. Sagði hann þróunina síðan hafa verið öra sem sæist af því að nú þegar væri verið að úthluta styrkjum, m.a. að tilhlutan ríkisstjórnarinnar sem ákvað að leggja 200 milljónir króna til verkefnisins, auk þess sem gert væri ráð fyrir að hún legði til 380 milljónir króna til viðbótar næðist sá árangur sem að væri stefnt. Að loknu ávarpi Bjöms kynnti Vilhjálmur Lúðvíksson markáætlunina. Kom m.a. fram í máli hans að markáætlunin væri sérstök að því leyti að þar væri fyrirfram ákveðið til hvaða sviða styrkimir rynnu, þ.e. upplýsinga- tækni og umhverfismála. Var gengið út frá því að um 60% ráðstöfunarfjár markáætlun- arinnar rynni til verkefna í upplýsingatækni, en 40% til verkefna í umhverfismálum. Sagði Vilhjálmur þá áætlun hafa endurspeglað vel raunvemlegt hlutfall umsókna sem bámst. Sagði hann jafnframt að mun fleiri umsóknir hefðu borist en ráð var fyrir gert og því hefði orðið að hafna mörgum frambærilegum verk- efnum. Sem fyrr segir hlutu alls 44 verkefni styrk. Auk skiptingarinnar í upplýsingatækni og umhverfismál vom verkefnin flokkuð frekar eftir viðfangsefni. A sviði upplýsingatækni vora níu undirflokkar: Upplýsingatæknileg aðlögun að menntun, menningu og tungu, Upplýsingatækni innan stjómsýslu og stofn- ana, Notkun og þróun upplýsingatækni innan fyrirtækja í framleiðslu og þjónustu, Öflugri upplýsingatæknifyrirtæki, Fjarvinna í þágu byggðastefnu, Fjarkönnun í þágu umhverfis- mála, Upplýsingatækni í þágu bætts mannlífs á Islandi, Upplýsingatækni í þágu íslensks menningararfs og Tölfræði upplýsingatækni. A sviði umhverfismála vom hins vegar fimm undirflokkar: Sjálfbær nýting auðlinda - sjálf- bært efnahagslíf, Hnattrænar umhverfis- breytingar og náttúmsveiflur, Umhverfis- vænt atvinnulíf, Umhverfi, hollusta og heilsa og Erfðaauðlindir Islands. Fimm verkefni kynnt Stjómendur fimm þeirra verkefna sem hlutu styrki kynntu viðfangsefni sín við út- hlutunina. Brynjar Stefánsson greindi frá verkefni sem nefnist „Forvinna og gerð al- þjóðlegra verklagsreglna og/eða staðals vegna langtímavistunar", en að því standa Hugvit hf. og Þjóðskjalasafn íslands. Felst verkefnið í upplýsingaöflun, hönnunarvinnu og útgáfu á nýjum verklagsreglum og hugs- anlega staðli fyrir langtímavistun rafrænna skjala. Verður þetta unnið í samvinnu við þjóðskjalasöfn í öðmm löndum og er gert ráð fyrir að staðallinn verði fyrirmynd að öðram Morgunblaðið/Arnaldur Frá úthlutun styrkja úr markáætlun Rannsóknarráðs Islands. Sigrún Finsen kynnir verkefni sitt um fjarkennslu á framhaldsskólastigi fyrir unglinga í þjóðskjalasöfnum. Sagði Brynjar verkefnið, sem styrkt var um 4 milljónir króna, mikil- vægan lið í varðveislu ýmiss konar rafrænna skjala, auk þess sem það gerði mögulegt að gera þau jafn rétthá pappírsskjölum. Sigríður Finsen kynnti verkefni sem Eyr- arsveit, Grundarfirði, stendur fyrir. Nefnist það „Fjarkennsla á framhaldsskólastigi fyrir unglinga í Gmndarfirði" og miðar að því að nýta möguleika á nútíma upplýsingatækni til að gera nemendum í Grandarfirði kleift að stunda framhaldsskólanám í sinni heima- byggð. Verður þar stuðst við þá aðstöðu til fjarnáms sem til staðar er við Verkmennta- skólann á Akureyri. Sagði Sigríður verkefnið hafa mikið gildi fyrir nemendur, foreldra og raunar allt samfélagið í Grandarfirði, auk þess sem með því fengist reynsla sem nýst gæti öðrum sveitarfélögum. Hlaut verkefnið 4 milljóna ki’óna styrk. Tónlistargagnagrunnur styrktur Tónskáldafélag íslands, ErkiTónlist sf. og Islensk tónverkamiðstöð gangast fyrir verk- efni sem nefnist „Gagnagrannur fyrir íslenska tónlist á 20. öldinni“. Kjartan Ólafsson kynnti verkefnið, sem var styrkt um 3,5 milljónir króna, og sagði það miða að því að hanna gagnagrannskjama fyrir hljóð, myndir, hreyfi- myndir og texta, sem saman gæfu yfirlit yfir íslenska tónlist og íslensk tónskáld á 20. öld- inni. Sagði hann jafnframt stefnt að því að gera þessar upplýsingar aðgengilegar á Intemetinu og á sviði mai'gmiðlunar. Guðmundur Halldórsson stýrir verkefninu vUppbygging vistkerfa á röskuðum svæðum". I kynningu hans kom fram að markmið verk- efnisins era að ákvarða áhrif mismunandi upp- græðslu- og skógræktaraðgerða á framvindu á röskuðum svæðum og að meta árangur slíkra aðgerða með tilliti til vistfræðilegra þátta og þeirrar „þjónustu" sem vistkerfunum mun ætl- að að veita. Sagði hann verkefnið, sem styrkt var um 11 milljónir króna, hafa mai-gþætt gildi, m.a. þar sem það yki þekkingu á vistkerfum raskaðra svæða og mæti virkni mismunandi lausna við að ná settum markmiðum í upp- græðslu og skógrækt. Síðasta verkefnið sem kynnt var sérstaklega nefnist „Campylobacteriosis - faraldsfræði og íhlutandi aðgerðir“. Ásmundur E. Þorkelsson stýrir verkefninu og sagði það miða að því að skýra ástæður þeirrar aukningar campylobact- er-sýkinga sem átt hefur sér stað hér á landi á síðustu áram, en þær munu nú vera algeng- ustu iðrasýkingar af völdum baktería hérlend- is. Auk þess væri stefnt að því að finna leiðir til úrbóta. Var þetta verkefni styrkt um 15 millj- ónir króna. Önnur verkefni sem styrkt vora miða m.a. annars að Jjví að þróa samræmdan gagna- grann um ísland, koma upp gagnagranni um íslenskt talmál, hanna stýrihugbúnað fyrir djúpfar, þróa endurvinnanlegar umbúðir fyrir ftyst matvæli og kanna þolmörk ferðamanna- staða á íslandi. Andlát KRISTJÁN SIGURÐS- SON KRISTJÁN Sigurðsson verkstjóri i lést á sjúkrahúsinu á Siglufirði hinn 16. júní sl., 96 ára að aldri. Kristján fæddist á Siglufirði 4. nóvember árið 1902. Foreldrar hans voru Andrea Sæbý og Sigurður Jónsson. Kristján nam trésmíði hjá Karli Sturlaugssyni og stundaði tré- smíði eftir að námi lauk ásamt mörgum fleiri verkefnum. Nokkur ár vann Kristján við bátasmíð á eig- in vegum, en árið 1932 réðst hann til Samvinnufélags ísfírðinga, sem verkstjóri, og vann þar allt þar til félagið hætti störfum. Kristján var stofnandi Verka- mannafélagsins Þróttar 17. maí 1934, gegndi þar fyrst störfum sem vararitari en var formaður félagsins á árunum 1935 og 1936. Snemma gekk Kristján í Alþýðuflokkinn og var trúr þeirri hugsjón sem flokkur- inn barðist fyrir frá upphafi. Hann var kjörinn í bæjarstjórn Siglu- fjarðar árið 1946 og sat í bæjar- stjóm í 28 ár. Var hann forseti bæj- arstjómar á áranum 1970 til 1974 og sat samtals 630 bæjarstjómar- fundi auk þess sem hann sinnti öðr- um nefndar og trúnaðarstörfum fyrir bæjarfélagið. Þá sat Kristján í fyrstu stjóm Þormóðs ramma sem var stofnuð í júlí 1970. Kristján kvæntist Ólöfu Gísla- dóttur frá Skarðdal, en hún lést 6. maí 1969. Þeim varð ekki barna auðið en áttu eina fósturdóttur, Guðmundu Óskarsdóttur. N.ÞDRfiRlHSSOH&C0 amrtuTLAND M ÞÉTTIEFNI " Á ÞÖK - VEGGI - GÓLF ÁRMÚLA 29. SÍMI 553 8640 Golf í gránepjunni ÞÓTT tíðin hafi verið rysjótt lætur fólk veðrið Þessi maður hóf kylfuna á loft á ekki aftra sér frá því að sinna áhugamálunum. Hvaleyrarvellinum. Ný bráðamóttaka fyrir börn og unglinga STJÓRNENDUR Landspítalans hafa í samráði við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið ákveðið að setja á fót bráðamóttöku fyrir böm og unglinga sem eiga við geðræn vandamál að stríða. Bráðamóttakan verður rekin í tengslum við deild 32C á Landspítalanum og notuð til þess 2 rúm. Göngudeildarteymi frá Bama- og unglingageðdeild fær aðstöðu á Geðdeild Landspítalans og vinnur við bráðamóttökuna með öðra. I fréttatilkynningu segir að mál- efni Barna- og unglingageðdeildar hafi að undanfömu verið til sér- stakrar skoðunar hjá stjórnendum Landspítalans og það sé forgangs- verkefni á næsta ári að styrkja hana. Bráðamóttaka sé liður í því en ákveðið hafi verið að hraða sérstak- lega opnun hennar. Hugmyndin er að hún verði vísir að bráðamóttöku- deild. Jafnframt er verið að kanna möguleika á að opna hæfingarheim- ili fyrir unglinga með svipaðri fram- haldsmeðferð og börn njóta á Kleif- arvegi. Starfsemi Barna- og unglingageð- deildar fer nú að mestu íram í hús- næði við Dalbraut, þar sem era bamadeild, unglingadeild og göngu- deild, að því er segir í tilkynningunni. Auk þess er meðferðarheimili fyrir böm við Kleifarveg og samstarf við Greiningarstöð ríkisins, Bamavemd- arstofu, fræðsluyfirvöld og fleiri. Staðsetningin utan Landspítalalóðar hefur valdið nokkrum örðugleikum, meðal annars við að veita mikilvæga stoðþjónustu við böm og unglinga á almennri bráðamóttöku á Landspít- alanum. Með því að opna bráðamót- töku Barna- og unglingageðdeildar á Landspítalalóðinni er leitast við að tryggja jafnræði milli bama og ung- linga með geðsjúkdóma og þeirra sem þjást af öðram sjúkdómum, seg- ir enn fremur. SFR fagn- ar 60 ára afmæli STARFSMANNAFÉLAG ríkisstofnana er 60 ára á þessu ári og heldur það upp á afmæl- ið með ýmsum hætti. Aðalhá- tíðahöldin fara þó fram í dag í Fjölskyldugarðinum í Laugar- dal og að sögn Jens Andrés- sonar eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar. Jens segir að margt hafi breyst frá stofnári félagsins. Þá vora félagsmenn 160 en í dag era þeir 4.700, enda er þetta stærsta sérsambandið innan BHMR. „Þetta er nátt- úralega stéttarfélag sem hefur átt í baráttu um aukin kaup og kjör í gegnum tíðina en ein- hvem tímann verðum við að gera okkur glaðan dag líka,“ segir Jens og það ætla þau að gera í Laugardal kl. 11-17 í dag. Jens segir að kór SFR, sem er kvennakór, muni syngja og Rússíbanamir muni einnig flytja tónlist. Þá verður þama götuleikhús á ferðinni og ýmiss konar uppákomur fyrir bömin. „Á góðum degi koma þúsundft manns í garð- inn svo við vonumst eftir góð- um degi í fleiri en einum skiln- ingi,“ sagði Jens. Jens segir að margs konar uppákomur aðrar verði á af- mælisárinu, s.s. sögusýning sem fer um landið og hápunkt- urinn er síðan útgáfa á sögu félagsins, sem er fyrirhuguð á næsta ári. Hann vill einnig benda á að nýbúið sé að opna vefsíðu félagsins og er slóðin www.sfr.bsrb.is og þar getur fólk t.d. fræðst um sögu fé- lagsins og starfsumhverfi þess. Önnur mál sem séu í brennid- epli á árinu segir Jens vera endurmenntun og símenntun félagsmanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.