Morgunblaðið - 19.06.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 23
KAGNÝTING BOTNFISKAFLANS 1994-98
Hlutföll aflans í landvinnslu og sjó-
frystingu, bolfiskur og flatfiskur
%
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
iSjofryaing^_____^
-i-------1------1------1-------1—
1994 1995 1996 1997 1998
%
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
Landvinnsla
44;7%
Sjófrysting -
39.9%
-4-
-4-
-4-
-4-
-I-
1994 1995 1996 1997 1998
% 1 nn. ... RFYK.IANF^
90
r Landvinnsla
60
61,2%
AC\ ...
30 Sjófrysting -24,1%
20 —fiSss m I
” 1994 1995 1996 1997 1998
-l-----1--------1------1------1—
1994 1995 1996 1997 1998
%
100-
90-
80
70-
60
50-
40-
30-
20-
10-
0
VESTFJRÐIR
Landvinnsla
l/-.75,0%
Sjófrysting-
-23,5%
-4--------------1--------------1-
-4-
1994 1995 1996 1997 1998
1994 1995 1996 1997 1998
ioo NORÐURL EYSTRA % AUSTURLAND
90 90
80 -
70 70 _ i
_ Landvinnsla-v nn \ noz Landvinnsla
50
40
30 Sjófrysting-' 30 Sjófrysting —,
20 10 10
"1994 1995 1996 1997 1998 " 1994 1995 1996 1997 1998
SJOFRYSTING 1986-97
150-------------—---—-----
þús. tonn
125
100
75
50 n
Annar bol- og flatfiskur
Þorskur
SIGLINGAR FISKISKIPA
1986-97
E3 C3._
86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '86 '87 '88 '89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97
Tilboð á Futura vrtamínum
Beta Caroten • Ginkgo biloba • Q-10 30 mg
20% afsláttur
Nú á tilboði í Nýkaupi og í apótekum
Ráðstöfun aflans og fískvinnsla undanfarin 5 ár
Hlutur sjófrystingar
lægstur á Vestfjörðum
HLUTUR sjófrystingar hefur í ráð-
stöfun fiskaflans hefur aukist lítillega
í flestum kjördæmum landsins á und-
anfömum fjómm árum. Hlutur sjó-
vinnslu gagnvart landvinnslu var
hlutfallslega minnstur á Vestfjörðum
eða um 23,5% af heildarafla kjör-
dæmisins á síðasta ári, samkvæmt
tölum sem fengnar eru í Útvegi.
Hlutur sjóvinnslunnar var hinsvegar
mestur á Norðurlandi vestra í fyrra
eða um 83,6% af heildaraflanum.
Sjófrysting á fiski hófst árið 1982 og
hefur aukist jafnt og þétt undanfarin
ár, að því er fram kemur í skýrslu dr.
Birgis Þórs Runólfssonar, dósents,
um þróun, stöðu og horfur í sjávarút-
vegi Islendinga sem unnin var fyrir
sjávarútvegsráðuneytið í tilefni af ári
hafsins á síðasta ári. I skýrslunni er
sérstaklega fjallað um ráðstöfun fisk-
aflans og fer umfjöllunin hér á eftir.
Almennt má segja að afla íslend-
inga hafi verið ráðstafað á fjóra vegu:
Landað til vinnslu innanlands, landað
á markað erlendis, sett í gáma, og
unnið á sjó. Siglingar togara með afla
á markaði erlendis hafa tíðkast frá
því snemma á öldinni. Snemma á ní-
unda áratugnum var einnig farið að
flytja óunninn fisk út í gámum með
flutningaskipum. Árið 1982 hófst síð-
an sjófrysting á fiski.
Vinnsla á fiski úti á sjó var í sjálfu
sér ekki nýjung á níunda áratugnum,
fyrr á öldinni hafði oft verið saltað
um borð. Nýjungin árið 1982 var
fólgin í að vinna fiskinn og frysta
hann um borð í skipunum. Sérútbúin
vinnsluskip komu til sögunnar og
hefur sjófrysting aukist jafnt og þétt
allar götur síðan. A ái-unum 1989 til
1994 var sjósöltun, fullfrágengið,
einnig stunduð nokkuð og náði há-
marki árið 1991 í rúmum 5 þús. tonn-
um.
Siglingar með ísfisk voru nokkuð
stöðugar fram á síðasta áratug og
náðu hámarki árin 1988 og 1989, þá
var siglt með 46 þús. tonn af botnfiski
á erlendar hafnir. Síðan 1989 hafa
siglingar minnkað mikið. Árið 1997
var einungis siglt með 2.400 tonn af
botnfiski.
Gámaútflutningur á botnfiski var
aðeins 2 þús. tonn árið 1982, en 1986
var hann kominn í rúm 73 þús. tonn
og árið 1990 í rúm 92 þús. tonn. Á
þessu tímabili, þ.e. 1986-1990, voru
flutt út í gámum um og yfir 30 þús.
tonn af þorski á ári. Frá 1991 hefur
útflutningur í gámum hins vegar
minnkað mikið.
Útflutningur á ferskum fiski með
flugi jókst gífurlega á níunda ára-
tugnum og náði hámarki á þeim ára-
tug í 14,2 þús. tonnum, þ.a. helming-
ur þorskur, árið 1989. Árið eftir
minnkaði þessi útflutningur hins veg-
ar í 6.700 tonn.
Frá árinu 1991 hefur útflutningur
á ferskum fiski með flugi aukist aftur
og komist í 24,3 þús. tonn árið 1997.
Af útflutningi ársins 1997 voru tæp 8
þús. tonn þorskur og rúm 7 þús. tonn
ýsa.
Heildarútflutningur á ísuðum
botnfiski og flatfiski jókst mikið á ní-
unda áratugnum. Útflutningurinn
náði hámarki árin 1989 og 1990, en
þá var hann um 150 þús. tonn. Af því
var útflutningur á ísuðum þorski á
milli 50 og 60 þús. tonn á árunum
1986 til 1990. Inni í þessum heildar-
tölum er áður óupptalinn útflutning-
ur á flöttum ísuðum fiski, en sá út-
flutningur náði hámarki á árinu 1990
í rúmum 12 þús. tonnum.
Innlendir fískmarkaðir
Fyrstu íslensku fiskmarkaðimir
tóku til starfa árið 1987. Það ár voru
stofnaðir Fiskmarkaðurinn hf. í
Hafnarfirði, Faxamarkaðurinn hf. í
Reykjavík og Fiskmarkaður Suður-
nesja hf. Síðan hafa bæst við fjöl-
margir markaðir, alls á þriðja tuginn,
og sumir horfið aftur. Fiskmarkað-
imir skiptast í tvo hópa, annars veg-
ar þá sem reknir eru innan vébanda
Reiknistofu fiskmarkaða hf. og hins
vegar þá sem reknir em innan vé-
banda Islandsmarkaðar hf.
Frá því starfsemi innlendra fisk-
markaða hófst hefur salan aukist
mikið og komist í um 120 þús. tonn
árið 1996. Um innlendu fiskmarkað-
ina fara allar tegundir fiska, í mis-
miklum mæli þó.
Fiskvinnslan
Fiskistofa gefur út vinnsluleyfi til
vinnslustöðva og vinnsluskipa, og
áminnir vinnsluleyfishafa eða sviptir
þá vinnsluleyfi gerist þeir brotlegir
við lög og reglur. I desember 1998
vom 779 vinnsluleyfi í gildi vegna
landvinnslu. Þá höfðu verið gefin út
96 ný vinnsluleyfi á árinu og 184
höfðu verið felld úr gildi. Athygh skal
vakin á því að ein vinnslustöð getur
haft mörg vinnsluleyfi, ef starfsemin
er fjölbreytt, t.d. eitt leyfi til fryst-
ingar, annað fyrir saltfisk, þriðja fyr-
ir ferskar afurðir, o.s.frv. Samtölum-
ar segja því ekki til um fjölda fisk-
vinnslustöðva á landinu.
Vinnsluskip með leyfi til vinnslu
um borð vom 90 í árslok 1998, þar af
höfðu 49 skip fullvinnsluleyfi. Fiski-
stofa hefur einnig eftirlit með
vinnsluskipunum, þ.e. meðhöndlun
afla, vinnslunýtingu, vigtun, o.fl.
Gæðastjómunarsvið Fiskistofu sér
að hluta um eftirlit með framleiðslu
vinnsluleyfishafa, sbr. lög um með-
ferð sjávarafurða og eftirlit með
framleiðslu þeirra. Starfsemi sviðsins
beinist einkum að því að tryggja
neytendum að íslenskar afurðir séu
heilnæmar, standist lágmarkskröfur
um gæði og að afurðimar séu fram-
leiddar við fullnægjandi hreinlætis-
aðstæður.
Gæðastjórnunarsvið Fiskistofu
veitir einnig einkareknum skoðunar-
stofum starfsleyfi til að annast reglu-
legt eftirlit með hreinlæti, aðstöðu,
búnaði og innra eftirliti vinnsluleyfis-
hafa, enda uppfyllli þær framsettar
kröfur m.a. um faggildingu. Frá 1.
janúar 1999 sér Fiskistofa einnig um
rekstur landamærastöðva, en ytri
landamæri EES að því er varðar
heilbrigðiseftirlit við inn- og útflutn-
ing á sjávarafurðum fluttust til Is-
lands um áramótin.
Árið 1997 var botn- og flatfiskafli
af íslandsmiðum 464 þús. tonn. Mest
fer í landfrystingu, en hlutdeild
hennar hefur þó minnkað mjög mikið
frá 1987. Sjóvinnsla hefur hins vegar
aukist stórlega, en saltfiskverkun
heldur sinni hlutdeild. Þá má einnig
sjá að útflutningur á ferskum fiski
með gámum hefur minnkað verulega.
Ef verkun þorsks er skoðuð ein-
göngu, þá fóru 48% af þorskaflanum
árið 1997 í söltun og 25% í landfryst-
ingu.
Árið 1997 var heildarafli Islend-
inga á öllum miðum um 2,2 milljónir
tonna. Þar af fóru 66% í bræðslu,
15% í landfrystingu, 9% voru sjóunn-
in og rúm 6% fóru í söltun. Ef verkun
uppsjávarafla er skoðuð eingöngu, þá
fóru 90% í bræðslu, 8% í landfryst-
ingu og aðeins 1% í söltun. Af skel-
og krabbaafla fóru 57% í landfryst-
ingu og 42% í sjófrystingu.
Evrópska efnahagssvæðið er mik-
ilvægasta markaðssvæðið fyrir ís-
lenskar sjávarafurðir. Árið 1997 fóru
þangað 68% af útflutningsframleiðslu
miðað við verðmæti, en árið 1980 var
hlutfallið 46%.
Loðnuveiðar
að hefjast
SUMARLOÐNUVEIÐAR
mega hefjast 20. júní nk. og er
leyfilegur hámarksafli íslenskra
loðnuskipa á loðnuvertíðinni
1999-2000 575.850 tonn. Sam-
kvæmt reglugerð um loðnuveið-
ar íslenskra skipa á vertíðinni
eru þeim heimilar veiðar í fisk-
veiðilandhelgi íslands, Græn-
lands og Jan Mayen með þeirri
takmörkun að allar loðnuveiðar
eru bannaðar tímabilið 16.
ágúst til 15. september 1999. ís-
lensk skip mega ennfremur að-
eins veiða 35% af leyfilegum
heildarafla skipanna í lögsögu
Jan Mayen og er aðeins heimilt
að stunda loðnuveiðar norðan
64°30’N í lögsögu Grænlands.
—
Tilboð til sunnudags*_
Islensk-þrenna
Birki
Embla
íslenskt kynbætt stakstætt tré. Mjög
harðgerð og góð sem limgerðlsplanta.
Hentug tll ræktunar á flestum landsvæðum.
Afgrelðslutími:
Virka daga kl. 9.00 - 21.00
Um helgar kl. 9.00 -18.00
Loðvíðir
Salbt lanata .Katlagil"
Jarðlægur islenskur runnl
gráloðln blöð.
Karlplöntur. Harðgerður.
Þrénna
Islenskur einir
Juniperus communls
Lágvaxinn, sfgrænn jarðlægur
nrnnl, harðgerð (slensk planta.
Helldarvcro áour 2.160,-
Nu 1.290
Póntunarþjónusta
fyrír landsbyggðina
4Í.
51 STJÖRNUGRÓF18, SÍMI581 4288, FAX 581
Tllboðið gildir tll sunnudags
eða á meðan birgðir endast