Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
UR VERINU
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Formaður landbúnaðarnefndar brezka þingsins
Höfum lært mikið
af Islendingum
Morgunblaðið/Sverrir
PETER Luff segist mikið hafa lært um
fiskveiðistjómun af Islendingum.
„VIÐ höfum hitt marga í
heimsókn okkar til Islands.
Við komum til Islands með þá
von í huga að fræðast mikið
um fiskveiðistjómun. Þar höf-
um við ekki orðið fyrir von-
brigðum. Reynsla íslendinga
af fiskveiðistjómun verður
okkur mjög mikilvæg á leið
okkar til endanlegrar niður-
stöðu. Við erum ykkur afar
þakklát," segir Peter Luff,
formaður landbúnaðamefnd-
ar neðri deildar brezka þings-
ins, í samtali við Morgunblað-
ið.
Landbúnaðamefndin kom
hingað til lands í þessari viku
til að kynna sér fiskveiði-
stjómun hér á landi, einkum þann
þátt hennar sem felst í frjálsu fram-
sali aflaheimilda. Nefndin er að vinna
að endurskoðun á skipan sjávarút-
vegsmála á Bretlandseyjum með að-
aláherzlu á fiskveiðistjómun. Henni
er síðan ætlað að koma með tillögur
um framtíðarskipan þessara mála í
heimalandi sínu.
Sjávarútvegurinn
mikilvægastur í Skotlandi
„Landbúnaðamefndin fjallar ekki
eingöngu um sjávarútveg, heldur allt
sem viðkemur landbúnaði og allan
matvælaiðnaðinn á Bretlandi líka,“
segir Peter Luff. „Sjávarútvegurinn
er mjög mikilvægur á ákveðnum
svæðum, sérstaklega á Norðaustur-
Skotlandi, á Hjaltlandi, Comwall og
víðar. Sjávútvegurinn er hins vegar
ekki nálægt því eins mikilvægur fyrir
brezkt efnahagslíf og hann er á ís-
landi. Allt að 60% af fiskveiðum
Breta em stundaðar frá Skotlandi.
Afkoman í útveginum er mjög mis-
munandi. A vissum stöðum segja
menn að allt sé á niðurleið og slæm
ríkisstjóm vinni að því að eyðileggja
allt með reglugerðafargani og of-
stjórn og það sé að kenna yfirstjóm
Evrópusambandsins í Bmssel og
sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB.
Aðrir munu segja að staðan gæti
vissulega verið betri og margt mætti
vera á annan veg. Þar gætu þeir
nefnt nýja reglugerð um frárennslis-
vatn, sem hefur í för með sér vem-
legan kostnaðarauka fyrir fiskvinnsl-
una. Á hinn bóginn myndu þeir
einnig segja að gangi veiðamar vel
og framboðið sé í samræmi við þarfir
neytenda, sé allt í góðu lagi. Eg tel
því að sjávarútvegurinn í Bretlandi
sem heild sé arðbær.
Á hinn bóginn tel ég að nýjunga sé
þörf, eins og í landbúnaðinum. Gömlu
aðferðimar duga sennilega ekki í
framtíðinni. Framtíð einyrkjans, sem
rær til fiskjar og selur afla sinn á
markaði, er afar óviss. Til að ná ár-
angri þarf að standa að málum á nú-
tímalegri hátt með afkomu og hagnað
að leiðarljósi. Sé það gert, ætti ár-
angurinn að verða góður.“
Vel hefur tekizt tU á íslandi
Hvert er mat þitt á fiskveiðistjórn-
un við Bretland nú?
„Það er verkefni okkar að kynna
okkur fiskveiðistjómun við Bretland
og í öðmm löndum. Ég get í raun
ekki svarað þessari spumingu, því þá
væri ég að hafa áhrif á væntanlega
niðurstöðu nefndarinnar.
Nefndin hefur verið að kynna sér
sjávarútveginn frá síðasta hausti. Við
höfum heimsótt fjölmarga útgerðar-
staði á Bretlandseyjum, farið til
Spánar og nú til íslands. Einn þáttur
þessarar vinnu er að meta hvemig
fiskveiðunum sé stjómað. Við mun-
um í fyllingu tímans leggja fram mat
okkar á því og hvort einhverju þurfi
að breyta.
Brezkir fiskimenn em greinilega
mun ósáttari við þær skorður sem
þeim em settar með lögum og reglu-
gerðum en íslenzkir sjómenn. Ein af
ástæðum þess að við komum til Is-
Landbúnaðarnefnd
brezka þingsins kom
hingað til lands í
vikunni til að kynna
sér fiskveiðistjórnun
hérlendis. Hjörtur
Gíslason ræddi við
formann nefndarinnar,
Peter Luff.
lands er að læra af reynslu ykkar við
fiskveiðistjórnun, því mjög margir
segja að á íslandi hafi mjög vel til
tekizt. Tilfinning okkar eftir þessa
heimsókn er sú, að fiskveiðum við Is-
land sé mjög vel stjómað af stjóm-
völdum í góðri samvinnu við vísinda-
menn. Það er mjög gott og ætti að
vera hvatning fyrir okkur Breta til að
fara ofan í saumana á okkar málum.“
Telur þú að fiskveiðistjómkerfi
okkar Islendinga henti Bretum?
„Það er einmitt það, sem nefndar-
menn hafa verið að ræða sín á milli.
Frjálst framsal á aflaheimildum er
orðin staðreynd á Bretlandi, þrátt
fyrir að engin lagasetning um slík
viðskipti sé til. Framsal á aflaheim-
ildum er þvi á afar veikum lagalegum
grunni og engin opinber stefna í slík-
um málum hefur verið mótuð. Það er
svo nefndarinnar að komast að niður-
stöðu um það hvort hægt sé að yfir-
færa íslenzka kerfið yfír til Bret-
lands.
Við höfum orðið vör við áhyggjur
af því að minni sjávarbyggðir geti
orðið undir í þeirri hagræðingu, sem
felst í framseljanlegum aflaheimild-
um. í Bretlandi eru margar öflugar
sjávarútvegsbyggðir en einnig marg-
ar smáar og veikari eins og á Islandi.
Við höfum heyrt áhyggjur íslenzkra
þingmanna vegna þessa og hvemig
vemda megi smærri byggðimar.
Þá er nýliðun í fiskveiðunum
einnig áhyggjuefni í kvótakerfi eins
og ykkar. Mjög hátt verð á aflaheim-
ildum dregur verulega úr möguleik-
um þeirra, sem vilja komast inn í
veiðamar. Spumingin er hvort það
skipti máli. Markmiðið gæti verið
arðbærar fiskveiðar á stærri skala,
stærri fyrirtæki, þar sem sjómenn-
imir eru ekki eigendur bátanna,
heldur starfsmenn útgerðarinnar. Ég
hef mína skoðun á þessu, en það væri
rangt af mér að viðra þá skoðun nú,
þar sem ekki er víst að mér takizt að
fá nefndina á mitt band.
Það eru mál af þessu tagi, sem við
eram að fara ofan í saumana á. Við
höfum lært mikið af heimsókn okkar
til íslands. Við höfum hitt fulltrúa
samtaka sjómanna, útgerðarmanna,
vísindamenn, þingmenn og fleiri
mikilvæga aðila. Ég er viss um að
flestir í nefndinni era nú jákvæðari í
garð kvótakerfisins en þeir vora áð-
ur.
Hlutverk okkar er að leggja fram
skýrslu um stöðuna og tillögur í
framhaldi þess. Ríkisstjórnin getur
svo gert hvort heldur sem er, hafnað
tillögum okkar eða farið eftir þeim.
Við getum ekki lagt fram framvarp
til laga. Mér þykir líklegt að tillögur
okkar verði um breytta fiskveiði-
stjómun í Bretlandi. Verði niður-
staða nefndarinnar á þá leið að ís-
lenzka leiðin verði farin, mun ég
þrýsta á ríkisstjómina að gera svo.“
Fiskveiðistefna ESB
vissulega umdeild
Er hægt að koma á slíkri fiskveiði-
stjómun samhliða sameiginlegri
sjávarútvegsstefnu Evrópusam-
bandsins?
„Vissulega er það hægt. Fiskveiði-
stjómun byggð á framseljanlegum
aflaheimildum er í fullu samræmi við
stefnu ESB og ég sé ekkert sem
mælir gegn því. Hin sameiginlega
fiskveiðistefna ESB er vissulega um-
deild í Bretlandi og margir telja
hana leiða til þess að fiskurinn okkar
sé í auknum mæli færður til útlend-
inga. Það skiptir hins vegar öllu
máli, að fiskveiðistjómun og sam-
vinna vísindamanna og sjómanna og
leiðir til eftirlits og framkvæmda era
utan þess sviðs, sem hin sameigin-
lega fiskveiðistefna nær yfir. Fyrir
vikið yrði það auðvelt að innleiða
sams konar kerfi og þið búið við á Is-
landi.
Það era reyndar nokkrir fleiri
þættir sem gætu valdið okkur óþæg-
indum. Til dæmis það hvar fiskinum
er landað. Hvort hann fari til hafna
utan Bretlands eða ekki. Annað at-
riði er að fiskveiðar okkar byggjast á
mun fleiri tegundum en við Island.
Þar er auðveldara að einbeita sér að
ákveðnum tegundum en við Bret-
land.
Þá er brottkast afla mjög umdeilt.
Það virðist ómögulegt að meta hve
mikið það er í raun og veru og hér á
íslandi fáum við mjög misvísandi
fullyrðingar um það. Ég tel hins veg-
ar að það sé almennt viðurkennt að
brottkast sé tiltölulega lítið. Það er
vandamál við Bretland, þegar sjó-
menn neyðast til að kasta fiski, sem
þeir hafa ekki kvóta fyrir eða er und-
ir stærðarmörkum. Gætum við fund-
ið leið til að minnka brottkast, yrði
okkur líklega fagnað sem töframönn-
um.
Séu engar hömlur á framsali afla-
heimilda, munu smærri og veikari
sjávarútvegsbyggðirnar vafalítið
fara halloka fyrir þeim stærri. Það,
sem við verðum að vega og meta,
eins og íslenzkir stjórnmálamenn, er
hvort eigi að líta á sjávarútveginn
sem heild, sem eigi að skila arði. Ég
er viss um að það stjómkerfi sem ís-
lendingar búa við með framseljan-
legum aflaheimildum, styrkir efna-
hag þjóðarinnar og sjávaútveginn
sem heild.“
Vissa agnúa þarf að
sníða af kerfinu
„Mér er jafnljóst að þessu fylgja
annmarkar, sérstaklega fyrir
smærri staðina. Mér dettur ekki í
hug að segja íslendingum til í þess-
um efnum, en okkur verður að vera
ljóst, leggjum við til slíkt fyrirkomu-
lag fyrir Bretland, hvort setja eigi
einhverjar framsalsskorður, hvort
binda eigi kvótann ákveðnum byggð-
arlögum eða ákveðnum löndunar-
höfnum. Hvort koma eigi á einhvers
konar álagi við flutning aflaheimilda
til að setja í pott fyrir nýliðun eða
færa til baka til staða, sem hafa orðið
undir. Það er hægt að fara ýmsar
leiðir til að mæta þessum afleiðing-
um. Við eigum eftir að ræða það
hvort þess er þörf og ef svo hverra
þeirra er þörf.
Að þessu athuguðu er tæpast hægt
að yfirfæra kerfið óbreytt á brezka
fiskveiðistjómun. Vissa agnúa yrði að
sníða af því, ef til kemur að það verði
ofan á,“ segir Peter Luff.
Reuters
VAIRA Vike-Freiberga, nýkjörin forseti Lettlands, tekur við blómum
og heillaóskum í höfuðborginni Riga í gær.
Vaira Vike-
Freiberga kjörin
forseti Lettlands
Riga. Morgunblaðið. Reuters.
LETTNESKA þingið kaus á
fimmtudag Vaira Vike-Freiberga í
embætti forseta Lettlands, en hún
bauð sig fram utan flokka. Mun Vi-
ke-Freiberga taka við embættinu 7.
júlí af Guntis Ulmanis, sem gegnt
hefur forsetaembætti síðan Lett-
land fékk sjálfstæði árið 1991.
Vaira Vike-Freiberga er 61 árs
gömul fræðikona sem flúði til
Kanada á Sovéttímanum, en hefur
nú aftur tekið upp búsetu í Lettlandi.
Hún hefur um árabil gegnt prófess-
orsembætti í sálfræði við Montreal-
háskóla og er yfirmaður Lettlands-
stofnunarinnar. Þá er hún meðlimur
í Vísindaakademíum Lettlands og
Kanada og hefur tekið þátt í rann-
sóknarverkefnum á vegum NATO
og veitt kanadískum stjómvöldum
ráðgjöf um ýmis verkefni.
Forsetaembættið fyrst
og fremst virðingarstaða
Á lettneska þinginu sitja 100
þingmenn, og þurftu frambjóðendur
að hljóta að minnsta kosti 51 at-
kvæði til að ná kjöri. Atkvæða-
greiðslan á fimmtudag var tvísýn,
og það var ekki fyrr en í sjöundu
umferð að Vike-Freiberga tryggði
sér meirihluta með 53 atkvæðum. I
kosningabaráttunni höfðu tónskáld-
ið Raimond Pauls og Anatoly Gor-
bunov samgönguráðherra verið
taldir sigurstranglegastir, en Pauls
dró framboð sitt til baka eftir að
þingmenn höfðu greitt atkvæði
fimm sinnum. Hann hafði í öll skipt-
in hlotið flest atkvæði, en Ijóst var
að hann gæti ekki tryggt sér meiri-
hluta.
Forsetaembættið í Lettlandi er
fyrst og fremst virðingarstaða. For-
setinn er að mestu valdalaus, en til-
nefnir þó forsætisráðherra og kemur
fram sem talsmaður landsins á al-
þjóðavettvangi. Vike-Freiberga, sem
er fyrsta konan sem gegnir embætti
þjóðhöfðingja í ríkjum fyrram Sovét-
ríkjanna, sagði eftir að úrslit lágu
fyrir að hún myndi fylgja fordæmi
forvera síns um að vera hlutlaus í
stjómmálum landsins. Lauk hún
lofsorði á Ulmanis fyrir að hafa fest
lýðræði í sessi í Lettlandi.
Mótmæla kapítalisma
ÞÚSUNDIR manna héldu í mót-
mæli í gær í viðskiptahverfi
Lundúna í Englandi til að mót-
mæla kapítalisma. f fyrstu fóru
mótmælin friðsamlega fram en
er Iíða fór á seinni part dags
brutust út átök milli mótmæl-
enda og öryggislögreglu er
fólkið kastaði lauslegum hlutum
að henni og ruddi sér leið inn í
sum af fjármálafyrirtækunum í
hverfinu. Höfðu sumir mótmæl-
endanna vín um hönd og köst-
uðu þeir meðal annars bjórdós-
um og ávöxtum að lögreglu er
hún varnaði framgangi þeirra.
Á mótmælaspjöld sumra hafði
verið ritað „peningar drepa“ og
„við munum endurheimta jörð-
ina.“ Ein kona særðist í átökun-
um, en er hún hoppaði á þaki
lögreglubíls keyrði hann óvænt
á brott með þeim afleiðingum
að hún féll til jarðar. Voru
meiðsl hennar ekki talin alvar-
leg.