Morgunblaðið - 19.06.1999, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 25
SANDRA Witelson.
Heili Einsteins
frábrugðinn
öðrum heilum
AP
MYNDIR er teknar voru af
heila Einsteins 1955.
London. AP.
LENGI hefur leikið grunur
á, að eitthvað hljóti að hafa
gert að verkum að Albert
Einstein var snjallari en
við hin. Nú hafa vísinda-
menn komist að því, að
ákveðinn hluti heila hans
var reyndar líffræðilega
einstakur.
Eina rannsóknin, sem
gerð hefúr verið á bygg-
ingu heila Einsteins, var
framkvæmd af vísinda-
mönnum við McMaster-há-
skóla í Hamiiton í Kanada.
Hefúr hún leitt í Ijós, að sá
hluti heilans, sem talinn er
tengjast stærðfræðilegri
hugsun er 15% breiðari,
beggja vegna, en venjulegt
er.
Einnig ieiddi rannsóknin
í ljós, að raufín sem veiyu-
lega Iiggur á milli fram-
hluta heilans og til aftur-
hlutans, náði ekki alla leið
í Einstein. Þessi uppgötvun gæti
einnig átt við þá, sem eru nær
meðallagi í gáfúm.
„Þessa lögun höfum við ekki
séð á neinum heilum og kemur
ekki fram á myndum af manns-
heilum,“ sagði Sandra Witelson,
taugasérfræðingurinn sem stýrði
rannsókninni. Greint var frá nið-
urstöðunum í breska læknatíma-
ritinu The Lancet nú í vikunni.
„En þetta ber ekki að skilja sem
svo, að örlögin búi í anatómí-
unni,“ bætti Witelson við. „Það er
einnig vitað, að umhverfíð á mik-
ilvægan þátt í námi og þroska
heilans. En þetta segir okkur að
umhverfíð er ekki eini þátturinn."
Witelson segir að niðurstöðum-
ar kunni að benda til mikilvægis
þessa hluta heilans. Þótt munur-
inn kunni að vera mikill á heila
Einsteins og fólks sem ekki telst
til snillinga geti munurinn verið
smávægilegur þegar gerður er
samanburður innbyrðis í þeim
hópi sem kallast venjulegt fólk.
Heili Einsteins var borinn sam-
an við heila úr 35 karlmönnum og
56 konum sem vitað var að höfðu
meðalgreind er þau dóu. Heili
Einsteins var að meðaltali svipað-
ur að þyngd og stærð og heilar
karlmannanna, og sagði Witelson
það staðfesta kenningu margra
vísindamanna, um að meðaltals-
stærð heUa gefi ekki vísbendingar
um gáfur.
Witelson telur að lykilatriðið sé
að raufín er styttri en á venjuleg-
um heila. Vegna þessa kunni fleiri
taugafrumur á því svæði að hafa
tengst og unnið saman með auð-
veldari hætti. Líklegt væri að rauf-
ina hefði alltaf vantað, að hluta, í
heila Einsteins, fremur en að hún
hefði horfíð vegna gáfna hans.
Þessi rauf sé eitt helsta einkenni
heilans, og komi snemma f ljós.
„Það er ekki vitað hvort allir
snjallir eðlis- og stærðfræðingar
hafa þessa sömu heilabyggingu,"
sagði Witelson. „Þetta passar og
hljómar sannfærandi, en frekari
sannanir eru nauðsynlegar."
Næsta skrefið, sagði hún, væri
að rannsaka heila í lifandi stærð-
fræðingum og leita að smávægi-
legum frávikum.
Einstein var 76 ára þegar hann
lést í Princeton í Bandaríkjunum
1955. Meinafræðingurinn sem
krauf hann tók heilann með sér
heim, og hafa áður farið fram
rannsóknir á hlutum úr heilanum
en þetta er umfangsmesta rann-
sókn sem farið hefur fram á hon-
um.
Játvarður Bretaprins gengur að eiga Sophie Rhys-Jones í dag
Athöfninni sjónvarpað
beint víða um heim
JÁTVARÐUR Bretaprins virtist ró-
legur þegar hann kom fram opinber-
lega í Edinborg í Skotlandi á
fímmtudag en í dag gengur Játvarð-
ur að eiga Sophie Rhys-Jones eftir
sex ára tilhugalíf. Hann viðurkenndi
reyndar að eftirvænting væri farin
að láta á sér kræla en virtist að öðru
leyti sallarólegur yfir tilhugsuninni
að ganga í hjónaband, jafnvel þótt
þremur eldri systkinum hans hafí
ekki tekist að fínna hamingjuna í
sinni fyrstu tilraun.
Augu umheimsins beinast að þeim
Játvarði og Sophie Rhys-Jones í dag
þegar þau loksins ganga í það
heilaga og verður athöfninni sjón-
varpað beint, ekki aðeins í Bretlandi
heldur víða um heim, og m.a. á ís-
landi. Þess hefíu- lengi verið beðið að
yngsti sonur Elísabetar Englands-
drottningar og Filippusar drottning-
armanns gengi í hjónaband og er
brúðkaupið í dag tvímælalaust helsti
viðburðurinn í bresku samkvæmislífí
á þessu ári.
Bresku sjónvarpsstöðvamar BBC
og ITV vildu engu spá um hversu
margir myndu fylgjast með útsend-
ingum þeirra frá brúðkaupinu, en í
Bretlandi einu og sér er reiknað með
a.m.k. tuttugu milljón áhorfendum.
Látlaus athöfn
Athöfnin í dag verður látlausari en
brúðkaup þeirra Karls og Díönu,
Andrésar og Söruh Ferguson, og
Önnu og Mark Phillips. Það er haldið
í kapellu heilags Georgs í Windsor-
kastala en ekki í London, eins og
brúðkaup eldri systkina Játvarðar,
og þótt gestimir verði um sex hund-
ruð mun ekki marga þjóðhöfðingja
að fínna þeirra á meðal, eins og þó er
venjan með konungleg brúðkaup.
Listinn yfir hverjum var boðið til
athafnarinnar tekur meira mið af
þeirri staðreynd að Játvarður og
Sophie Rhys-Jones era bæði útivinn-
andi en þau munu vera fyrsta kon-
unglega parið úr Windsor-ættinni
sem er í fullu starfi. Rhys-Jones
starfar í auglýsingum og meðal ann-
arra viðskiptavina hennar, sem
boðnir em til brúðkaupsins, er Sir
Elton John. Andrew Lloyd-Webber
er á gestalistanum en Játvarður hef-
ur sem kunnugt er mikinn áhuga á
leikhúsi og leikhúsmálum, og starf-
aði á sínum tíma hjá Lloyd-Webber.
Meðal þeirra sem ekki era á
gestalistanum era þær Sarah Fergu-
son, sem gift var Andrési bróður
brúðgumans, og Camilla Parker-
Bowles, ástkona Karls - en fjarvera
hennai- er sögð stafa af erfiðu sam-
bandi hennar og Elísabetar Eng-
landsdrottningar..
AP
FJOLDI áhorfenda fylgdist með varðaskiptum við Windsor-kastala,
vestur af London, í gær en mikil eftirvænting var tekin að gera vart
við sig í Bretlandi í gær vegna brúðkaups Játvarðar prins og heit-
meyjar hans Sophie Rhys Jones.
3kvistír
kr 1200
Tilboð laugardag
og sunnuda
Birkikvistur
Bjarkeyjarkvistur
Dreyrarkvistur
Döggiingskvistur
Stórkvistur
Lágkvistur
Rósakvistur
Perlukvistur
Sunnukvistur
Bogkvistur
Víðikvistur
’-t
Plöntusalan Fossvogi
Fossvogsbletti 1 ( Fyrir neðan Sjúkrahús Reykjavíkur) Sími 564 1777