Morgunblaðið - 19.06.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 27
ERLENT
Breytingar gerðar við afgreiðslu á nýjum byssulögum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings
Köln, Washington. Reuters.
Sjónarmið byssueig-
enda urðu óvænt ofan á
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, brást í gær ókvæða við sam-
þykkt fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings í fyrrinótt á breytingartil-
lögu þar sem gert er ráð fyrir að
þeir sem vilja kaupa sér byssur á
svokölluðum skotvopnasýningum
þurfí einungis að bíða sólarhring
eftir afhendingu byssunnar á með-
an farið er ofan í fortíð kaupend-
anna og feril. Kom samþykkt
breytingartillögunnar nokkuð á
óvart og er mjög á skjön við nýja
og strangari byssulöggjöf, sem
samþykkt var í öldungadeild
Bandaríkjaþings í fyrra mánuði.
„I stað þess að loka fyrir hina
lífshættulegu holu í lögunum [sem
leyfír mönnum að kaupa byssur á
sérstökum skotvopnasýningum
eftirlitslaust] samþykkti fulltrúa-
deildin í skjóli nætur að leyfa
glæpamönnum að halda áfram að
kaupa sér byssur á skotvopnasýn-
ingum. Þessi samþykkt mun hins
vegar ekki standast dagsbirtuna,"
sagði Clinton í yfirlýsingu, en
hann var staddur í Köln í Þýska-
landi.
Lagabreytingartillagan, sem
naut stuðnings hinna áhrifamiklu
samtaka skotvopnaeigenda í
Bandaríkjunum (NRA), var naum-
lega samþykkt í fyrrinótt, 218-211,
eftir að fram hafði farið löng og
ströng umræða um byssur og
byssulöggjöf, trúarleg málefni og
ofbeldi í skólum Bandaríkjanna.
Hafði tilfinningahiti einkennt mál-
flutning margra þeirra sem kváðu
sér hljóðs.
Nær mun skemur
Tillagan var lögð fram af John
Dingell, þingmanni demókrata frá
Michigan, sem um árabil hefur tal-
að máli skotvopnaeigenda, en hún
nær mun skemur en löggjöf um
skotvopnasýningar sem samþykkt
var í öldungadeild Bandaríkjaþings
í maí. Hafði Dingell starfað náið
með Tom DeLay, einum helsta
talsmanni repúblikana í fulltrúa-
deildinni, til þess að fá tillöguna
samþykkta.
Þeir sem vilja herða byssulög-
gjöfína í Bandaríkjunum höfðu
vonast til þess að ná loksins sínu
fram í kjölfar ódæðisverkanna í
menntaskólanum í Littleton í
Colorado, 20. apríl síðastliðinn,
þegar tveir ungir byssumenn
myrtu tólf skólasystkin sín og einn
kennara, áður en þeir réðu sjálfum
sér bana.
Löggjöfin, sem samþykkt var í
öldungadeildinm, hafði gert ráð
fyrir að byssukaupendur yrðu að
bíða þrjá daga á meðan ferill þein-a
væri rannsakaður, og átti m.a. að
gefa löggæslumönnum aðgang að
dómsgögnum, reyndist slíkt nauð-
synlegt, auk þess sem í löggjöfinni
var þrengd mjög skilgreiningin á
því hvað teldist vera skotvopnasýn-
ing.
þróuiu.
þessum
löndum? Bis.20
Erlend hlutabréf -
eitthvað fyrir þig?
Vilborg Lofts leiðbeinir
um kaup á erlendum
hlutabréfum. Bis.23
Hvað segja sér-
fræðingamir
um innlendan
hlutabréfa-
markað?
Þrír þeirra sátu fyrir
svörum í panel-
umræðum. Bls, 24
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • 155 Reykjavík • Sími: 560 8900
Myndsendir: 560 8910 • Veffang: www.vib.Ls • Netfang: vib@vib.is
Nýjar stað-
hæfingar
um einkalíf
Haugheys
FYRRVERANDI starfsstúlka á
búgarði Charles Haugheys, fyrrver-
andi forsætisráðherra Irlands,
reynir nú að stöðva útgáfu nýrrar
bókar þar sem því er haldið fram að
Haughey hafi alls ekki hlotið lífs-
hættulega áverka - sem gerðu það
að verkum að Haughey var rúm-
liggjandi er hann átti sem fjármála-
ráðherra að kynna fjárlög írsku
stjórnarinnar vorið 1970 - er hann
féll af hestbaki.
Þvert á móti er því haldið fram í
bókinni, sem ber heitið Sweetie, að
Haughey hafi verið gripinn í bólinu
með ungri stúlku af fóður stúlkunnar
og bróður og að mennimir tveir hafi
ekki beðið boðanna heldur barið for-
sætisráðherrann fyrrverandi til
óbóta. Segir í bóldnni að feðgamir
hafi gripið stóla og barið Haughey ít-
rekað í höfuðið og á efri hluta líkam-
ans. Börðu þeir hann af svo miklu
kappi að Haughey var nær dauða en
lífi, að því er fram kemur í bókinni.
Samkvæmt frétt The Irish
Times segir starfsstúlkan umrædda
að með þessum fullyrðingum sé höf-
undur Sweetie, Kevin O’Connor, að
gefa í skyn að hún hafi logið er hún
bar vitni um að Haughey hefði fallið
af hestbaki 22. apríl 1970 með þeim
afleiðingum að hann slasaðist alvar-
lega. Vill hún því að útgáfa bókar-
innar verði bönnuð.
Haughey er einn þekktasti
stjórnmálamaður á írlandi á þessari
öld. Hann var forsætisráðherra ír-
lands 1979-1981, 1982 og 1987-1992
og er sagður hafa verið lærifaðir
núverandi forsætisráðherra, Bert-
ies Aherns, í stjórnmálum. Frá ár-
inu 1997 hefur hins vegar verið flett
ofan af ýmsum hneykslismálum er
tengdust Haughey, m.a. grófu fjár-
málamisferli og framhjáhaldi.