Morgunblaðið - 19.06.1999, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Þjóðernishreinsan-
ir hafa kostað
10.000 Albana lífið
Glogovac, Pristina. AP, The Daily Telegraph.
AÐ minnsta kosti 10.000 Kosovo-
Albanar hafa „horfið“ eða verið
myrtir af serbneskum hermönnum
í þjóðernishreinsunum þeirra í
Kosovo sl. mánuði, að því er Geoff
Hoon, ráðherra í breska utanríkis-
ráðuneytinu, sagði í gær. Yfir
hundrað fjöldagrafir hafa fundist
frá því að friðargæsluliðar á veg-
um NATO héldu inn í Kosovo sl.
helgi. Líklegt er talið að ummerki
fleiri ódæðisverka eigi eftir að
finnast á næstu dögum og vikum
og tala látinna eigi því eftir að
hækka verulega. Að auki hafa frið-
argæsluliðar fundið staði sem að
sögn vitna voru notaðir til pynt-
inga á Albönum.
Pyntingatæki í kjallara
Eitt versta dæmið um slíka
„pyntingaklefa" fannst við leit
breskra friðargæsluliða í kjallara
lögreglustöðvarinnar í Pristina.
Blaðamaður The Daily Telegraph
segir aðkomuna hafa verið ljóta.
Yfír hundrað
fjöldagrafír
fínnast á viku
Pað fyrsta sem blasti við er inn í
dimman kjallarann var komið var
járnrúm með engri dýnu í. Leður-
belti hafði verið fest tryggilega við
rúmið og á því var lykkja, nægilega
stór til að ná utan um úlnlið karl-
manns. Pyntingatæki lágu á víð og
dreif um gólf.
í einu herbergjanna, þar sem
sagt er að konum hafi verið nauðg-
að, var flát með smokkum í. f kjall-
aranum voru einnig eiturlyf, tómar
viskíflöskur og tímarit með grófu
klámi. A skrifborði í einu herbergj-
anna lá keðjusög og undir því tæki
til að mæla áfengismagn. I sumum
herbergjanna voru gasgrímur og
skotvopn.
I homi kjallarans hafði stól með
engri setu verið komið fyrir undir
hríðlekri pípulögn frá ræsinu.
Kjallarinn var gluggalaus þannig
að ómögulegt hefur verið fyrir veg-
farendur að heyra öskur og kvein
fórnarlamba pyntinganna.
A lögreglustöðinni hafði sérsveit
serbnesku lögreglunnar haft aðset-
ur í tuttugu ár og er bresku fall-
hlífahermennirnir komu til Kosovo
á sunnudag var þetta fyrsti áfanga-
staður þeirra.
Óvissa um afdrif
fjölda Albana
Greinilegt var að Serbar höfðu
brennt flest skjöl og umtumað
lögreglustöðinni áður en þeir yfir-
gáfu hana. Þeir höfðu þó ekki ver-
ið nægilega vandvirkir við að
hreinsa til eftir sig eins og pynt-
ingatækin bera glögglega vitni og
einnig fundust einstaka skýrslur
sem búið er að senda Stríðs-
glæpadómstólnum sem sönnunar-
gögn.
Janimeti Blakqori, íbúi Pristina,
Fjöldagrafir í Kosovo
Talið er að a.m.k. 10.000 Kosovo-Albanar hafi verið drepnir
frá því að þjóðernishreinsanir Serba í Kosovo hófust.
Hafa KFOR-friðargæsluliðar fundið yfir hundrað fjöldagrafir
frá því að þeirhéldu inn í héráðið fyrir viku.
JÚGÓSLAVÍA
Sti
SVARTFJALLALANÐ
Crkolez
20 lík
■■
Wk
: ' ■
Djakovica
I 70 lík
Izbica
130 lík
í
V
f+
Kosovo
Orahovac
Allt að 500 lík
hafa fundist
SERBIA
Koliq
: eo ifk
8 '—Poklek
Pristina
'
Vlastion
Ltk fundust í
vatnsbólum
Prizren
Fleiri en ein
fjöldagröf
hefur fundist
Velika Krusa
20 lík
20
ALBANIA
Km
MAKED0NIA
KRT
sagði friðargæsluliðum að
serbnesku lögreglumennirnir
hefðu tekið eiginmann hennar og
tvo bræður inn í lögreglustöðina
19. apríl sl., en síðan þá hafi ekkert
spurst til þeirra.
Fjöldi annarra Albana hefur
svipaðar sögur að segja en enginn
veit með vissu hversu margir hafi
„horfið“ eftir að hafa farið í kjallar-
ann.
I Freonikl-verksmiðjunni í
I
Lög og regla
víðsfjarri
Eyðilegging í Pristína, höfuðborg Kosovo, er
minni en búast hefði mátt við, að sögn Urðar
Gunnarsdóttur, talsmanns OSE í héraðinu.
Þó séu hverfí Albana meira og minna í rúst.
Þótt fáir séu á ferli í borginni telur Urður að
þar sé að kvikna heilmikið líf á ný.
R A L P H L.AUREN
Berðu íþróöafotin með stæf með
Poto Sport frá Raiph Lauren.
íþróttataskan fytgtr þegar keyptar eru
3 Poto Sport herravörur.
Bakpokinn og snyrtitaskan fyfgja þegar
keyptar er 2 Poto Sport dömuvörtr.
Njóttu lifsjns, njóttu þess að fíta vet út.
Utsölustaðr:
fíeike>,ik Sara. Barikastraaá. Snyrtnv. Giæsitiæ. Hygea. Asjsturstrseb
Laugarffige. Kimgkirn. SÉgurbagBrm. Laugawegj,. Ubia. Hagkaup. Knnglun™.
Smáranum Haínarfj ■ Antera. Kopátr: Byigian. Akireyrr Amaro,
Akranos: BJarg, HússxSc Hðma. ísafj.: Krisma. Vestmannse^r.: M6ðbær.
Sefoss- SeMbssapáteir, Kefavk Smart
URÐUR Gunnarsdóttir, settur
talsmaður Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu (ÖSE) í
Kosovo, kom í fyrradag til Prist-
ína, höfuðborgar héraðsins. Sam-
tökin hafa sent hóp til Kosovo til
að meta stöðuna með tilliti til þess
að hefja starfsemi þar að nýju.
Um er að ræða borgaralegar
sveitir sem vinna eiga að umbót-
um á sviði mannréttinda og lýð-
ræðisþróunar.
„Það er um að ræða grundvallar-
atriði eins og að koma upp dóms-
kerfi,“ sagði Urður. „Það eru allir
farnir, dómarar og lögregla, allar
stofnanir sem er að finna í venju-
legu samfélagi eru horfnar. Senni-
lega var þetta flest skipað Serbum
að mestu leyti og þeir eru ailir
farnir.“
Fleiri verkefni bíða, koma af
stað fjölmiðlum og væntanlega
verða haldnar kosningar. Enn er
nokkuð óljóst nákvæmlega hver
verkefnin verða, en þetta virðist
vera það helsta sem fyrir liggur.
Kyssti jörðina
„Við höfum þó ekki fengið form-
legt umboð frá yfirstjóm ÖSE og
samtökin vinna í samvinnu við Sa-
meinuðu þjóðirnar (SÞ). Núna er
unnið að verkaskiptingu milli ÖSE
og SÞ,“ sagði Urður.
Leið ÖSE-liðanna lá frá Ma-
kedóníu tfl Pristína, og við landa-
mærin að Kosovo var gífurlegur
fjöldi landflótta héraðsbúa á heim-
leið. „Sumir flóttamennimir taka
leigubíl að landamærunum, ganga
yfir, og taka leigubíl þaðan heim,“
sagði Urður.
„Við sáum kosovo-albanska konu
leggja frá sér allt sitt hafurtask um
leið og hún kom yfir landamæralín-
una, falla á fjóra fætur og kyssa
jörðina. Eins og páfinn. [Alþjóð-
lega friðargæsluliðið] KFOR er
með gæslu á landamærunum, og
þar em líka herlögreglumenn
[Frelsishers Kosovo] UCK, óvopn-
aðir fyrir utan handjárn, sem þeir
láta skína í. Þeir eru þama til að
skrá fólk og veita upplýsingar.
Mest voru þeir þó að faðma og
kyssa flóttafólkið sem kom yfir
landamærin. Kosovo-megin bíður
líka fólk eftir ættingjum sem enn
eru á leiðinni."
Serbar grýttir
Urður segir gleði Kosovo-Alban-
anna gífurlega, „en það sama verð-
ur ekki sagt um Serbana sem em
Reuters
ALBÖNSK kona gengur með barn sitt í Djakovica, um 80 km frá
Pristina. Serbneskir hermenn lögðu bæinn að mestu í rúst eftir að
loftárásir Atlantshafsbandalagsins á Júgóslavíu hófust 24. mars sl.
íbúar Djakoviea segja að yfir þúsund karla sé enn saknað eftir að
serbnesk lögregla hafi numið þá á brott.
að flýja heimili sín. Við keyrðum
framhjá hverju farartækinu á fæt-
ur öðru sem voru full af Serbum á
flótta. Þeir keyra yfirleitt í lestum
til öryggis því þeir era svo ofboðs-
lega hræddir við Albanana og
UCK.“ Dæmi eru um að serbneskt
fjölskyldufólk, sem er að flýja
Kosovo, hafi verið grýtt.
„Það voru tugir bfla í röðinni
sem var lengst. Það er sorglegt að
horfa upp á að ein flóttamannakrís-
an sé varla afstaðin þegar önnur
hefst.“
Urður sagði að eyðileggingin í
Kosovo, sem sýnileg hafi verið frá
þjóðveginum á milli Makedóníu til
Pristína, hafi verið „mun minni en
við bjuggumst við“. Það sama verði
hins vegar ekki sagt um suðvestur-
og vesturhluta héraðsins milli
borganna Prizren og Pec, sem aðr-
ir ÖSE-liðar og margir fréttamenn
hafi farið um og greint frá.
„Svæðið á milli þessara borga
var og er eitt sterkasta vígi UCK
og það virðist sem mörg þorp þar
hafi verið lögð í rúst. Þá mun Pec
að stóram hluta vera í rúst.“
„Þegar við nálguðumst Pristina
virtist ekkert hafa breyst frá því
við yfirgáfum borgina, um viku áð-
ur en NATO hóf árásir á Jú-
góslavíu [24. mars]. Er inn í borg-
ina kom reyndist eyðileggingin líka
minni en við höfðum búist við, að
minnsta kosti þegar komið var frá
suðri.“
■
r