Morgunblaðið - 19.06.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ1999 29
Glogovac voru einnig ummerki
pyntinga en þar er talið að
serbneskir lögreglumenn hafí losað
sig við lík Albana með því að
brenna þau í ofnum verksmiðjunn-
ar.
Hermennirnir lögðu verksmiðj-
una undir sig fyrir rúmu ári. Eftir
að flugskeyti NATO hæfði verk-
smiðjuna 29. apríl sl. hófu Ser-
barnir nýja ofbeldisöldu gegn al-
bönskum borgurum, en að sögn
þeirra síðarnefndu drápu her-
mennirnir a.m.k. 600 Albana í
kjölfarið.
„Petta var miðstöð drápa á
Drenica-svæðinu þar til NATO
sprengdi verksmiðjuna," sagði einn
íbúanna. Hann sagði að um fímm
þúsund lögreglumenn hefðu einnig
verið staðsettir þar, sem gengið
höfðu í lið með hermönnum
júgóslaviuhers eftir að verksmiðj-
an varð fyrir loftárás.
Frásagnir af fjöldamorðum
halda áfram að berast friðargæslu-
liðum og hjálparstarfsmönnum í
Kosovo. Þorpsbúar í Poklek, sem
er í um 30 km fjarlægð frá Prist-
ina, sögðu frá því að serbneskir
lögreglumenn og hermenn hefðu
safnað saman 62 Albönum, aðal-
lega konum og börnum, í herbergi
17. apríl sl. Þeir drápu fólkið með
því að henda handsprengju inn í
herbergið, en skutu þá sem lifðu
sprengjuna af.
Svo virðist sem serbneskir her-
menn hafí oft á tíðum búið fórnar-
lömbum fjöldamorða grafir á fleiri
en einum stað til að hylma yfir að
um fjöldamorð hafí verið að ræða.
Smám saman fleira fólk
„Það eru fáir á ferli, en það er
að kvikna heilmikið líf. Þetta er
ekki ósvipað og þegar maður
vaknar mjög snemma á sunnu-
dagsmorgni [í Reykjavík] og horf-
ir út. Smám saman fer að sjást
fleira og fleira fólk. Veitingahús-
um og búðum hefur verið lokað,
rimlar eru fyrir gluggum en rúð-
urnar höfðu þó ekki verið brotnar.
Ætli það séu ekki þrjár eða fjórar
búðir opnar í allri borginni, og
nokkri sölustandar. En ég held að
þetta sé bara spurning um nokkra
daga uns lífið verður komið í eðli-
legra horf.“
Reyndar sé ástandið töluvert
annað í sumum hverfum sem Al-
banar hafi búið í. „I hverfinu sem
ég ók í gegnum á leið í vinnu í
morgun, var mikil eyðilegging,
rúður brotnar, brunarústir og
mjög fáir á ferli.“
ÖSE-liðamir eru komnir aftur
inn í höfuðstöðvarnar sem þeir
höfðu áður en þeir yfírgáfu borgina
í mars. Þær eni í stóru húsi „og í
því hafa verið brotnar sex rúður
sem er lítið í ljósi þess að þetta er
stórt hús. Júgóslavneski herinn
hafði hér aðsetur í nokkra daga, og
það hefur nánast öllu verið stolið,
borðum, stólum; og búnaði sem við
skildum eftir. A einstaka stað má
sjá sigurmerki Serba málað á
veggi, en annars er byggingin að
mestu í lagi.“
Tvær samlokur
Urður kveðst ekki fínna neina
ógn eða spennu á götum úti, „en
það gefur augaleið að það eru allir
með varann á sér því að við vitum
að hér er fullt af fólki vopnað og
allt sem heitir lög og regla er víðs
fjarri. Það eina sem heldur uppi
einhverri reglu er NATO.
Mér fannst spennan og óvissan
meiri rétt áður en við fórum héðan
[í mars]. Okkur hafa verið settar
strangar öryggisreglur um ferðir,
megum ekki ferðast að næturlagi
og eiginlega er í gildi útgöngubann
eftir klukkan átta á kvöldin. Mér
skilst að NATO hafí sett það bann
og það virða það flestir."
Það er lítið að hafa, matarkyns, í
Pristína, og Urður segir ÖSE-lið-
ana hafa komið með mat með sér.
„Reyndar fór ég út í söluvagn í dag
og þar var til ein pítsusneið og
tvær samlokur. Ekkert annað. Ég
keypti aðra samlokuna og hún
bragðaðist ágætlega."
Starfsmenn Stríðsglæpadóm- (
stóls Sameinuðu þjóðanna hafa j
hafið störf í Kosovo og er búist við
að þeim fjölgi nú á næstu dögum. 1
Að sögn Louise Arbour, saksókn-
ara Stríðsglæpadómstólsins yfír i
málum tengdum fyrrverandi Jú-
góslavíu, hafa KFOR-friðai’gæslu- (
liðar á vegum NATO verið starfs-
mönnum dómstólsins mjög hjálp-
legh’ við að láta þeim í té sönnunar-
gögn. Sagði hún brýnt að starfs-
menn dómstólsins fengju greiðan
aðgang að héraðinu sérstaklega áð- 1
ur en fleira flóttafólk streymir
þangað. ,
t
BRESKUR fallhlífasveitahermaður j
stendur vörð um kjallara á lög-
reglustöð í Pristina, en talið er að
serbneska lögreglan hafi notað
hann sem pyntingarklefa.