Morgunblaðið - 19.06.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 33
Tíu dropar í Baghdad.
Reuters
Kaffi gegn
gallsteinum
Chicago. Associated Press.
NIÐURSTÖÐUR bandarískrar
rannsóknar benda til þess að
kaffidrykkja geti dregið úr
hættunni á gallsteinum. Hætt-
an er 40% minni meðal karl-
manna, sem drekka tvo eða
þijá bolla af kaffi á dag, en hjá
mönnum sem ekki drekka
kaffi, segir í niðurstöðunum,
sem birtar voru í JoumaJ of the
American Medical Association.
Meðal þeirra sem drukku
fjói’a bolla á dag minnkaði
hættan um 45 af hundraði. En
þetta á einungis við um alvöru
kaffi. Koffmlaust kaffi, te og
gosdrykkir sem innihaida
koffín draga ekki úr hættunni.
Kaffið eykur samdrátt í gall-
blöðrunni og dregur úr kól-
esterólinu, sem getur myndað
gallsteina.
„Ég myndi nú ekki segja að
við mælum með því að fólk
fari að drekka kaffi, bara til
að forðast gallsteina," sagði
dr. Michael F. Leitzmann, við
heilbrigðismáladeild Har-
vardháskóla, sem stjórnaði
rannsókninni.
„En það er allt í lagi að
halda áfram að drekka kaffi.
Það veldur engum alvarlegum
sjúkdómum.“ Rannsóknin var
gerð á karlmönnum eingöngu,
en Leitzmann sagði ekkert
mæla gegn því að niðurstöð-
urnar ættu við uin konur
einnig. Þó yrði gerð sérstök
rannsókn á því.
Miklu meira C
Medical Tribune News Service.
I LJOSI aukinna
vísbendinga um
heilnæmi C-
vítamíns ætti dags-
skammturinn að
vera tvöfalt meiri
en hann er nú, að
mati sérfræðinga.
Nýlegar rann-
sóknir benda til
þess að C-vítamín
sporni við krabba-
meini, hjartasjúk-
dómum og star-
blindu. Kemur
þetta fram í ritgerð
í nýjasta hefti
American Journal
of Clinical Nut-
rition. Höfundar
ritgerðarinnar eru
Balz Frei og Anitra
C. CaiT, við Oregon
State- háskóla.
Höfundarnir telja
tíma til kominn að
endurskoða með-
mæltan dagskammt
af C-vítamíni, sem
gromm
orðna
reykja.
rétt
skammtinn í
milligi-ömm,
60 milli-
fyrir full-
sem ekki
Segja þeir
að auka
120
því
mikið af vísindaleg-
um upplýsingum hafi bæst við síðan
meðmæltur dagskammtur var síð-
ast ákveðinn, sem var 1989.
Núverandi skammtur miðast við
að koma í veg fyrir skyrbjúg, er
hlýst af C-vítamínskorti. Jeffrey Bl-
umberg, við Tufts-háskóla í Boston,
er sammála Frei og Carr. Blum-
berg tók ékki þátt í rannsókninni
sem þau unnu. Hann sagði að vitað
væri að til þess að C-vítamín næði
mettun í blóðinu þyi'fti fullorðinn
einstaklingur að taka um 100 milli-
grömm daglega.
Frei sagði að mestur áhugi væri á
þeim möguleikum sem C-vítamín
Færandi dagsskammtinn heim.
Reuters
hefði á að vemda hjartað. Margar
tilraunir hafi sýnt að vítamínið bæti
æðaútvíkkun, er komið getur í veg
fyrir hjartaáfall og heilablóðfall.
„Það er virkilega athyglisvert
hversu samhljóma niðurstöður hafa
verið um þetta,“ sagði Frei.
Blumberg og Frei eru sammála
um að besta leiðin til að fá nóg C-
vítamín sé að borða nóg af græn-
meti og ávöxtum daglega. Rann-
sóknir hafa sýnt að meðalneysla
bandarískra karlmanna á C-
vítamíni er um 84 milligrömm á
dag, og meðalneysla þarlendra
kvenna 73 milligrömm.
Hvað er paranoia ?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Hvað er paranoia og af
hverju stafar hún? Er það geðveiki
eða er það sjúkómseinkenni, sem
finnst í öðrum geðsjúkdómum
einnig? Getur paranoia kannske
komið fyrir hjá tiltölulega heil-
brigðu og venjulegu fólki?
Svar: Paranoia er heiti á sjúkdóms-
mynd sem lýsir sér í ranghug-
myndum, sem koma einkum fyrii- í
geðveiki, sérstaklega geðklofa. Á
íslensku nefnast þær aðsóknarhug-
myndh’ eða ofsóknarhugmyndir og
koma fram í því að sjúklingnum
finnst að aðrir séu á móti sér, of-
sæki sig og vilji sér illlt.
Þeir sem aðhyllast kenningaa-
Freuds telja að þessar ranghug-
myndir séu sprottnar af varnar-
hætti þeim sem nefnist frávarp
(projection). Frávarp felst í því að
ætla öðrum kennd sem býr í manni
sjálfum. Af því að kenndin er
óþægileg er það fyrsta stigið að af-
neita henni eða bæla, en láta ekki
við það sitja heldur eigna hana
öðrum. Dæmi: Ég er reiður út í
þig, en leyfi mér það ekki og af-
neita kenndinni, en sný henni upp
á þig: þú ert reiður út i mig, vilt
mér illt. Við það fer ég í varnar-
stöðu gagnvart þér, tortryggi þig
og get jafnvel sýnt þér „réttmæta"
reiði. þetta er vai-narháttur sem
margir grípa til án þess að það
beri vott um geðveiki. Margir eru
tortryggnir út í annað fólk og fljót-
ir að kenna öðrum um. Ef þetta er
mjög áberandi persónueinkenni
kunna þeir að hafa paranoid per-
sónuleika, sem leiðir til erfiðleika í
samskiptum við annað fólk.
Ef hins vegar frávarp af þessu
tagi verður ríkjandi varnarháttur
og felur í sé alvarlega brenglun á
Ranghugmyndir
raunveruleikanum getur það leitt til
aðsóknarhugmynda eða ofsóknai--
hugmynda, sem þá flokkast undir
geðveiki. Þá myndast kerfi ofsókn-
ai’hugmynda, sem getur haft á sér
rökrænan og trúverðugan blæ við
fyrstu sýn, en forsendumar sem
þær byggjast á eru hins vegar
sprottnar úr hugmyndalífi sjúk-
lingsins, en ekki raunveruleikanum.
Ranghugmyndir eru yfirleitt í
góðum takt við tímann og nýjustu
tækni. Fyrr á tímum voru það
draugar og forynjur, sem ofsóttu
sjúklinga með ranghugmyndir af
þessu tagi. Á tækniöld eru þeir of-
sóttir í gegnum útvarp, sjónvarp,
tölvur og jafnvel geislun. Þannig
heimfæra þeir umfjöllun í sjónvarpi
upp á sjálfa sig og leggja persónu-
lega merkingu í fréttir, þar sem
verið sé að brugga þeim launráð.
Sjúklingi með þessar ranghug-
myndir kann að finnast hann of-
sóttur af einhverjum alheimssam-
tökum, t.d. kirkjunni eða ákveðn-
um stjómmálaöflum. Til þess að
svo sé, hlýtur hann að vera mjög
mikilvægur maður. þess vegna
fylgja mikilmennskuhugmyndú
(megalomania) oft paranoiu. Dæmi
em um sjúklinga sem telja sig vera
í beinu sambandi við helstu valda-
menn í heiminum og eiga við þá
viðræður í ofskynjunum sínum.
Paranoia eða aðsóknarhugmynd-
ir eru ekki óalgengar hjá sjúkling-
um, sem ekki em haldnir geðklofa.
Þær má sjá hjá fólki með elliglöp,
þegar viðkomandi er ekki lengur í
þeim veruleikatengslum að hann
geti lagt rétt mat á það sem fram
fer í kringum hann og finnst
stundum að aðstandendur séu að
ráðskast með sig og fara á bak við
sig. Einnig sjást aðsóknarhug-
myndii’ hjá fíkniefnaneytendum og
jafnvel áfengissjúklingum.
Eins og áður segir er það ein
kenning að paranoia sé afsprengi
varnarháttarins fi-ávarps. Vamar-
hættirnir era aðferðir okkar til að
glíma við tilfinningar okkar og
vandamál í samskiptum við annað
fólk. Þeir fela alltaf í sér nokkra
brenglun á vemleikanum, sem inn-
an hófiegra mai-ka telst eðlileg. Eitt
helsta skilmerki geðveiki em rofin
tengsl við veraleikann með tilheyr-
andi ranghugmyndum og oft of-
skynjunum einnig. Sumir líta á
þetta sem stigsmun, aðrir eðlismun.
þá kemur til greina að um líffræði-
lega skýringaþætti geti verið að
ræða og era ýmsar rannsóknir sem
benda til þess að svo geti verið.
Nútíma lyfjameðferð hefur
greinileg áhrif til þess að draga úr
þessum einkennum og hefur valdið
byltingu í meðferð á geðveiki. Hins
vegar þykir nauðsynlegt að beita
ýmsum sálfræðilegum aðferðum
samhliða til þess að treysta raun-
veruleikatengsl sjúklingsins, t.d.
einkaviðtölum, hjópmeðferð, iðju-
þjálfun og þjálfun í félagslegri
hæfni.
Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem
þeim liggur á hjarta. Tekið er á
móti spurningum á virkum dögum
milli klukkan 10 og 17 í síma
5691100 og bréfum eða si'mbréf-
um merkt: Vikulok, Fax: 5691222.
Ennfremur símbréf merkt: Gylfi
Ásmundsson, Fax: 5601720.
Fjölskylduhátíð
harnaþorpanna á
Skemmti- og fræðslufundur fyrir
stuðningsfjölskyldur SOS barnaþorpanna
á íslandi og aðra velunnara barna verður
haldinn I Ráðhúsi Reykjavíkur,
sunnudaginn 20. júní kl. 15.00-16.35.
Tilefnið er 50 ár frá stofnun SOS barna-
þorpanna og 10 ára starfsafmæli SOS
barnaþorpanna á íslandi.
Dagskrá:
Júlíkvartettinn leikur
Fulltrúi stjórnar SOS barnaþorpanna á íslandi,
Garðar Ingvarsson, býður gesti velkomna
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri flytur ávarp
Daniel Fox, framkvæmdastjóri SOS í Bretlandi flytur
fræðsluerindi um SOS barnaþorpin í 50 ár
Kveðja frá SOS börnum frá Indlandi og Víetnam
Skólakór Kársness syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur
Ulla Magnússon, framkvæmdastjóri SOS á íslandi
segir frá starfsemi SOS barnaþorpanna á íslandi
Brynja X. Vífilsdóttir, fulltrúi stuðningsfjölskyldna,
flytur ávarp
Filippíski dansflokkurinn Extremities sýnir dansa
Kynnir verður Bergþór Pálsson
Aðgangur ókeypis
sos
íslandi