Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.06.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 35 LISTIR &?y §<& IwlÉÍ-— ^ 1 & - í Mi 1 Mjatr MÆWm. i ?■ ** t slí •• || ■jifcL- * < v! i fPPte ’ '■; * h <. 1' 'J|f ***¥ éMrwírm trrt\. S L. í | ; ■. ■v ' ríT^ ^ '• % 0mSk Morgunblaðið/Jim Smart Fengu síðustu styrki Lýðveldissióðs FULLTRÚAR Síldarmiryasafns- ins í Siglufirði og íslenskrar mál- stöðvar, Orlygur Kristfinnsson og Baldur Jónsson tóku við styrkjum Lýðveldissjóðs á hátiðarfundi sjóðsins í fyrradag, sem haldinn var í Alþingishúsinu. Forseti ís- lands, Ólafur Ragnar Grímsson, var viðstaddur. Sjóðnum, sem var stofnaður á Þingvöllum árið 1994, var einungis ætlað að starfa í fimm ár og því var þetta síðasti fundur hans. Markmið Lýðveldis- sjóðs var að styrkja rannsóknir á lífríki sjávar og efla íslenska tungu og hlutu auk tveggja fram- angreindra aðila um 70 aðrir styrki nú, samtals að upphæð um 100 milljónir króna. Rannveig Rist, Unnsteinn Stefánsson og Jón G. Friðjónsson sátu í stjóm hans. Ovenjuleg á margan veg KVIKMYNDIR II á s k ó 1 a b f ó PLUNKETT & MACLEANE irk Leikstjóri: Jake Scott. Handrit: Peter Barnes og Charles McKeown. Aðal- hlutverk: Jonny Lee Miller, Robert Carlyle, Liv Tyler, Ken Stott og Iain Robertson. Polygram Film Ent. 1999. ÞAÐ er synd að ekki skuli betur unnið úr svo ágætum efnivið. Það var víst ekki á hverjum degi á því herrans ári 1748 að þjófóttur al- þýðunáungi og heldri maður tóku höndum saman um að ræna aðalinn. Aðalsmaðurinn Macleane er í skuldafangelsi þegar vagn sem verið er að ræna brýtur fangelsisvegginn. Macleane flýr og rekst á þjófinn Plunkett. Þegar þeir sjá fram á að eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta gerast þeir glæpafélagar þar sem Plunkett kann aðferðina en Macleane veit um ferðir og fjársjóði ríka fólksins. Eg held að boðskapurinn í þessari sögu hafi átt að vera eitthvað á þá leið að það sem skiptir mestu máli er að vera hjartahreinn hvort sem mað- ur á peninga eða ekki. Já, já, einmitt. Það er fallegur boðskapur í sjálfu sér en hann komst frekar illa til skila nema í lokaræðu MacleaneS þar sem hann bókstaflega stafar þetta ofan í mannskapinn. Annars fór það bara í taugamar á mér hversu falskur Macleane var í þessu vinasambandi sem ég held að hafi átt að vera heill- andi. Það hefði alla vegana komið betur út hefði svo verið. Handritið er sem sagt alls ekki nógu vel unnið. Það er fyndið á köfl- um, og það er vel, en það hefði eigin- lega þurft að vinna eitthvað al- mennilegt og áhugavert á mannlega vísu úr þeim staðreynd að menn úr tveimur fjarlægum stéttum samfé- lagsins skyldu gerast félagar. Það býður upp á marga mögulega árekstra, bæði fyndna og dramat- íska. Leikstjórnin er ekki nógu styrk; hún er skrykkjótt og oft furðuleg en stundum kemur það skemmtilega út. Tónlistin í myndinni er t.d. mjög skringilega valin og ýtir ósjaldan við átjándu aldar stemningunni sem annars er haganlega komið fyrir í skemmtOegum búningum og sviðs- mynd. Leikararnir standa sig með ólík- indum vel þótt ekki hafi þeir úr miklu að moða í þessari mynd sem oft er skemmtOegt en í heildina fremur gloppótt. Hildur Loftsdóttir Aldarafmæli Borgesar ÞESS verður minnst 24. ágúst í sumar að þá eru liðin 100 ár frá fæðingu argentínska skáldsins Jor- ge Luis Borges. Reyndar er þegar farið að halda upp á afmæli skáldsins með útgáfu bóka um það, fyrirlestrum og minn- ingarhátíðum en þær munu verða nokkrar á árinu. Borges kom nokkrum sinnum til Islands. í fyrstu ferðinni sem var opinber var þýðandi hans, Norman Thomas di Giovanni, með í för. Væntanleg er á Spáni bókin The Lesson of the Master: Essays on Borges and his work eftir Giovanni. Einn hugur að verki I TLS (11. júní) er löng grein eft- ir Giovanni um það að þýða Borges ásamt Borges: „Einn hugur að verki“. I greininni segir Giovanni frá því þegar hann hitti Borges fyrst og samvinnu þeirra við þýð- ingarstörfin. Starfið var ekki þrautalaust en góð samvinna tókst með þýðendunum. Giovanni segir að Vladimir Na- bokov hafi talið að þýðing ætti að hljóma sem þýðing, en Borges vildi JORGE Luis Borges á afmælis- degi sínum þegar hann varð áttatíu og tveggja ára, 1981. að þýðing ætti að vera eins og frum- gerð. Hann lagði á það áherslu við þýðendur sína að huga að skáld- skapnum, leggja einkum rækt við hann. Þurrpastel- myndir á Stokkseyri DÓRA Kristín Halldórsdóttir opnar myndlistarsýningu á veit- ingahúsinu Við fjöruborðið á Stokkseyri í dag, laugardag. Á sýningunni eru þurrpastel- myndir sem gerðar voru á síðast- liðnum tveimur árum. Myndimar eru unnar út frá innri upplifun. Dóra Kristín nam í Myndlista- og handíðaskóla íslands á árun- um 1970-73, og 1980-82, og lauk þá prófi sem myndlistarkennari. Hún hefur búið og starfað sem kennari á Selfossi síðastliðin 10 ár. Þetta er hennar fyrsta einka- sýning en hún hefur áður tekið þátt í samsýningum. Sýningin er opin á opnunar- tíma veitingahússins og stendur til 25. júlí. Ungir djass- leikarar á Jómfrúnni Á ÞRIÐJU tónleikum sumarsins á Jómfrúnni í dag, laugardag, kl. 16, kemur fram kvartett gítar- leikarans Andrésar Þórs Gunn- laugssonar. Auk Andrésar skipa hljómsveitina Davíð Þór Jónsson á saxófón, Valdimar K. Sigur- jónsson á kontrabassa og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Andrés Þór útskrifaðist í maí sl. frá Tónlistarskóla FÍH, en Davíð og Valdimar eru langt komnir í námi við skólann. Tónleikarnir fara fram ut- andyra ef veður leyfir en annars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis. Þingvellir frá sjónarhorni Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson GYLFI Þ. Gíslason í vinnustofu sinni. nýju GYLFI Þ. Gíslason opnar í dag sýn- ingu á verkum sínum í Galleríi Sæv- ars Karls. Myndefni Gylfa eru Þing- vellir sem hann segist reyna að sýna frá nýju sjónarhorni. Að sögn Gylfa skoraði Sævar Karl á hann að halda sýningu og því hefur hann unnið hörðum höndum undanfarið við að útfæra nokkrar hugmyndir sem hann átti í fórum sínum. ,Aðalvandamálið er þornun- artíminn á litunum,“ segir Gylfi. „Sem betur fer eru komin ný efni í olíuliti þannig að ég get unnið öðru- vísi.“ Hann segir það þó vera á mörkunum að hann nái tímasetn- ingunni og bætir við að vonandi verði enginn flekkur eftir ómálaður á einni myndinni. „Nú, annars verð ég bara með pensilinn á staðnum," segir Gylfi og hlær. Myndirnar sjö á sýningunni eiga allar rætur sínar að rekja til fjölda rissmynda sem Gylfi á frá Þingvöll- um. „Eg gerði á sínum tíma kort af Þingvöllum. Ég var þar þá mikið og fór um og var náttúrlega alltaf með rissblokk á mér í rigningunni," seg- ir Gylfi og bætir við að fyrir vikið eigi hann urmul af skissum. En Gylfi hefur að eigin sögn skoðað Þingvelli í mörg ár og hélt hann m.a. Þingvallasýningu fyrir um 20 árum. „Ég horfi á Þingvelli frá svo margs konar sjónarhomi. Það er svo mikið af nýjum sjónrænum homum sem maður getur fundið,“ segir Gylfi og þakkar þá breytingu póstmódemismanum, sem leyfi að hin föstu gullinsniðshlutföll mynda séu brotin upp. „Auðvitað hefur óskaplega mikið breyst í okkar sam- félagi og um leið breytast allar myndir, sjónarhorn, hvað er mynd og hvernig hún er sett saman,“ seg- ir Gylfi og bætir við að sér detti t.d. ekki í hug að mála fjallahring Þing- valla. Það hafi þegar verið gert og hann hafi litlu við að bæta. Frumþættir Þingvalla Bif er sú mynda sýningarinnar sem Gylfi kveðst vera hvað ánægð- astur með og segir hann hana vera lykilmynd. „Mér finnst gott að hafa mynd sem er 3,70 metrar að lengd og heitir bara þriggja stafa orði,“ segir Gylfi. „Mér finnst hún svona með því betra sem ég hef gert.“ En á myndinni veitir þjóðvegurinn og vegaskilti mótvægi við náttúra Þingvalla. „Bif er eitthvað sem hreyfist og það er bíllinn náttúr- lega, bifreiðin," segir Gylfi. „En það er raunverulega landið sjálft. Mað- ur hefur trú á mynd þegar maður þorir að setja hana upp í svona yfir- stærð,“ bætir hann við. Gylfi bendir á aðra mynd sem er að hans sögn af framþáttum Þing- valla, mosa, skugga vatni og grasi. „Mér dettur ekki í hug að ætla að fara að leysa mosa almennilega. Það er búið að því og ég geri það alveg áreiðanlega ekki betur en þeir sem fóra á undan mér,“ segir Gylfi og segir sína aðferð þá að setja tákn fyrir mosa sem allir þekki. „Það er alveg eins með hraunvegg, þá geri ég tákn fyrir hraunvegginn, fyrir skuggann, vatnið og grasið. Þetta eru grann“elementin“ á Þingvöll- um,“ segir Gylfi og bætir við að hann hafi spáð í að setja birkihríslu á myndina en hafi fundist það of væmið. „Ég varð að stytta eina mynd- ina,“ segir Gylfi og bendir á mynd af Oxarárfossi, sem er ný útgáfa af eldri mynd. „Hún pompaði niður og rifnaði og það er ekkert hægt að gera við því. En málið er að hún er betri fyrir vikið,“ segir Gylfi og hlær. Sýningunni lýkur 10. júlí. http://www.rit.cc enskar þýðingar og textagerð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.