Morgunblaðið - 19.06.1999, Page 40
40 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Gott veður
í dag
„Stundum rennur upp fyrir manni Ijós á
hátíðarstundum og ekki einu sinni nauð-
synlegt að fara niður á Austurvöll til að
deila örlögum með pjóð sinni á sautjánd-
anum.
Eftir Kristján
Jónsson
FATT á meiri þátt í
að gera Island að
góðu landi til að
byggja en hressandi
veðurfarið. Hvergi í
heiminum er jafn lítil hætta á að
fólk lendi í neyð vegna skorts á
drykkjarvatni, fái sólsting eða
staðni og verði dáðlaust vegna
allt of mikillar veðurblíðu. Hér
er alltaf eitthvað að gerast, byl-
ur getur dunið yfir í júní, tjöldin
geta alltaf fokið um nóttina,
sama hvernig útlitið hefur verið
um kvöldið.
Fjölbreytni er öllum holl og
útlendingar eru búnir að upp-
götva þetta. Þeir flykkjast nú til
uinuADE landsins í sí-
VIPHORF vaxandi mæli,
hundleiðir á
sólarbreyskj-
unni heima
fyrir og vilja meira fjör. Veður-
barðir en sælir á svip klöngrast
þeir yfir urð og grjót, hrópa af
fógnuði þegar þeir sjá eina
melgraskúfinn á margra ferkíló-
metra svæði. Þeir sem eru
heimspekilega sinnaðir átta sig
á því táknræna í fágætum
gróðrinum í eyðimörkinni, sigri
lífsins í hörðum heimi.
Og hvað með okkur, er það
ekki nokkurs virði í veröld þar
sem allt gengur út á einsleitni og
þægindakapphlaup að vita að við
erum öðruvísi? Flestir jarðarbú-
ar njóta meiri sólar en við, lengri
sumra, sumir logns og blíðu án
afláts. En fyrir okkur er hver
sólarglenna eins og óvænt gjöf.
Við höfum átt skáld sem ortu um
íslenskan „storm og ærlegt
regn“. Hannes Hafstein vissi að
við hefðum bara gott af þessu.
Svona viljum við hafa þetta, hvað
sem líður öllu nöldrinu.
Menn hafa lengi deilt um
ástæður þess að forfeður okkar
flúðu frá ströndum Noregs en
engum hefur víst dottið í hug að
þeim hafi fundist of heitt.
Að sögn fróðra er oft sjóð-
heitt þar í landi á sumrin og
loftslagið á norðurhveli var
hlýrra fyrir þúsund árum. Þótt
hvergi sé á þetta minnst í forn-
ritunum getur ástæðan verið sú
að allir hafi vitað þetta og mönn-
um hafi þess vegna þótt óþarfi
að vera að tyggja þetta ofan í
lesendur. En svo má ekki
gleyma að Barði Guðmundsson
hélt því fram að Islendingar
væru komnir af Herúlum, ger-
mönskum þjóðflokki sem flækt-
ist víða, stofnaði meðal annars
stórt ríki þar sem nú er Úkra-
ína. Hluti Herúla-þjóðarinnar
settist að í Vestur-Noregi, sagði
hann. Þeir gætu hafa verið sér-
staklega viðkvæmir fyrir hita og
orðið fegnir kælunni hérna.
Sá sem þetta ritar hefur lengi
verið kveif, er kulvís og hefur
oft kvartað og kveinað, tekið
þátt í söngnum um að það sé
ekki lifandi á þessum klaka.
Þetta sé óbyggilegt sker öðrum
en lundum og öðrum furðufugl-
um. Hér sé ekki einu sinni hægt
að verja sig með regnhlíf vegna
eilífs rokbeljanda. Og ríkis-
stjórnin geri ekkert í þessu.
En nú er mál að linni. Nú er
rétt að stunda dálitla íhugun og
velta fyrir sér misskiptingu
gæðanna, hlutskipti þjóða og
goðsagna um að allt sé betra í
útlandinu. Við eram að blekkja
okkur sjálf með vælinu og upp-
skeram ekkert annað en óþarfa
skapvonsku og depurð.
Stundum rennur upp fyrir
manni ljós á hátíðarstundum og
ekki einu sinni nauðsynlegt að
fara niður á Austurvöll til að
deila örlögum með þjóð sinni á
sautjándanum. Sjónvarpið var á
sínum stað og spáin var svo
slæm.
Við eram alltaf að fárast út af
slagveðrinu en ættum bara að
búa okkur betur. Og ekki sakar
að minna á að ef við nennum því
ekki höfum við alltaf góðar af-
sakanir fyrir því að hanga inni.
Rigningin getur líka afsakað
óhóflegan bílakstur; við kennum
veðrinu um.
Hér er heilsusamlegt loftslag
og það getur líka verið ágætt að
velta fyrir sér af hverju við
geymum matinn í ísskáp. Það er
til þess að fá ekki magapínu eða
eitthvað enn hættulegra. Hvern-
ig er það með þá sem alltaf era
að flatmaga á sólarströndum,
era þeir nógu hreinskilnir?
Heimildarmenn, sem vilja alls,
alls ekki láta nafns síns getið
hafa hvíslað því að mér að annar
hver sólarstrandafari sé illa
haldinn af niðurgangi í ferðinni,
þetta sé vandlega falið leyndar-
mál. Fólk sem fer í þessar ferðir
er samtaka um að þegja yfir
þessu, það vill ekki ræða svona
hallærisleg vandamál.
Þetta er áreiðanlega samsæri.
Og sumir eiga auk þess hags-
muna að gæta, þeir gætu misst
viðskipti ef þetta yrði á al-
mannavitorði. Svo getur fólk
sólbrannið svo illa að heilt
slökkvilið dugar varla til að slá á
þjáningarnar þegar það er kom-
ið heim og sleikir sárin eftir æv-
intýrið. Fullt er líka af soltnum
og agalausum pöddum í mörg-
um heitum löndum en aldrei er
minnst á þær í auglýsingabæk-
lingum.
Hvað myndu ekki margar
þjóðir vilja fá svolítið af rokinu
og rigningunni okkar? Við þurf-
um sjaldan að velta fyrir okkur
loftmengun, ekki einu sinni á
Miklubrautinni í Reykjavík,
þetta fykur allt út í buskann. Og
hér er svo mikið af ágætu vatni
að okkur liggur við drakknun.
Hvarvetna annars staðar stynur
fólk í milljónaborgunum yfir eit-
urgufunum frá bílunum. Og því
er spáð að sums staðar verði háð
stríð um vatnsból á næstu öld,
svo mikill er vatnsskorturinn til
dæmis í Miðausturlöndum. Menn
reyna víða að endumýta vatn
eftir bestu getu, sía jafnvel
óþverrann úr skolpi eins og frétt-
ir berast af.
Vanþakklæti er engin dyggð,
þetta er góð eyja og landfræði-
lega staðsetningin hefur sína
kosti. Héðan er oft gott útsýni
yfir heiminn, svona í ákveðnum
skilningi. Við getum líka leyft
okkur að fylgjast vel með öðrum
þjóðum af því að séríslensku
vandamálin okkar era nú fæst
þess eðlis að hægt sé að hafa
hugann við þau mjög lengi í
senn. Það tekur því ekki.
Dauðaleit að gulrótum
LEIKIR
Bugs Bunny & Lola Bunny.
Nintendo gaf nýlega út nýjan Game
Boy Color-leik, sem heitir Bugs
Bunny and Lola Bunny, Operation
Carrot Patcli. Infogrames hannar
leikinn, en það fyrirtæki hefur
verið ötult við að gefa út Warner
Bros.-teiknimyndaleiki.
SÖGUHETJUR leiksins era sem
sagt Kalli kanína og Lola vinkona
hans. Spilandi getur skipt á milli
persóna með „Select“-hnappinum.
Kalli og Lola era mismunandi per-
sónur að því leyti að Kalli getur
grafið sig í jörðina og hlaupið um í
skamma stund í loftinu ef hann
safnar nógu af gulrótum. Lola get-
ur aftur á móti látið sig svífa hægt
niður háa staði.
Söguþráður leiksins er, eins og í
flestum Game Boy (og Warner
Bros.) leikjum ekki mjög góður.
Leikurinn hefst þannig að Lola og
Kalli sjá að öllum gulrótunum
þeirra hefur verið stolið. Þetta ger-
ir þau eðlilega bálreið þannig að
þau ákveða að fara í kvikmyndaver-
ið (auðvitað) til að komast að því
hver sé hinn seki. Upphefst svo leit
í gegnum fimm heima sem hver
hefur sinn sérstaka óvin; öndina
Daffy í einhverjum bæ, veiðimann-
inn Elmer Fudd í skóginum og svo
framvegis.
Grafík leiksins er afar góð og
greinilegt að mikil vinna hefur ver-
ið lögð í smáatriðin. Fyrir vikið er
Operation Can-ot Patch einn flott-
asti Color Game Boy-leikur sem
komið hefur út til þessa, allar per-
sónur leiksins era líka afar vel
gerðar með flottar hreyfingar.
I hverju borði era fjórir bitar af
klippispjaldi og þegar búið er að
finna alla bitana komast söguhetj-
urnar áfram í næsta borð. Einnig
er hægt að ná ofurgulrótum sem
láta viðkomandi fljúga á eyranum í
smá stund, kryddgulrótum sem
gera hann ódrepandi, aukalífum og
orku. Einnig er hægt að safna fimm
stöfum frá kanarífuglinum Tweety í
hverju borði til að komast í bónus-
borð þar sem hægt er að vinna gul-
rætur og aukalíf. A vissum stöðum í
hverju borði sjást oft myndir af
skóflum eða regnhlífum. Það er
merki þess að þá sé best að skipta
um persónu til að nýta hæfileika
hvers og eins.
Bugs Bunny & Lola Bunny er
einn flottasti Nintendo Game Boy
Color-leikur sem komið hefur út til
þessa og kemst í sama flokk leikja
og Crazy Castle 3 og Zelda.
Ingvi Matthías Árnason
Ný drif frá IBM
IBM hefur náð veralegum árangi-i
í smíði á hörðum diskum undanfar-
in misseri og hyggst greinilega
halda sess sínum ef marka má nýj-
ustu gerðir diska frá fyrirtækinu.
IBM kynnti í vikunni tvo nýja
harða diska, annan örsmáan en
knáan og hinn sannkallaðan belg.
Fyrri diskurinn er ördiskurinn sem
fyrirtækið kynnti fyrir nokkrum
mánuðum, en hann er nú kominn í
framleiðslu og fyrstu diskarnir
komnir á markað. Ördiskurinn,
sem kostar í kringum 35.000 kr.
vestan hafs, er á stærð við eld-
spýtustokk með öllu og rúmar um
340 MB. Diskurinn passar í svo-
nefndar tvöfaldar PC-raufar, en
slíkt er að finna á mörgum mynda-
vélum og fartölvum, til að mynda á
nýrri fartölvu IBM sem kallast z50
og keyrir Windows CE. Einnig eru
á markaði ýmsar stafrænar
myndavélar sem nýtt geta drifið og
væntanleg sérstök útgáfa af Rio
MP3-spilaranum sem þýðir að í
honum má vista tugi klukkutíma af
hágæða tónlist eða hundrað
klukkustunda af tali.
Hinn diskurinn sem IBM sýndi
var öllu stærri um sig og rúmbetri
auk þess sem hann kostar heldur
minna en ördiskurinn. I fréttatil-
kynningu frá IBM kemur fi’am að
diskurinn, DeskStar 37GP, sé
rúmbesta diskadrif fyrir borðtölv-
ur sem um getur. Með fylgir ýmis
leiðréttingarbúnaður sem meðal
annars er ætlað að vara við ef bilun
er í aðsigi.
Doom í
lófann
HUGMYNDAFLUGI tölvu-
framleiðenda virðast engin
takmörk sett, í það minnsta ef
Linux er annars vegar. Fyrir
skemmstu kynntu Compaq-
menn framgerð nýrrar lófa-
tölvu sem keyrir Linux-
kjarna.
200 MHz StrongARM
Compaq-vélin nýja, sem var
aðeins sett saman sem hug-
mynd að slíkri tölvu, er heldur
minni um sig en PalmPilot og
keyrir Linux-kjarna eins og
áður er sagt. Skjárinn er
snertiskjár og fáeinir hnappar
á tölvunni en einnig innbyggð-
ur hljóðnemi og hátalari og
innrautt tengi. Örgjöi-vinn í
tölvunni er 200 MHz
StrongARM frá Intel en at-
hygli vekur að til viðbótar við
hefðbundinn lófatölvuhugbún-
að, eins og dagskinnu, tölvu-
póst og rissblokk, fylgir tölv-
unni Linux-útgáfa af Doom.
Nýstárlegt við þá útgáfu er að
söguhetjunni í leiknum er
stýrt með því að halla vélinni
til eða frá til að láta hana
beygja eða fara áfram.
Compaq-menn kalla tölvuna
Itsy en segja að ekki sé fyrir-
hugað að setja hana í fram-
leiðslu að svo stöddu þó tækni
sem kynnt er í henni eigi
eflaust eftir að skila sér í
aðrar tölvur fyrirtækisins.
sothebys.amazon.com
MJÖG ER tekist á um uppboðsset-
ur á Netinu um þessar mundir en
margir um hituna, þar á meðal
Amazon sem gerir harða hríð að
eBay.
Geysivinsælt er að selja hluti á
Netinu og brautryðjendur á því
sviði, til að mynda eBay, hafa náð
gríðarlegum árangri. eBay lenti
reyndar í erfiðleikum vegna tækni-
vandamála á dögunum, en á sama
tíma var Amazon óðum að vígvæð-
ast fyrir slaginn í sumar og haust.
Liður í markaðsáætlunum
Amazon er kaup á hlut í Sotheby’s-
uppboðshúsinu fornfræga og yfir-
lýsing um fyrirhugað samstarf fyr-
irtækjanna að uppboðsléni á vefn-
um. Lénið á að heita sothe-
bys.amazon.com og á því á að selja
ýmsan vandaðan vaming, allt frá
mynt, frímerkjum og minjagripum
um stjörnur tón- og leiklistar, upp í
antíkhúsgögn og listmuni.
Amazon keypti hlut í Sothebýs
fyrir um 300 milljónir króna, en
samkomulag um samstarf er til tíu
ára. Keppinauturinn situr ekki með
hendur í skauti, því fyrir skemmstu
keypti eBay bandarískt uppboðsfyr-
irtæki fyrir um tuttugu milljarða
króna. Bæði netfyrirtækin era að
styrkja ímynd sína að mati mark-
aðsfræðinga, enda hefur helsti gall-
inn við uppboð á vefnum verið að
viðkomandi veit ekkert um þann
sem hann er að skipta við, hvort
varan sé í lagi og hvort hann sjái
hana yfirleitt nokkurn tímann. I
samstarfí Amazon og Sotheby’s aft-
ur á móti vottar Sothebýs uppruna
gi’ipanna og ástand.