Morgunblaðið - 19.06.1999, Qupperneq 41
4
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 41i
MARGMIÐLUN
Brautryðj-
endur í síma-
málum
SAMKEPPNI á símamarkaði hér á
landi hefur almennt byggst á
þekktri tækni og hefðbundinni
þjónustu en minna farið fyrir nýj-
ungum og byltingarkenndum. Nú
hyggst nýtt fyrirtæki, Íslandssími
hf., hefja samkeppni í símaþjónustu
og nýta til þess nýja og giska bylt-
ingarkennda tækni sem óvíða eða
hvergi er komin upp í heiminum og
byggist á rásalausum fjarskiptum.
Islandssími byggir á tækni sem
er skyld þeirri tækni sem allsráð-
andi er á Netinu og nýtir band-
breidd mun betur en eldri síma-
tækni. Símafyrirtæki víða um heim
nota enn gamla tækni sem byggist
á því að taka frá 64 kbita talrás fyr-
ir hvert samtal. Nýting rásarinnar
er mjög léleg þar sem meðal símtal
er um 40% þagnir. Langt er síðan
símafyrirtæki tóku upp stafræna
tækni og þannig er tal flutt í staf-
rænu formi á milli símstöðva.
Tækninni hefur þó fleygt fram og
langt í frá að hún sé nýtt eins og
kostur er í símakerfum, til að
mynda á íslandi. Par ræður meðal
annars miklu að þagnimar eru ekki
nýttar til að senda aðra gerð gagna
með, til að mynda tölvugögn. Gefur
augaleið að 40% aukning nýtingar
er umtalsverð, en Islandssíma-
menn stefna að enn betri nýtingu
meðal annars með nýrri kynslóð
búnaðar sem þeir kaupa frá Erics-
son.
Islandssímamenn, þeir Eyþór
Arnalds, framkvæmdastjóri, Pétur
Mogensen, yfirmaður vöruþróunar
og fjarskiptaverkfræðingarnir Geir
Ragnarsson, yfirmaður tæknisviðs,
og Óm Orrason, yfírmaður gagna-
flutningsþjónustu, segja að eitt af
lykilatriðunum í rekstri fyrirtækis-
ins sé betri nýting á bandbreidd
sem geri því kleift að bjóða fjar-
skiptaþjónustu á talsvert lægra
verði en tíðkast í dag. Annað lykil-
atriði er sú hagræðing sem felst í
að nota eitt fjölþjónustunet sem
flutt getur bæði tölvugögn og tal.
Einnig er fjarskiptabúnaður orðinn
ódýrari en áður og nýjasta tækni
gerir allan tæknibúnað fyrirferðar-
Kusu opna staðla
Íslandssími kaus búnað frá Erics-
son eftir ítarlega úttekt á framleið-
endum ATM fjarskiptabúnaðar, til
að mynda fýrirtækja eins og
CISCO, Newbridge, Nokia, Nortel
o.fl. A endanum varð Ericsson íyrir
valinu vegna þess að Ericsson bauð
heildarlausn sem byggist meðal
annars á opnum stöðlum og bindur
ekki hendur Íslandssíma vilji fyrir-
tækið síðar kaupa viðbótarbúnað
frá öðmm framleiðendum. Þeir ís-
landssímamenn munu nota svokall-
aða ATM-tækni til að flytjha bæði
tölvugögnn og tal, sem er nánar út-
skýrð á síðunni.
„Ný tækni frá Ericsson, sem
byggist á nýrri kynslóð vélbúnaðar,
gerir okkur kleift að beita öflugri
gæðastýringu en áður hefur verið
unnt,“ segja þeir Islandssímamenn,
og bæta við að loks sé hægt að nýta
ATM í tal- og tölvugagnaflutning-
um, með bættri þjöppun og meira
rekstraröryggi. Talað mál hafi for-
gang í kerfínu, og þeir bæta við að
það sé svo öflugt að þjöppun valdi
engri skerðingu talgæða.
Fjarskiptaneti Íslandssíma verð-
ur stýrt frá höfuðstöðvum fyrirtæk-
isins í Borgartúni. Þaðan er öllum
búnaði á netinu fjarstýrt, hvort sem
um er að ræða búnað í húsakynnum
viðskiptavinar hér á landi eða búnað
erlendis. Islandssími hefur þegar
fengið fjarskiptaleyfi í Bretlandi og
gert samning um vistun búnaðar
hjá fjarskiptafyrirtæki í Lundúnum.
Samningar um vistun búnaðar víða
um heim eru í burðarliðnum.
Byrjað á fyrirtækjaþjónustu
Þeir Íslandssímamenn segjast
horfa til fyrirtækja, að minnsta
kosti á meðan tekin eru fyrstu
skrefin. Þeir segja að kerfið verði
komið upp í haust og byrjað að nota
það þá þegar. „Ericsson hefur með-
al annars brugðist svo við að breyta
sumarfríum starfsfólks til að geta
staðið við samninginn við okkur og
við munum ekki una okkur hvíldar
fyrr en allt er komið upp. Fram-
haldið ræðst svo af því hversu
samningar okkar við Landssímann
ganga eftir, ef vel fer búumst við við
að hefja þjónustu við einstaklinga
Flutningatækni Landsíma íslands
Notendur...
...hringja
► ►►► ►► ►►► ►► ►►
...senda gögn
Um 40% símtala eru þagnir
►► ►►
Flutningar til viðmælanda/viðtakenda
^ANDSSÍMI fSLANDS HF ■BBS
Flutningatækni Íslandssíma
Notendur...
...hringja
►►► ►► ►►► ►► ►►
...senda gögn
í s I a n d s s f m
á aðskiidum rásum
Flutningar á sömu rás,
en þagnir eru nýttar fyrir
gagnaflutninga.
Simtöl hafa forgang
►^^►►►^►►^►►►BB ► ►►► -
Á endastöð aðgreinir búnaður
simtöl og gagnaflutninga
þegar uppúr áramótum, en ef
Landssíminn vill ekki gera keppi-
nauta að viðskiptavinum neyðumst
við til að halda okkur við fyrirtækin
enn um sinn og leggja í kostnað við
að leggja ljósleiðarakerfi sjálfir.“
Eins og getið er er ATM-tæknin
sem fyrirtækið hyggst nota í síma-
kerfi sínu ný af nálinni, þó ATM
hafi verið þekkt lengi. Þeir íslands-
símamenn segja að áhugi Ericssons
og velvild gagnvart Islandssíma
byggist ekki síst á því að sænski
risinn sjái sér hag í að koma upp
símkerfi með nýjustu tækni hér á
landi til að geta sýnt væntanlegum
viðskiptavinum hvernig hægt sé að
gera hlutina. „Fjarskiptakerfi eins
og það sem við erum að setja upp á
sér enga hliðstæðu í heiminum í
dag, en mörg erlend fjarskiptafyr-
irtæki stefna að því að gera hlutina
á sama hátt og við. Islandssími
verður þvi í hlutverki brautryðj-
andans í símamálum í heiminum,"
segja þeir félagar og finnst það
ekki leitt.
Hvað er ATM?
ATM er skammstöfun á
Asynchronous Transfer Mode,
sem útleggst ósamhæfður flutn-
ingsháttur.
ATM-tæknin er gömul í hett-
unni og hefur ýmislegt framyfir
hefðbundin pakkaskipti sem
nýtt eru á Netinu í dag, þar á
meðal að hægt er að tryggja
hraða og gæði gagnaflutnings.
ATM felst í því að upplýsingum
er safnað í pakka af fastri stærð.
Olíkt hefðbundnum aðferðum
tryggir ATM að pakkarnir ber-
ast á endastöð í réttri röð, pakk-
amir eru minni og tafir minni
fyrir vikið, sem skiptir verulegu
máli varðandi gagnaflutning á
tali, og gæðastýring er innbyggð
í kerfið.
ATM-kerfi varðar engu hvaða
upplýsingar er verið að flytja um
netið og því hentar það vel ef
flytja á ólíkar gerðir gagna yfir
sama netið, til að mynda tal,
hreyfimyndir eða tölvugögn.
Sveigjanleg uppbygging ATM
netsins gerir og að verkum að
gagnastraumurinn lagar sig að
streyminu frá sendanda og
margar gagnaflutningsþjónust-
ur, til að mynda sendingar
hreyfimynda, tals eða tölvu-
gagna, nýta það sem kallast
breytilegt bitastreymi, en lang-
flestar gagna- og talsendingar
hafa mjög sveiflukennda gagna-
flutningsþörf. Fyrir vikið nýtir
breytilegt bitastreymi vel þá
bandbreidd sem í boði er.
Veldur sá
sem varar?
VINSÆLASTI vefþjónn í heimi er
Apache-vefþjónninn, sem er ókeyp-
is og keyrir á Linux. f öðru sæti ef
vefþjónn Microsoft, sem keyrir á
NT og hefur gengið illa að skáka
Apache, ekki síst vegna þess að
Apache er ókeypis, en einnig vegna
þess að hvert áfallið hefur rekið
annað varðandi öryggismál í NT. í
vikunni hefur mikið verið deilt um
enn eitt öryggisgatið á NT.
Fyrir viku komst starfshópur á
vegum fyrirtæksins eEye á snoðir
um alvarlegan galla í NT-vefþjón-
um sem gerði óviðkomandi kleift að
komast inn á þjóninn, ná sér í
hvaða upplýsingar sem honum
sýndist og keyra á viðkomandi vél
hugbúnað ef vill. Á vefsíðu eEye,
sem hefur starfa af því að setja
saman netöryggishugbúnað, kemur
fram að fyrirtækið lét Microsoft
vita af gallanum 8. júní sl. Þegar
ekkert hafði heyrst frá Microsoft
viku síðar, hvorki hafi fyrirtækið
varað viðsldptavini sína við eða sent
frá sér endurbætur á vefþjóninum,
skýrði eEye frá gallanum opinber-
lega og um leið hvaða aðferðum
menn gætu beitt til að setja NT-vél
á hliðina eða taka á henni völdin.
Nú brást Microsoft hart við, setti
fljótlega upp leiðbeiningar um
hvemig mætti bregðast við vandan-
um til bráðabirgða, en sakaði eEye
um leið um skemmdarverk, því nú
vissu allir tölvuþrjótar heims
hvemig ætti að fara að því að brjót-
ast inn í NT-vél.
Ýmsir hafa orðið til að halda uppi
vömum fyrir eEye, þar á meðal
menn frá þýska fyrirtækinu LOpht
sem hefur sjálf bent á fjölmarga
galla í NT. Þessi fyrirtæki hafa það
fyrir sið að skýra frá öllu sem þau
rekast á til að auðvelda fyrirtækjum
að bæta úr böggum og um leið við-
skiptavinum þeirra að vera á verði.
Fjölmargir gallar hafa komið upp
í vefþjóni Microsoft á NT-tölvum,
en þetta er sá alvarlegasti fram til
þessa, enda era allir vefþjónar frá
fyrirtækinu af gerðinni 4,0 ber-
skjaldaðir fyrir ásrásinni, sama þó
eldveggur sé upp settur á vefsetri
fyrirtækisins. Á vefsetri Microsoft
eru leiðbeiningar um hvernig1
bregðast megi við böggnum til
bráðabirgða, og felur meðal annars
í sér að taka allan aðgang af notend-
um utan vefsetursins, en varanleg
lausn er væntanleg. Á vefsetrinu er
fjölmargar aðrar lausnir að finna
sem ætlað er að gera vefþjóninn ör-
uggan fyrir öðram göllum, en sum-
ar þeirra fela í sér að taka út sitt-
hvað það sem gerði vefþjóninn fýsi-
legan kost á sínum tíma, forsníða
harðan disk upp á nýtt og svo má
telja.
Laugnvegi 40,
siini 561 0075.
Ef þú ert að leita að sjónvarpi er BT rétti staðurinn og i dag er rétti dagurinn því allir fá pizzaveislu í kaupbæti!
Topp 28" tæki. Black Pearl mynd-
lampi. Tæki fyrir þá sem
horfa í gæðin.
Islenskt textavarp, leikjatölvu-
tengi, scart-tengi, fjar-
stýring ofl. ofi.
28”
THÍMSÍNl
I
29’ Super Trinitron myndlampi.
Nicam Stereo 2 x 20 W,
2 x Scart tengi ofl. ofl.
14"
DAEWOO
29" E23E3
i
Opið f dag
10:00-16:00
og sunnudag
BT Skeifunm
13:00 -17:00
BT • Skeifunni 11 • Rvk • S: 550 4444 • BT • Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarf. • S: 550 4020 • www.bt.is