Morgunblaðið - 19.06.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 45
UMRÆÐAN
Lokun fámennra skóla
í SUNNUDAGSBLAÐI Morgun-
blaðsins 12. júní var ítarleg umfjöll-
un um sameiningu skóla á Austur-
landi sem hefur í för með sér lokun
eins fámenns skóla. í umfjölluninni
birtust ólíkir hagsmunir og sjónar-
mið. Á síðustu árum hefur ríkt til-
hneiging tO þess að leggja niður fá-
menna skóla víða um land. Skólunum
er lokað án þess menn viti fyrir víst
hvaða þýðingu það hefur fyrir sam-
félag í lítilli byggð. Með slíkum að-
gerðum er tekin áhætta að mínu viti.
Ekki er gott að átta sig á hvers
vegna ákvarðanir um lokun skóla
eru teknar en mér býður í grun að
oftast ráði fjárhagsleg sjónarmið en
ekki vangaveltur um hvað nemend-
laginu breyttust og urðu minni. í
Noregi hafa rannsóknir sýnt að löng
skólaferðalög leiða bæði til sálrænna
og líkamlegra erfiðleika meðal bam-
anna. Einnig langar mig að nefna að
árið 1975 kenndi ég í Austurdal í
Noregi og ferðaðist þá með skólabíl
daglega í þrjá mánuði langa leið, því
Austurdalur er langur. Það var í
skólabílnum sem ég varð í fyrsta
sinn vitni að einelti sem erfitt reynd-
ist að fást við. Ég tel að þessar til-
vitnanir þótt fáar séu sýni mikilvægi
þess að fara gætilega þegar taka
skal jafn stórar ákvarðanir sem þær
að leggja niður skóla. Lokun fá-
mennra skóla getur haft margvíslega
erfiðleika í fór með sér, fyrir börn
Skólamál
Lokun fámennra skóla
getur haft margvíslega
erfiðleika í för með sér,
segir Kristín Aðal-
steinsdóttir, fyrir börn
jafnt sem foreldra.
jafnt sem foreldra. Til viðbótar má
nefna að eigi foreldrar og kennarar
þá hættu yfir höfði sér að skólanum
þeirra verði lokað má leiða að því lík-
ur að sú hætta geti haft víðtæk áhrif,
bæði á skólastarfið sjálft og sam-
skipti fólks í byggðarlaginu.
I Aðalnámskrá grunnskóla sem
kom út á dögunum er sérstök áhersla
lögð á mikilvægi þess að skólinn
komi til móts við ólíka getu nemenda
og þeim sé veitt menntun við hæfi
hvers og eins. Að mínu mati er staða
fámennra skóla sérstök. í rannsókn
sem ég gerði árið 1988 komst ég að
þeirri niðurstöðu að möguleikar fá-
mennra skóla til að koma á móts við
námsþarfir nemenda væru einstakir.
Ég tel enn að svo sé. í annarri rann-
sókn á fámennum skólum sem ég hef
nýlokið við kemur fram að meginein-
kenni fámennra skóla vh-ðast vera
náin tengsl kennara og nemenda og
nemenda á milli, hvert bam fær
meiri athygli og í bekk eru börn á
mismunandi aldri sem geta stutt
hvert annað.
Aðstæðurnar í fámennum skólum
em þess eðlis að þær gefa kennurum
aukið svigrúm og tækifæri til að
beita kennsluaðferðum sem stuðla að
skilvirku námi, tilfinningaþroska
nemenda, markvissri þjálfun vinnu-
bragða og samvinnu. Ég á við
kennsluaðferðir eins og samvinnu-
nám, aðferðh- sem byggjast á áhuga
og reynslu nemenda og samþætt
nám af ýmsum toga. Einnig má gera
ráð fyrir að auðveldara sé að koma til
móts við nemendur og fylgjast með
framfórum hvers og eins. I rannsókn
minni sagði kennari: „í fámennum
skólum er andrúmsloftið mannlegra
og það er mögulegt að taka tillit til
hvers og eins.“ Þessi orð lýsa í raun
samfélagi sem mörg okkar dreymir
um daglega.
Höfundur er lektor við Háskólann á
Akureyri.
1
I
Kristín
Aðalsteinsdóttir
um sé fyrir bestu. Með breytingun-
um á skipan skólamála árið 1996 var
stjórn skólamála færð til sveitarfé-
laga. Rök voru færð fyrir því að þá
gætu heimamenn haft áhrif á skól-
ann í sinni byggð. Samt sem áður
virðist raunin sú að foreldrar, þ.e.
fólkið sem á börnin í skólunum, hafa
í mörgum tilvikum afar lítil áhrif.
Ákvarðanir um lokun fámennra
skóla virðast fyrst og fi-emst teknar
af sveitarstjórnarmönnum einum
sem láta fjárhagsleg sjónarmið
stjórna gerðum sínum. Fjárhagsleg-
ar ástæður réðu sameiningu fá-
mennra skóla í Eyjafirði fyrir
nokkrum árum. Oddviti sveitarfé-
lagsins sagði í erindi á uppeldismála-
þingi fyrir þremur árum að samein-
ingin hefði ekki reynst sú bragarbót
sem stefnt var að. Hún hefði ekki
fjárhagslegan ávinning í för með sér.
Fjárhagslegar ástæður stríða oft
gegn faglegum sjónarmiðum og taka
ekki mið af þörfum nemenda.
í öðrum löndum hafa fámennir
skólar verið lagðir niður og afleiðing-
ar þess verið rannsakaðar. Ein slík
rannsókn var gerð í Bretlandi í hér-
aði þar sem margir fámennir skólar
höfðu verið lagðir niður á hálfum
öðrum áratug. I Ijós kom að lokun
skólanna hafði veruleg félagsleg
áhrif, bæði á börnin og samfélagið í
heild. Langar og tímafrekar ferðir
höfðu mikil áhrif á nemendur. Þeir
þoldu þessar löngu ferðir illa og
komu afleiðingarnar fram í árásar-
hneigð og öðrum erfiðleikum. For-
eldrum fannst ekki tekið tillit til
þehTa eigin óska og voru þess ekki
megnug að hreyfa kröftugum mót-
mælum. Og hér er sagan ekki öll
sögð. Lokun skólanna leiddi til þess
að tengsl á milli íbúanna í byggðar-
Utanborðsmótorar
YAMAHA
Stærðir: 2-250 Hö
Gangvissir, öruggir
og endingargóðir
Gott farangursrými.
Samlitir stuðarar. | Niðurfellanleg aftursæti.
Hæðarstillanlegt öryggisbelti.
á aðeins 1.199.000 kr.
5 dyra Accent
með glæsilegum
sumarpakka
að verðmæti
140.000 kr.
• Viðarklæðning
i mælaborði
• Álfelgur
• Vindskeið
• Hliðarsólhlíf
• Geislaspilari
Acœnt 5 dyra beinskiptur
1.199.CXX) kr.
Accent 5 dyra sjálfekiptun
1.279.000 kr.
Sumarpakki: 70.000 kr.
I Fossháls n
J B&L 1
HestháJs L X Grföfftófs
\ V >^9TaVSetect|
Vosturlandsvogur
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
HYuriDni
meinifö,u