Morgunblaðið - 19.06.1999, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Góðverk eða
"landvinningur?
MARGIR hafa skrifað greinar
og bréf sem birst hafa í dagblöðum
hérlendis um loftárásirnar á Jú-
góslavíu. Margir skrifa til að rétt-
læta þær fyrir okkur efasemdar-
mönnunum sem teljum að ósæm-
andi sé fyrir íslensku þjóðina að
leggja nafn sitt við þær.
Sumir segja að Serbar séu bara
trylltir þjóðemissinnar, nauðgarar
_jk og morðingjar og því sé nauðsyn-
legt og rétt að sprengja sjúkrahús-
in þeirra, heilsugæslustöðvar, sjón-
varpsstöðvar, orkuver, verksmiðj-
ur, elliheimili, brýr, bamaheimili,
fangelsi, farþegalestar, hópbifreið-
ar, traktora, markaðstorg, útvarps-
stöðvar, olíubirgðastöðvar, íbúðar-
hús, böm og gamalmenni o.s.frv.
Þeir sem reyna að sannfæra okkur
á þennan hátt hljóta að vera að
lýsa sjálfum sér er þeir segja að
Serbar séu trylltir ofstækismenn.
Ótrúlegt er hvað menn komast upp
með vegna orðróms um nauðgun
eða morð sem ekki er einu sinni
leitast við að staðfésta, það virðist
vera nóg að skýla sér bak við orð
eins og „mannúð“. Eitt er þó alveg
augljóst, það að flóttafólk tók að
streyma frá Kosovo eftir að loft-
árásimar hófust. Margir vilja
meina að það hafi eingöngu verið
vegna þjóðemishreinsana Serba á
Kosovo-Albönum og vilja ekki
heyra minnst á að aðrar ástæður
gátu einnig valdið flótta fólksins úr
héraðinu, t.d. að fólkið flýði átök
Serba og K.L.A., eða sprengjur
NATO sem öllu virtust eiga að
eyða, eða þeim möguleika að
NATO léti þau boð út berast að
fólk skyldi yfirgefa héraðið vegna
fyrirhugaðrar innrásar NATO.
Sumir segja að Bandaríkjamenn
séu ótrúlega fómfúsir og séu að
hætta sonum sínum eina ferðina
enn fyrir Evrópu og benda á að
- töppMVMV í/ útfoi&t
n
SKEIFUNNI 6 • Simi 533 4450
alvðru útivistarverslun
SEGLAGERÐIM
~ ÆGiR
Eyjarslóð 7 Reykjavík Sími 511 2200
sárve rslun ferðafólksins
KvengingusKðr KvensyefniíJijJrar
Panama Janett-Lady MP 350W
Vatnsvarinn m/D-tech M/Gore-Tex. Failegir, Silicon Hollowfiber.
filmu, léttir og léttir og sterkir skór -15°C kuldaþol.
þægilegir í léttar og í lengri sem 2.2 kg. M/innikraga *'J @ \4fl [l’ |
styttri göngur. skemmri göngur breiðari yfir mjaðmir f
fJilQl áaur 8.600 áflur 14.800 áður 8.200
Kvinlafepitei'
Pumori 60 +
60-65 lítra. Vandaður og
sterkur með stillanlegu
sem hentar kvenfólki
áöur 13.600
Kvenflíúpijpií
Lady-Datcha fll Qi[l)A
Flíspeysur. Sértilboö.
D-rauðar og L-bláar. „10.800
Munið! Afslátturinn gildir fyrir
allan annan útvistarbúnað
sem konurversla 19. júní!
á fatnaði, gönguskóm og útilegubúnaði
— AÐEINS í DAG19. JÚNÍ!
•nfcm
BMITH
norakkur
vatnsheldur
nto utöndun ór
Microdber efni.
Litlr: ! ótgifir.
Stsrtir: S,M,L,XL
( -51 r i
það hafi þeir einmitt
gert í síðari heims-
styrjöldinni, og við
ættum heldur ekki að
gleyma örlæti þeirra
þegar þeir færðu Evr-
ópu Marshall-áætlun-
ina. Jú, mikið rétt,
hingað til Islands kom
bandarísk hersveit í
júlí 1941 og tók að sér
hervemd er átti aðeins
að standa þar til þá-
verandi ófriði lyki.
Hermenn í þeirri sveit
afrekuðu meðal annars
að skjóta þrjá Islend-
inga til bana á innan
við einu ári, þar á með-
al var tólf ára drengur. I öll skiptin
var um „direct hit“ að ræða. Sú
fuOyrðing sumra að Bandaríkja-
Balkanskagastríðið
/ /
Eg óska Islendingum
öllum til hamingju með
þá ákvörðun æðstu
ráðamanna þjóðarinn-
ar, segir Brynjar
---M- --------------------
Armannsson, að leggja
nafn okkar við ofbeldis-
fulla og blóðuga
utanríkisstefnu.
menn hafi fómað sér fyrir Evrópu-
búa hljómar ekki mjög sannfær-
andi ef fólk skoðar hverjir hags-
munir Bandaríkjanna vom í því að
taka þátt í að sigra nasista. Og
hvað varðar Marshall-áætlunina,
þá var hún ekki bara gjöf til gjald-
þrota Evrópuþjóða heldur einnig
trygging fyrir bandarískum áhrif-
um í Evrópu og áframhaldandi við-
skiptum milli Bandaríkjanna og
þeirra þjóða er þáðu aðstoðina.
Hver dollari er sendur var til Evr-
ópu skilaði sér margfaldur til
Bandaríkjanna og iðnaður og út-
flutningur frá Bandaríkjunum
hrandu ekki. Marshall-áætlunin
var í senn frábær fjárfesting og
pólitískur stórleikur fyrir Banda-
ríkin. Kannski getum við þakkað
henni það að við Islendingar eigum
flotta bfla, unglingamir farsíma og
ráðamenn byggja skrauthallir fyrir
skattpeningana okkar, en svo sann-
arlega skilaði hún engu til bjargar
andlegri fátækt nema síður sé, við
lifum nefnilega flest í þeirri blekk-
ingu að halda að ríkidæmi og sýnd-
armennska endurspegli hamingju
og visku og að umbúðimar séu
mikilvægari en innihaldið.
Já, margir vilja meina að Banda-
rfldn séu bjargvættur Evrópu og
að þeim einum sé treystandi til að
viðhalda friði í heiminum, en þeir
sem því trúa hljóta að loka augun-
um fyrir Víetnam og Kambódíu og
öllu því blóði sem rannið hefur í
Mið-Ameríku og víðar þar sem
Bandaríkin hafa haft afskipti af
innanríkismálum sjálfstæðra ríkja,
oft með stuðningi við skæraliða og
einnig með stuðningi við stjórnvöld
sem hafa beitt svokölluðum dauða-
sveitum til að viðhalda völdum sín-
um. Svo segja sumir að Milosevic
sé lítill Hitler og hann beri að upp-
ræta og því sé nauðsynlegt að nán-
ast eyða Júgóslavíu. Ekki er margt
líkt með Milosevic og Hitler, hins
vegar minna aðgerðir
NATO óneitanlega á
nasistana, það em jú
NATO-hersveitir sem
ráðast á sjálfstætt ríki
en Milosevic hefur
aldrei sent hersveitir
út fyrir landamæri Jú-
góslavíu, og Þjóðverj-
ar eiga nú flugsveit
sem varpaði sprengj-
um á Júgóslavíu undir
merkjum NATO á
sömu forsendum og
nasistar réðust inn í
Tékkóslóvakíu í byrj-
un síðari heimsstyrj-
aldar, nefnilega af
„mannúðarástæðum"
til að stöðva „þjóðernishreinsun"
Tékka á þýskum minnihlutahóp í
Tékkóslóvakíu. Og svo tala sumir
um stríðsglæpadómstólinn í Hague
rétt eins og hann sé heilög stofnun
sem okkur ber öllum að trúa á, en
það er nú ekki svo einfalt þegar
haft er í huga að æðstu menn
þeirrar stofnunar era einmitt frá
NATO-löndum, en það verður
prófsteinn á trúverðugleika hans
þegar í ljós kemur hvemig hann
tekur á kæm sem lögð hefur verið
fyrir hann vegna meintra stríðs-
glæpa NATO-leiðtoganna gegn
borgurum Júgóslavíu og mann-
kyni. Svo era það þeir sem trúa að
vestræn lýðræðisríki séu æðri öllu
hér á jörðu og það þurfi ekki að
naflaskoða þau eða gjörðir þeirra,
því þau séu fullkomin, og aðeins
þegar allar þjóðir heimsins hafa
komið á vestrænu lýðræði verði
friður. En því er erfitt að trúa
vegna þess að því miður virðist
sem lýðræði sé oft aðeins til í orði
og að stjómmálaleiðtogar í „lýð-
ræðisríkjum" séu fyrst og fremst
strengjabrúður auðvalds. Einn
ágætur efnafræðingur var með lof-
skrif um NATO og Bandaríkin í
Dagblaðinu nýverið, hann hafði
engar áhyggjur af þeirri mengun
sem loftárásimar hafa valdið í Jú-
góslavíu og víðar í Evrópu, en hann
hitti naglann rækilega á höfuðið er
hann sagði að lýðræðisríkin myndu
koma Serbíu og Kosovo til bjargar
með uppbyggingarstarfi. Þama er
maðurinn kominn að rótum loft-
árásanna, sem hófust ekki til að
hjálpa Kosovo-Albönum heldur til
að hjálpa þeim ríku í vestrænu
„lýðræðisríkjunum" að verða rík-
ari, því það verða þeir sem munu
græða á uppbyggingunni og það
verða þeir sem munu fá aðgang að
verðmætum jarðefnum í Kosovo.
Eg óska NATO til hamingju með
landvinninginn, nýtt „kalt“ stríð og
hvemig þeim tókst að blekkja og
klekkja á islamstrúarmönnum. Eg
óska íslendingum öllum til ham-
ingju með þá ákvörðun æðstu ráða-
manna þjóðarinnar að leggja nafn
okkar við ofbeldisfuila og blóðuga
utanríkisstefnu Bandaríkjanna
sem stjómast af drottnunarbrjál-
æði og græðgi.
P.S. Hverjir verða næsta skot-
mark? Ættum við að sprengja
Kúrda í Tyrklandi? Ekki megum
við sprengja Tyrkina, þeir era
nefnilega vinir Bandaríkjamanna.
Látum bara Bandaríkjamenn
finna fórnarlamb eða búa til rétt-
lætanlegt skotmark fyrir okkur,
kannski efnumst við á öllu saman
og getum keypt okkur eitthvað
voða flott til að svala hégómagirnd
okkar.
Höfundur cr framkvænuhistjóri.
Brynjar
Ármannsson