Morgunblaðið - 19.06.1999, Qupperneq 56
56 LAUGARDAGUR19. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Keppt um sæti í íslenska landsliðinu
Logi Laxdal og Freymóður
- nánast öruggir með sæti
Spennan í úrtökukeppninni þar sem valið
er landslið Islands er nú í algleymingi að
lokinni fyrri umferð. Valdimar Kristinsson
eyddi lunganum af þjóðhátíðardeginum við
að fylgjast með þessari keppni sem er að
venju æsispennandi. Seinni umferðin hefst
^ í dag klukkan tíu með keppni í fímmgangi.
AÐ LOKINNI fyrri umferð eru
„inn“ ef svo má að orði komast Sig-
urbjörn Bárðarson á Byl frá Skáney
efstur í samanlögðum stigum þriggja
greina. í fimmgangssætinu er Auð-
unn Kristjánsson með nokkuð góða
forystu á Baldri frá Bakka. Asgeir S.
Herbertsson er með nauma forystu í
fjórgangi á Farsæli frá Arnarhóli.
Einar Ó. Magnússon trónir á toppn-
um í töltinu á Glampa frá Kjarri en
með mjög nauma forystu. Logi Lax-
dal er með besta stöðu þessara fimm
knapa og telja margir að hann hafi
svo gott sem tryggt sér sæti í liðinu
á Freymóði frá Efstadal í fyrsta
y spretti í 250 metra skeiðinu er þeir
fóru vegalengdina á 21,67 sekúndum,
sem er frábær árangur. Fremur
ólíklegt þykir að keppinautum þeirra
Loga og Freymóðs takist að bæta
þennan tíma.
Pannig lítur liðið út í hálfleik og
víst er að ekkert er öruggt í hendi í
þessum efhum nema ef vera skyldi
hjá Loga. Keppnin um sæti saman-
lagðs sigurvegara þykir afar spenn-
andi því aðeins munar 0,36 á Sigur-
birni í efsta sætinu og Olil Amble í
fimmta sæti, Sigurbjörn með 23,47.
Á milli þeirra eru Sveinn Ragnars-
son á Reyk frá Hoftúni með 23,32 og
jafnir í þriðja til fjórða sæti eru
Alexander Hrafnkelsson á Prins frá
Hvítárbakka og Sigurður V. Matthí-
asson á Demanti frá Bólstað með
23,29.
Staðan er nokkuð góð hjá Auðunni
Kristjánssyni, í fimmgangi er hann
með 7,13 en næstur kemur Sigurður
V. Matthíasson á Demanti með 6,93,
Páll Bragi Hólmarsson á ísak frá
Eyjólfsstöðum er með 6,87, Þórður
Þorgeirsson á Kjarki frá Ásmúla er
með 6,83.
í fjórgangi berjast Ásgeir og Far-
sæll um sætið við Olil Amble á
Kjarki frá Horni sem kemur fast á
hæla þeirra með aðeins 0,07 lægri
einkunn og ljóst að þar getur allt
gerst. Aðrir virðast ekki eiga mögu-
leika í fjórgangi.
I töltinu er staðan frekar óvænt,
Einar Öder skaust í fyrsta sætið
mörgum á óvart og fast á hæla hon-
um kemur Baldvin Ari Guðlaugsson
á Tuma frá Skjaldarvík og Olil
Amble þar rétt fyrir neðan. Einar
með 7,70, Baldvin með 7,67 og Olil
með 7,53. Athygli vekur slæmt gengi
Vignis Siggeirssonar á Ofsa frá Við-
borðsseli en þeir eru í 8. sæti með
7,20 og virðist kraftaverk þurfa til að
þeir nái töltsætinu.
Sigurður Sæmundsson lands-
liðseinvaldur velur svo tvo síðustu
liðsmennina og þykir Rúna Einars-
dóttir, sem býr í Þýskalandi, hafa
tryggt sér góða stöðu eftir frábæra
frammistöðu í úrtökukeppni sem
haldin var á búgarði hennar og Kar-
ly Zingheim að Forstwald. Var Rúna
á hryssu sinni Snerpu frá Dalsmynni
og gerðu þær sér lítið fyrir og sigr-
uðu í töltinu þar sem allir bestu
knapar Þýskalands voru saman-
komnir. Sigurður landsliðseinvaldur
fylgdist með mótinu og sagði hann
að Rúna hefði þarna unnið stórvirki
með þessum sigri. Sigurinn hafi ver-
ið mjög sanngjarn og afgerandi. Hún
hefði fengið 8,5 fyrir yfirferð hjá
tveimur dómurum og einn gaf henni
9,0 og svipaðar tölur hafi verið á lofti
í hraðabreytingum. Sagðist Sigurður
vart hafa séð eins vel útfærðar
hraðabreytingar og hjá Rúnu og
Snerpu. Viðurkenndi hann að hún
væri með þessum árangri sínum
komin mjög sterklega inn í myndina
Morgunblaðið/Valáimar Kristinsson
LOGI Laxdal og Freymóður.
en tók þó fram að hann færi ekki að
hugsa málið alvarlega fyrr en að úr-
tökunni í Kópavogi aflokinni.
En staðan er sem sagt þessi og
allt virðist benda til þess að tveir af
fjórum heimsmeisturum íslands frá
síðasta móti muni nýta sér rétt sinn
til að mæta með sömu hesta og þeir
unnu titlana á í Noregi. Það eru þeir
Styrmir Arnason með Boða frá
Gerðum og Vignir Siggeirsson með
Þyril frá Vatnsleysu en staða þeirra
Loga Laxdal og Sigurbjöms í úrtök-
unni er góð í augnablikinu.
Skagfirðingar
opna hrossabúin
SKAGFIRSKIR hrossabændur
hyggjast opna hús sín fyrir almenn-
ingi næsta laugardag að viku liðinni
þar sem fólki verður gefinn kostur á
að heimsækja nokkur þekkt ræktun-
arbú og kynna sér starfsemina, skoða
stóðhrossin og gæðinga í reið. Einnig
verður bömin leyft að fara á hestbak.
Búin sem bjóða fólki heim að þessu
sinni era Hólar, Vatnsleysa, Flugu-
mýri, Miðsitja og Hafsteinsstaðir.
Tekið verður á móti gestum frá
klukkan 13 til 17. Jafnframt þessu
verður kynningarsýning á skagfirsk-
um hrossum á Vindheimamelum um
kvöldið og einnig fara þar fram úrslit
í íþróttamóti sem haldið verður þenn-
an sama dag. Það er Hrossaræktar-
samband Skagfirðinga sem stendur
að þessari dagskrá ásamt ýmsum að-
ilum úr héraðinu og er ætlunin að
bjóða árlega upp á slíkan viðburð.
V
>
Margeir Pétursson sigrar á minning-
armóti um Guðmund Arnlaugsson
Morgunblaðið/Sverrir
FRÁ minningarmóti um Guðmund Arnlaugsson.
SKAK
Menntaskðlinn við
Hamrali I fð
MINNINGARMÓT UM
GUÐMUND ARNLAUGSSON
16.júní1999
ÞRIÐJA minningarmótið um Guð-
mund Amlaugsson var haldið í há-
tíðarsal Menntaskólans við
Hamrahlíð, miðvikudaginn 16.
júní. Keppendur vora 16 talsins og
kepptu allir við alla. Tefldar vora 5
mínútna hraðskákir. Meðal þátt-
takenda voru 7 stórmeistarar, 2 al-
þjóðlegir meistarar auk 7 annarra
sterkra skákmanna.
Stórmeistarinn Margeir Péturs-
son sigraði á mótinu, hlaut 12 vinn-
inga í 15 umferðum. Margeir hefur
verið með í þessum mótum frá
upphafi og óhætt er að segja að
leið hans hafi legið upp á við. Árið
1997 lenti hann í 9.-12. sæti, í fyrra
náði hann þriðja sæti og nú sigrar
hann. Greinilegt er að hann hefur
ekki látið umstangið í kringum
stofnun nýs verðbréfafyrirtækis
slá sig út af laginu í skákinni. Mar-
geir og Jóhann Hjartarson tefldu
saman í síðustu umferð og lauk
þeirri skák með jafntefli, en Jó-
hann þurfti að vinna til að verða
jafn Margeiri í 1. sæti. Margeir
tapaði aðeins einni skák, gegn
Þresti, en Þröstur fékk 8 vinninga
í síðustu 9 skákum sínum.
Helgi Ólafsson, sem sigraði á
tveimur fyrstu mótunum, varð í 2.-
4. sæti að þessu sinni með 11 vinn-
inga. Jafnir honum urðu Jóhann
Hjartarson og Þröstur Þórhalls-
son, sem varð jafn Helga að vinn-
ingum í fyrra. Úrslit urðu annars
sem hér segir:
1. Margeir Pétursson 12 v.
2. -4. Helgi Ólafsson 11 v.
2.-4. Jóhann Hjartarson 11 v.
2.-4. Þröstur Þórhallsson 11 v.
5. Jón Viktor Gunnarsson 10 v.
6. -7. Hannes Hlífar Stefánsson 9 v.
6.-7. Karl Þorsteins 9 v.
8. Jón L. Amason 8 v.
9. -10. Guðmundur Siguijónsson 7 v.
9.-10. Róbert Harðarson 7 v.
11.-12. Jón Garðar Viðarsson 5!4 11.-12.
Þorsteinn Þorsteinsson 5V4 v.
13.-14. Ágúst S. Karlsson 4'A v.
13.-14. Sigurbjöm Björnsson 4V4 v.
15. Bragi Halldórsson 3V4 v.
16. Stefán Bergsson V/2 v.
Eins og sést á þessari upptaln-
ingu var mótið afar sterkt og enn
einu sinni tefla nær allir íslensku
stórmeistaramir saman í skák-
móti. Sérstaklega er ánægjulegt
að sjá Guðmund Sigurjónsson,
stórmeistara, taka þátt í sínu öðra
móti á þessu ári, en hann tók
einnig þátt í Stórmeistaramóti
Grand-Rokks í mars. Hann hefur
verið ótrúlega fljótur að ná sér aft-
ur á strik í skákinni, en hann hefur
lítið teflt frá 1988. Guðmundur
vakti mikla athygli þegar hann tók
þátt í alþjóðlegum skákmótum fyr-
ir það hversu hugmyndaríkur og
sókndjarfur hann var. Hann á sér
því marga aðdáendur bæði hér-
lendis og erlendis eins og nánar
verður vikið að í skákþætti Morg-
unblaðsins á næstunni.
Eftir tvær fyrstu umferðirnar
var aðeins einn maður efstur,
Bragi Halldórsson. Hann byrjaði á
því að leggja stórmeistarana, Jón
L. Amason og Guðmund Sigurjón-
son, en Braga tókst ekki að fylgja
þessari glæstu byrjun eftir og end-
aði með 3Vi vinning.
Stefán Bergsson er ungur og
efnilegur skákmaður, sem þama
fékk í fyrsta sinn að etja kappi við
sterkustu skákmenn landsins.
Stefán, sem fyrir skömmu varð
Skákskólameistari, má vel við una
að hafa náð lVz vinningi gegn
sterkustu skákmönnum landsins.
Skákstjórar vora þeir Guð-
mundur Sverrir Jónsson og Krist-
ján Öm Elíasson.
Ný heimasiða FIDE
Fyrir skömmu var minnst á það
hér í skákþættinum að vefsíða
FIDE hefði ekki verið uppfærð frá
því á síðasta ári. Það var líkt og
FIDE hefði heyrt af þessari gagn-
rýni, því daginn eftir var samband-
ið búið að koma upp nýrri vefsíðu:
www.data.ru/fide. FIDE lofar bót
og betran á útreikningi alþjóðlegu
skákstiganna, en eins og einnig
hefur komið fram í skákþættinum
var skammarlega staðið að útgáfu
stigalistans í janúar. Næsti listi er
væntanlegur í byrjun júlí.
Ekki era vandamál FIDE þó öll
úr sögunni. Enn á eftir að sjá
hvernig heimsmeistarakeppninni í
Las Vegas reiðir af í næsta mán-
uði. Þá hefur hátíðarhöldum í til- .
efni af 75 ára afmæli FIDE verið
frestað. Þau áttu að fara fram í
París í lok þessa mánaðar, en hef-
ur verið frestað til nóvember.
Þess má geta að á hinni nýju
vefsíðu FIDE era ýmsar upplýs-
ingar sem enn hafa ekki borist
skáksamböndunum.
Heimsmeistarakeppni tölva
Níunda heimsmeistarakeppni
tölva í skák stendur nú yfir í
Paderbom í Þýskalandi. Mótið
hófst 14. júní og því lýkur 20. júní.
Tefldar era sjö umferðir eftir
svissneska kerfinu. Umhugsunar-
tíminn er tvær klst. á 40 leiki, síð-
an ein klst. á 30 leiki og að lokum
hálftími til að Ijúka skákinni. Það
era ICCA samtökin (International
Computer Chess Association) sem
skipuleggja keppnina. Þrjátíu for-
rit taka þátt í keppninni, þar á
meðal flest sterkustu skákforrit
heims. Langmest gróska á þessu
sviði er í Evrópu og þaðan koma
flest forritin. Lengst að kemur for-
ritið LambChop, en höfundur þess
er frá Nýja-Sjálandi.
Þegar fimm umferðum var lokið
var staðan þessi:
1.-5. Hiarcs 4 v.
1.-5. Shredder 4 v.
1.-5. Fritz 4 v.
1.-5. Ferret 4 v.
1.-5. Nimzo 4 v.
6.-8. Junior 3'/z v.
6.-8. Cilkchess 3!4 v.
6.-8. DarkThought 3!/z v.
9.-12. Virtual-Chess-X 3 v.
9.-12. Rebel 3 v.
9.-12. ChessTiger 3 v.
9.-12. Isichess 3 v.
Hiarcs, Shredder og Nimzo era
einu forritin sem ekki hafa tapað
skák.
Anand-Karpov
Anand átti ekki í nokkram vand-
ræðum með Karpov í sex skáka
einvígi sem þeir tefldu með aðstoð
tölvu. Meðan á skákunum stóð
höfðu þeir bæði aðgang að skák-
gagnagrunni og skákforriti. Anand
sigraði með fimm vinningum gegn
einum vinningi Karpovs. Anand er
af þeirri kynslóð skákmanna sem
hafa náð að nýta sér tölvutæknina
til hins ýtrasta. Karpov mætti hins
vegar illa undirbúinn til leiks og á
milli skáka vora skipuleggjendur
einvígisins önnum kafnir við að
kenna honum ýmis grandvallarat-
riði í notkun skákgagnagrunna.
Eins og við var að búast lenti hann
síðan í alvarlegu tímahraki í flest-
um skákanna.
Boðsmót TR 1999
Fjórum umferðum af sjö er nú
lokið á Boðsmóti Taflfélags
Reykjavíkur. Þeir Jón Viktor
Gunnarsson, Arnar E. Gunnarsson
og Ólafur í. Hannesson era efstir á
mótinu með 3V2 vinning af fjórum.
Boðsmótið er liður í Bikar-
keppninni í skák sem TR stendur
að ásamt Taflfélaginu Helli, Taflfé-
lagi Garðabæjar, Hafnarfjarðar og
Kópavogs.
Hraðskákmót hjá Grand-Rokk
Taflfélag Grand-Rokks efnir til
hraðskákmóts laugardaginn 19.
júní klukkan 14. Efstu menn hljóta
verðlaun. Skráning fer fram á
Grand-Rokk, Smiðjustíg 6. Einnig
er hægt að skrá sig í síma 697
6256.
Hraðskákmót á Akureyri
Júníhraðskákmót Skákfélags
Akureyrar verður haldið í skák-
heimilinu að Þingvallastræti 18,
Akureyri, sunnudaginn 20. júní kl.
20. Allir velkomnir.
Skákmót á næstunni
Tilkynningar um skákmót og
aðra viðburði sendist til umsjónar-
manna skákþáttar Morgunblaðs-
ins. Tölvupóstfangið er
dadi@vks.is. Einnig má senda
annað efni og athugasemdir við
skákþættina á sama póstfang.
19.6. Grand-Rokk. Hraðskákmót kl. 14
20.6. Sf. Akureyrar. Hraðskákmót kl. 20
25.6. Hellir. Jónsmessumót kl. 22
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson