Morgunblaðið - 19.06.1999, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
J
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Ferdinand
Smáfólk
DID YOU NOTICE
50METHIN6?
UIHEN I BK0U6HT YOUR
51/PPEROUT, I DIPN'T
I U)A5 WONDERINÖIF
YOU NOTICED THAT..
Tókstu eftir Eg gekk ekki beint áfram
einhveiju? þegar ég færði þér matinn
þinn..ég eiginlega lallaði
áfram..
Ég var að velta því fyrir
mér hvort þú tékst
eftir því..
I DON'T KNOW
U)HAT'5 WR0N6 WITH
ME..I DIPN'T
NOTICE THAT..
Ég veit ekki hvað er að
mér..ég tók ekki eftir
því.
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Opið bréf til bæjar-
yfírvalda á Akureyri
Frá nokkrum íbúum við Hamarsstíg
og Mýrarveg:
VIÐ Mýrarveg býr nú sárt og reitt
fólk, sem til skamms tíma voru sáttir
íbúar við samfélagið og stoltir af að
vera Akureyringar. Ibúarnir hafa
flestir búið lengi í bænum, telja sig
þokkalega nýta þegna og jafn rétt-
háa og hverja aðra meðborgara.
Því skiljum við ekki að meirihluti
skipulagsyfírvalda skuli ætla að
varpa skugga á hús okkar og lóðir
alla daga ársins, líka þegar sól er
hæst á lofti. Reiði okkar snýr að yfír-
völdum bæjarins, sem hafa, eins og
ýmsum er kunnugt, heimilað bygg-
ingu tveggja háhýsa á landræmunni
á milli Mýrarvegar og Kotárgerðis.
Er framvinda málsins með ein-
dæmum, og teljum við íbúar og hús-
eigendur að verið sé að ganga gróf-
lega á rétt okkar. Ekki er einungis
vafasamt að lagalegum þáttum hafi
verið framfylgt sem skyldi, heldur
þykir einnig sem gleymst hafí að
hafa siðferði og sanngimi uppi við,
er mál þetta var unnið. Kallast það
víst valdníðsla.
Svikin loforð
Það vill enginn láta gefa sér loforð
og svíkja síðan, eins og raunin hefur
orðið. Þrátt fyrir það hafa nábúar við
svæðið ítrekað rétt fram sáttarhönd
í málinu, en á hana verið jafn oft
slegið. Og rökleysa skipulagsyfír-
valda er slík, að þau túlka land-
ræmuna á milli Mýrarvegar og
Kotárgerðis, sem ætlun þeirra er að
byggja umrædd háhýsi á, en er í
raun ekkert pláss fyrir, sem „sér-
stakt hverfí“. Á það að verja þau fyr-
ir að þurfa að taka eðlilegt tillit til
nærliggjandi húsa, svo sem lög
kveða á um. Með öðrum orðum:
Þessi tvö hús, ef upp komast, standa
ein og sér í sérstöku hverfi. Skipu-
lagsyfirvöld telja einnig að „ákvæði
aðalskipulags um hverfisvemd eigi
fyrst og fremst við um eldri hverfi
bæjarins“. Við sem búum við Mýrar-
veginn í fjöratíu til fímmtíu ára
gömlum húsum höfum fram til þessa
talið þau komin nokkuð við aldur.
Er gott að búa á Akureyri?
Er fátt eitt talið, sem athugunar-
vert er í máli þessu, og veldur íbúum
við Mýrarveg hugarangri. Sem betur
fer hafa fæst okkar kynnst innviðum
bæjarkerfísins fyrr, en reynslan sem
við nú fáum er bitur, og henni erfitt,
ef ekki ómögulegt að kyngja. Á hug-
ann leita ýmsai' hugsanir, svo sem
hvort vinnubrögð gagnvart íbúunum
sem hér um ræðir, geti átt þátt í því
að við Akureyringar eram ekki fleiri
en við eram, og hvort hér sé að leita
einhverra skýringa á, hvers vegna
fólk í nágrannasveitarfélögum kýs
ekki að sameinast Akureyringum.
En við erum öll sem eitt afar ósátt
við yfirvöld bæjarins, við sem til
skamms tíma stærðum okkur af að
vera Akureyringar. Áður sögðum við
hverjum sem var að hér vildum við
vera, hér væri gott að búa. Ekkert
okkar flytur þann boðskap þessa
dagana. Því viljum við, enn og aftur,
koma á framfæri ósk til yfirvalda
bæjarins, að taka þessa ákvörðun
aftur og koma á sátt um fyrirhugað-
ar framkvæmdir.
Ef ekki verður orðið við þeirri ósk,
fer þetta mál til úrskurðamefndar
skipulagsmála, og hvaða afgreiðslu
sem málið fær þar, stendur eftir að
siðferði í skipulagsmálum Akureyr-
arbæjar er á óásættanlegu stigi.
Ef hins vegar mál þróast á þann
veg að umrædd hús verði buggð, er
það ósk neðanskráðra, að Akureyr-
arbær leysi til sín húseignir okkar.
Við komum ekki til með að sætta
okkur við þær aðstæður sem bæjar-
félagið ætlar að búa okkur, og viljum
þá finna okkur búsetu annars staðar,
innan bæjarins eða utan.
VIGDÍS JÓNSDÓTTIR,
GUÐMUNDUR ÓLSEN,
Hamarsstíg 38, Akureyri,
MINNIE EGGERTSDÓTTIR,
SIGMUNDUR ÞÓRISSON,
Mýrarvegi 114, Akureyri,
GERÐUR SIGURÐARDÓTTIR,
SVAVAR GUNNARSSON,
Mýrarvegi 116, Akureyri,
LILJA RAGNARSDÓTTIR,
BALDUR KRISTJÁNSSON,
Mýrarvegi 118, Akureyri,
LÁRA LÁRUSDÓTTIR,
ADAM INGÓLFSSON,
Mýrarvegi 120, Akureyri,
STEFANÍA ÞORSTEINSDÓTTIR,
GÍSLI PÁLSSON,
Mýrarvegi 122, Akureyri.
Þökkum stuðninginn
Frá þremur blakstúlkum í KA:
VIÐ eram þrjár úr KA sem fóram til
Liechtenstein á smáþjóðaleikana 22.
maí síðastliðinn, til að keppa fyrir
hönd íslands í blaki.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu á meðan leikunum stóð þurfti
skotmaður einn að borga 55.000
krónur úr eigin vasa. Sagt var að
hann væri sá eini, en þar var svo
sannarlega farið með rangt mál því
við þrjár ásamt öllum öðram í
blakliðinu þurftum einnig að borga
55.000 krónur á mann úr eigin vasa.
Þar sem við eram fátækir námsmenn
ákváðum við að leita aðstoðar hjá
fyrirtækjum í bænum. í byrjun var
útlitið svart en að lokum gekk allt
vel. Fyrirtækin vora mjög hjálpsöm
og án þeirra hjálpar hefðum við ekki
komist á leikana. Eftirtalin fyrirtæki
veittu okkur styrki og þökkum við
þeim fyrir frábæran stuðning: Sjall-
inn, Endurvinnslan, Kaupþing Norð-
urlands, Framtal sf., Læknaþjónust-
an, Viðar ehf., VÍS, Sparisjóður
Norðlendinga, Matur og mörk, Út-
gerðarfélag Akureyringa, Möl og
sandur, Islandsbanki, Vörabær,
Tryggingamiðstöðin, Búnaðarbank-
inn, Sjóvá Almennar, Höldur ehf.,
Vörður og Fatahreinsunin.
Kærar þakkir,
BIRNA BALDURSDÓTTIR,
HILDIGUNNUR
MAGNÚSDÓTTIR,
JÓNA HARPA VIGGÓSDÓTTIR.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtinear teliast sambvkkia betta. ef ekki fvleir fvrirvari hér að lútandi.