Morgunblaðið - 19.06.1999, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Evrópumótið í brids á Möltu
17. júní ekki
happadagur ís-
lensku bridsliðanna
BRIDS
Guðm. Sv.
Hermannsson.
EVRÓPUMÓTIÐ
Evrdpumótið í brids er haldið á
Möltu dagana 13.-26. júní. íslending-
ar keppa í opnum flokki og kvenna-
flokki í sveitakeppni og tvímenningi
kvenna. Hægt er að fylgjast með
mótinu á Netinu, m.a. á slóðinni:
http://www .bridge.gr/tourn/Malta.9
9/malta.htm
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN 17.
júní var ekki happadagur hjá ís-
lensku bridsliðunum á Evrópumót-
inu á Möltu. Þrír leikir voru spilaðir í
báðum flokkum og í opna flokknum
byrjuðu Islendingar á að tapa fyrir
Norðmönnum, 0-25 en þeir löguðu
stöðuna aðeins með því að vinna
bæði Austurríkismenn og Hollend-
inga 17-13 í hinum leikjunum tveim-
ur pm daginn.
I kvennaflokki tapaði íslenska liðið
fyrir Hollendingum 14-16 og fyrir
Frökkum 13-17, sem hvortveggja
^ voru viðunandi úrslit. En í 5. umferð
um kvöldið datt botninn úr spila-
mennskunni og liðið tapaði 1-25 fyrir
Austurríki.
I 14. umferð í gærmorgun vann ís-
lenska liðið það þýska, 16-14, og var
eftir það í 24. sæti með 202 stig.
Norðmenn eru í miklu stuði um
þessar mundir á Möltu og þeir voru í
efsta sætinu með 275 stig eftir 21-9
sigur á Búlgaríu. Frakkar voru aðrir
með 271 stig, ítalir höfðu 264 stig,
Spánverjar 260, Pólverjar 256,
■'i Búlgarir 254, Belgar 251, Svíar 250
og Hollendingar og írar 249 stig. í
gær spilaði Island við Rúmena og
Svía og spilar í dag við Rússa og Lí-
bani.
Ein umferð var í kvennaflokki í
gær og þá spilaði ísland við Finna.
Leikurinn tapaðist 10-20 og eftir 6
umferðir er íslenska liðið í 19. sæti
með 74 stig. Danir eru efstir með 121
stig, Norðmenn hafa 113 og
Hollendingar 111 stig.
Það er mikilvægt að enda í efri
hlutanum í opna flokknum því á
næsta Evrópumóti verður þátttöku-
þjóðunum skipt í tvær deildir og
verður þar að mestu farið eftir ár-
angrinum á Möltu en einnig tekið
eitthvað tilllit tO árangurs á undan-
' farandi mótum.
Spilamennska spilaranna í opna
flokknum er reiknuð út samkvæmt
butlertvímenningsskori, en sömu
spilin eru spiluð í öllum leikjum.
Samkvæmt því hafa Magnús Magn-
ússon og Þröstur Ingimarsson spilað
langbest af íslensku pörunum og
eftir 13 umferðir voru þeir í 16. sæti
af 108 skráðum pörum með 0,64
impa að meðaltali í spili. Anton og
Sigurbjöm Haraldssynir voru með
-0,37 impa að meðaltali í spili og As-
mundur Pálsson og Jakob Kristins-
son með -0,52 impa að meðaltali. Ef-
stir vom Búlgaramir Mihov og Na-
nev með 1,17 impa að jafnaði 1 spili
og Frakkarnir Bitran og Voldoire
~lf komu næstir með 1,06 impa.
Belgamir Jeunen og Coenraets vora
með 0,99 impa og Norðmennimir
Furunes og Helness og Sælens-
mynde og Brogeland með 0,88 og
0,89 impa.
Sex sagnstiga munur
Norðmennimir era til aOs vísir á
Möltu þótt stórstjaman þeirra, Geir
Helgemo, sé ekki í liðmu. Norð-
mennimir unnu alla leiki sína 17.
júní, þar á meðal við ítali, 16-14. Hér
er eitt athyglisvert spil úr þeim leik
. þar sem spiluð var slemma við annað
v borðið en bútur á fyrsta sagnstig við
hitt!
Suður gefur, allir á hættu.
Við annað borðið sátu ítalimir
Soldano De Falco og Guido Ferraro
AV og Norðmennimir Erik Sæ-
lensminde og Boye Brogeland NS.
Italimir létu skiptinguna hlaupa
með sig í gönur.
Vestur
♦ ÁG9
¥ D1086
♦ -
* 1097642
Norður
* 108643
¥ G92
♦ 862
+ 83
Austur
A D
VÁK754
♦ KD10753
*K
Suður
* K762
¥ 3
* ÁG94
* ÁDG6
Vestur Norður Austur Suður
Ferraro Sælenssm.. DeFalco Brogeland 1 lauf
pass pass 2grond pass
31auf pass 3spaðar pass
4 spaðar pass 4grönd pass
6 hjörtiV/
De Falco sýndi tvo lægstu ósögðu
litina með 2 gröndum og þótt ég
geti ekki skýrt sagnimar sem
fylgdu á eftir virðist ljóst að Ferr-
aro sagði býsna mikið á spilin sín.
Við fyrstu sýn virðist slemman ekki
vera svo vitlaus, en það kom fljótt í
ljós að slagina vantaði. Norður spil-
aði út laufi og suður tók laufaásinn
og spilaði laufadrottningu. I þessari
legu gengur engin spilaleið en Ferr-
aro ákvað að spila upp á 3-3 Iaufa-
legu. Hann trompaði laufið, tromp-
aði tígul og trompaði lauf en þegar
norður henti tigli var spilið orðið
vonlaust og fór á endanum tvo nið-
ur, 200 til Norðmanna.
Við hitt borðið sátu Georgio Du-
boin og Norberto Bocchi NS og
Jon-Egil Furanes og Tor Helness
AV. Þar urðu sagnir stuttar. Du-
boin í suður opnaði á 1 tígli og allir
sögðu pass. Vörnin missti einn slag
þegar Helness spilaði aldrei trompi
þrátt fyrir nokkur tækifæri, og Du-
boin fékk á endanum fjóra slagi á
tromp og laufaásinn en Norð-
mennnimir fengu 200 og 9 impa.
Ýmist fimm niður
eða slétt unnið
Þetta spil úr 7. umferð Evrópu-
mótsins var mikið sveifluspil þar
sem menn ýmist unnu þrjú grönd
eða fóra fimm niður:
Vestur
* KG7642
¥2
* K62
* 1073
Norður
* 983
¥ K10863
* 109875
* -
Austur
* D10
¥ DG954
* ÁG4
* D94
Suður
* Á5
¥ Á7
* D3
* ÁKG8652
Við nánast öll borð var lokasamn-
ingurinn 3 grönd í suður, víða do-
blaður og niðurstaðan skiptist í tvö
horn. Annað hvort unnust þrjú
grönd, stundum með yfirslag, eða
þau fóra fimm niður! Stærstu sveifl-
umar urðu í leikjum Rússa og Ira
og Islendinga og Israelsmanna þar
sem þrjú grönd unnust dobluð við
annað borðið og fóra fimm niður
dobluð við hitt. Því miður var sveifl-
an til Israels í leik sem endaði 15-
Í5.
Útspil komu frá vestri í öllum lit-
um, jafnvel laufí og þá var eftirleik-
urinn auðveldur fyrir sagnhafa,
eins og eftir hjartaútspil. En þótt
vestur spilaði út spaða var björn-
inn ekki unninn. Sagnhafi gaf einu
sinni og fríaði síðan laufið og inni á
laufadrottningunni varð austur að
gera upp við sig hvort hann ætti að
spila hjarta eða tígli. Þegar horft
er á allar hendur er auðvelt að
segja að AV eigi að nota hliðarköll í
svona stöðu og þá væri vestur bú-
inn að sýna tígulkónginn gegnum
laufið, en það þarf ekki að vera
jafn augljóst við borðið og í mörg-
um tilfellum spilaði austur hjarta
til baka.
í DAG
, Vaknið,
Islendingar
ÉG vil fá að vita hvort ekki
eigi að leyfa fólkinu í land-
inu að kjósa um það hvort
eigi að leyfa virkjunina á
Eyjabakkasvæðinu. Það er
til skammar að eyðileggja
eigi svona landið. Finnst
mér kominn tími til að fólk
sem er á móti þessu láti í
sér heyra. Fólkið í landinu
á að fara að vakna til vit-
undar um hvað er verið að
gera landinu okkar. Það er
slæmt að við skulum vera
að eyðileggja varplönd
fuglanna og er ekki nóg að
hrossin éti upp landið fyrir
okkur? Ef eyðileggja á
landið, endar það með að
fólk flýr landið.
Ein vonsvikin.
Tímavélin
ÉG las grein í Morgun-
blaðinu í dag, miðvikudag-
inn 16. júní, eftir Jón
Kjartansson, formann
Leigjendasamtakanna, þar
sem hann talar um hörku
leigumarkaðarins og að
fólk sé hrætt við að standa
á rétti sínum. Ég þekki
sjálf til þessara mála en að
það sé þrælsótti eins og
Jón segir í grein sinni er
ég nú ekki alveg sammála.
Það er lögreglan sem fólk
leitar til í skelfingu þegar
því er hótað í síma jafnvel
líkamsmeiðingum og kom-
ið á dyrnar til að reyna að
brjótast inn til leigutaka
og finnst mér hún alls ekki
VELVAKAJVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi tii föstudags
standa sig nógu vel. Ég
varð fyrir slíku þar sem
lögreglan sem á vettvang
kom sagði að sér kæmi
þetta ekki við. Þetta væri
mál milli mín og leigusala.
Ég var mjög hissa og
hneyksluð á þessum svör-
um lögreglu. Það sem er
meinsemdin í þessu
ástandi eru gamlir fordóm-
ar sem hér ríkja. Hér áður
fyrr var litið á leigutaka
sem pakk sem leigusali óð
oft inn á með lyklum,
skammaði það ef óhreint
leirtau var í vaski eða bara
kom til þess að líta eftir
þessum aumingjum sem
náðarsamlegast fékk að
vera innandyra gegn háu
gjaldi ef það hlýddi ekki
leigusalanum. Og því mið-
ur örlar enn á þessum
hugsunarhætti að það
megi henda leigutaka út
hvenær sem leigusala
þóknast ef hann þarf íbúð-
ina strax af einhverjum
ástæðum. Það er orðið mál
til komið að leigusalar
hoppi upp í tímavélina og
komi til nútíðar og fari eft-
ir þeim lögum sem um
þetta gilda.
Leigutaki.
Um strætó
ÉG hef séð nýlega að aug-
lýstar eru ókeypis strætis-
vagnaferðir í miðbæinn fyr-
ir fólk sem vill skilja bílana
sfna eftir við Háskólann.
Sem sagt, ókeypis ferðir
fyrir bílaeigendur. En hvað
með það fólk sem notar ein-
göngu strætisvagna, það
virðist ekkert gert fyrir það
fólk til að laða það að, sífellt
er verið að breyta áætlun-
artímum og breyta ferðum.
Farþegi.
Vegna athugasemdar
frá ópólitiskum
neytanda
VEGNA athugasemdar frá
„ópólitískum neytanda" í
Velvakanda 6. júní sl. vill
Hagkaup koma því á fram-
færi að Frissi fríski er og
hefur verið seldur í Hag-
kaupi svo lengi sem Frissi
hefur verið á markaði.
Hagkaup býður því „ópóli-
tískan neytanda“ velkom-
inn í Hagkaup og biður
hann jafnframt afsökunar
á því að hafa fengið rangar
upplýsingar hjá starfsfólki
Hagkaups. Hagkaup hefur
aldrei hætt að selja vörur
frá KEA, hvorki eftir að
þeir opnuðu verslun hér í
Reykjavík eða fyrr. Það er
stefna Hagkaups að bjóða
viðskiptavinum sínum þá
vöru sem þeir óska eftir
hverju sinni.
Kveðja,
Jón Björnsson,
framkvæmdastjóri.
Tapað/fundið
Kvenmannsúr
í óskilum
KVENMANNSÚR fannst
á Langholtsvegi á gang-
stéttinni gegnt húsinu nr.
85. Eigandi vitji þess í
Skipasund 43 eða hringi í
síma 553 4300.
Canon-myndavél týnd-
ist á leið frá Kanarí
CAN ON-ljósmyndavél
týndist á leiðinni frá Kanarí
15. mars sl. Vélin var í
hulstri. I vélinni var filma
sem eigandi saknar sárlega.
Skilvís finnandi vinsamlega
hafi samband við Jóhönnu í
síma 554 1140. Fundarlaun.
Hjólkoppur týndist
við Bústaðaveg
HJÓLKOPPUR týndist á
Buick-bíl síðdegis sl. þriðju-
dag á Bústaðavegi neðan
við Ásgarð. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
5861950. Hjalti Bjömsson.
Sómi óskar
eftir heimili
SÓMI, sem er síamskött-
ur, óskar eftir nýju heimili.
Hann er að verða fimm
ára, er vel upp alinn og
gælinn. Upplýsingar í sfma
564 4320.
SKAK
Hinsjón Margeir
Pcturssnn
STAÐAN kom upp á Sig-
eman & Co. alþjóðamótinu í
Malmö í Sviþjóð í júní. Bor-
is Gelfand (2.690), Hvíta-
Rússlandi, hafði hvítt og
átti leik gegn Joel Lautier
(2.595), Frakklandi.
24. Hxh6+! (24. HxfB! gerði
sama gagn) 24. _ gxh6 25.
Bxf6+ _ Hg7 26. Bxg7+ _
Dxg7 27. Hgl og svartur
gafst upp. Gelfand sigraði
örugglega á mót-
inu með 7 v. af 9
mögulegum. 2.
Movsesian, Tékk-
landi 6 v., 3.
Agrest, Svíþjóð
ó'/í v., 4.6.
DeFirmian,
Bandaríkjunum,
Lautier, Frakk-
landi og Timman,
Hollandi 5 v.,
7._8. Lars Karls-
son og Jeseper
Hall, Svíþjóð 4 v„
9. Hector, Svíþjóð
2 v. 10. Ákesson,
Svíþjóð VÁ v.
Víkverji skrifar...
AÐ MATI Víkverja vora það orð
í tíma töluð er Clinton Banda-
ríkjaforseti hóf baráttu gegn ofbeld-
isdýrkun skemmtiiðnaðarins í
Bandaríkjunum ekki alls fyrir
löngu. Að vonum bragðust peninga-
furstamir í Hollywood illa við og
daginn eftir að forsetinn tilkynnti
um rannsókn á markaðsvæðingu of-
beldisins í kvikmyndum og afþrey-
ingariðnaði sökuðu þeir hann um
nomaveiðar. Víkverji tekur hins
vegar ofan fyrir Bandaríkjaforseta
vegna afstöðu hans, því það þarf
mikinn kjark til að ganga í berhögg
vtö peningavaldið vestan hafs.
í sannleika sagt er Víkverji sleg-
inn óhug vegna vaxandi ofbeldis-
hneigðar í heiminum, ekki síst með-
al ungs fólks, og höfum við Islend-
ingar ekki farið varhluta af þeirri
þróun fremur en aðrir. Nýleg dæmi
um skelfileg ofbeldisverk skóla-
bama í Bandaríkjunum hljóta að
vekja menn til umhugsunar, enda
viðbúið að viðbrögð Clintons forseta
megi rekja til þessara voðaverka.
Það er eitthvað meira en lítið að í
þjóðarsálinni þegar svo hörmulegir
atburðir era famir að endurtaka sig
og sjálfsagt má að einhverju leyti
rekja þessa þróun til hins taum-
lausa ofbeldis, sem haldið er að
bömum og unglingum í sjónvarpi
og í kvikmyndum.
VÍKVERJI er þannig gerður að
hann er í eðli sínu andvígur
hvers kyns boðum og bönnum og
hlynntur frelsi einstaklingsins til
orðs og æðis. En frelsið er vandmeð-
farið og ef menn komast að þeirri
niðurstöðu að framleiðsla ofbeldis-
kvikmynda og tölvuleikja, sem
ganga út á að vega mann og annan,
geti verið undirrót vaxandi ofbeldis-
hneigðar verður vitaskuld að grípa í
taumana. Að mati Víkverja kæmi þá
vel til greina að banna framleiðslu á
slíku afþreyingarefni, eða þá
þrengja svo aðgang að því, að það
liggi ekki fyrir bömum og ungling-
um eins og opin bók, eins og nú er.
Og það er umhugsunarefni fyrir
okkur Islendinga hvort ekki sé tíma-
bært að takmarka sýningar á of-
beldiskvikmyndum í sjónvarpi og
jafnvel einnig í kvikmyndahúsum.
í ljósi þessa var athygli Víkverja
vakin á auglýsingu um orkudrykk,
sem birst hefur í sjónvarpi að und-
anfómu. Þar sést ungur maður
bergja á drykknum og við það
breytist hann í ofbeldisfullan slags-
málahund, sem gengur í skrokk á
saklausu fólki. Og boðskapurinn
virðist vera sá að slíkt sé eftirsókn-
arvert. Sjálfsagt hafa hvorki fram-
leiðendur drykkjarins né hönnuðir
auglýsingarinnar haft neitt slíkt í
huga við gerð hennar, en Víkverji
fær ekki betur séð en að hér sé
beinlínis verið að höfða til ofbeldis-
hneigðar?
xxx
yÍKVERJI vill í framhaldi af
þessu benda á ágæta grein eftir
Omar Smára Armannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjón, sem birt var í
Morgunblaðinu síðastliðinn þriðju-
dag, en greinin ber heitið „Gegn of-
beldi“. Þar fjallar Ómar Smári um
forvarnir gegn ofbeldisbrotum og
mikilvægi þess að fækka slíkum af-
brotum, „en það verður ekki gert
nema með ákveðni þeirra, sem að
því geta stuðlað, svo og eindreginni
þátttöku almennings," eins og það
er orðað.
Greinarhöfundur bendir á að of-
beldi geti verið af margvíslegum
toga, bæði líkamlegt og andlegt.
Hann bendir ennfremur á að samfé-
lög geti verið ólík hvert öðra hvað of-
beldistíðni og tegundir ofbeldis
snertir, enda aðstæður mismunandi
frá einum stað til annars. „Almennt
má þó segja að því minna sem samfé-
lagið er, því betur á að vera hægt að
draga úr ástæðum, áhrifum og tíðni
ofbeldis," segir Ómar Smári í grein
sinni. Víkveiji bindur vonir við að ís-
lendingar fari nú að hugsa sinn gang
og hefji sem fyrst skipulagt forvam-
arstarf gegn ofbeldi í landinu.