Morgunblaðið - 19.06.1999, Page 72
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
T
Morgunblaðið/Kristinn
LEIÐANGURSMENN skoðuðu í gær hiii mikilfenglegu Dimmugljúfur. í gær var farið niður þau á kajökum, en í dag hefst leiðangur á gúmmíbátum.
50 sljórn-
endur -
ein kona
HJÁ 50 stærstu fyrirtækjum
landsins er ein kona stjómar-
formaður og ein kona forstjóri.
Þetta kemur m.a. fram í
nýjum bæklingi sem Skrifstofa
jafnréttismála hefur gefíð út
og ber heitið Konur og völd.
Af tíu stærstu fyrirtækjum í
fískvinnslu og útgerð er engin
kona stjórnarformaður eða
forstjóri og hið sama gildir um
tíu stærstu fjármálafyrirtæk-
in.
I bæklingnum er fjallað um
niðurstöður athugunar á veg-
um Jafnréttisráðs á hlut
kvenna í efnahagslegum völd-
um; stjómmálum, menntun,
innan hagsmunasamtaka,
dómskerfís og stjórnarráðs.
Miklar skemmdir
/ g— í *i • •
a nskihofnmm
Reru kajökum
niður Dimmugljúfur
Akureyri. Morgunbladið.
MIKLAR skemmdir urðu á austur-
kanti fískihafnarinnar á Akurejrri í
gær, er grófst undan þilinu og þekj-
an féll niður. Tjónið hleypur á millj-
ónum króna en með snarræði tókst
að koma í veg fyrir tugmilljóna
króna tjón.
Sigtryggur Benediktsson, tækni-
fræðingur hjá Siglingastofnun Is-
lands, var kallaður norður og hann
sagði í samtali við Morgunblaðið að
færeyski verktakinn, sem er að
dýpka í fiskihöfninni, hefði orðið
fyrir því óláni að dæla undan þilinu
með fyrrgreindum afleiðingum.
Með snöram handtökum hafi hins
vegar tekist að koma í veg fyrir
stórtjón, sem hefði orðið ef þilið
'••' hefði fallið fram.
Stórvirkar vinnuvélar og dælu-
skipið Vitin, sem er að dýpka í höfn-
inni, vora notuð til að fylla framan
við þilið en alls vora settir þar um
350 rúmmetrar af efni. Sigtryggur
sagði að þilið hefði sigið á 60 metra
kafia og ljóst væri að kanturinn og
þekjan hefðu skemmst veralega á
jafnlöngum kafla. Sigið á þekjunni
var mest um 23-24 sm. Hann sagði
að ekki hefði verið kannað til hlítar
hversu mikið efni rann úr þilinu en
það yrði gert við fyrsta tækifæri.
„Ekki verður hægt að nota þilið
fyrr en eftir einhverjar vikur, sem er
mjög bagalegt þar sem viðlegupláss
er af skomum skammti," sagði Sig-
tryggur og bætti við að sjópróf vegna
atviksins færa fram á mánudag.
Dinimugljúfrum. Morgunblaðið.
FJÓRIR menn á kajökum, einn
íslenskur og þrír frá Nepal, jeru
niður Dimmugljúfur í gær. I dag
stendur til að fara gljúfrin á
tveimur gúmmíbátum og tveim-
ur kajökum.
Smári Stefánsson, 22 ára
Sauðkrækingur, varð fyrstur ís-
lendinga til að fara þessa leið en
með honum voru Rajendra
Kumargurung, Dil Kumargur-
ung og Janak Nirula.
Mennirnir reru niður Hafra-
hvammagljúfur, hrikalegasta
hluta Dimmugljúfra, frá Sauða-
dal að Brúarskógi, alls 12 km
leið. Þeir voru fjórar klukku-
stundir á leiðinni.
Eftir róðurinn niður gljúfrið
sögðu þeir að ferðin hefði verið
mjög erfið, margar erfiðar flúðir
og hringiður og sums staðar
hefði grjót hrunið niður í gljúfrið.
Mennirnir sögðust hins vegar dol-
fallnir yfir ólýsanlegri fegurð
gijúfranna.
Á fundi, sem halda átti í gær-
kvöldi, átti að skipuleggja ferð
gúmmíbátanna niður gilið í dag
en þá er ráðgert að fara á
tveimur gúmmíbátum og að í
hvorum verði sex ræðarar auk
stjórnanda. Þá verður Þorkell
Þorkelsson, ljósmyndari Morg-
unblaðsins, í öðrum bátnum en
kvikmyndatökumaður í hinum.
Leiðangursmenn hafa með sér
tvo kajaka.
Atvinnuleysistölur
Undir 2% í
fyrsta skipti
síðan 1991
2.665 manns vora að meðaltali á
atvinnuleysisskrá í maí, 1.002
karlar og 1.663 konur. Það jafn-
gildir því að 1,9% af mannafla á
vinnumarkaði hafi verið atvinnu-
laus, 1,3% karla og 2,8% kvenna.
Atvinnuleysi í maí í fyrra var
2,8%. Atvinnuleysi hefur ekki far-
ið undir 2% síðan í nóvember 1991
fyrr en nú.
Miðað við apríl fækkaði um
10,5% á atvinnuleysisskrá og miðað
við maí í fyrra var fækkunin 30,6%.
Hlutfallslega mest minnkaði at-
vinnuleysi á Vesturlandi, Austur-
landi, Suðumesjum og Norður-
landi vestra en atvinnuleysi er
mest hlutfallslega á Norðurlandi
vestra, 2,9%, og minnst á Vest-
fjörðum, 0,7%.
Atvinnuleysi karla minnkaði
meira en atvinnuleysi kvenna.
Konum á atvinnuleysisskrá fækk-
aði að meðaltali um 113 en körlum
um 199.
Vinnumálastofnun spáir því að
atvinnuleysi verði á bilinu 1,7-2% í
júní.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir hitti Hillary Clinton í Palermo á Sikiley
Hreifst af málflutnmgi
forsetafrúarinnar
SIGRIÐUR Dúna Kristmunds-
dóttir tók þátt 1 hringborðsumræð-
um um málefni kvenna ásamt Hill-
ary Clinton, forsetafrú Bandaríkj-
anna, og sjö öðram konum víðsveg-
ar að úr heiminum í Palermo á
Sikiley í gær. Að sögn Sigríðar
Dúnu sat hún fundinn að ósk frú
Hillary Clinton. Frú Clinton vildi
ræða við Sigríði Dúnu um væntan-
lega ráðstefnu um konur og lýð-
ræði, sem haldin verður á Islandi í
október næstkomandi, en frú
Clinton mun sækja þá ráðstefnu.
Konurnar átta á fundinum í gær
hafa allar verið framarlega í kven-
réttindabaráttu í sínu landi. Að
sögn Sigríðar Dúnu hafa sumar
þeirra þegar staðið fyrir ráðstefn-
um um konur og málefni þeirra
með þátttöku frú Clinton. Sigríður
Dúna er, fyrir hönd ríkisstjórnar
íslands, í forsvari fyrir ráðstefn-
unni um konur og lýðræði við ár-
þúsundamót. „Á fundi okkar fékk
frú Clinton fréttir af undirbúningi
ráðstefnunnar á íslandi, en það var
að hennar ósk að ég kom hingað til
að sitja þennan fund og hitta
hana,“ sagði Sigríður Dúna einnig.
Sigríður Dúna sagði að fundur-
inn hefði verið mjög árangursríkur
og skemmtilegur og hún hefði hrif-
ist af málflutningi frú Hillary
Clinton. „Eg var hrifin af því
hversu góða yfírsýn hún hefur yfir
málefni kvenna í heiminum og hvað
hún kemur sýn sinni vel frá sér, á
áhrifaríkan og beinskeyttan hátt,“
sagði Sigríður Dúna.
Sigríður Dúna sagði að gaman
væri að segja frá því, í tilefni af 19.
júní, að í hringborðsumræðunum
hefði veri kona frá Kúveit, en kon-
ur þar í landi hafa nýlega fengið
kosningarétt og munu kjósa í
fyrsta skipti 3. júlí næstkomandi.
Þessi kona vakti máls á því hversu
erfitt, en einnig mikilvægt, væri að
fá konur til að neyta kosningarétt-
ar síns og kjörgengis, og minntu
orð hennar mjög á orð Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur þegar hún
hvatti konur til að setja fram
kvennalista og nota kosningarétt
sinn, þegar konur kusu í fyrsta
sinn í bæjarstjórnarkosningum í
AP
Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, við komuna
til Sikileyjar.
Reykjavík árið 1908. Töldu hring-
borðskonur að kúveiskar konur
gætu sótt í smiðju íslenskra
kvenna hvað þetta varðaði.
Bifreið valt niður 25
metra djúpt gil
Stöðvaðist á
fossbrún og
stóð aftur-
endinn út af
BIFREIÐ fór út af veginum í
Bröttubrekku, valt ofan í 25
metra djúpt gil og stöðvaðist
þar á fossbrún laust fyrir kl.
16 í gær. Skv. upplýsingum
lögreglunnar í Borgarnesi
munaði minnstu að bíllinn félli
niður í um 30 metra djúpan
fossinn þar sem afturendi bfis-
ins stóð út af brúninni þegar
hann stöðvaðist. Kona sem ók
bflnum slapp með lítil meiðsli
og tókst henni að komast út úr
bflnum og upp á veg. Bifreiðin
er stórskemmd eftir velturn-
ar.