Morgunblaðið - 27.06.1999, Page 2
2 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Háskóli íslands byggir 8.000 fermetra húsnæði í Yatnsmýrinni
Norðurhliðin úr gleri
HIÐ nýja 8.000 fermetra hús Háskóla íslands, sem verið er að
byggja í Vatnsmýrinni og á að hýsa náttúruvísindagreinamar, er
ekki aðeins stærsta hús menntastofnunarinnar heldur verður þar
einn stærsti gluggi landsins, því norðurhlið hússins verður nánast öll
úr gleri, um 1.500 fermetrar.
„Hliðin sem snýr að bænum og
opna svæðinu, sem er fuglafriðland,
verður úr gleri,“ sagði Maggi Jóns-
son, arkitekt og hönnuður hússins.
„Húsið verður það hús Háskólans á
þessu svæði sem verður hvað næst
miðbænum og því sú hlið sem flestir
munu sjá.
Menn vildu hafa samgöngurýmin
í húsinu létt og opin og gjarnan að
húsið opnaði sig fyrir þessu miðbæj-
arsvæði, þannig að fólk gæti séð að
þama væri eitthvað að gerast.“
Glerveggurinn breytir
engu um verð
Maggi, sem einnig hannaði hús
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Sel-
fossi, en þar er einnig stór 1.000 fer-
metra gluggi, sagði að glugginn í
Vatnsmýrinni væri tæknilega ekk-
ert sérstaklega merkilegt fyrirbæri
og kvaðst efast um að hann væri
dýrari kostur en að hafa þama hefð-
bundinn vegg. Hann sagði að glugg-
inn, sem verður úr stálbitum og
gleri, myndi ekki breyta neinu um
verð hússins; gler væri frekar
ódýrt, einfalt og endingargott bygg-
ingarefni.
Húsið mun, eins og áður sagði,
hýsa náttúruvísindagreinamar, þar
með taldar líffræði- og jarðfræði-
greinar, sem og Norrænu eldfjalla-
stöðina, en þessi starfsemi er nú á
víð og dreif um háskólasvæðið og
bæinn.
„I eðli sínu er þetta flókið hús,
vegna þess að starfsemin þarna
verður mjög margbrotin, en í hús-
inu verða hefðbundin skrifstofuher-
bergi í bland við rannsóknarstofur
af öllum mögulegum og ómöguleg-
um gerðum. Pama verða frumur og
erfðaefni rannsökuð, sem og grjót
mulið og brætt, þama verða fyrir-
lestrasalir, tölvuherbergi og bóka-
söfn, þannig að starfsemin þarna
kemur til með að verða mjög fjöl-
breytt og flókin."
Kostnaður a.m.k.
milljarður króna
Undirbúningur að húsinu hefur
staðið í rúman áratug, en lengi hef-
ur verið fyrirhugað að byggja í mýr-
inni og því hefur staðsetningin verið
klár býsna lengi, að sögn Magga.
Gmnnurinn var gerður síðla vetrar
árið 1996 og framkvæmdir hófust
svo sumarið 1997. Armannsfell hf.
sér um þær, en áætlaður
arkostnaður þessa áfanga er um 537
milljónir króna, að sögn Magga.
Fullgert má reikna með að húsið
muni kosta a.m.k. milljarð króna, en
framkvæmdirnar em að mestu leyti
fjármagnaðar af Happdrætti Há-
skóla Islands, eins og aðrar nýfram-
kvæmdir.
„Gera þurfti granninn á tiltekn-
um tíma út af náttúruverndarsjón-
armiðum, en það hvílir sú kvöð á
þessari mýri að ekki má breyta
vatnshæðinni þegar byggt er í
henni. Þess vegna er grafrn út hola í
mýrina og dælt úr henni meðan hún
er fyllt með hrauni; holan fyllist síð-
an aftur og vatnsyfirborðið nær
sinni náttúralegu stöðu og á þessum
hraunpúða er byggt. Þetta þurfti að
gerast að vetri til til að raska ekki
varpi að vori.“
Armannsfell sér um allar fram-
kvæmdir að utan og era áætluð
verklok hinn 1. mars árið 2000.
Maggi sagði að eftir væri að bjóða
út framkvæmdimar innanstokks, og
því væri ekki ljóst hvenær Háskól-
inn gæti hafið starfsemi í húsinu.
Morgunblaðið/Kristinn
FRAMKVÆMDIR við húsnæði, sem hýsa á náttúruvísindagreinar Há-
skóla íslands, standa nú yfir, en norðurhlið hússins, sem snýr að mið-
bænum, verður öll úr gleri, um 1.500 fermetrar.
Sópað við
Systrafoss
VEÐURGUÐIRNIR hafa verið
mildari við unglingana í bæjar-
vinnunni á Kirkjubæjarklaustri
en á höfuðborgarsvæðinu í sum-
ar. Björk Gunnarsdóttir og Sig-
urbjörn Ingi Guðlaugsson lögðu
sig öll fram við að sópa og fegra
umhverfið þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins myndaði þau í
vikunni með Systrafoss í baksýn.
Hlutur RARIK minnkar
samhliða fólksfækkun
tækisins og Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur. Það hefði gengið nokkuð vel, en nú
væru horfur á að munurinn á orkuverð-
inu myndi aukast aftur nema tekið yrði
á félagslega þættinum í rekstri
RARIK. Gjaldskrá RARIK hækkar 1.
júlí nk.
Dýrt dreifikerfi
„Við eram með alla sveitadreifinguna
á okkur könnu og þar er staðan sú að
markaðurinn stendur ekki undir fjár-
magns- og rekstrarkostnaði. Við þurfum
þess vegna að borga veralega með henni.
Við höfum lagt mikla áherslu á það við
stjórnvöld að viðurkenna þá staðreynd
að raforkudreifing um alla landsbyggð-
ina er hluti af byggðastefnu stjórnvalda.
Við eram með í okkar háspennukerfi
8.000 km af raflínum, en háspennulínur í
Reykjavík era 700 km. Þetta er þétt-
býlasta svæði landsins þar sem þjónust-
an er ódýrast.“
Kaupa 85% orkunnar
af Landsvirkjun
Kristján sagði að RARIK hefði lagt
áherslu á að auka eigin orkuöflun. I dag
kaupir fyrirtækið 85% af raforkunni frá
Landsvirkjun. Kristján sagði það mat
RARIK að fyrirtækið gæti lækkað orku-
kaupareikning fyrirtækisins með því að
auka eigin orkuöflun. Þetta væri hluti af
því að búa fyrirtækið undir samkeppni í
orkuvinnslu sem framundan væri sarn-
hliða breytingum á skipulagi orkumála. í
þessu sambandi hefur fyrirtækið einkum
horft til vatnsaflsvirkjunar við Villinga-
nes í Skagafirði og gufuaflsvirkjunar í
Grensdal við Hveragerði.
SALA Rafmagnsveitu ríkisins, RARIK, á rafmagni dróst eilítið saman
á síðasta ári. Með áframhaldandi fólksfækkun á landsbyggðinni era
horfur á að hlutur fyrirtækisins í raforkusölu minnki umtalsvert.
Kristján Jónsson rafmagnsveitustjóri segir að við breytingar á skipu-
lagi orkumála, sem nú er unnið að, þurfi að huga að framtíðarrekstr-
argrandvelli orkufyrirtækis á landsbyggðinni sem sé fært um að
þjóna viðskiptavinum sínum til jafns við önnur orkufyrirtæki.
í upphafi þessa áratugar bjuggu um
20% landsmanna á orkuveitusvæði
RARIK, en á sjö árum hefur þetta hlut-
fall lækkað niður í 17%. Þjóðhagsstofnun
spáir því að íbúum á landsbyggðinni
muni fækka um 8 þúsund á næstu fimm
árum. Gangi það eftir verða íbúar á
orkuveitusvæði RARIK komnir niður í
13-14% af landsmönnum árið 2004.
Verður svipað að stærð og
Hitaveita Suðurnesja
Morgunblaðio/Svemr
Kristján Jónsson bendir á í ársskýrslu
RARIK að gangi þessi spá eftir muni
fyrirtækið þjóna álíka mörgum íbúum og
Hitaveita Suðurnesja, ef sameining
hennar við Rafveitu Hafnarfjarðar verð-
ur að veraleika. Orkuveita Reykjavíkur
sér í dag um 145 þúsund íbúum fyrir raf-
magni og 165 þúsund íbúum fyrir heitu
vatni.
Kristján sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þessi þróun væri áhyggjuefni
því erfiðara yrði fyrir RARIK að stand-
ast samkeppni við orkufyrirtækin á
höfuðborgarsvæðinu ef íbúaþróunin
héldi áfram með þeim hætti sem hún
hefur gert undanfarin ár. Hann sagði
að RARIK hefði lagt sérstaka áherslu á
að reyna að standast samkeppni í raf-
orkuverði með því að draga úr mun á
gjaldskrá sem hefði verið milli fyrir-
Fólk er sér betur
meðvitandi um
náttúruna
►Viðtal við Friðrik Sophusson,
forstjóra Landsvirkjunar/10
Sterk
framkvæmdastjórn í
þágu smáríkja
►Sigrún Davíðsdóttir ræðir við
Paavo Lipponen forsætisráðherra
Finnlands/12
Væringar á
Vatnsleysuströnd
►Deilur hafa staðið um ábúð á
jörðinni Kálfatjörn og gerð
golfvallar á Vatnsleysuströnd/20
Bjóðum þekkingu og
reynslu
►Viðskiptaviðtalið er við Jón Örn
Guðbjartsson markaðsstjóra hjá
Landsteinum/26
► l-20
Haiti á
hörmungartímum
►Heimamenn á Haiti segja það
aðeins á valdi guðs að bjarga
þjóðinni/l&lO-ll
Tónlist í blíðu og
striðu
► Rætt við hjónin Þóru
Bjömsdóttur og Martein Hunger
Friðriksson/4
Steinlá fyrir
leiklistargyðjunni
►Rúnar Freyr Gíslason leikari
hefur ráðið sig hjá
Þjóðleikhúsinu/16
^&FERÐALÖG
► l-4
Þýskaland
► Alls staðar var Goethe/2
Kafað dýpra í efnið
► Nýr leiðarvísir um ísland í
undirbúningi/4
D BÍLAR
► l-8
Á flaggskipi Opel á
hraðbrautunum
► Leiðangur til Heidelberg á Opel
Omega V6/2
Reynsluakstur
► Stærri Space Star en sýnist/4
Eatvinna/
RAÐ/SMÁ
► l-28
TölvuMyndir með útibú
í Bandaríkjunum
►Góður árangur af
markaðssetningu WiseFish-
hugbúnaðarins/1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir W4/8/bak Brids 44
Leiðari 28 Stjörnuspá 44
Helgispjall 28 Skák 44
Reykjavíkurbréf 28 Fólk í fréttum 48
Skoðun 31 Utv/sjónv. 46,54
Minningar 32 Dagbók/veður 55
Myndasögur 42 Mannl.str. 14b
Bréf til blaðsins 42 Dægurtónl. 17b
ídag 44
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6