Morgunblaðið - 27.06.1999, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 27.06.1999, Blaðsíða 38
*38 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Okkar innilegustu þakkir fyrir hlýhug og vináttu við fráfall ástkærrar eiginkonu, móður, tengda- móður og ömmu, SIGÞRÚÐAR JÓNSDÓTTUR, Dvergabakka, Ásahreppi, áður Hraunbæ 98. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Líknar- deildar Landspítalans. Martin Winkler, Ágústa Sigríður, Sturlaugur Tómasson, Hanna Björg, Gunnlaugur Briem, Ragnheiður Margrét, Guðbjarni Guðmundsson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu við and- lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, JENNÝJAR HELGU HANSEN, Blesugróf 1, Reykjavík. Hrafn Ingvason, Ólafía G. Steingrímsdóttir, Már Ingvason, Anna Carla Ingvadóttir, Árni Már Mikaelsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNINU B. SVEINSDÓTTUR, Aðalstræti 6, Bolungarvík. Pétur Jakobsson, Anna S. Pétursdóttir, Gísli Hallgrímsson, Grétar S. Pétursson, Sólveig Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Kærar þakkir öllum þeim, nær og fjær, sem vottuðu okkur samúð, vináttu og veittu styrk við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður og ömmu, STEFANÍU GUÐMUNDSDÓTTUR frá Syðra-Lóni. Guð blessi ykkur. Reynir Ármannsson, Ásta Reynisdóttir, Bergþóra Reynisdóttir, Ármann Reynisson, Halldór Reynisson og barnabörn. + Hugheilar þakkir vegna auðsýndrar samúðar við fráfall og bálför elskulegrar eiginkonu minnar og móður, MÁLFRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR frá Bræðraminni, Bíldudal. Guð varðveiti ykkur öll. Helgi Bjarnason, Svan Magnússon, og fjölskyldur. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför FRIÐBJÖRNS JÓSAFATSSONAR, Hlíðarhvammi 3, Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Bergmann, Sverrir B. Friðbjörnsson, Steinunn M. Benediktsdóttir, Ingibjörg V. Friðbjörnsdóttir, Niels Davidsen, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐBJARTUR BETÚELSSON + Guðbjartur Bet- úelsson fæddist í Höfn í Hornvík 27. janúar 1908. Hann lést á Kumbaravogi 10. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Betúel Betúelsson frá Dynjanda, bóndi í Höfn, f. 1952, og Anna Jóna Guðmundsdóttir frá Hesteyri, f. 1875, d. 1959. Þau bjuggu í Höfn frá 1895 til 1934 en fluttu þá að Kaldá í Onundarfirði. Guðbjart- ur var níundi í röðinni af tólf systkinum. Pálína, f. 1905, nú vistmaður á Grund, er ein á lífí af systkinahópnum frá Höfn. Látin eru: Sölvi, f. 1896, Guð- mundur, f. 1897, Betúel, f. 1897, Ingibjörg, f. 1898, Sumarliði, f. 1900, Anna, f. 1901, Jón, f. 1903, Sigurður, f. 1909, og Olafur, f. 1911. Eitt systkinanna dó í æsku. Guðbjartur kvæntist Gerdu Sophie Rasmussen 13. maí 1939. Hún fæddist 27. janúar 1912 í Horsens á Jótlandi og áttu þau því sama afmælisdag. Foreldrar hennar voru hjónin Rasmus Valdemar Rasmussen og Ereg- ine Husom Rasmussen. Gerda lést árið 1985. Guðbjartur og Gerda eignuðust eina dóttur, Jónu Lísu, f. 1937. Fyrri maður hennar var Haraldur Ágústs- son, f. 1932 d. 1972, og sonur þeirra er Sveinn, f. 1958. Kona hans er Sólborg Sigurðardóttir, f. 1965, og eiga þau tvo syni. Seinni maður Jónu Lísu er Pálmar Magnússon, f. 1939, og dóttir þeirra er Gerður Björt, f. 1973. Unnusti hennar er Vil- hjálmur Kvaran, f. 1971. Börn Pálmars frá fyrra hjónabandi eru: 1) Guðríður Elfa, f. 1961. 2) Sveinbjörg, f. 1962, gift Hreini Stefánssyni, f. 1964, og eiga þau þrjú börn. 3) Magnús Steinþór, f. 1970, kvæntur Jónu Mar- íu Norðdahl, f. 1967, og eiga þau tvö börn. Magnús á einnig dóttur með fyrri konu sinni. Guðbjartur bjó í foreldrahúsum til tuttugu og þriggja ára aldurs. Hann byrjaði ungur að sækja sjó með bræðrum sínum vor og haust og vann jafnframt öll al- menn sveitastörf. Vorið 1931 fór hann alfarinn til Reykjavík- ur og hóf stuttu síðar nám í Iðn- skólanum í Reykjavík og tók sveinspróf í rafvirkjun árið 1936. Sama ár lá leiðin til Dan- merkur þar sem hann lauk tveggja ára námi í mótorvind- ingum hjá Thomasi B. Thrige í Óðinsvéum á Fjóni, sótti ýmis námskeið í rafiðnaði og vann einnig í faginu. Fjölskyldan kom heim til íslands árið 1946 og starfaði Guðbjartur fyrstu árin hjá fyrirtækinu hf. Raf- magn við húsalagnir og við- gerðir á raftækjum en byrjaði svo að vinna sjálfstætt og var rafverktaki allt fram til ársins 1995. Guðbjartur bjó lengi í Njörvasundi 21 í Reykjavík en árið 1971 fluttist fjölskyldan í Garðabæ og eftir að Gerda lést hefur hann búið þar í skjóli dóttur sinnar og tengdasonar. Útför Guðbjarts fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi á morgun, mánudaginn 28. júní, og hefst athöfnin klukkan 15. Hinsta kveðja Um miðjan áttunda áratuginn þurftum við hjónin á að halda slyng- um rafvirkja vegna úr sér genginna raflagna í húsi sem við höfðum þá fest kaup á. Góðkunningi okkar, Jónas heitinn Guðmundsson, lista- maður jafnvígur á myndmál og rit- mál, mælti þá eindregið með raf- verktaka sem ætti ekki sinn líka og hefði unnið mikið fyrir listamenn. Guðbjartur Betúelsson var nafnið hans. Og Guðbjartur kom með tól sín, þá orðinn maður við aldur, en sporléttur og hraðstígur eins og ungur maður, brosmildur og lág- mæltur og hófsöm kímni í vökulum augunum. Hann bauð af þér þannig þokka að okkur hjónum þótti sem þar færi maður sem villst hefði af leið á þessa jörð á ferð sinni til ann- ars og æðri heims. Og samtímis maður sem okkur fannst að við hefðum alla tíð þekkt. Eitt enn í fari Guðbjarts kom mér í opna skjöldu. Eg hafði lengi lifað í þeirri trú að ég væri laghentur og ötull maður langt umfram meðallag, þegar ég á annað borð kæmi mér að verki, en ég hafði ekki lengi virt fyrir mér verklag Guðbjarts þegar allar fyrri viðmið- anir mínar um eigin verklagni ruku út í veður og vind. Rafvirkjameist- arinn svipaðist um innan dyra strax við komuna og á örskotsstund vissi hann nákvæmlega hvað þyrfti að endumýja og hvað ekki af lögnum og tenglum. Og það var ekki einasta að rafvirkinn svipbjarti rétti ekki úr sér á ferð sinni frá A til B innan hússins; hann hljóp við fót og hend- umar störfuðu hraðar en auga á festi og vinnugleðin geislaði af hon- um; rígfullorðnum manninum. Eg hlunkaði mér agndofa niður í hægindastól og Guðbjartur virtist skilja hvað ég væri að hugsa og brosti hughreystandi til mín meðan hendumar störfuðu. Hann átti held- ur ekki langt að sækja handlagnina. Faðir hans hafði læknishendur, las sér til í þeim fræðum, og tók sjálfur á móti bömum sínum og annarra manna börnum í strjálbýlinu á Homströndum. II Vitur maður á einhvemtíma að hafa sagt að ekkert væri óguðlegra en illa unnið verk, og þá ekkert guð- dómlegra en vel unnið, hverju nafni sem það nefndist. Allt frá bams- aldri hafði ég heillast af snjöllu verklagi. Og þama í návist rafvirkj- ans varð ég nú vitni að glæsilegasta dæmi þess. Guðbjartur var ekki margmáll maður, en nærvera hans var ein- staklega notaleg og hann var örvandi hlustandi, með brosi sínu einu, því að hann sat ekki aðgerðar- laus framan í mönnum. Hann gerði aldrei hlé á vinnu sinni. Hann var einnig prýðilegur sögumaður og lét sögu koma á móti sögu þegar því var að skipta, og stuttorðar frá- sagnir hans vom yljaðar góðlátlegu skopi. Hann vann lengi sem verk- taki við endurbætur á raflögnum í gömlum húsum, m.a. húsi Bryndís- ar Schram og Jóns Baldvins á Vest- urgötunni. Svo háttaði til þar á bæ að Guðbjartur varð að komast að raflögnum á lágreistu myrkvuðu háalofti hússins og þurfti handlang- ara til að skríða með sér þar uppi og halda á Ijóskeri fyrir sig. Bryndís var ekki að tvínóna við hlutina fremur en fyrri daginn og bauð sig fram til verksins, og þar með fékk Guðbjartur sér til aðstoðar eina feg- urstu konu landsins og hafði lúmskt gaman af. Þegar þau komu niður að verki loknu var Bi-yndís orðin svört yfirlitum. En hún var alveg jafn fal- leg samt, bætti Guðbjartur við kími- leitur. Eitt sinn var Guðbjartur að störfum í húsi hér í borg og kona hans hringdi til að ná tali af honum, en fékk þau svör hjá unglingsstúlku að Guðbjartur væri uppi í rúmi með frúnni. Skýringin var vitaskuld sú að frúin stóð sem handlangari uppi í rúminu vegna ljósastæðis fyrir ofan rúmstæðið. Guðbjartur starfaði að raflögnum fyrir okkur í einum fjórum húsum. Eitt sinn sló í brýnu milli okkar hjóna og þegar hvessti fyrir alvöru heyrðum við Guðbjart, sem staddur var í forstofunni, segja góðlátlega uppúr eins manns hljóði: Ætli þetta sé nú ekki orðið nóg? Fleiri voru orðin ekki, en setning- in og hæversk tóntegundin var með þeim hætti að ég snögghætti rexinu og varð nú í þess stað hlátur í hug. III Gjaldtaka Guðbjarts fyrir vinnu sína var svo hófsöm að maður hafði á tilfinningunni að hún væri fjarri sannvirði og verkið öðrum þræði unnið í guðsþakkarskyni. Hann vann eins og áður er að vikið fyrir fjölda listamanna og þegar fé þeirra þraut var ekkert því til fyrirstöðu að taka bækur eða myndir uppí vinnulaunin. Eitt sinn þraut mér fé, en ég átti hinsvegar óvænt tvo sjón- varpshægindastóla úr leðri og bauð Guðbjarti nú annan þeirra uppí skuldina og var það auðsótt mál. Sem bónus bauð ég honum að koma stólnum inní litla bflinn hans. Þó það nú væri. Guðbjartur brosti breitt og ég skildi ekki fyrr en við bflinn hverju það bros sætti. Mér var sem sé ómögulegt að troða þessum stóra armstóli inn í bifreið- ina. Eigum við ekki að reyna svona, sagði Guðbjartur góðlátlega, og inn smaug stóllinn fyrirhafnarlaust. Hann hvfldist svo í þessum stól til ævfloka, sagði mér dóttir hans, og þar tók hann við kortum frá mér sem ég hripaði tfl hans á flandri mínu um önnur lönd í tæpan áratug, kveðjur sem hann endurgalt sam- viskusamlega, og fyrstu jólakortin sem okkur bárust voru ætíð frá Guðbjarti. 1986 þegar ég og fjölskylda mín vorum búsett í Bergen fengum við símhringingu frá Kaupmannahöfn. Þar voru á ferð Guðbjartur, dóttir hans Jóna Lísa, tengdasonurinn Pálmar og dóttir þeirra Gerður. Pálmar var í símanum og tjáði mér að Guðbjartur hefði sagt stutt og laggott þegar ráðin voru lögð á um Danmerkurferðina að hann þekkti aðeins eina fjölskyldu í útlöndum og hún væri í Bergen og hana vOdi hann þá hitta í leiðinni. Talsverð lykkja á leiðina það. Og tO okkar komu þessir aufúsugestir og Guð- bjartur hefur þá veitt því athygli að gestaíbúð háskólans sem við bjugg- um í var aðeins kynt að hluta með rafmagni og kolaofn tO vara. I fram- haldi af heimsókninni barst okkur frá honum og fjölskyldunni stór pakki með ullarfötum. SMk var nú tryggð og hugulsemi þessa látna heiðursmanns við fjölskyldu mína. IV Margar sögur fóru af fæmi Guð- bjarts. Hann var eitt sinn kallaður tO að gera við dyrabjöllu Krist- manns heitins Guðmundssonar og konu hans vestur á Melum. Bjallan leiddi svo hressOega út að nánast var lífshættulegt að styðja á hana. Að þeirri viðgerð lokinni bað frúin Guðbjart að líta fyrir sig á bökun- arofninn; það væri ekki hægt að baka í honum þrátt fyrir að tveir rafvirkjar hefðu litið á hann og sagt að ekkert væri að ofninum, frúin kynni bara ekki að baka. Guðbjart- ur brá litlu skrúfjárni á tvo raf- þræði og sagði: Nú geturðu bakað. Frúin og Kristmann voru meira en lítið vantrúuð á að þetta snarlega handtak hefði gert gæfumuninn og vildu að Guðbjartur stæði við með- an kaka væri bökuð. Út kom dýr- indiskaka. Þetta mun hafa verið íbúð sú sem Kristmann gat um í ævisögu sinni og kvað hafa verið þannig, að allt sem losnað hefði í tíð fyrri eiganda hefði verið hnýtt upp með ókjörum af axlaböndum. Það mun hafa verið þetta sama skrúfjárn sem Guðbjartur hafði meðferðis heim tO mín til viðgerðar fyrir þremur árum, þá kominn hátt á níræðisaldur, og hefur sennilega verið síðasta verk hans í þágu óvandabundinna hér í heimi. Við hjónin vorum þá stödd í boði heima hjá honum og Pálmari og Lísu og vorum við þá flutt í enn eina íbúð- ina. Guðbjartur spurði um raf- magnsmál. Ég kvaðst vera í vand- ræðum með Ijósið í búrinu, og þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.