Morgunblaðið - 27.06.1999, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.06.1999, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ Og hana nú, fannst klassíska fræðingnum að Ásgarðstíðindi hlytu að vera spennandi sögur um Æsi? Hvernig átti hann svo sem að vita að Ásgarðstíðindi voru smjörlíkisauglýsingar? fremur handahófskennt, enda fölna þessi söfn í samanburði við viðamikil og fjölbreytt einkasöfn sem brennandi áhugamenn hafa komið sér upp og arfleitt safnið að. Blöð frá 19. og 20. öld Þessi dagblöð og tímarit, sem ég á að taka í gegn, eru 19. og 20. ald- ar rit, flest úr safni Schofields. (Schofield dó 1920 en kona hans, Mary Lyons Cheney Schofield, styrkti áframhaldandi áskrift og innkaup.) Það að grisja úr þessu safni var varla verkefnið sem ég hafði í huga, þegar ég bauðst til að aðstoða Harvard við að hirða um íslensku bækurnar. En það á að tæma þessar hillur á næstu mán- uðum, og eins gott að sá sem tæm- ir sé læs á íslensku. Svo að ég dæsi bara og byrja á -A-. Rauða rykið þyrlast af Austra og Arnfirðingi, Akureyrarpóstin- um og Austanfara. Brátt verður einhvers konar rykstormur í daufri birtunni og mig svíður í augun. Jæja, var það Guðmundur Hagalín sem ritstýrði þessu? Og hana nú, fannst klassíska fræð- ingnum að Ásgarðstíðindi hlytu að vera spennandi sögur um Æsi? Hvernig átti hann svosem að vita að Asgarðstíðindi voru smjörlíkis- auglýsingar? Eg hef verið beðin um að flýta mér við að tæma hillurnar (getur það verið að þessi moldríka stofn- un sjái eftir tímakaupi mínu?), en ég reyni samt að gá að stefnu- skrám og átta mig á því sem ég er með í höndunum. „Krefjumst sjálfstæðis undir konungsvaldi!“ „Leyfum Dönum sem hérlendis búa að fá kosningarrétt!" „Kjósið A-listann!“ „Þar, sem við ekkert er að stríða, er ekki sigur að fá!“ Ósk frá Siglufírði: „Megi Neistar jafnréttindis tendrast í huga ykk- ar!“ „Af hverju er eina prentsmiðj- an á Isafirði algjörlega í höndum afturhaldsins?" þrumar ritstjóri Sköfnungsins. „Passið ykkur á verkalýðshreyfingunni“, tónar rit- stjóri Islendings. Þegar ég rekst á Gletting (Siglufjörður, 1924), fer ég að hlæja, ein í rökkrinu á milli hill- anna. „í rauninni er Glettingur miklu göfugri en önnur blöð. Hann mun birta samvinnuglettur - eins og Tíminn, taka málstað Dana og kaupmanna - eins og Morgunblað- ið, birta auglýsingar frá almenn- ingi - eins og Vísir, yrkja á baun- versku - eins og Lögrjetta, birta palladóma um bæjarstjórnina - eins og Vörður um þingmennina, taka málstað alþýðunnar - eins og Alþýðublaðið, vera málsvari öreig- anna - eins og Rauði Fáninn, vera tannhvass ef til kemur - eins og Vesturland, skrifa skammir - eins og Skutull og Verkamaðurinn, birta ferðapistla - eins og íslend- ingur, skrifa brennandi frelsishug- vekjur - eins og Hænir, vera gam- ansamur og fara í smáróðra - eins og Siglfirðingur og þegar það á við vera hógvær - eins og Framtíðin. Þetta ætti að vera sæmileg stefnu skrá.“ Já, hér eru Geislar og Neistar, Perlur, Heróp, Fáni, Skjöldur, Stundin. Einnig Dagur, Vikan og Öldin, Morgunn og Aftanskin. Sömuleiðis Máninn, Austri og Norðri, Suðri og Vestri. Hér er ýmislegt til gagns, gleði og fróð- leiks, spakmæli, smásögur og skrítlur. Hér eru Nýjar Kvöldvök- ur, Dýravinurinn, Nýja Island og Haukur. Hér er Sunnudagsblaðið, með það markmið „að flytja al- menningi eitthvað fallegt og fróð- legt að lesa á kyrrum stundum.“ Hér eru Auglýsarinn, Farandsal- inn og Verslunartíðindi, og líka Jólasveinn, Jólaharpa og Jóla- kveðjur til íslenskra barna frá sunnudagskólabörnum í Dan- mörku. Sum blöðin molna Sum dagblaðanna eru svo illa farin að þau verða að gulnu regni þegar ég dreg stóru pappírsborðs- möppurnar af hillunni. Einhver hefur verið að skoða ljósmyndirn- ar í Fálka, og hefur skilið eftir hrúgu af pappírsnifsum sem hann var að merkja blaðsíðurnar með. Sums staðar hafa blaðsíður aldrei verið skornar; sum rit -eru enn bundin í bunkum með gráhvítum bómullarborðum. Ég verð stöðugt að þvo hendurnar, annars yrðu all- ar bækurnar strax ataðar í mórauðum fingraförum. Endrum og sinnum álpast fram hjá mér drengirnir sem aka vögn- unum upp í vinnuherbergið. Þeir eru ekki vanir því að einhver leyn- ist meðal íslensku bókanna í kjall- aranum og í fyrsta skiptið sem þeir ganga fram hjá er einn þeirra í miðri ítarlegri frásögn um ævin- týri síðustu helgarinnar. Þeim bregður hryllilega þegar þeir koma auga á mig, en ég brosi bara sakleysislega. Eftir þetta eru drengirnir mér greiðasemin upp- máluð, hlaupa sendiferðir, útvega mér lykla og athuga einu sinni á dag hvort ég sé enn með lífsmarki í dimma kjallaranum. Æ, hefði ég bara fengið álíka mikinn stuðning hjá bókasafns- fræðingunum! Þeir birtast oftar og oftar, æ grimmilegri á svip, þangað til einn góðan veðurdag kemur hinn ágæti maður sem réð mig í þetta starf og útskýrir, að nú sé risin meiri háttar deila meðal bókasafnsfræðinganna vegna þess að íslenskan fái „sérstaka með- ferð.“ fsland og Eystrasaltsríkin Ekki tef ég háttvirta lesendur þessa blaðs með nákvæmnum lýs- ingum af þeirri umræðu, sem fór fram milli rannsóknarsérfræðinga og bókasafnsfræðinga í marga klukkutíma þar á eftir. Þarna stóðum við, ég í léreftssvuntunni minni og þátttakendurnir allir, meðal hálftæmdra hillanna, þar sem íslensk tímarit höfðu tollað í tvö hundrað ár. Mér tókst að hefta reiðigrátinn sem sauð í mér á köflum, og ég þagði, en þegar einn fræðinganna loksins sagði: „Heyrið þið, málið er einfaldlega það, að Island á að fá sömu meðhöndlun og Eystra- saltsríkin." Þá dauðlangaði mig til að hrista hann og segja: „Heyrðu vinur, hver maður er ekki sjálfur lítil þjóð og hver á meðal okkar er fær um að vita hverjir verða dæmdir merkilegastir í tímans rás?“ Sáttalok urðu um að einhvers konar tilraun yrði gerð til að gæta þess, að ritin yrðu að minnsta kosti í skránni áður en þau yrðu send í dýflissuna. Joe Harris, Steve Mitchell, ég og fleiri munum halda áfram að vekja athygli á þessu safni og pró- fessor Harris segist vera að brugga ráð til að bæta skráningu á íslensku bókunum. Leirárgerð og Klaustur Póstur- inn fóru í geymsluna en Fjölnir er enn á hillunni, eða var þegar ég síðast gáði. Höfundur er Ijóthknld, sem nam íslensku við Háskóla Islands, hefur þýtt fslensk fjóð á ensku og kennt íslensku. Hún hefur starfað við endurskoðun á skráningu og flutning á fslenskum bókum í eigu Harvard háskóla. SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 18 Ásmundur Námskeið með Ásmundi Gunnlaugssyni í júlí: Jóga gegn kvíða hefst 8. jÚIÍ - Þri. og fim. kl. 20. 00. 4ra vikna uppbyggjandi námskeiö, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar, fyrir þá sem eiga við kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. Yoga - breyttur lífsstíll hefSl 7. jÚIÍ - Mán. og mið. kl. 20.00. 7 kvölda grunnnámskeið fyrir fólk á öllum aldri sem vill læra eitthvað nýtt. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg. ★ jógaleikfimi (asana) ★ öndun ★ slökun ★ mataræði og lífsstíll ★ andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu Frír aðgangur að saunu, tækjasal og opnum jógatímum fylgir. YOGA STUDIO 0PIÐ I ALLT SUMAR Yoga - Tæki - Sauna - Polarity therapy Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560. CD HALUR OG SPROND ehf. Sími 544 5560 og 864 1445 BIOTONE nuddvömr, Oshadhi 100% hágæða ilmkjamaolíur, nuddbekkir frá Custom Craftworks, nuddplaköt, slökunartónlist, ilmker, bækur o.m.fl. : : Kynningar i vikunni: égm * m m •• ^ 1 a mm wmM ■.. 51 « n W ■■ ■■ vIik BllllSlf 0« lli Karin Herzog «s ...ferskir vindar í umhirðu húðar Fimmtud. 1. júlí kl. 14—18: Háaleitis Apótek Hagkaup Kringlunni Lyfjabúð Hagkaups Mosfellsbæ Egilsstaða Apótek - Egilsstöðum Föstud. 2. júlí kl. 14—18: Hagkaup Kringlunni Apótek Smáratorgi Grafarvogs Apótek Egilsstaða Apótek - Egilsstöðum Laugard. 3. júlí kl. 13-17: Apótekið Smáratorgi Hagkaup Kringlunni Kynnlngaiafsláttur Á Karin Herzog snyrtistofu á Garðatorgi nærðu jafnvel enn skjótari árangri fyrir sumarið. Hringdu í Önnu Maríu í s. 698 0799/565 6520.^ ]ú\iUW>0^ Er húð þín slöpp eða ertu með appelsínuhúð? Grenningarkremið SILHOUETTE verkar djúpt og kröftuglega hvort sem þú ert vakandi eða sofandi. ÞAÐ EINA... sem þú þarft að gera er að bera það á þig. hT MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI Menntaskólinn í Kópavogi var stofnaður árið 1973 og starfar á þremur sviðum. Sérdeild fyrir einhverfa Um er að ræða: Kennarar - stuðningsfulltrúar • Bóknámssvið • Ferðamálasvið Menntaskóliim í Kópavogi óskar eftir að ráóa kennara og stuóningsfúlltrúa að nýrri deild fyrir einhverfa við skólann. Um er að ræða: • Hótel - matvælasvið 2 stöður kennara Menntaskólinn í Kópavogi státar m.a. af góðri 2 stöður stuðningsfulltrúa starfsaðstöóu og metnaðarfullu starfsfólki. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi sérmenntun Skólinn kappkostar að veita á þessu sviði. Launakjör fara eftir samningum ríkisins við viðkomandi stéttarfélög. Umsóknum nemendum sínum góða þjónustu og fjölbreytta skal skila til skólans fyrir 10. júlí. möguleika til menntunar. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma 544 5510. Skólameistari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.