Morgunblaðið - 27.06.1999, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 27.06.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 35 * + Friðný ísaks- dóttir fæddist á Vestaralandi í Ox- arfírði 19. maí 1920. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 15. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru ísak Jónsson, bóndi á Vestaralandi, og kona hans Aðal- björg Stefánsdóttir frá Harðbak á Sléttu. Þau skildu. Friðný ólst upp á Ærlæk í Öxarfírði. Hálfsystkini _ hennar, sam- mæðra, eru Álfdís, Kristín og Þorsteinn Sigurgeirsböm. Friðný eignaðist soninn Isak Sigurðsson, f. 26. ágúst 1949. Útför Friðnýjar fer fram frá Akureyrarkirkju á morgun, mánudaginn 28. júní, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Hún hvarf inn í vorið. Það hæfði vel þessari björtu sál. Friðný ólst upp við fátækt eins og fleiri á þeim tímum. Foreldrar hennar skildu á meðan hún var ung að árum. Með föður sínum var hún fyrst í stað, en síðan hjá vandalaus- um. Allir þekkja úr ævisögum fólks hve sjálfsagt þótti að nota vinnu- kraft umkomulausra til hins ýtrasta. Lífsbaráttan var hörð. Það var Friðnýjar lán að komast á heimili sæmdarhjónanna Sigurðar Guðmundssonar skólameistara og frú Halldóru Ólafsdóttur. Þótt mik- ill erill væri á mannmörgu heimili gaf frú Halldóra sér tíma til að kenna Friðnýju ýmislegt sem hún hafði ekki kynnst í sveitinni. Glað- lyndi Friðnýjar og vilji til verka var gott innlegg til góðra samskipta og þarna hófst vinátta sem aldrei bar skugga á. Friðný talaði um frú Hall- dóru með lotningu, tók hana nánast í guða tölu, enda sýndi frú Halldóra Friðnýju þann skilning og kær- leika sem styrkti sjálfstraust og jók kjark. Þegar Friðný átti frí var stutt að fara til okkar Dyngjumeyja í heimavist MA. Þar hófust kynni sem varað hafa í meira en hálfa öld. Eftir brottflutning skólameistarahj ónanna fór Friðný í vist til Halldórs Halldórssonar íslensku- kennara við MA (síðar prófessors við HÍ) og Sigríðar Guðmundsdótt- ur, konu hans. Þar var framhald vistar hjá ágætisfólki. Glaðværð og einlægni eru eiginleikar sem böm kunna að meta og því ekki undar- legt að þau hændust að Friðnýju, eins og segull dregst að stáli. Hún eignaðist son er hún gaf nafn fóður síns, Isak. Þó ekki væri auðvelt fyrir einstæða konu að ala upp bam á vinnukonulaunum lét Friðný það ekki buga sig. ísak var alla tíð hennar sólargeisli og allt skyldi lagt í sölumar hans vegna. Það lá við að hún væri farin að hugsa fyrir fermingarfötum á hann þegar hann var tíu ára gamall. Fyr- irhyggjan var ótrúleg. Hann skyldi eiga betra líf en hún átti í æsku. Sonurinn hefur líka launað móður- inni umhyggju og ástúð og vil ég nefna eitt dæmi þess. Með ótrúlegri sparsemi hafði ísaki tekist að nurla saman peningum til að kaupa sinn iyrsta bíl. Allir vita hve mikilvægt atriði það er fyrir ungmenni, en hvað gerðist? Á þessum tímamótum var Friðný að berjast í að kaupa sér íbúð en vantaði peninga. ísak gerði sér lítið fyrir, frestað í bflakaupum og lánaði móður sinni allt sem hann átti. Þegar Friðný hætti að vera í vist með soninn fékk hún vinnu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þar vann hún meðan heilsan leyfði og kom sér vel þar sem annars stað- ar. Nú gafst meiri frítími, en ekki sat Friðný auðum höndum. Hún tók að læra sund á gamals aldri og stundaði það reglulega. Eldsnemma á morgnana arkaði hún í Sundlaug Akureyrar, jafnvel í margra stiga frosti. Hún notaði sér líka tilsögn í taumálun á seinni árum. Gaf sér góðan tíma til að velja munstur og var smekkleg í litavali. Þetta veitti henni tvöfalda ánægju. Fyrst var sköpunargleðin, síðan ánægjan af að gefa vinum og vandamönnum dúka, púða, svuntur og fleira. Síðustu ár var Friðný í sambúð með Brynjólfi Ólafssyni. Hann var einstæðingur sem kunni að meta gott atlæti hjá góðri konu. Á meðan heilsa beggja leyfði gátu þau notið saman ferðalaga bæði innanlands og utan. Já, það var ýmislegt sem Friðný mín fékk að kynnast á seinni árum og hún kunni sannarlega að gleðjast yfír litlu, en einnig að samgleðjast öðrum, sem er mikils virði fyrir sál- arlífið. Friðný var vinmörg. Að mín- um dómi kallaði hún fram það besta í fólki og margir urðu til þess að styðja hana og styrkja þegar heilsu- leysi steðjaði að. Þar vil ég sérstak- lega tilgreina Önnu Bjömsdóttur og Ólaf Sigurðsson lækni. E.t.v. bað frú Halldóra Önnu tengdadóttur sína að líta til með Friðnýju í sinn stað. Þetta er aðeins tflgáta mín. En nokkuð var það að Anna reyndist Friðnýju ómetanleg hjálp- arhella, studdi hana með ráðum og dáð til hinstu stundar. Eg lýk þessum fátæklegu orðum með því að tileinka Friðnýju orð Krists úr sögunni Talentumar: „Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfír litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.“ (Matteus 25,23.) ísaki og öðmm aðstandendum votta ég samúð og bið þeim blessun- ar Guðs. Þórný Þórarinsdóttir. FRIÐNÝ ÍSAKSDÓTTIR JÓN THORLA CIUS + Jón Thorlacius fæddist í Reykjavík 1. júlí 1914. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 14. júní síðastliðinn. For- eldrar _ Jóns voru Ámi Ólafur Thor- lacius búfræðingur í Reykjavík, f. 15. apríl 1877, d. 13. ágúst 1960, og kona hans, Guðfínna Jónsdóttir, f. 18. júlí 1881, d. 23. okt. 1950. Systkini Jóns: Þórann, látin, og Anna, búsett í Reykjavík. Hinn 24. maí 1941 kvæntist Jón Ingunni Frímannsdóttur f. á Akureyri 30. ágúst 1913, d. 16. apríl 1996. Ingunn var dóttir Frímanns Frímannssonar kaup- manns á Akureyri og Önnu Mar- íu Isleifsdóttur húsmóður. Jón og Ingunn eignuðust fjögur böra. Þau eru: a) Edda f. 6. ágúst 1942, endurskoðandi í Bandaríkjunum. Böra hennar eru Jon, Erik og Michael; b) Ing- unn f. 4. sept. 1945, d. 3. mars 1998; c) Árni, bankamaður f. 14. ágúst 1947. Maki hans er Magn- þóra Magnúsdóttir fram- kvæmdastjóri og börn þeirra eru Anna Ólöf og Linda Björk; d) Anna Guðrún húsmóðir f. 22. Elsku afí Jón, okkur langar að kveðja þig með örfáum orðum. Það er ávallt sárt að þurfa að kveðja, en við huggum okkur við það að nú hef- ur þú fengið hvfld. Við minnumst þess hve gott það var að koma í heimsókn á Kvisthagann þar sem þið amma tókuð ávallt vel á móti okkur, og þegar þú afí sýndir okkur stoltur verðlaunagripi þína frá golfmótum ágúst 1950. Maki hennar er Guð- mundur G. Gunnars- son framkvæmda- sljóri og börn þcirra eru Ingunn Ágústa, Hildur Björk og Selma Edda. Jón bjó í Reykja- vík til sjö ára aldurs en fluttist þá með Ijölskyldu sinni til Kanada og bjó þar í níu ár. Jón hóf nám í Félagsprentsmiðj- unni 1. ágúst 1933, lauk þar námi, tók sveinspróf í setningu 24. sept. 1940 og vann þar áfram, fyrst sem vélsetjari og sem verkstjóri í setjarasal frá 1960. Jón varð prentsmiðjustjóri 1973 og gegndi því starfí til 1984. Jón sat í skemmtinefnd HÍP 1947-1956, meðstjómandi í Byggingarsam- vinnufélagi prentara 1953-1955, í félagsheimilisnefnd 1956, í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur 1960- 1961, í stjórn Golfklúbbs Ness frá 1964, formaður frá 1969-1971. Ritstjóri Kylfíngs 1961- 1969 og Golfblaðsins frá 1968-1971. Jón var heiðursfé- lagi í Golfklúbbi Reykjavíkur og Golfklúbbi Ness. títför Jóns fór fram frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 22. júní síðastliðinn. bæði hér heima og erlendis, enda varstu með þeim fyrstu sem iðkuðu þessa íþrótt hér á landi. Þú varst alltaf heilsuhraustur maður enda var vaknað fyrir aldur íram og farið í gönguferðir á hverjum morgni og síðan slegnar nokkrar holur. Bama- bamabömin þín vom þér alltaf kær og hafðir þú yndi af návist þeirra. Hvfl í friði elsku afí okkar. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (SJ) Ingunn, Hildur og Selma Guð- mundsdætur og Anna og Linda Thorlacius. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgr.Pét) Elsku langafi, Guð geymi þig. Anna Kristin, Elísa Björk og Agnes María. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. + Móðir okkar og tengdamóðir, INGA JÓNA KARLSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsett frá Akureyrarkirkju þriðjudag- inn 29. júní kl. 13.30. Sigríður Guðmundsdóttir, Trausti Aðalsteinsson, Margrét Guðmundsdóttir, Örn Höskuldsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Friðrik Páll Jónsson, Auður Guðmundsdóttir. + Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, mágkona og frænka, SIGRÍÐUR G. BENJAMÍN (Didda), áður til heimilis í London og Bristol f Englandi, sem andaðist 23. febrúar síðastliðinn í Victoria á Vancouver-eyju í Kanada, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 30. júní kl. 15.00 Lloyd Benjamin, Thomas Benjamin, Sheila Jacobs, Sigurbjörg Bjarnadóttir og fjölskylda. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 12, er lést á hjúkrunarheimili aldraðra Víðinesi, sunnudaginn 20. júní, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. júní kl. 13.30. Unnur Jörundsdóttir, Ágúst Guðmar Eiríksson, Ingveldur Valdemarsdóttir, Grétar Nökkvi Eiríksson, Þorgerður Arnórsdóttir, Guðmundur Ingi Eiríksson, Reynir Arnar Eiríksson, Anna G. Árnadóttir og aðrir aðstandendur. + Ástkær móðir okkar, dóttir, amma og systir, KLARA FJÓLA KARLSDÓTTIR, Engihjalla 11, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánu- daginn 28. júní kl. 15.00. Sigríður Sæmundsdóttir, Ægir Ólafsson, Elín Rós Þráinsdóttir, Sunna Dís Ægisdóttir, Gréta Karen Grétarsdóttir, Birgir Thomsen, Sigurgeir Einar Karlsson, Karl Þór Karlsson. + Innilegar þakkir fyrir hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar móður okkar FRIÐBJARGAR FRIÐBJARNARDÓTTUR. Guðjón Ragnarsson, Hrefna Ragnarsdóttir, Friðbjörg Ragnarsdóttir, Salvör Ragnarsdóttir, Georg Ragnarsson, Sigvaldi Ragnarsson, Svanhvít Ragnarsdóttir, Halldóra Ragnarsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Kristmundur Árnason, Jóhann Jóhannsson, Kristmundur Guðmundsson, Hjördís Þorsteinsdóttir, Jónína Ólafsdóttir, Gretar Andrésson og fjölskyldur þeirra. V 'y? ? I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.