Morgunblaðið - 27.06.1999, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Sterk framkvæmda-
stjórn í þágu smáríkja
Finnar taka nú um mánaðamótin við for-
mennsku í ráðherraráði Evrópusambands-
ins. Þeir ganga að ESB- formennskunni
með það að leiðarljósi að hagsmunir Finna
og ESB fari saman. Sigrún Davíðsdóttir
hitti Paavo Lipponen forsætisráðherra
Finna í Helsinki.
TIL Brussel förum við
hvorki með betlistaf, né
til að taka við fyrirskip-
unum, heldur til að vera
með,“ segir Paavo
Lipponen forsætisráðherra Finna.
Pað er bjargföst sannfæring hans að
sterk framkvæmdastjóm Evrópu-
sambandsins, ESB sé smáríkjum í
hag, þó honum hafi ekki gengið vel
að koma löndum sínum í skiining um
það. Betlistafurinn kemur oft upp í
orðum hans til að undirstrika að
Finnar séu í ESB sem fullgildir þátt-
takendur og ekkert annað.
Þetta og trú hans á að hagsmun-
um Finna sé best borgið með því að
vinna að hagsmunum heildarinnar
er leiðarljós Finna nú þegar þeir
taka við formennskunni í ESB frá 1.
júlí og næstu 6 mánuði. Þessu hlut-
verki hafa þeir hugsað sér að skila
vel og standa við þann góða orðstír
um samningalipurð og skýr mark-
mið, sem þeir hafa þegar skapað sér
ÍESB.
Miðaldra forsætisráðherra
með unga fjölskyldu
Þessi hávaxni og þrekni Finni,
sem nú er að hefja annað kjörtíma-
bil sitt sem forsætisráðherra, virðist
í fljótu bragði holdtekning alls þess
sem fínnskt er. Hann talar sænsk-
una hægt, en kunnugir segja að
hann tali öll önnur mál jafn hægt,
líka móðurmálið finnsku. Hann er
því vísast vanur að gripið sé fram í,
en hann heldur þá áfram ótrauður
ef því er að skipta og af þunga, ef
hann er ekki búinn að koma hugsun
sinni til skila. Auk festu í málflutn-
ingi er hann alveg laus við fjálg-
mælgi og klisjur, virðist aldrei segja
meira en nauðsynlegt er.
Andstæðingar hans segja að það
eina sem hafí haldið saman fimm
flokka stjóm Lipponens eftir kosn-
ingamar í vor, sé löngunin til að
sitja við störf næstu sex mánuði og
leiða formennsku Finna í ESB. I
þinginu hafa borgaraflokkamir
meirihluta. En í stað þess að nýta
sér það og mynda stjórn með Mið-
flokki Esko Aho kaus finnski
íhaldsflokkurinn að sitja áfram í
stjórn undir forystu Lipponen og
jafnaðarmanna, ásamt Vinstrasam-
bandinu, Sænska þjóðarflokknum
og flokki umhverfissinna. Stjóm-
málaskýrendur spá erfiðu stjómar-
tímabili þegar formennskunni lýk-
ur. Meðal annars blasa kjarasamn-
ingar við næsta vor.
Það er sólríkt síðdegi um miðjan
júní, þegar Lipponen tekur á móti
nokkrum blaðamönnum á forsætis-
ráðherrasetrinu við vík í útjaðri
Helsinki. Stórt og reisulegt timbur-
hús frá síðustu öld er opinber emb-
ættisbústaður. Fyrri forsætisráð-
herrar hafa fæstir búið í bústaðnum,
en Lipponen hefur tekið hann fram
yfir raðhúsið, sem hann bjó í, en það
hafði hann á leigu eins og algengt er
um landa hans. Forsætisráðherra
borgar leigu af bústaðnum.
Lipponen, í dökkum fötum, hvítri
skyrtu og með gult bindi, kemur
stikandi út á hlað og býður blaða-
mönnum að fylgja sér í lítið lysti-
hús, öllu heldur skýli, þaðan sem
sést yfir víkina. „Við höfðum hug-
leitt að byggja okkur hús,“ segir
Lipponen þegar komið er í lystihús-
ið og talinu víkur að bústaðnum, „en
það er enginn tími til þess.“
Lipponen er áhugamaður um arki-
tektúr, en hristir höfuðið, þegar
spurt er hvort hann hafi hugleitt að
láta teikna handa sér hús eða taka
þátt í því. „Það er ekki fyrir venju-
legt fólk að borga fyrir arkitekta-
teiknuð hús,“ bætir hann við.
Hinum megin við víkina sér í
rautt bátaskýlið við forsetabústað-
inn. Lipponen segist ekki hafa synt
í heimsókn til Martti Ahtisaari for-
seta, þó hann sé annálaður sund-
maður, en segist gjaman synda
þama og einmitt þessa stundina sé
kona hans að synda hinum megin
við nesið er húsið stendur á.
Skömmu áður en forsætisráðherr-
ann birtist kom barnapía með keiru
og lítið barn út úr húsinu. Þar fór
eins árs dóttir Lipponens, sem hann
eignaðist með seinni konu sinni, en
hún er ríflega tuttugu ámm yngri
en eiginmaðurinn.
Frá fyrra hjónabandi á hann
dóttur á svipuðum aldri og eigin-
konan. Eiginkonan átti fyrir sex ára
dóttur. Það man enginn tO þess að
finnskur forsætisráðherra hafi verið
með svo unga fjölskyldu.
Lipponen og Esko Aho formaður
Miðflokksins og fyrrum forsætis-
ráðherra em ámóta vinsælir. I lysti-
húsinu sýnir Lipponen á sér létta og
þægilega hlið. Meðal flokksmanna
stendur mörgum nokkur stuggur af
honum, en hann er á góðri leið með
að verða einn merkasti leiðtogi
Finna á öldinni.
Atvinnuleysi og flótti
af landsbyggðinni
Þegar Lipponen varð forsætisráð-
herra íyrir fjóram áram í kjölfar
stjómar Esko Aho var takmark hans
að minnka atvinnuleysi, sem þá var
um 20 prósent, um helming á kjör-
tímabilinu. Það tókst þó ekld, en
Lipponen tekur annan pól í hæðina.
„Meðan aðrar þjóðir hafa staðið í
stað eða jafnvel búið við samdrátt þá
höfum við búið við vöxt og náð þeim
einstaka árangri í Evrópu að minnka
atvinnuleysi um þriðjung. Þetta hef-
ur okkur tekist með niðurskurði rík-
isútgjalda og hóflegum kjarasamn-
ingum,“ segir Lipponen og hnykkir á
að á undanfömum tólf mánuðum hafi
störfum fjölgað um 100 þúsund og
200 þúsund á öllu síðasta kjörtíma-
bili. Samkvæmt nýjustu tölum er at-
vinnuleysið nú 13,7 prósent.
Lipponen vill ekki nefna hvert
takmarkið nú sé varðandi atvinnu-
leysi. Fyrsta spáin frá fjármála-
ráðuneytinu hafi gert ráð fyrir 9
prósenta atvinnuleysi 2003, en
nýjasta spáin sýni að þegar á næsta
ári megi gera ráð fyrir 9,3 prósenta
atvinnuleysi. „7-8 prósenta atvinnu-
leysi í lok kjörtímabilsins eftir fjög-
ur ár er raunhæft takmark," segir
hann varfærnislega.
Flóttinn af landsbyggðinni er ná-
tengdur atvinnuleysisvandanum og
Lipponen tekur undir að Finnar
eigi við dreifbýlisvanda að etja.
„Fólk er að hverfa frá Austur- og
Norður-Finnlandi," bendir hann á
og minnir á að byggðauppbygging
Finna eigi rætur að rekja til þess
tíma er meirihluti landsmanna vann
viðlandbúnað.
Á þessu sviði hafa Finnar fengið
góðan stuðning frá þróunarsjóðum
ESB. „En það þýðir ekki bara að
kasta peningunum í hvað sem er,
heldur gildir að vera með skynsam-
leg verkefni,“ segir Lipponen og
bendir á Jyváskylá, skammt frá
heimabæ hans, Kuopio, sem gott
dæmi um svæði, sem nú sé í upp-
sveiflu. Kjaminn í þeirri uppsveiflu
er háskólinn í Jyváskylá, sem byggi
upp menntað vinnuafl.
Áhugaleysi á Evrópu-
þinginu skiljanlegt
Kosningarnar til Evrópuþingsins
eru mönnum ofarlega í huga, bæði
af því kosningaþátttakan vai' met-
lág og eins af því að hægiifiokkar
þingsins era komnir í meirihluta.
Hér áður var sagt að áhugaleysi
kjósenda stafaði af því að þingið
hefði engin völd, en nú hafa völd
þess aukist og samt hefur kosninga-
þátttakan enn minnkað.
Um þessa þversögn segir
Lipponen að það sé þörf á að fara
grannt í saumana á úrslitunum, sem
hann hafi enn ekki gert. „En ég
heyrði þýskan stjórnmálaskýranda
benda á að það mætti vel skilja
áhugaleysið sem svo að fólk hefði
ekki áhuga á að kjósa þing, sem
ekki myndaði stjórn. Kjósendur
álíta vísast að það séu ríkisstjómir
einstakra landa, sem leggja línum-
ar í ESB, ekki Evrópuþingið."
Lipponen undrast ekki áhuga-
leysi heima fyrir, því kosningaum-
ræðan snerist mikið um spillingu í
tengslum við þingið, þar sem þing-
menn hafa fengið greitt fyrir flug-
miða án þess að athugað hafi verið
hvernig eða hvort þeir notuðu þá.
„Ég hef verið gagnrýndur í fjölmiðl-
um fyrir að tala um þetta, en það
verður einhver að segja umbúða-
laust hvernig þetta er,“ segir hann.
Úr orðum hans má almennt lesa að
finnska stjómin leggur áherslu á
ESB sem samstarf ríkisstjóma, þar
sem Evrópuþingið gegnir engu
skýra hlutverki.
En sýnir niðurstaðan í heild að
vinstribylgjan í Evrópu er að dala?
Lipponen segist ekki líta svo á. Lág
þátttaka skekki myndina. „En eftir
á get ég sagt að hér heima hefði ég
átt að leggja mig betur fram í kosn-
ingabaráttunni. Þegar þátttakan er
svona lág þá era það þeir sem hafa
góða menntun og góð laun, sem
kjósa."
Lipponen álítur ekki að gjáin í
evrópskum stjómmálum liggi milli
hægri og vinstri, heldur innan jafn-
aðarmannaflokkanna milli þeirra,
sem viija endumýja og hinna, sem
halda fast í fyrri hefðir. Sameigin-
leg stefnuskrá Tony Blair forsætis-
ráðherra Breta og Gerhard
Schröders Þýskalandskanslara ný-
lega sé af hinu góða fyrir lönd
þeirra.
„Við erum komnir lengra hér í
Finnlandi," fullyrðir Lipponen. „Við
búum við markaðskerfi, hagvöxt og
sveigjanleika í efnahagslífinu, sem
við höfum komið áleiðis í eindrægni.
Hér er atvinnuþátttaka kvenna há,
andstætt Bretlandi og Þjóðverjar
búa við verndarstefnu, rflásstyrki
og skort á félagslegri þjónustu. Við
erum miklu markaðsvæddari og
höldum einkavæðingu áfram, en það
er gott fyrir Evrópu að þessi mál
era rædd.“
Uppbygging Kosovo
efst á blaði
„Kosovo setur strik í reikning-
inn,“ segir Lipponen, þegar talinu
víkur að því hvað sé efst á blaði
Finna á formennskutímabili þeirra.
„Kosovo gerir áskorunina enn
stærri, því ESB mun bera mesta
ábyrgð á þjóðfélagsuppbygging-
unni, þó aðrir þurfi að koma til, til
dæmis Bandaríkin, Japan og önnur
G7 lönd, auk stofnana eins og Al-
þjóðabankans."
Um uppbyggingu Kosovo með
Slobodan Milosevic enn við völd vfll
Lipponen sem minnst segja, en tek-
ur skýrt fram að uppbyggingin
haldi áfram án tillits til Mflosevic.
„Hann skapar vandamál nú, en það
er langur vegur fyrir höndum varð-
andi uppbyggingu landsins."
Af öðram málum nefnir Lipponen
sambandið við Rússland og stækk-
un ESB. Hvenær ný lönd gangi í
ESB vill hann ekki tiltaka. „Um-
sækjendumir þurfa að vinna sína
heimavinnu. Við getum reynt að
styðja þá, en löndin þurfa sjálf að
koma á nauðsynlegri nýskipun
heima fyrir.“
Almennur skilningur á
vægi Rússa í Evrópu
Árið 1997 færði Lipponen „hina
norðlægu vídd ESB“ í tal þar. Hér
var um að ræða breiða áherslu á
norðurhluta ESB, til mótvægis við
Miðjarðarhafsáhersluna, sem lengi
hefur sett svip sinn á sambandið.
„Við færðum þetta í tal út frá því