Morgunblaðið - 27.06.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 13
I hverju er ESB-
formennska fólgin?
ÆÐSTA valdið í ESB liggur í
ráðherraráðinu, sem fer með
löggjafarvaldið í ESB. Hvaða
ráðherrar sitja þar fer eftir því
hvaða mál eru á dagskrá. Æðst
er leiðtogaráðið, ráð forsætis-
ráðherra og þjóðarleiðtoga, er
fara með æðsta pólitíska valdið
í hveiju landi.
Löndin skiptast á um að fara
með formennskuna í ráðherra-
ráðinu, sex mánuði í senn. For-
mennskulandið ákveður dagskrá
funda og hefur því áhríf á gang
mála. Formennskan tekur ekki
aðeins til ráðherraráðsins, held-
ur einnig til rúmlega 200 nefnda
og vinnuhópa á vegum ráðsins.
Flestir fundirnir eru í Bruss-
el, en leiðtogafundir og stórir
ráðherrafundir eru haldnir í
formennskulandinu. Finnar
reikna með sextíu þúsund hótel-
nóttum af þessu tilefni, svo
ferðamannaþjónustan fær sitt.
Blaðamenn eru þegar teknir að
streyma til Finnlands af þessu
tilefni.
Sex mánuðir eru ekki langur
tími í ESB-ferli
sjónarhomi að það væri öllu ESB í
hag, ekki aðeins Finnlandi," segir
Lipponen „og beindum þar með at-
hyglinni að margvíslegum þáttum
eins og umhverfi, kjarnorkuöryggi,
glæpastarfsemi, innviðum og heil-
brigðismálum. Við tökum af alefli
þátt í því starfi sem varðar Miðjarð-
arhafssvæðið og ætlunin er ekki að
það verði tekið fé þaðan og flutt
norður.“
Hin norðlæga vídd hefur verið
tekin upp af ESB og í nóvember
verður haldinn fundur í Tampere í
Finnlandi um þetta efni, ekki aðeins
með þátttöku ESB. „ísland og Nor-
egur taka þama þátt, því bæði lönd-
in skipta miklu máli á þessu svæði.
ísland hefur þegar látið mikið til sín
taka mál er snerta norðurslóðir,
meðal annars í Heimskautsráðinu.“
Hluti af hugsuninni að baki norð-
lægu víddinni er að taka Rússland
frekar með í reikninginn, en
Lipponen bendir á að ESB hafi
þegar einnig víðtæka dagskrá, er
beinist að Rússlandi. „Þetta hefur
ýtt undir Rússland að beina sjón-
um sínum að ESB og það má
greina að það sé að byrja að bera
árangur. Það er vonandi að bæði
ESB og Rússland dragi sinn lær-
dóm af Kosovo. Öll ESB-Iöndin
hafa fullan skilning á mikilvægi
Rússlands fyrir Evrópu. Rússar
hafa lagt sitt af mörkum í Kosovo
og það er mikilvæg viðmiðun í stað
þess að einblína aðeins á myrkari
öfl í Rússlandi."
Því er stundum fleygt að Rússar
eigi erindi í ESB. „Það er allt önnur
saga,“ segir Lipponen. „Hugtakið
„Evrópa" felur mikla meira í sér en
einvörðungu ESB.“
Utan hernaðarbandalaga,
en ekki hlutlausir
Skýr tilgangur að baki ESB-aðild
Finna á sínum tíma var öryggis-
þátturinn. Þó ESB sé ekki varnar-
bandalag þá mátu Finnar það sem
svo að með aðild treystu þeir frá-
hvarfið frá hinum stóra granna í
austri. „Það er í þágu finnskra
hagsmuna að varnarmáttur ESB
verði efldur eins og nú er verið að
gera með því að auðvelda ESB þátt-
töku í friðarvörslu og friðarskap-
andi aðgerðum. Það ferli er eins og
Finnar og Svíar óskuðu," segir
Lipponen og undirstrikar að landið
sé þegar með í friðarsamstarfi
NATO.
„Eftir leiðtogafund NATO í Was-
hington í vetur er öllum ljóst að
ESB stefnir ekki í að koma upp
Evrópuher í stað NATO, heldur er
aðeins verið að vinna hagkvæmt að
því að þróa varnarsamstarfíð. Það
er hættulegt að Evrópa geti ekki
brugðist við og að við séum svo háð-
ir Bandaríkjunum. Evrópa verður
að vera betur undirbúin en hingað
til. Hvað Kosovo varðar var þó eng-
inn vafi á að þar var þörf á tækni-
búnaði NATO og þátttöku Banda-
ríkjamanna."
„Nei, það er ekki í augsýn að
Finnar gerist aðilar að NATO,“ seg-
ir Lipponen af sannfæringarkrafti,
þegar sú spurning vaknar. „Ég hef
NATO-aðild alls ekki í huga. Finnar
eru ekki lengur hlutlausir, en við
stöndum utan hemaðai’bandalaga. í
því felst að við tökum ákvörðun upp
á eigin spýtur út frá okkar hags-
munum. Það hefur ekkert upp á sig
að vera að velta fyrir sér einhverri
sennilegiá tímasetningu fyrir hugs-
anlega finnska NATO-aðild.“
Ymsir hafa velt því fyrir sér hvort
það sé tilviljun að tveir evrópskir
sáttasemjarar í Bosníu og Kosovo,
þeir Martti Ahtisaari og Carl Bildt
koma báðir frá löndum, sem ekki
eru með í NATO. „Það er erfitt að
segja, en allir þættir hafa hér áhrif,
þegar Bandaríkin og Rússland
komu sér saman um Ahtisaari. Ma-
deleine Albright utanríkisráðherra
Bandaríkjanna benti á Ahtisaari og
þar hafa bæði staða Finna og per-
sónlegir hæfíleikar hans og reynsla
haft sitt að segja.“
Þeir stóru og litlu í ESB
Lipponen hefur augun mjög á
valdajafnvægi í ESB og hefur haft
á orði að stóru ESB-löndin hafi til-
hneigingu til að mynda nokkurs
konar æðstaráð þar. „Mótvægi við
þessi undirtök stóru landanna eru
sterkar stofnanir og jafnvægi milli
þeirra. Við þurfum sterka fram-
kvæmdastjóm í ESB til að gæta
fyllstu hlutlægni og hamla gegn til-
raunum stóra landanna til að
stjóma því hver fær hvað af hinu
sameiginlega ESB-borði.“
Fyrstu ummæli Italans Romano
Prodi eftir að hann vai’ útnefndur
næsti formaður framkvæmda-
stjómarinnar hnigu í áttina að
sterkri miðstjóm ESB og fóra fyrir
brjóstið á stjórnmálamönnum í
Danmörku og Svíþjóð. Prodi væri
alltof mikill sambandsríkjasinni.
Lipponen óttast þó ekki slíkar til-
hneigingai’. „Það er miklu betra að
hafa formann með skýrar Evrópu-
hugsjónir, því það er einmitt for-
maðurinn, sem á að halda hlut sín-
um og framkvæmdastjómarinnar
gegn stóru löndunum. Það er ekki
hættulegt að Prodi skuli hafa sam-
bandsríki í huga, heldur væri miklu
hættulegra ef hann hefði ekkert í
huga. Ég álít hagsmunum litlu land-
anna miklu betur borgið með meiri
samrana, ekki minni.“
Hér er greinilega efni á ferðinni,
sem Lipponen er hugstætt, því hon-
um hleypur kapp í kinn við þessar
umræður. Finnskir og norrænir
kjósendur virðast fæstir hafa þenn-
an skilning á gildi samruna fyrir
litlu löndin, heldur fremur óttast
hann. Lipponen tekur undir að það
sé erfitt að útskýra þetta fyrir kjós-
endum. I Finnlandi slái stjórnar-
andstaðan á strengi þjóðernis-
hyggju og kalda stríðsins.
„Ég hef verið ásakaður um að
knékrjúpa fyrir Kohl. Kommúnistar
hér reyna að flýja frá fortíð sinni
með því að líkja Brussel við Kreml
og segja að ég fari þangað með
betlistaf í hendi. ESB-umræðan hér
er eins og réttarhöld, þar sem menn
sitja undir ákæram ef þeir leggja
orð í belg.“
Sögulegt tækifæri glatast
„Finnsk ESB-aðild var rétt
ákvörðun á réttum tíma,“ segir for-
sætisráðherra með þunga. „Grund-
vallai-atriðið var að gera stöðu Finn-
lands eftir lok kalda stríðsins traust-
ari og styrkja efnahaginn. EMU-að-
ild bætir enn um hið síðara.“
Hið mikilvægasta í huga
Lipponens er þó greinilega að með
ESB-aðild getur Finnland haft áhrif.
„Með því að vinna hörðum höndum
getum við haft áhrif. Meiri samvinna
og tillit til sameiginlegra markmiða
er litlu löndunum styrkur."
Enn grípur hann til betlistafs-
hugtaksins. „Stjómarandstaðan
segir að við fóram til Brassel með
betlistaf í hendi eða til að taka á
móti skipunum. Þetta er hvort
tveggja gamaldags hugmynd. Við
eram með við borðið og áhrif okkar
þar eru miklu meiri en íbúatalan
gefur til kynna.“
Neikvæð kynni Finna af ESB fel-
ast í skrifræðinu að mati Lipponens.
Það hafa komið upp vandræði, því
Finnar hafa ekki haft kunnáttu og
fólk til að taka á samskiptunum við
Brussel og því misst af peningum,
sem þeim hafði þegar verið úthlutað.
„Þetta lærist, en það þýðir ekki að
koma til Brassel, halda að við séum
bestir og ætla að breyta öllu eins og
okkur finnst að hlutimir eigi að
vera, heldur verður að bera virðingu
fyrir því að aðrir vilja hafa hlutina
öðruvísi."
Lipponen nefnir engin nöfn, en
það er erfitt að verjast þeirri hugs-
un að þetta sé sneið til Svía, sem
hafa ekki sérlega gott orð á sér í
Brassel, andstætt Finnum.
Lipponen segist ekki vita hvers
vegna Finnar hafi fengið á sig gott
orð, „kannski af því við skiljum
þýðingu þess sem er sameiginlegt
og þýðingu samruna. Við getum
búist við að fá eitthvað með því að
vísa til hagsmuna heildarinnar,
ekki með því að standa bara á því
fastara en fótunum að Finnar eigi
að fá þetta og hitt.“
Það er einmitt þessi hugsunar-
háttur, sem Finnar ætla að starfa
eftir næstu sex mánuðina. En
Lipponen hefði gjarnan viljað hafa
fleiri norræna bandamenn í ESB.
,;Við getum auðvitað unnið ásamt
Islendingum og Norðmönnum á
ýmsum sviðum, til dæmis í Aust-
ursjávarráðinu, Barentsráðinu og
Heimskautsráðinu. Hvert land
verður auðvitað að taka sína
ákvörðun á sínum forsendum, en
fram að næstu stækkun hefðu
Norðurlöndin haft sögulegt tæki-
færi til að hafa áhrif á þróun mála í
ESB.“
Kaþólska kirkjan í
Þýskalandi
Fer að tilmæl-
um páfa varð-
andi fóstur-
eyðingar
Bonn. Reuters, AFP.
KAÞÓLSKA kirkjan í Þýska-
landi tOkynnti í vikunni að hún
myndi fara að tilmælum Jó-
hannesar Páls páfa um að
hætta að gefa út gOd vottorð
um að konur, er hyggjast
gangast undir fóstureyðingu,
hafi leitað sér ráðgjafar.
Fóstureyðingar era því að-
eins leyfðar í Þýskalandi að
konur geti framvísað vottorði
um að þær hafi leitað sér ráð-
gjafar, og era því starfræktar
1.690 ráðgjafarstöðvai’ um
fóstureyðingar í landinu. Kaþ-
ólska kirkjan rekur 270 þeirra,
og hefur eins og hinar gefið út
umrædd vottorð. I nýlegu bréfi
páfa til biskupa kaþólsku kirkj-
unnar í Þýskalandi fer hann
hins vegar fram á að vottorðin
hafi ekki lengur lagagOdi, þótt
ráðgjöf verði áfram veitt.
Forseti kaþólsku kirkju-
deildarinnar í Þýskalandi, Karl
Lehmann, sagði að kirkjan
myndi áfram veita ráðgjöf og
gefa út vottorð, en að breyting-
ar yrðu gerðar á textanum, á
þann veg að tekið væri fram að
ekki væri unnt að framvísa
vottorðunum tO að fá leyfi fyrir
fóstureyðingu.
Tvíræð staða
gagnvart lögum
Christine Bergmann, ráð-
herra fjölskyldumála, harmaði
ákvörðun kaþólsku kirkjunnar,
enda hefðu biskupamir ekki
komist að skýrri niðurstöðu
um hvort kirkjan tæki þátt í
ráðgjafarstarfsemi hins opin-
bera eða ekki. Það orkaði tví-
mælis gagnvart lögum og yki á
sálarangist kvenna, sem þegar
stæðu frammi fyrir erfiðu vali.
Gagnrýni á ákvörðun kirkj-
unnar hefur einnig heyrst úr
annarri átt, úr röðum trúaðra
og andstæðinga fóstureyðinga.
Telja þeir að breytingin muni
leiða tO þess að kaþólskar kon-
ur, sem standa frammi fyrir
ákvörðun um fóstureyðingu,
muni nú í auknum mæli leita
ráðgjafar annars staðar en hjá
ráðgjafarstöðvum kaþólsku
kirkjunnar, sem líta á það sem
hlutverk sitt að sannfæra kon-
ur um að eiga börnin sem þær
bera undir belti.
RílFTfEK»RZLUN ÍSLflNDS Ff
- ANNO 1929-
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776