Morgunblaðið - 27.06.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 23
Fundinum lauk eins og hann
hófst, í ósætti. Stefna í máli Herdís-
ar Erlendsdóttur gegn landbúnað-
arráðuneytinu og Vatnsleysu-
strandarhreppi var birt ráðuneyt-
inu föstudaginn 6. nóvember og
sveitarfélaginu sunnudaginn 8. nóv-
ember 1998. Þann sama sunnudag
hélt Ingibjörg systir Herdísar, sem
búsett er í Reykjavík, upp á 83 ára
afmæli sitt. Herdís gekk því vel frá
heimili sínu á Kálfatjörn, með að-
stoð ættingja sinna og hélt til af-
mælisveislu. „Hún fór alltaf minnst
tvisvar sinnum yfir alla glugga og
hurðir til að ganga úr skugga um að
allt væri kyrfilega lokað. Þessi
sunnudagur var engin undantekn-
ing,“ segir Linda Rós. „Ég hef oft
furðað mig á eldhræðslu Kálftim-
inga. Þar var alltaf farið margoft yf-
ir eldavél og önnur tæki fyrir svefn-
inn og þegar húsið var yfirgefíð."
Eldur á Kálfatjörn
Aðfaranótt mánudagsins 9. nóv-
ember hringdi Ingibjörg til Lindu
Rósar og sagði henni að Kálfatjörn
brynni. „Nágranni okkar hafði
hringt í Ingibjörgu og látið hana
vita. Slökkviliðið var þá komið á
staðinn."
Linda Rós fór suður á Vatns-
leysuströnd ásamt Herdísi, en
fyrstu viðbrögð Herdísar þegar hún
frétti að kviknað væri í húsinu voru
að biðja um að slökkviliðið hleypti
hundinum út, en hann var lokaður
inni í kjallara hússins. „Þegar við
komum á staðinn sáum við að kirkj-
an var ekki í neinni hættu, sem
skipti okkur miklu. Við höfðum hins
vegar miklar áhyggjur af verðmætu
bókasafni á Kálfatjörn, dagbókum
Erlendar Magnússonar og ýmsum
bréfum, þar á meðal Ijóðabréfi
Fjölnismannsins Gísla Konráðsson-
ar til Jóns Þorkelssonar, afa Er-
lendar, frá árinu 1850.“
Slökkvistarfið gekk ágætlega og
rannsóknarlögreglan í Keflavík
kom á staðinn. „Sú sem fyrst hafði
orðið vör við eldinn hringdi á
slökkviliðið og ók svo að Kálfatjöm.
Þar tók hundurinn á móti henni úti
á hlaði. Hann var ekki sótugur og
alveg ósár. Konan óttaðist að Her-
dís væri heima og kallaði inn um
glugga á jarðhæð, sem af einhverj-
um ástæðum var opinn, þótt útilok-
að sé að þannig hafi verið skilið við
hann. Konunni var mjög bmgðið, af
því að eldurinn gaus svo snögglega
upp og varð strax svo mikill."
Linda Rós segir að fjölskyldan
hafi verið mjög miður sín þegar hún
fylgdist með húsinu brenna og sjálf
hafi hún gert grundvallarmistök í
samskiptum sínum við lögreglu.
„Einhver nefndi við mig að við gæt-
um fengið hjálparsveitarmenn úr
nágrenninu til að hreinsa rústirnar.
Herdís fóstra mín tók það ekki í
mál. Hún sagði að nóg hefði gengið
á og nú þyrftu óháðir aðilar að
rannsaka bmnann til hlítar, svo
enginn heimamaður lægi undir
gmn. Ég sagði lögreglunni að við
yrðum að fá óháða aðila að málinu,
því tilviljanir í því væra óhugnan-
legar. Það kom hins vegar síðar í
ljós að rannsóknarlögreglan í
Keflavík oftúlkaði orð mín.“
Linda Rós ók Herdísi til Reykja-
víkur og fór svo aftur á bmnastað.
Þá hafði tekist að ráða niðurlögum
eldsins og í ljós kom að margir
munir voru heillegir og sumir
óskemmdfr með öllu. „Skápar vora
sviðnir að framan, en hægt var að
bjarga ýmsu, ef ekki öllu, í þeim.
Slökkvilið og lögreglan vildu hins
vegar ekki leyfa okkur að fjarlægja
muni úr húsinu, sem eðlilegt var,
því enn átti eftir að rannsaka elds-
upptök. Friðrik fósturbróðir minn
fékk að vísu að fara upp í svefnher-
bergi Herdísar og taka þaðan tösku
með lyfjum og körfu með hannyrð-
um og einn slökkviiiðsmannanna
rétti mér bækur, sem sást í inn um
gat á vegg. Annað tókum við ekki.“
Allir stoðveggir hússins stóðu
uppi og Linda Rós vísaði því á bug
að ástæða væri til að ryðja rústun-
um á brott strax. „Á mánudeginum
kom aftur upp eldur, en slökkviliðið
var fljótt að slökkva hann. Ég var
hins vegar ekld í rónni og lagði
mikla áherslu á að vakt væri höfð
við húsið aðfaranótt þriðjudags.
Slökkviliðið vísaði á rannsóknarlög-
regluna, sem hefði eftirlit með vett-
vangi, kallaði til tryggingarfélag og
fleira í þeim dúr.“
Full ásökunar
Snemma þriðjudagsmorguns var
hringt í Lindu Rós og henni sagt að
Kálatjörn brynni öðra sinni. Sama
vitni sá húsið brenna þessa nótt.
„Hún sagði að hvellkviknað hefði í
húsinu stafna á rnilli," segir Linda
Rós.
Slökkviliðið slökkti yfirborðseld
og veggir hússins vora rifnir með
vinnuvélum. Mokað var úr rústun-
um í gáma, sem fjölskyldan fór svo
í gegnum með hrífum, til að leita
heillegra hluta.
„Þetta var skelfilegt og við get-
um ekki annað en verið full ásökun-
ar. Eftir fyrri branann vora margir
hlutir heilir og við ætluðum að
koma á þriðjudeginum og fá að
fjarlægja þá. Við hefðum aldrei far-
ið frá húsinu nema af því að við vor-
um sannfærð um að það yrði
vaktað."
Tilviljanirnar vora of margar, að
mati fjölskyldunnar. Lögreglan
taldi að hundurinn hefði brotið sér
leið út um kjallaraglugga. „Hann
hefði fyrst þurft að stökkva upp á
syllu í 150 sm hæð, ná þar spymu á
hálu gleri og brjóta sér leið út um
rúðu. En hundurinn var ósár,“ seg-
ir Linda Rós.
Hún segir að tveir svartklæddir
menn hafi verið á vappi nálægt
Kálfatjörn um það leyti sem fjöl-
skyldan fór þaðan á sunnudag.
„Vitni sagði okkur að hann myndi
án efa þekkja annan þeirra aftur.
Við skiluðum þessu til lögreglunn-
ar, en hún hafði aldrei samband við
þetta vitni.“
Linda Rós segir að lögreglan hafi
talið íklegast að kviknað hafi í út
frá rafmagni í fyrra skiptið og vind-
ur blásið lífi í glæðurnar í síðara
skiptið. „Raflagnir voru hins vegar
allar nýjar og rafmagnstafla húss-
ins ekki orðin eins árs. Ef kviknaði
í út frá rafmagni hefði ný raf-
magnstaflan átt að slá út, en þegar
leifar hennar fundust í branarúst-
unum kom í ljós að það hafði ekki
gerst. Hvernig kviknaði þá í?“ spyr
Linda Rós.
Hún bendir einnig á að slökkvi-
liðið hafi sagt útidyrahurðina
ólæsta þegar að var komið. „Þegar
lásinn fannst í brunarústunum kom
í Ijós að hann var í opinni stöðu, en
útilokað er að við höfum skilið
hurðina eftir ólæsta. Glerið í úti-
dyrahurðinni var brotið, en ekki er
hægt að segja til um hvort það var
brotið utan frá, eða hvort það
sprakk út vegna hitans inni. Ekki
var rannsakað hvor möguleikinn
væri líklegri.“
Rannsóknarlögreglan hirti ekki
um að taka sýnishorn af öskunni til
að láta rannsaka hvort í henni fynd-
ust leifar eldfimra efna, til dæmis
bensíns, að sögn Lindu Rósar.
Kálftfrningar eiga sjálfir ösku í
krukku og vilja að hún verði rann-
sökuð. „Lögreglan segir að leiða
megi líkur að því að kviknað hafi í
út frá perastæði í kjallara. Það má
þá allt eins leiða líkur að því að svo
hafi ekki verið. Þessi niðurstaða er
óviðunandi."
Réttmæt krafa
um rannsókn
Á mánudeginum, áður en húsið
brann í síðara skiptið, hringdi kona
á heimili Ingibjargar Erlendsdóttur
í Reykjavík og varð Linda Rós fyrir
svöram. Hún sagði konuna, sem
ekki sagði til nafns, hafa verið með
fúkyrðaflaum og alvarlegar hótanir.
„Ég hringdi til rannsóknarlögreglu
í Reykjavík og skýrði frá þessu. Þar
var mér sagt að vissulega væra
svona hótanir alvarlegar og ég ætti
að tala við rannsóknarlögregluna í
Keflavík, sem færi með rannsókn
málsins og gæti látið rekja símtalið.
Ég hringdi þangað og sagðist vilja
kæra atburðinn, en lögreglumaður-
inn sem varð fyrir svörum spurði
mig: „Til hvers?“ Ég sagði honum
að mér og mínum hefði verið hótað
öllu illu og hann sagði að við gætum
sjálfum okkur um kennt og vísaði til
þess að við hefðum sakað embættis-
menn og aðra um að bera ábyrgð á
brananum. Þá áttaði ég mig á þeim
mistökum sem ég hafði gert í sam-
skiptum við lögregluna um nóttina,
en ítrekaði að ég vildi hlutlausa
rannsókn. Þetta mál fór þannig, að
eftir að ég talaði við sýslumann var
viðkomandi rannsóknarlögreglu-
maður látinn hætta vinnu við rann-
sóknina. Allt tók þetta hins vegar
svo langan tíma, að lögreglan taldi
ekki hægt að rekja símtalið."
Linda Rós segir að fjölskyldunni
finnist það réttmæt krafa að málið
verði rannsakað, svo hún geti losn-
að undan áleitnum vangaveltum.
„Við höfum aldrei fullyrt að ein-
hverjir heimamenn eigi hlut að
máli. Hér á landi era til veikir
menn, brennuvargar. Það getur líka
verið að kveikt hafí verið í eftir inn-
brot, því við höfum hvorki fundið
tangur né tetur af silfurborðbúnaði,
bökkum úr silfri og stáli, kerta-
stjökum og járnkofforti, svo dæmi
séu nefnd.“
Linda Rós segir að fjölskyldan
hafi beðið niðurstöðu rannsóknar á
eldsupptökum á Kálfatjörn í marg-
ar vikur. „Það var ekki fyrr en við
höfðum aftur samband við sýslu-
manninn sem við fengum skýrsluna
senda. Ég fór að beiðni fóstra minn-
ar með þessar niðurstöður til emb-
ættis ríkissaksóknara og óskaði
rannsóknar á vinnubrögðum lög-
reglunnar, en ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort málið verður
sent ríldslögreglustjóra." Eftir að
húsið brann reyndi ráðuneytið enn
að losa sig undan leigusamningi við
Herdísi, að sögn Lindu Rósar, nú
með því að endurgreiða henni leig-
una fyrir jörðina aftur í tímann.
„Herdís fékk tilkynningu um þessa
endurgreiðslu, en sinnti henni ekki.
Mér fannst þessi framkoma fyrir
neðan allar hellur og eins þótti mér
sérkennilegt að Herdís fékk bréf
frá byggingarfulltrúa Vatnsleysu-
strandarhrepps, sem dagsett er 23.
nóvember, eða hálfum mánuði eftir
branann, þar sem gerðar vora ýms-
ar athugasemdir. Ein var sú, að
þann 20. nóvember hefði enn staðið
opinn raslagámur á hlaðinu, rétt við
kirkjugarðshliðið, en hið rétta er að
þá var búið að fjarlægja gáminn.
Byggingafulltrúinn gerði líka at-
hugasemd við gám, sem við notuð-
um sem vinnuaðstöðu og sagði að
sækja þyrfti um stöðuleyfi til bygg-
ingamefndar. Það gerðum við, en
fengum ekki leyfi nema til 1. apríl
sl., þegar frost var ekki farið úr
jörðu og útilokað að við gætum haf-
ið framkvæmdir við nýtt hús. Þarna
fannst mér farið offari."
Umræddur gámur stendur enn á
hlaði Kálfatjarnar.
I apríl sáu heimamenn á Kálfa-
tjörn að búið var að setja upp stikur
í túninu og afmarka þannig golf-
brautir. „Það var greinilegt á blautu
túninu að þar hafði dráttarvél farið
yfir. Þarna höfðu verið markaðar
golfbrautir samkvæmt upphaflegri
teikningu af golfvelli, sem Guð-
mundur Bjarnason hafði hafnað á
sínum tíma. Lögfræðingur okkar
sagði okkur að fjarlægja stikurnar,
setja þær í geymslu og sjá hver
spyrði eftir þeim. Hann sagði ljóst,
að ekki mætti ráðast í neinar fram-
kvæmdir á jörðinni á meðan dóms-
málið, sem Herdís höfðaði til að fá
erfðaábúð á jörðinni, væri rekið."
Merkar minjar
Linda Rós segist hafa leitað til
ýmissa aðila, sem hafi verndun
minja á sinni könnu. Kirkjan á
Kálfatjöm sé friðuð og meðfram
ströndinni allri séu bátalægi og leif-
ar sjóbúða, auk hlaðna grjótgarðs-
ins í kringum kirkjutúnið. Þá sé
tjörnin sjálf friðuð og þarna sé að
finna elsta, hlaðna brann landsins
þar sem sjávarfalla gæti. „I landi
Fjósakots era hlaðnfr garðar horfn-
ir, eftir að golfklúbburinn tók við
jörðinni. Ég hef rætt þetta mál við
umhverfisráðuneytið, Náttúra-
vemdarráð og þjóðminjavörð.
Þarna era fornar mannvistarleifar
við hvert fótmál. Kirkjan er yfir 100
ára, sem og allir hlaðnir veggir,
hlaðan og hesthúsið."
I bréfi, sem Þór Magnússon
þjóðminjavörður ritaði landbúnað-
arráðuneytinu í nóvember sl. er
bent á margt forna mannvirkja á
jörð Kálfatjarnar, sem séu friðuð
aldurs síns vegna samkvæmt þjóð-
minjalögum. „Verði hugsað til ein-
hvers konar nýrrar mannvirkja-
gerðar á svæðinu, eða útfærslu
þess golfvallar sem nú er, er óhjá-
kvæmilegt að gera fornleifakönnun
á jörðinni, bæði i heimildarskyni og
eins til að hægt verði að sjá hvernig
fara eigi með þær fornleifar, sem
kynnu að verða í hættu þess vegna.
Skal minnt á að þar sem skipulags-
vinna er framkvæmd er lögskylt að
gera fomleifakönnun," segir þjóð-
minjavörður, sem bendir einnig á
að mjög brýnt sé að rúmt friðland
sé umhverfis hina friðuðu kirkju á
Kálfatjörn, ekki síst þar sem búast
megi við að hún verði í enn frekara
mæli „ferðamannakirkja" í framtíð-
inni.
Linda Rós segir Erlend Magnús-
son hafa lagt alla áherslu á að
vernda mannvirki forfeðranna.
„Eldra fólk á Ströndinni man þá
miklu vinnu sem Erlendur leysti af
hendi í þágu Kálfatjarnar og sveit-
arfélagsins. Núna ásælast golfarar
jörðina af því að Erlendur sléttaði
kargaþýfið og ræktaði upp túnin.“
Fjölskyldan hefur pantað nýtt
hús í stað þess sem brann. „Við
buðum sóknarnefndinni að fá að-
stöðu fyrir kirkjuna í hluta hússins,
en nefndin hafnaði boðinu og vill
byggja skála við kirkjuna."
Framtíðarsýn Kálftirninga er að
Kálfatjörn verði fræðslu- og menn-
ingarsetur. „Friðrik fósturbróðir
minn hafði alltaf í huga að gera litla
íbúð í gamla húsinu, þar sem fræði-
menn gætu dvalist. Slíkt væri
Kálfatjörn og sögu jarðarinnar
samboðið."
Stjörnu-
merkin
22x22 sm,
krosssaumur á
dökkbláan java,
5,4 spor á sm.
Aður kr. 1.487
nú kr. 1.190
<The
Craft CoCCection
Hamraborg 7, Kópavogi, sfmi/fax 564 4131.
Póstlistinn kostar 400 kr. sem
endurgreiðist við fyrstu pöntun.
Póstkrafa, Visa/Euro.
EFTIR brunann aðfaranótt mánudagsins 9. nóvember í fyrra stóð hús-
ið á Kálfatjörn enn og margt var heillegt innan dyra. Næstu nótt
brann það til kaldra kola.