Morgunblaðið - 27.06.1999, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1999 37**
I
i
■
1
4
skipta skapi, hún var í raesta lagi al-
vörugefín ef illa gekk. Þessi kona,
sem farið hafði á mis við svo margt
vegna fötlunar og heilsuleysis, var
svo ótrúlega veraldarvön og vitur.
Margir leituðu hjá henni skjóls og
ráða ef eitthvað bjátaði á og fengu
alltaf sömu móttökumar: hlýju,
kyrrð og ró sem er það besta meðal
sem fáanlegt er við erfiðleikum lífs-
ins. Hún var alltaf á sínum stað, á
Eyrarlandi, það vissum við öll. Ingi-
björg hafði skoðanir á öllu, bæði í
mannlífí og þjóðlífi og lét þær í ljós
á jákvæðan hátt því hún vildi ekki
særa sitt fólk ef málið skipti það.
Viija og venjur hafði hún. Engum
datt í hug að gera þvert á vilja
hennar, ef hún vildi eitthvað, þá var
tekið fullt tillit til þess. Mömmu
langar til, Ingibjörg bað um, sagði
fólkið hennar, og þá var sjálfsagt að
það yrði þannig, ekki af ótta við óá-
nægju með annað, heldur af virð-
ingu fyrir henni og hennar óskum,
þær voru heldur ekki svo margar.
Oft gat maður ekki annað en brosað
þegar Jói, þessi hávaðasami ákafa-
maður, sem er þó umfram allt
hjartahlýr og góður við okkur öll,
lét móðan mása, svo henni þótti nóg
um. Þá þurfti ekki annað en hún
kæmi við öxlina á honum og segði
jafnvel ekki neitt; þá var eins og
hann hefði fengið róandi, slík áhrif
koma ekki frá öllum, en svona var
Ingibjörg.
Síðustu tvö árin var hún mikið á
sjúkrahúsinu, því miður lítið ánægð
og siðasta mánuðinn í Kristnesi enn
minna ánægð. Hugurinn var heima
og þar var fólkið hennar og allt það
sem hún unni og hafði alltaf verið
við. Eftir að hún er farin þaðan al-
farin verður hennar sárt saknað af
okkur öllum sem þangað koma hér
eftir sem hingað til. Hún var að vísu
sjaldan heima í seinni tíð en kom
þegar hún gat, svo það gat verið að
við hittum hana þegar við komum í
Eyrarland, en hér eftir verður hún
okkur ekki sýnileg við borðið né
annars staðar á sínu kæra heimili.
Þakklæti okkar til hennar að lokinni
samveru er óendanlegt fyrir allar
góðu stundimar og ástríkið í okkar
garð, þegar við komum og þegar við
fórum aftur.
Megi góður Guð vera með henni
og hennar fólki. Blessuð sé minning
hennar.
Sólveig Adamsdóttir.
það samstarf leikfélaganna á Aust-
urlandi meðan það entist. í forystu
hjá Bandalagi íslenzkra leikfélaga
var Magnús um allnokkurt skeið
og af því valinn í Leiklistarráð rík-
isins, þar var hann virkur og vel
metinn svo ekki þótti þar vel ráðið
ráðum nema Magnús fengi þar
lagt sitt til mála. Hann leikstýrði
áhugaleikurum vítt um land, leik-
stjóm hans var vönduð og áherzl-
an lögð á að koma öllu sem skýr-
ast til skila og hélzt í hendur við
alúðina í listrænni sköpun sem
beztri hjá hverjum og einum.
Leikari var hann af himinsins náð
og hefði náð þar langt sem víðar.
Síðast bar fundum okkar Magnús-
ar saman 1. maí fyrir nokkmm ár-
um í Neskaupstað, hans kæm
heimabyggð.
Glöggt man ég hversu það gladdi
hjarta mitt, er Magnús þakkaði
mér einkar vel fyrir mál, stíl og
flutning, sönnun þess að þokkalega
hefði til tekizt, því Magnús fór
sparlega með orð en meinti það
sem hann sagði. Magnús var
auðnumaður í lífinu og sá margan
mætan ávöxt vænna verka sinna.
Gifta hans ekki síðri í einkalífinu,
átti einstaklega vel gjörðan lífs-
fömnaut í henni Guðrúnu og böm
þeirra góðum kostum búin.
Langt gæti mál mitt orðið ef
þeirri minningamergð sem á hug-
ann sækir væm gjörð góð skil, en
ljósbrot ein látin nægja, enda hóg-
værð hjartans slík hjá Magnúsi að
lítt mundi honum hafa lofið hugn-
ast þótt verðskuldað væri. Hlýjar
samúðarkveðjur era sendar börn-
um hans og ástvinum öðrum.
Far heill félagi og vinur á vit
hins óræða. Þér fylgir hlý þökk
fyrir marga góða og gjöfula stund.
Helgi Seljan.
Móðir mín, + GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR,
Bjarkargötu 4,
Reykjavík,
er látin. Jódís Dagný Vilhjálmsdóttir.
t
Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn,
BENEDIKTA ÓLAFSDÓTTIR,
Dvergaborgum 5,
lést á Líknardeild Landspítalans laugardaginn
19. júní.
Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn
28. júní kl. 13.30.
Ólafur Benediktsson, Móeiður Jónsdóttir,
Jón Ingi Ólafsson,
Kristín Ósk Ólafsdóttir,
Óli Ben Ólafsson,
Ingigerður Eiríksdóttir, Jón Ingvarsson.
+
GEORGE L. SVEINSSON,
Seattle,
Washington,
lést laugardaginn 12. júní.
Systurdætur.
+
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
sonur og afi,
SÆMUNDUR R. ÓLAFSSON,
Vesturbergi 78,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 30. júní kl. 13.30.
Margrét Rögnvaldsdóttir,
Magnús Sæmundsson,
Ólafur Sæmundsson,
Lára Sæmundsdóttir,
Þórlaug Sæmundsdóttir,
Lára Sæmundsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
dóttir, systir og mágkona,
RAGNA ÞÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR,
Hálsaseli 38,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar-
daginn 19. júní, verður jarðsungin frá Selja-
kirkju þriðjudaginn 29. júní kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á heimaþjónustu Karítasar og
Krabbameinsfélag íslands.
Jón S. Guðmundsson,
Guðrún Jónsdóttir, Helga Kristín Jónsdóttir,
Ingveldur Gísladóttir,
Kristín S. Kvaran, Einar B. Kvaran.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HAUKUR PÉTURSSON
byggingameistari,
Byggðarenda 18,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 29. júní kl. 13.30.
Ásta Guðmundsdóttir,
Harpa Hauksdóttir, Þröstur Guðmundsson,
Kolbrún Hauksdóttir, Gylfi Gunnarsson,
Bjarni Þrastarson,
Haukur Gylfason.
+
Hjartans þakkir fyrir vinsemd og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HALLDÓRU GUÐRÍÐAR
KRISTLEIFSDÓTTUR
frá Rifi,
Snæfellsnesi,
er lést þriðjudaginn 8. júní á Hrafnistu í
Laugarási.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks á Hrafnistu fyrir góða og
alúðlega umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Ester Friðþjófsdóttir, Magnús Guðmundsson,
Sævar Friðþjófsson, Helga Hermannsdóttir,
Svanheiður Friðþjófsdóttir,
Kristinn Jón Friðþjófsson, Þorbjörg Alexandersdóttir,
Sæmundur Kristjánsson, Auður Grímsdóttir,
Hafsteinn Björnsson, Steinunn Júlíusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
HJÖRDÍSAR JÓNSDÓTTUR,
Laufengi 25,
Reykjavík.
Þóroddur Elmar Jónsson,
Þórunn Þrastardóttir,
Þórbergur fsak Þóroddsson,
Sólveig Sjöfn Helgadóttir, Jón Sören Jónsson,
Ásta Þórey Ragnarsdóttir,
Jón Þóroddsson,
Bryndís, Svandís og Valdís Jónsdætur,
Fanný Guðmundsdóttir,
Jón Björn Benjamínsson,
Helgi Helgason.
+
Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
GUÐRÚNAR R. BENJAMÍNSDÓTTUR,
Hrafnhólum 6.
Jörgen Pétursson,
Einar Þ. Guðmundsson, Elva Björk Sveinsdóttir,
Lára Ósk Óskarsdóttir,
Sólrún Jörgensdóttir,
Pálína Jörgensdóttir,
Finnbogi Jörgensson,
Lára Loftsdóttir,
Benjamín Magnús Óskarsson,
Jörgen Pétur Jörgensson,
Tómas Ingi Tómasson,
Bylgja Dögg Ólafsdóttir,
Benjamín Sigurðsson,
Pálfríður Benjamínsdóttir, Sóley B. Frederiksen
og barnaböm.
+
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS HJALTALÍNS GRÍMSSONAR
vélstjóra,
áður til heimilis
á Framnesvegi 50,
Reykjavík.
Kolbrún Ema Jónsdóttir,
Valgerður Jónsdóttir, Óli Ingvarsson,
Jón Hjaltalín Jónsson, Helga Ólafsdóttir,
Karl Jónsson, Ásta Skaftadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
r
Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug vegna andláts og jarðarfarar
SVERRIS TRYGGVASONAR,
Víðihlfð,
Mývatnssveit.
Guð fylgi ykkur.
*
Hólmfríður Pétursdóttir,
Héðinn Sverrisson,
Sigrún Sverrisdóttir, Friðrik Lange Jóhannesson,
Kristín Þ. Sverrisdóttir,Daníel Sigmundsson,
Gísli Sverrisson, Lilja Sigríður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.