Morgunblaðið - 14.07.1999, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
jÚov£uinliIníiií>
úrVERINU
► I Verinu í dag er sagt frá mikilli aukningu fisksölu á
fiskmarkaðnum í Bremerhaven og líkum á því að afli ut-
an landhelgi verði meiri á þessu ári en því næsta. Loks
er sagt frá því að fyrirhugað er að nota tölvureikni til
úthlutunar á byggðakvótanum.
FRÉTTIR
Landsvirkjun skrifar rafveitum og stóriðjufyrirtækjum
Varað við skerðingu
og verðhækkunum
LANDSVIRKJUN hefur varað við-
skiptavini sína, stóriðjufyrirtæki og
rafveitur, við því að þar sem veður-
far í sumar hafi ekki verið hagstætt
fyrir vatnsbúskap fyrirtækisins séu
ekki miklar líkur á að miðlunarlón
fyllist í haust. Því gæti komið til
verðhækkana í þrepum og skerð-
ingar á afhendingu á ótryggu raf-
magni og afgangsorku.
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
að ákveðið hafi verið að senda þessa
viðvörun til þeirra sex rafveitna og
fjögurra stóriðjufyrirtækja sem
kaupa rafmagn af Landsvirkjun.
Þurfi að koma til skerðingar verða
fyrirtækin að fá mánaðarfyrirvara
og því segir Þorsteinn að ákveða
þurfi um næstu mánaðamót hvort
til skerðingar komi frá 1. septem-
ber. Um það sé ekkert hægt að
segja á þessari stundu. Rétt hafi
þótt að upplýsa umrædda viðskipta-
vini um ástand mála og var það gert
með bréfi síðastliðinn föstudag.
Vatnsforðinn í lónum Landsvirkjun-
ar er svipaður og á sama tíma í
fyrra en Þorsteinn segir stöðuna
geta breyst eftir veðurfari næstu
vikurnar.
Skerðing síðla árs í fyrra
Stóriðjufyrirtækin sem fengu
bréf Landsvirkjunar eru Aburðar-
verksmiðjan, ISAL, Islenska járn-
blendifélagið og Norðurál. Á síðasta
ári kom til skerðingar seint á árinu
og varð að draga úr framleiðslu hjá
járnblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga og álveri ISAL í Straums-
vík. Skerðing hafði verið boðuð á
tímabilinu 1. september til áramóta
en ekki kom til hennar fyrr en í lok
nóvember enda hafði vatnsbúskap-
ur þá lagast. Mikill hluti orkukaupa
Islenska járnblendifélagsins var af-
gangsorka en kaup ISAL á af-
gangsorku voru um 10%. Nýir
samningar við Jámblendifélagið
tóku gildi 1. aprfl á þessu ári og
þrengja þeir nokkuð möguleika
Landsvirkjunar á orkuskerðingu.
Áður en kom til skerðingarinnar í
fyrra hafði Landsvirkjun ekki skert
sölu á afgangsorku síðan á árunum
1979 til 1981.
Morgunblaðið/Ásdís
Landssíminn leggur
ljósleiðara til Eyja
HAFNAR eru framkvæmdir við
lagningu ljósleiðara milli lands og
Eyja. Verkið er unnið á vegum
Landssíma Islands hf. og kemur
ljósleiðarinn í stað núverandi ör-
bylgjusambands milli Cantat III-
sæstrengsins, sem kemur á land í
Heimaey, og Landssímans á Hvols-
velli.
Með Ijósleiðara í stað örbylgju-
sambandsins verður bæði hægt að
auka afköst og öryggi að sögn Olafs
Stephensen, forstöðumanns upplýs-
inga- og kynningarmála hjá Lands-
símanum. Cantat III er aðalteng-
ing Islands við umheiminn og segir
Verður lagður
meðfram vatns-
leiðslunni
Ólafur að með vaxandi nýtingu á
þessum hlut Landssímans í sæ-
strengnum sé nauðsynlegt að
tryggja betur þessa flutningsleið til
og frá landinu. Um strenginn fara
almenn mfllflandasímtöl, gagna-
flutningar og netsambandið og seg-
ir Ólafur ekki síst mikla aukningu í
því. Byrjað er að leggja um 20 km
jarðstreng milli Hvolsvallar og
Landeyjasands og unnið er að
rannsóknum á hafsbotni þar sem
strengurinn mun liggja milli lands
og Vestmannaeyja. Hann á að
liggja meðfram vatnsleiðslunni,
verður um 12 km langur, en lagn-
ing sæstrengsins hefst í næsta
mánuði og lýkur einnig þá.
Ólafur segir ljósleiðaralagning-
una kosta nokkra tugi mflljóna og
er þetta stærsta einstaka verkefni
Landssímans á þessu sviði í sumar.
Önnur ljósleiðaraverkefni í ár eru í
Borgarfirði, á nokkrum stöðum á
Snæfellsnesi, á Vestfjörðum svo og
í Reykjavík.
Víkingsstúlkur
ekki með í
Evrópukeppninni
B1
Þórður Guðjóns-
son verður
áfram hjá Genk
Sophia Hansen hitti dætur sínar
öðru sinni í Divrigi í gær
Andlitsblæj-
urnar hindra
framhaldsnám
„ÞETTA var yndis-
legur dagur,“ sagði
Sophia Hansen eftir
að hafa eytt fjórum
klukkustundum
með dætrunum,
þeim Rúnu og Dag-
björtu, annan dag-
inn í röð í tyrkneska
fjallaþorpinu Di-
vrigi í gær. Stúlk-
umar hafa lokið við
menntaskóla og
sagði Sophia að
óvíst væri um fram-
haldsnám, þar sem
þær neita að taka
niður andlits-
blæjurnar.
„Við áttum góðan dag saman,“
sagði Sophia. „Við fengum að
vera í friði allan tímann og ég
var mjög fegin því. Við ræddum
ýmis mál og létum tflfinningar
okkar í ljós og kom þá ýmislegt
fram sem ég hef verið að velta
vöngum yfir og fékk loks svör
við en ég get ekki talað neitt
frekar um núna.“ Sophia mun
dvelja áfram í þorpinu ásamt
tyrkneskum lögfræðingi sínum
og sagði hún að þær Rúna og
Dagbjört væru mjög ánægðar
með að geta rætt tflfinningar
sínar en hvorug þeirra hefur tal-
að um að vilja koma tfl íslands.
Hafa fengið 10 /
öllum greinuni
Sophia sagðist ætla að hitta
þær aftur í dag á sama tíma
þegar þær hafa lokið við að
kenna yngri bömunum í þorpinu
Kóraninn. „Þær sögðust ætla að
færa mér eitthvað matarkyns
sem þær ætla sjálfar að útbúa
handa mér,“ sagði
hún. „Þær vfldu
ekki segja hvað það
væri því það á að
koma á óvart. Þær
sögðust vera búnar
að læra að elda og
baka og fullvissuðu
mig um að ég þyrfti
ekki að hafa
áhyggjur af því.
Þær eru búnar með
menntaskóla en svo
er ekki vitað hvern-
ig fer með háskóla-
nám því þær vflja
ekki taka niður
andlitsblæjurnar.
Það er í raun lítið
um að nemendur fái að halda
blæjunum í háskóla. Þær sögðu
að mér væri óhætt að trúa því að
þeim hefði gengið vel í lokapróf-
unum og að þær hefðu ekki
fengið eina eða tvær tíur heldur
tíu í öllum greinum. Ég veit ekki
hvað þær hafa verið að læra en
þær tala um almenna menntun
og ég vona að það sé rétt.“
Sophia sagði að háskólar neit-
uðu að taka við nemendum í síð-
um kuflum með andlitsblæjur af
ótta við að þar færu dulbúnir
hryðjuverkamenn auk þess sem
stefna stjórnvalda væri að fá
fólk til að hætta að hylja lík-
amann með þessum hætti.
Yfir 40 stiga hiti er í forsælu í
fjallaþorpinu og sagði Sophia að
hitinn og taugaspennan síðustu
daga hefðu leitt tfl þess að henni
var ómótt er líða tók á kvöldið.
„En annars fer vel um mig þar
sem ég er en ég treysti mér ekki
til að hitta neinn í kvöld,“ sagði
hún.
Sophia
Hansen
Nokkrir litlir
kippir í gær
MJÖG dró úr jarðskjálftum
við Kleifarvatn í fyrrinótt að
sögn Ragnars Stefánssonar,
jarðskjálftafræðings á Veður-
stofu Islands.
Upp úr klukkan 7 og til 7.30
í gærmorgun mældust nokkrh'
litlir skjálftar með upptök í
Holtum, nánar tiltekið um 11
km norður af Hellu eða 2-3 km
norður af Marteinstungu.
Stærstu skjálftarnir urðu
klukkan 7.03, þegar skjálfti
upp á 2.1 á Richter mældist,
og klukkan 7.18 þegar skjálfti
upp á 2.6 á Richter mældist.
IGukkan 14 og klukkan 18.03
mældust síðan tveir örlitlir
skjálftar.
Gráskinna
og Blíða
KÝRIN Gráskinna bar kálfi síðast-
liðinn sunnudag í Húsdýragarðin-
um og eignaðist myndarlega kvígu
sem er undan Guttormi, stærsta
nauti á íslandi. Hefur kvígan hlotið
nafnið Blíða. Athygli vekur að kálf-
urinn er fyrsta kvígan sem kemur
undan Guttormi, en hingað til hef-
ur hann einungis getið af sér naut.
Af Gráskinnu er það að segja að
hún er elsta kýrin í Húsdýragarð-
inum, átta vetra gömul. Júgurgerð
Gráskinnu vekur ávallt eftirtekt
vegna spenastærðar, en ástæðan er
sú að nýbomir kálfar hennar fá að
ganga undir henni, ásamt kálfum
sem hún tekur í fóstur. Gráskinna
er ennfremur sárasjaldan mjólkuð.
Blíða braggast vel eins og sjá má á
myndinni af henni og Gráskinnu
sem tekin var í gær.
í dag
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4StoUR
4StoNt